spegilmyndin
Spegilmyndin
Spegilmyndin (The Mirror) is a lifestyle feature on women’s health, healthy lifestyle, diet, exercise, fashion trends, body respect and cosmetic and plastic surgery. The creator and host of the show is Marín Manda Magnúsdóttir, cultural communicator and modern scholar, while the producer of the TV series is Orca Films. Spegilmyndin podcast was launched alongside TV series 2, which was shown on Stöð 2 and Stöð 2+ in March and April 2023. In the podcast, Marín Manda talks to her interviewees about the main things in the health and beauty industry in Iceland, just like she does in the TV series....
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: spegilmyndin.podbean.com
Author
spegilmyndin
Category
Podcast website
Latest episode
May 21, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
65. Helga Sigrún Hermannsdóttir eigandi Dóttir skin- Vísindin á bak við sólarvarnir eru rosalega flókin 21.05.2025 1:15:20
Gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Helga Sigrún Hermannsdóttir eigandi Dóttir skin. Helga Sigrún lærði efnaverkefræði í Danmörku og hefur ávallt haft mikinn áhuga á innihaldsefnum í snyrtivörum. Eftir að hafa sjálf upplifað slæman sólbrúna greindist hún með frumubreytingar og það hræddi hana. Í kjölfarið fór hún sjálf að nota sólarvarnir og hellti sér í rannsóknarvinnu á slíkum vörum. Hún...
64. Linda Sæberg - Það bjargaði sennilega lífi mínu að hafa farið heim frá Balí 27.04.2025 1:17:26
Hin ævintýragjarna, tilfinninganæma og fallega Linda Sæberg hefur upplifað ýmislegt á sinni lífsleið. Aðeins 36 ára greindist hún með þríneikvætt brjóstakrabbamein og þar með var fótunum kippt undan henni. Hún var erlendis í stelpuferð þegar hún fann æxlið og vildi einna helst sleppa því að ræða það frekar, því þá væri það, ef til vill ekki raunverulegt. Eftir greiningu breyttist lífið á augabragð...
63. Jón Halldórsson hjá KVAN - Slökkvum á símanum og förum út! 02.03.2025 47:12
Jón Halldórsson, einn af eigendum KVAN var gestur í hlaðvarpinu að þessu sinni. Hann er menntaður íþróttakennari, lögreglumaður og vottaður ACC markþjálfi og hefur í fjölda ára starfað við að þjálfa einstaklinga, stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja. Jón er einnig starfandi formaður Handknattleiksdeildar Vals. Í þessum þætti áttum við einlægt spjall um starfið sem þjálfari og hvernig við sem einst...
62. Davíð Jensson lýtalæknir - Andlitslyfting er sú aðgerð sem hefur statt og stöðugt verið að sækja í síðastliðin 30 ár 24.02.2025 48:40
Davíð Jensson lýtalæknir, Phd hjá Dea Medica var gestur í Spegilmyndinni að þessu sinni. Áhuginn í hjartalækningum var mikill til að byrja með þegar hann var að læra en eftir að hann kynntist skurðlæknisfræðinni og lýtadeildinni, þá var ekki aftur snúið. Davíð hlaut almennt lækningaleyfi árið 2009 og sérhæfði sig í lýtalækningum á Akademiska sjúkrahúsinu í Uppsölum þar sem hann hefur unnið frá ári...
61. Steinunn Erla Thorlacius - Við getum fundið yfir 400 mismunandi sjúkdóma með heilskoðun 09.02.2025 47:18
Steinunn Erla Thorlacius, framkvæmdastjóri og geislafræðingur hjá Intuens er gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hún segir frá starfsemi Intuens og útskýrir hvað felst í heilskoðun. Intuens er íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í snemmgreiningu og heilsufarsrannsóknum. Fyrirtækið nýtir sér háþróað segulómunartæki, til að greina sjúkdóma og heilsufarsástand, áður en einkenni verða áberandi. M...
60. Ísak Freyr Helgason - Þessi klassíska "beauty" förðun fer aldrei langt þrátt fyrir ný trend 28.01.2025 1:02:36
Förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason er einn af farsælustu förðunarfræðingum landsins. Hann býr í London með kærastanum og hundinum þeirra, en er þó alltaf með annan fótinn hér heima að vinna að hinum ýmsu verkefnum. Hvort sem það eru myndatökur, kvikmyndaverkefni eða að ferðast um heiminn með stjörnum sem hafa bókað hann sérstaklega, þá er hann ekki mikið fyrir að auglýsa það sérstaklega. Ha...
59. Tómas Oddur Eiríksson - Dans þerapían fann mig áður ég fann hana 20.01.2025 47:07
Viðmælandi Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Tómas Oddur Eiríksson jógakennari og stofnandi Yoga Moves Iceland. Tómas er einnig meistarinemi í Dance Movement Therapy námi í Barcelona og klárar gráðuna sína innan skamms. Þegar Tómas prófaði sinn fyrsta jógatíma fannst honum hann vera kominn heim og þá var ekki aftur snúið. Eftir að hafa verið mikið leitandi þá ákvað hann að gerast jógakennari en...
58. Erla Gerður Sveinsdóttir - Mýtur og staðreyndir um megrunarlyfin og þyngdarstjórnunarkerfið! 31.12.2024 1:08:17
Í þessum síðasta þætti ársins fékk ég til mín hana Erlu Gerði Sveinsdóttur lækni en hún er sérfræðingur í offitumeðferðum. Hún hefur aðstoðað fjölmarga einstaklinga að skilja þyngdarstjórnunarkerfi líkamans sem getur reynt ansi flókið fyrir marga. Hún vill meina að við eigum að borða í takt við líkamsklukkuna okkar en nútimasamfélag er að trufla heilann gríðarlega. Við eigum að horfa á heilsufar á...
