Hljóðkirkjan

Svörtu tungurnar

Leisure IS ↓ 134 episodes

Spilahópurinn Svörtu tungurnar talar um spunaspil. Þátturinn er tekinn upp í hvert skipti áður en við setjumst við spil í Svörtuloftum.

Author

Hljóðkirkjan

Category

Leisure

Podcast website

svortutungurnar.podbean.com

Latest episode

Jun 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#0034 Dót og drasl 02.12.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Allt dótið og allt draslið sem fylgir spunaspilum. Nauðsynlegt eða alger óþarfi?  Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Bjarni, Hilmir, Lúðvík, Tryggvi    – Tónlist: Mighty Fortress  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

#0033 Þema eða ekki þema? 25.11.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Tilvistarkreppa! Svörtu tungurnar ræða ástand og stöðu þessa hlaðvarps. Hvernig höldum við áfram? Þarf að vera þema í hverjum þætti? Eigum við kannski bara að hætta þessu? HJÁLP! Endilega takið þátt í umræðum og segið ykkar skoðun í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Hannes, Hilmir, Tryggv...

#0032 Heimur eða kerfi? 18.11.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Hvort skiptir meira máli, heimurinn sem spilið gerist í eða kerfið sem heldur utan um allt saman? Er þetta kannski órjúfanleg heild sem hefur áhrif hvort á annað? Endilega takið þátt í umræðum og komið með tillögur að umræðuefnium í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Bjarni, Hilmir, Hjörtu...

#0031 Topplisti: Spunaspilakerfi 11.11.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Topplisti! Við mætum allir með topp 3 yfir uppháhaldsspunaspilakerfin okkar. Endilega takið þátt í umræðum og segið frá ykkar uppáhalds í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Björn, Hilmir, Snæbjörn, Tryggvi    – Tónlist: Crown of Stars  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

#0030 Topplisti: Galdrar í D&D 04.11.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Topplisti! Við mætum allir með topp 3 yfir uppháhaldsgaldrana okkar í D&D. Endilega takið þátt í umræðum og segið frá ykkar uppáhalds í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Hilmir, Hjörtur, Hlynur, Lúðvík    – Tónlist: Daylight  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

#0029 Topplisti: Skrímsli í D&D 07.10.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. U-beygja. Fyrsti topplistinn. Við mætum allir með topp 3 yfir uppháhaldsskrímslin okkar í D&D. Endilega takið þátt í umræðum og segið frá ykkar uppáhalds í hópnum okkar á Facebook: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Hlynur, Ólafur, Snæbjörn, Tryggvi    – Tónlist: Mental Prison  – Flytjandi: Scorching Ray Taylo...

#0028 Fáir eða fjöldi? 30.09.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Umræðuefni dagsins kemur frá hlustanda á umræðugrúppunni okkar: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Hver er „réttur“ fjöldi spilara við borðið? Ertu kostir sem fylgja miklum fjölda eða er alltaf betra að hafa hópinn stærri? Hvernig hefur þetta áhrif á spilið sjálft? Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Hannes, Hilmir, Hjörtur, Tryggvi    – Tónlist: Au...

#0027 Fjall eða franskbrauð? 23.09.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Umræðuefni dagsins kemur frá hlustanda á umræðugrúppunni okkar: www.facebook.com/groups/svortutungurnar Hjörtur Freyr Sæland segir: Er ánægjulegra að hafa háa statta og berjast við skrímsli og vondu kalla á hærra stigi eða er skemmtilegra að vera ræfill og að allt sé hættulegt? Frábært umræðuefni og mjög skemmtilegar umræður. Og gríðarlega hátt spennustig vegna þe...

