Árni Björn og Guðrún Ósk

Taboo hlaðvarp

Society EN ↓ 34 episodes

Taboo er hlaðvarp þar sem við, Árni og Guðrún, köfum djúpt í málefni sem oft eru sögð ”ekki við hæfi” - eins og kynlíf, nekt, kynhneigð, swing, opin sambönd, OnlyFans o.fl. Í hverjum þætti opnum við á einlægar samræður þar sem við deilum okkar eigin reynslu og spyrjum hvort annað að spurningum sem fáir þora að spyrja og ögrum þar af leiðandi ríkjandi hugmyndum. Við erum hjón sem höfum verið saman í 15 ár og þar af gift í 10 ár og höfum eflaust gengið í gegnum flest allt sem hægt er að ganga í gegnum í hjónabandi. Við elskum andleg málefni og setjum heilsuna okkar í fyrsta sætið. Við erum forel...

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: ibpn7xc8drxvs.podbean.com

Author

Árni Björn og Guðrún Ósk

Category

Society

Podcast website

ibpn7xc8drxvs.podbean.com

Latest episode

Oct 2, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

Þáttur 9. - Klám 14.08.2025

Í þessum þætti förum við yfir okkar skoðun á klámi og öllu því tengdu. Ræðum um klám, "ethical" klám, OnlyFans og fleira.   Njótið vel! 

Þáttur 8. - Tvíkynhneigð 07.08.2025

Í þætti 8 förum við yfir tvíkynhneigð og þá aðallega yfir tvíkynhneigð karla enda er það miklu meira taboo heldur en tvíkynhneigð hjá stelpum. Virkilega áhugaverður þáttur að okkar mati og er þetta málefni sem við höfum ekki mikið heyrt rætt um. Þarft málefni og vonandi eru einhverjir þarna úti sem tengja við þetta.   Njótið vel! 

Þáttur 7. - Threesome / trekantur 31.07.2025

Í þætti sjö förum við yfir eina ákveðna fantasíu....... algengasta fantasían meðal karlmanna en ekki kvenna sem er áhugavert!   Sú fantasía er threesome eða trekantur eða þríleikur eða hvað þú vilt kalla það :)   Við förum yfir okkar reynslu og tölum líka aðeins um throuple tímabilið okkar, það var lærdómferli!   Vonandi hafið þið gaman að.

Þáttur 6. - Fantasíur 24.07.2025

Í þætti 6 tölum við um fantasíur og allt sem fylgir þeim. Vel djúsí þáttur!    Hlökkum til að heyra ykkar fantasíur!

Þáttur 5. - Swing / SDC 18.07.2025

Í fimmta þætti ræðum við Swing eða "lífstílinn" eða "rólusamfélagið" eða hvað þú vilt kalla þetta. Förum yfir okkar reynslu og þá hluti sem okkur finnst mikilvægir ef þú ætlar að prufa þig áfram í þessum heimi.   Vonandi fróðlegt fyrir þau ykkar sem hafið áhuga á þessu og munið að þið megið alltaf hafa samband ef þið eruð með spurningar eða vangaveltur!    Við minnum á að þættirnir okkar eru ekki...

Þáttur 4. - Kynlífsklúbbar 11.07.2025

Í fjórða þætti förum við yfir okkar reynslu af kynlífs eða swing klúbbum. Þetta er umfangsefni sem við finnum oft fyrir að fólk hefur mikinn áhuga á og finnst gaman að forvitnast. Ræðum um okkar reynslu á léttum nótum og hvernig við myndum hanna okkar eigin lúxus kynlífsklúbb ef við myndum opna þannig.   Vonandi eruð þið tilbúin til að stíga út fyrir normið með okkur. 

Þáttur 3. - Opin sambönd 04.07.2025

Í þætti þrjú köfum við í opin sambönd, polyamory, swing ofl. og spjöllum á léttum nótum um okkar reynslu af þessu öllu saman.    Þetta er skemmtilegt topic sem við munum eflaust ræða um aftur við tækifæri.    Vonandi eruð þið tilbúin að stíga út fyrir normið með okkur. 

Þáttur 2 - nekt 26.06.2025

Í þætti tvö af Taboo förum við í málefni sem er okkur mjög kært - nekt!   Af hverju er nekt bönnuð á samfélagsmiðlum? Af hverju er ekki eðlilegast í heimi að vera nakin í saunu? Hvað veldur og eigum við að breyta þessu? Getum við breytt þessu?    Vonandi eruð þið tilbúin til að stíga út fyrir normið með okkur. 

Þáttur 1 - intro 25.06.2025

Í fyrsta þættinum af Taboo kynnum við okkur sjálf og hugmyndina á bakvið hlaðvarpið Taboo. Stuttur fyrsti þáttur og er stefnan sett á að vera með þátt vikulega.    Vonandi eruð þið tilbúin til að stíga út fyrir normið með okkur.    Verið velkomin og takk fyrir að hlusta! 

Listen to the Taboo hlaðvarp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.