spegilmyndin
Spegilmyndin
Spegilmyndin (The Mirror) is a lifestyle feature on women’s health, healthy lifestyle, diet, exercise, fashion trends, body respect and cosmetic and plastic surgery. The creator and host of the show is Marín Manda Magnúsdóttir, cultural communicator and modern scholar, while the producer of the TV series is Orca Films. Spegilmyndin podcast was launched alongside TV series 2, which was shown on Stöð 2 and Stöð 2+ in March and April 2023. In the podcast, Marín Manda talks to her interviewees about the main things in the health and beauty industry in Iceland, just like she does in the TV series....
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: spegilmyndin.podbean.com
Author
spegilmyndin
Category
Podcast website
Latest episode
May 21, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
40. Gerða Jónsdóttir eigandi Inshape - „Heilsa snýst um svo margt annað en þetta útlitstengda" 13.06.2024 1:15:23
Gerða Jónsdóttir er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Spegilmyndarinnar. Gerða er menntuð sem íþrótta -og heilsufræðingur en hún er með BSc gráðu í íþróttafræðum og MEd í heilsuþjálfun og kennslu frá HR. Einnig er hún með einkaþjálfara réttindi og hefur lokið dómaramáskeiðum í fimleikum. Um langt skeið hefur Gerða starfað sem einka- og hópaþjálfari, bæði í World Class og Mjölni og hefur haldið námskei...
39. Gunni Hilmarsson - „Tíska, tónlist og fótbolti var lífið" 03.06.2024 1:03:51
Gunni Hilmarsson er heillandi maður og mörgum kunnur sem mikill tískufrömuður. Hann byrjaði aðeins 16 ára í tískubransanum og hefur síðan þá unnið að ýmsum stórum hönnunarverkefnum í gegnum tíðina. Hann er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni og ræðir um líf sitt af mikilli einlægni. Þegar hann var unglingur var hann í tónlist en það var ekki fyrr en í kringum fertugsafmælið að hann ákv...
38. Unnar Már Unnarsson Osteópati - „Við erum að sjá fólk með inngjöfina í botni alla daga" 23.05.2024 50:28
Unnur Már Unnarsson Osteópati er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni. Unnar Már rekur Sigma heilsumiðstöðina en hann vinnur með manneskjunni á heildrænan hátt og leitast við að finna orsakavaldi sársaukans í stað þess að meðhöndla einungis einkennin. Unnar hefur ákveðnar skoðanir þegar kemur að því að hlúa að heilsunni en sjálfur hefur hann alltaf haft mikinn áhuga á líkamanum. Hann te...
37. Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti - Góð ráð til að komast í fitubrennsluform og koma lagi á blóðsykurinn 16.05.2024 1:01:04
Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti er nýjasti gestur Marín Möndu í Spegilmyndinni. Hún hefur sérhæft sig í að leiðbeina fólki varðandi blóðsykurstjórnun og sykurlöngun, með það að markmiði að bæta líðan og heilsu fólks - til að koma í veg fyrir bólgusjúkdóma. Hún deilir reglulega hinum ýmsu fróðleiksmolum á samfélagsmiðlunum og heldur í dag netnámskeið fyrir fólk sem vill huga betur að heils...
36. Aníta Rún Guðnýjardóttir - „80% kvenna eru í rangri brjóstahaldara stærð" 02.05.2024 56:20
Gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Aníta Rún Guðnýjardóttir eigandi verslunarinnar Sassy sem selur nærfatnað, aðfaldsfatnað og aðgerðarfatnað. Aníta er með ótrúlega gott úrval af vörum fyrir konur sem eru með eitt, tvö eða engin brjóst og leggur mikið upp úr því að fræða konur um hvernig þær eiga að klæðast brjóstahöldurum í réttri stærð. Saga Anítu er áhugaverð en hún eignaðist 3 börn á þ...
35. Hekla Guðmundsdóttir - „Bandvefslosun bjargaði mér eftir ítrekuð áföll" 23.04.2024 55:42
Hin dásamlega Hekla Guðmundsdóttir er viðmælandi í Spegilmyndinni að þessu sinni. Hekla hefur gengið í gegnum röð áfalla á sinni lífstíð en hefur tekist á við þau verkefni af mikilli þrautseigju og jákvæðni. Hún var frá vinnumarkaði í um 14 ár vegna veikinda en hefur í dag fundið sína köllun. Bandvefslosun er hennar hugarfóstur en það kennir hún í Dans og jóga ásamt því að halda pop up viðburði re...