#0026 Live | Midgard 2023 (English) 16.09.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Þáttur vikunnar er upptaka frá Midgard þar sem Svörtu tungurnar tóku upp þátt frammi fyrir áhorfendum — á ensku. Umræðuefnið var tekið af umræðuhópnum á Facebook: Hittast á krá eða fara á stjá? Takk fyrir uppástunguna, Símon Böðvarsson! Kærar þakkir Midgard, fyrir að bjóða okkur að vera með. Sjáumst á næsta ári! Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar. Ljósmynd: Gunnar...

#0025 Mörk eða martraðir? 09.09.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Hrollvekjur eru aðalumræðuefni þáttarins. Hvenær er of langt gengið, hvað má og hvað má ekki? Hvað einkennir góðan horror? Og svo fórum við og gerðum nýjar personur í Call of Cthlulhu. Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Hilmir, Hjörtur, Hlynur, Ólafur    – Tónlist: Calm Emotions  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

#0024 Edrú eða ekki? 02.09.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Á áfengi heima við spilaborðið (og jafnvel aðrir vímugjafar) eða bara alls ekki? Við fórum fullkomlega á trúnó í þættinum, sögðum reynslusögur og viðruðum óhreina þvottinn.  Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Björn, Hlynur, Snæbjörn, Tryggvi    – Tónlist: Lesser Restoration  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

#0023 Grín eða grámygla? 26.08.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Hversu hátíðlega eigum við almennt að taka okkur? Má hlæja og fíflast eða er þetta allt háalavarlegt? Að auki tókum við umræðuna um High Fantasy vs. Low Fantasy. Hvernig íslenskum við það? Háórar eða lágórar? Bjarni var gestur í þættinum. Þetta málefni var tekið af umræðugrúppunni á Facebook. Endilega látið í ykkur heyra þar og komið með uppástungur. Sjóvá er bakh...

#0022 Gamalt eða nýtt? 19.08.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Hvort er meira gaman að halda áfram með söguna sem verið er að spila, eða byrja reglulega á einhverju upp á nýtt? Halda áfram með sömu persónur endalaust eða skipta reglulega um? Spila alltaf sama kerfið eða kynna sér nýjungar og spila allskonar og allt í kross? Þetta málefni er í raun samblanda af fleiri en einu málefni sem lagt var til á umræðugrúppunni á Facebo...

#0021 Kukl eða kylfa? 12.08.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Galdrar eða vopn? Hvort viljum við halda flóknar spjaldskrár yfir galdrabækur eða sveifla bara sverðinu þar til einhver verður fyrir? Hvernig smitast þetta yfir í önnur kerfi en D&D? Eru galdrar raunverulega flóknari en vopn — eða hefur það breyst? Hlaðvarpið fyrir fyrsta spil eftir frí. Eftirvænting og slatti af galsa. Gaman. Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar...

#0020 Silfurskotturnar eða Svörtu tungurnar? 05.08.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Fyrsti þáttur eftir sumarfrí og við fengum Bjarna og Lúlla í heimsókn. Þeir eru í spilahópnum sem deilir húsnæði með Svörtu tungunum, sjálfum Silfurskottunum! Frábært að koma til baka eftir sumarfrí. Takk fyrir að hlusta. Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Snæbjörn, Björn, Bjarni, Lúðvík     – Tónlist: Minor Illusion  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

#0019 Sverð eða vélbyssur? 24.06.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Skiptir máli hvort spilið snýst um handsprengjur eða töfrastafi? Henta ákveðnar leikmyndir betur en aðrar til spunaspilaiðkunar? Hvað með tímabil og söguheima? Vísindaskáldsögur og/eða miðaldafantasíur? Síðasti þáttur fyrir sumarfrí. Heyrumst aftur í ágúst. Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar. Óáfengur Bríó frá Ölgerðinni er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.    – Mættir: Bj...

#0018 Vörður eða reynslustig? 17.06.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal.   Hvort viljum við safna reynslu við hvert smáatriði og fá umbun fyrir það smátt og smátt, eða fylgast að í einföldum stiga upp á við í boði stjórnandans?   Þetta málefni var tekið af umræðugrúppunni á Facebook þar sem hlustendur geta stungið upp á málefnum sem tekin verða fyrir í þáttunum.   Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.   Óáfengur Bríó frá Ölgerðinni er bak...