34. Helga Ólafsdóttir - „Stundum finnst mér ég geta sigrað heiminn" 17.04.2024 31:43
Helga Ólafsdóttir er nýjasti viðmælandinn í Spegilmyndinni. Hún starfar í dag sem stjórnandi Hönnunarmars sem er hátíð hönnunar og arkitektúrs. Helga er með gríðarlega víðtæka reynslu í heimi hönnunar, þróunar skapandi verkefna, í stjórnun og rekstri. Hún er með BA gráðu í fatahönnun og vöruþróun frá Hellerup Textile College í Kaupmannahöfn og fatahönnun frá Kent Institute of Art and De...
33. Judith Jóhannsdóttir -„Nefið stjórnaði of miklu í lífinu mínu“ 08.04.2024 49:51
Í þessum þætti ræðir Marín Manda við Judith Jóhannsdóttur hjúkrunarfræðinema, en hún ferðaðist til Tyrklands fyrir nokkrum vikum síðan og lagðist undir hnífinn til þess að fá nefið sem hana hafði dreymt um. Síðan hún man eftir sér átti hún erfitt með að sætta sig við nefið sitt, þrátt fyrir að hafa ekki skort sjálfstraust. Hún var staðráðin í því að breyta nefinu og lét til skarar skríða fyrir nok...
32. Lilja Sigurgeirsdóttir - „Ég brenn fyrir því að hjálpa fólki að eldast vel" 31.03.2024 49:54
Lilja Sigurgeirsdóttir er eins og ferskur andblær þegar hún kemur inn í upptökuverið, en hún er nýjasti viðmælandinn í Spegilmyndinni. Hún hefur aldrei verið þessi týpíska liðuga fimleikastelpa en starfar sjálfstætt í dag sem liðleika og hreyfanleika þjálfari. Lilja hefur verið með vinsæl námskeið sem heita Stirðir strákar og Flex Fit og segir alltof marga vera að eiga við stoðkerfisvandamál í dag...
31. Jara Gian Tara stjörnuspekingur - „Ég get hjálpað þér að tengjast þínum innri töfrum" 21.03.2024 56:26
Jarþrúður eða Jara Gian Tara er viðmælandi Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hún er mögnuð kona. Hún er listakona, jógakennari og stjörnuspekingur sem semur tónlist og lærði heimspeki við Háskóla Íslands. Jara trúir á stjörnurnar og Human design. Hún aðhyllist stjörnuspeki og dulspeki og segir að það skipti máli hvenær og hvar við fæðumst. Jara vill meina að við höfum öll tilgang en oft þurfum við...
30. Björn Þór Sigurbjörnsson - Stóralvarlegt að nota megrunarlyf til að komast í betra form fyrir Tene 15.03.2024 1:08:36
Björn Þór Sigurbjörnsson eða Bjöddi þjálfari er nýjasti gestur Marín Möndu í Spegilmyndinni. Björn er einnig Ostopatíu nemandi og starfar í World Class. Hann er með yfir 20 ára reynslu af heilsu -og líkamsræktargeiranum og margir skjólstæðingar hans í dag eru konur á breytingaskeiðinu. Hér er á ferðinni ansi fræðandi og skemmtilegt spjall við Björn sem hefur sterkar skoðanir á matarkúrum, markaðsö...
29. Berglind Guðmundsdóttir - „Ég þurfti að kveðja hver ég var og uppgötva sjálfa mig á ný" 07.03.2024 55:54
Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og markþjálfi er nýjasti gestur Spegilmyndarinnar. Hún er mikill matgæðingur, hefur gefið út matreiðslubækur og rak Gulur rauður grænn og salt, eitt vinsælasta matarblogg um langt skeið. Fyrir ekki svo löngu síðan stóð hún á tímamótum þegar hún þurfti að kveðja vörumerkið sitt og það tók virkilega á. Berglind er dásamlega skemmtileg og einlæg kona sem í d...
28. Ásdís grasalæknir - Heilbrigður lífstíll er lykilþáttur fyrir hormónaheilsu kvenna 01.03.2024 36:15
Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni. Hún hefur rekið sína eigin stofu um árabil en hún útskrifaðist með BSc í grasalækningum frá University of East London árið 2005. Í dag hefur hún sérhæft sig í kvenheilsu og þótti því viðeigandi að ræða breytingarskeið kvenna, mataræði og ýmis náttúruleg bætiefni sem konur geta stuðst við á þessu tímabili. Ásdí...
27. Hilmir P. Hjálmarsson öndunarþjálfari - Reis upp úr þunglyndi og lærði að anda rétt 19.02.2024 1:00:29
Hilmir Petersen Hjálmarsson starfaði áður sem bakari en starfar í dag sem öndunarþjálfari og gengur undir nafninu Breatheviking á samfélagsmiðlum. Hann er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni. Hann ræðir á mjög einlægan hátt hvernig hann upplifði mikið þunglyndi í fjölda ára og var búin að ákveða hvenær, hvernig og hvar hann ætlaði að taka eigið líf. Í dag er hann nýr og breyttur maður...
26. Kristín Edda & Sigríður hjá Spjöru - Leigja "boost" fyrir sjálfstraustið á sjálfbæran hátt 12.02.2024 54:56
Að þessu sinni eru það Kristín Edda Óskarsdóttir og Sigríður Guðjónsdóttir sem komu í spjall í Spegilmyndina, en þær eru eigendur fataleigunnar og umboðssölunnar Spjöru. Þessar frábæru konur sem eru fullar af eldmóð, ákváðu að opna fataleigu fyrir sparilegri tilefni og leigja út fallega merkjavöru með sjálfbærni og umhverfismál að leiðarljósi. Þær fengu þessa hugmynd til þess að sporna við textíl...
25. Íris Björk hjá Beautybox - „Vítahringur að börn og unglingar noti virkar húðvörur" 31.01.2024 44:45
Í þessum þætti ræðir Marín Manda við Írisi Björk Reynisdóttur förðunarfræðing, ljósmyndara og eiganda Beautybox verslunarinnar en Íris ræðir meðal annars um hversu varhugavert það er orðið að börn og unglingar séu að sækjast í virkar húðvörur. Hún telur að þessi þróun sé mikið áhyggjuefni í þessum heimi samfélagsmiðla þar sem skilaboðin herja á börn og unglinga (og fullorðna) að það eigi allir að...
24. Áslaug Kristjáns kynfræðingur - „Netflix er í samkeppni við kynlíf" 18.01.2024 50:16
Í þessum fyrsta þætti ársins fékk Marín Manda hana Áslaugu Kristjánsdóttur kynfræðing í spjall til þess að ræða kynlíf, samskipti, kynhegðun og sambönd, en hún gaf út bókina; LÍFIÐ ER KYNLÍF, á síðasta ári. Áslaug er einnig hjúkrunarfræðingur að mennt og segist hafa vitað snemma hvað hana langaði að starfa við. Áhugavert samtal við skemmtilega konu sem hvetur fólk í langtímasamböndum til þess að s...
23. Aldís Arna Tryggvadóttir streituráðgjafi - „Sært fólk, særir fólk”. 05.12.2023 57:39
Viðmælandi Marín Möndu að þessu sinni er Aldís Arna Tryggvadóttir en hún starfar sem PCC vottaður markþjálfi, streituráðgjafi, klínískur dáleiðari, heilari og fyrirlesari hjá Heilsuvernd. Í þessum skemmtilega þætti ræðir hún um sína persónulega vegferð í gegnum streitu og áföll, upprisuna eftir leit að lífsins svörum, dáleiðslu og undirmeðvitundina. Aldís Arna var einstaklega áhugaverður viðmæland...
22. Þóra Hrund Guðbrandsdóttir - „Fjölskyldan er eins og fyrirtæki”. 21.11.2023 50:49
Gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Þóra Hrund sem er markaðsspekúlant, mannræktarmógull, markþjálfi og upplifunarhönnuður. Hennar nýjasta hugarfóstur er verkefnið „fjölskyldanmínehf" sem er einskonar leiðirvísir að betra skipulagi, samvinnu og samskiptum innan fjölskyldunnar. Ákaflega skemmtilegt spjall við hugmyndaríka og áhugaverða konu sem veit ekkert betra en að efla fólk í kringum sig...