#0017 Pappír eða tölva? 10.06.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Eru pappír og bækur hin eina rétta og göfuga leið eða eru spjaldtölvur, leitarvélar og spunaspilaforrit þægindi sem bæta leikinn? Þetta málefni var tekið af umræðugrúppunni á Facebook þar sem hlustendur geta stungið upp á málefnum sem tekin verða fyrir í þáttunum. Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar. Óáfengur Bríó frá Ölgerðinni er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mætti...

#0016 Reglur eða rugl? 03.06.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Eru reglurnar ófrávíkjanleg lög eða má brjóta þær af og til? Hvað með heimabruggaðar reglur? Ganga spunaspil upp án allra reglna? Hversu miklu má stjórnandinn breyta í hita leiksins? Þetta málefni var tekið af umræðugrúppunni á Facebook þar sem hlustendur geta stungið upp á málefnum sem tekin verða fyrir í þáttunum. Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar. Sítrón frá Ög...

#0015 Hetjur eða skúrkar? 27.05.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Hvort viljum við vera göfug eða hræðileg í spunaspilunum okkar? Erum við á gengi hins góða eða upphefjum við illu öflin? Kaótík eða regla? Óþarfa ofbeldi? Ósérhlífin manngæska? Þetta málefni var tekið af umræðugrúppunni á Facebook þar sem hlustendur geta stungið upp á málefnum sem tekin verða fyrir í þáttunum. Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar. Sítrón frá Öglu gos...

#0014 Drekar eða dýflissur? 20.05.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Þetta er ekki flókið. Af hverju þetta nafn? Hvaða merkingu hafa drekar og dýflissur? Og eins og alltaf þá er nóg um að tala — bæði um umræðuefni þáttarins og bara eitthvað allt annað í bland. Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Tryggvi, Hjörtur, Snæbjörn, Hannes  – Tónlist: Sleep  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

#0013 Einhleypur eða langhleypur? 13.05.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Sumar sögur klárast á einu kvöldi. Aðrar taka marga mánuði, ár og jafnvel áratugi. Og allt þar á milli. Hver er munurinn á mörgum stuttum ævintýrum og löngum sagnabálkum? Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Snæbjörn, Hannes, Hlynur, Björn  – Tónlist: Eyebite  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

#0012 Leikmunir eða leikhús hugans? 06.05.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Kort og fígúrur? Þrívíddarprentað landslag, borgir og bæir? Reitir og flísar? Flatskjáir jafnvel? Eða er nóg að ímynda sér allt saman og nota hugann? Hvað með blöndu af þessu öllu? Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Snæbjörn, Hjörtur, Hlynur, Hilmir  – Tónlist: Dissonant Whispers  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

#0011 Gestur | Gísli í Nexus 29.04.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. Spjall við í Gísla Einarsson í Nexus. Sagan, áhugamálin og allskonar spjall. Já og þrjár Svartar tungur að fanboja yfir sig! Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Snæbjörn, Björn, Ólafur  – Tónlist: False Life  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

#0010 Höskuldur | Dungeons & Dragons: Honor Among Thieves 22.04.2023

Þátturinn er í boði Quest Portal. ⚠️SPOILER⚠️HÖSKULDUR⚠️ Umfjöllun um kvikmyndina Dungeons & Dragons: Honor Among Thieves. Þátturinn er yfirfullur af spilliefni og persónulegum skoðunum. Sjóvá er bakhjarl Hljóðkirkjunnar.  – Mættir: Tryggvi, Ólafur, Hannes, Hilmir  – Tónlist: Wall of Fire  – Flytjandi: Scorching Ray Taylor

Listen to the Svörtu tungurnar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.