21. Fanney Magnúsdóttir - „Karlmenn vilja ekkert heyra um einhvern þvagleka” 31.10.2023 48:13
Fanney Magnúsdóttir sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari hjá TÁP er viðmælandi Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hún hefur sérhæft sig í grindarbotninum og kvenheilsu en heldur einnig úti Instagram miðlinum Móðurmáttur ásamt samstarfskonu sinni. Í þessum þætti ræðir hún mikilvægi þess að vinna betur með grindarbotninn sem getur verið lykillinn að allskyns vandamálum sem konur eru sérstaklega að eig...
20. Harpa Káradóttir förðunarfræðingur - „Hugsaðu snyrtibudduna þína eins og krydd”. 18.10.2023 1:15:34
Viðmælandi Spegilmyndarinnar að þessu sinni er förðunarfræðingurinn Harpa Káradóttir. Hún er móðir, frumkvöðull, förðunarfræðingur og förðunarkennari en hún rekur Makeup studio Hörpu Kára. Hún ræðir meðal annars um öfgana í förðunarheiminum á samfélagsmiðlum við Marín Möndu, um vinsælu námskeiðin sem hún heldur fyrir fólk á öllum aldri og ástríðuna að hvetja áfram upprennandi förðunarfræðinga á Ís...
19. Sirrý og Rakel hjá Venju: „Taktu inn þessa töflu og fáðu flatari maga“ 28.09.2023 36:15
Í þættinum ræðir Marín Manda við Sigríði Svöludóttur og Rakel Guðmundsdóttur eigendur Venju, sem er sérhönnuð fæðubótalína fyrir konur á ólíkum lífsskeiðum. Sigríður eða Sirrý hefur starfað í bætiefnabransanum í rúmlega 10 ár og var með þá hugmynd í maganum að leysa þetta flækjustig sem fólk upplifir þegar það kaupir fæðubótaefni og þannig hjálpa konum að gera upplýst kaup. Hugmyndin að Venju fékk...
18. Hannes Sigurjónsson - „Versta er þegar að fylliefni er sprautað inn í slagæð“. 17.09.2023 29:53
Hannes Sigurjónsson lýtalæknir er gestur Marín Möndu í hlaðvarpi Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Sem ungur læknanemi fékk hann að vera með í aðgerðum sem faðir hann gerði sem er andlits-og kjálkaskurðlæknir - þannig fékk hann áhugann á lýtalækningum. Í þessum þætti ræðir hann ýmislegt sem við kemur fegrunarinngripum og aðgerðum og varar við áhættunum að leita til ófaglærðra innan þessa bransa. Á...
17. Rakel Pálmadóttir hjá Harklinikken: „Oft byrjar hárlos eða hárþynning út af áföllum“. 30.08.2023 34:09
Rakel Pálmadóttir framkvæmdastjóri hjá Harklinikken kom í skemmtilegt spjall til Marín Möndu. Rakel ræddi meðal annars um mikilvægi þess að hársvörðurinn sé í jafnvægi til að viðhalda heilbrigðu hári. Hjá Harklinikken fær hún til sín allskonar fólk sem kemur í einstaklingsmiðaða meðferð vegna hárþynningar. Hún ræðir einnig um það hvernig stress og allt álag á líkamann getur haft áhrif á hárið. Sér...
16. Lukka Pálsdóttir - „Hálftíma göngutúr eftir síðustu máltíð er leikbreytir” 21.08.2023 47:43
Lukka Pálsdóttir stofnandi Greenfit er gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Lukka hefur aðstoðað fólk um áraraðir í heilsutengdum efnum tengt mataræði og heilsu, en fyrir um þremur árum varð Greenfit að veruleika. Þeirra yfirlýsta markmið með Greenfit er að reyna fjölga heilbrigðum æviárum hjá fólki með heilsufarsmælingum - því um leið og fólk getur mælt heilsuna sína þá fær það betri yfirsýn....
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.