57. Tryggvi Hjaltason - Góð lífsstílsráð til að ná 12-20 auka árum 28.12.2024 45:03
Gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Tryggvi Hjaltason en hann er mikill áhugamaður á rannsóknum tengt langlífi. Hann hefur rætt opinberlega um markmitt sitt að verða 200 ára en hann er á því að með aukinni þekkingu aukum við að sjálfsögðu lífslíkur okkar. Hins vegar þurfum við mörg hver að gera lífsstílsbreytingar. Tryggvi býr með fjölskyldu sinni í eyjum og hefur starfað sem greinandi hjá...
56. Desember hugleiðingar og Spegilmyndin 10.12.2024 26:52
Í þessum þætti deili ég með hlustendum ýmsum hugleiðingum um sjálfið og lífið á persónulegu nótunum. Við speglum okkur öll í einhverjum eða einhverju í samfélaginu og því fylgja gjarnan ýmsar vangaveltur. Ég ræði upphaf Spegilmyndarinnar og deili hvað ég hef lært af viðmælendum mínum ásamt því að gefa áfram nokkur góð ráð til að huga að á nýju ári. *Þessi þáttur er í boði Max Factor, Klaka og N...
55. Ella Björnsdóttir - „Gefðu kærleiksstund í jólagjöf“ 26.11.2024 55:25
Elín María Björnsdóttir varð landsþekkt þegar hún sá um Brúðkaupsþáttinn Já sem sýndur var á Skjá einum, á sínum tíma. Síðan þá hefur hún fengist við ýmis fjölbreytt verkefni. Ella býr yfir langri alþjóðlegri reynslu í mannauðsmálum, stjórnun og stefnumótun sem og breytingastjórnun og fyrirtækjamenningu. Nýjasta verkefnið hennar er fallega barnabókin, Dögg býður góða nótt. Sagan um draumálfinn Dög...
54. Lella Erludóttir - „Svona losarðu þig við loddaralíðan“ 16.11.2024 48:23
Lella Erludóttir er gestur í Spegilmyndinni að þessu sinni. Hún er ACC vottaður markþjálfi, mannauðssérfræðingur, viðskiptafræðingur og markaðskona með fjölbreytta reynslu úr íslensku atvinnulífi. Hún býður upp á áhugaverð námskeið til að aðstoða fólk við að losa sig loddarlíðan (e. Imposter syndrome) í starfi. Hún segir að rannsóknir hafa sýnt fram á að um 70-82% fólks upplifir loddaralíðan einhv...
53. Vilma Ýr Árnadóttir - „Vilma! Ekki horfa í baksýnisspegilinn, haltu áfram“ 04.11.2024 54:42
Vilma Ýr Árnadóttir, eigandi Vilma Home, er gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Í þessum þætti ræðir hún opinskátt um líf sitt. Meðal annars um upphafið á vefversluninni Vilma Home og frægu drykkjarbrúsana. Hvernig hún er stöðugt að stíga út fyrir þægindarammann en þó með húmorinn í forgrunni. Gagnrýni og stuðning á samfélagsmiðlunum ásamt því hvernig innsæið öskraði á hana að taka stórt skre...
52. Theodór Francis Birgisson - „Hrósaðu makanum þínum á hverjum einasta degi" 27.10.2024 50:53
Theodór Francis Birgisson kom í mjög áhugavert spjall í Spegilmyndinni á dögunum. Hann hefur sinnt margs konar störfum sem snúa að mannlegum samskiptum í gegnum tíðina og starfaði sem prestur á árunum 1993-2001 og aftur 2007-2009. Hann lagði í preststarfinu mikla áherslu á einstaklings- og pararáðgjöf og í dag starfar hann sem klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni sem er fjölskyldu- og áfallamiðs...
51. Valdís Marselía Þórðardóttir (Skagabros) - „Gaman að hjálpa fólki að fá sjálfstraustið aftur“ 16.10.2024 45:18
Valdís Marselía Þórðardóttir tannlæknir er dugleg á samfélagsmiðlunum undir nafninu Skagabros en þar deilir hún áhugaverðum og fræðandi molum um tannheilbrigði. Valdís er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Spegilmyndarinnar og ræðir um hvers vegna tannheilsa ætti að vera í forgangi. Skagabros fór heldur betur á flug þegar Valdís ákvað mæla sýrustigið í ýmsum vinsælum drykkjum sem margir hverjir neyta d...
50. Bára Atladóttir - „Aðhaldsfatnaður borgaði leiguna mína í mörg ár" 06.10.2024 46:19
Gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni er Bára Atladóttir hönnuður og eigandi Brá verslunar. Bára ólst upp í Breiðholtinu og segist ávallt hafa haft áhugann á handavinnu enda var hún dugleg að sauma föt á sjálfa sig fyrir hin ýmsu tilefni. Eitt leiddi að öðru og einn daginn tók hún ákvörðun sem átti eftir að umturna lífi hennar. Hún ákvað að eyða húsnæðissparnaðinum sínum í að kaupa verslun á Lau...
49. Karin Kristjana Hindborg - Engin ábyrgð eða gæðastimpill á snyrtivörum af „gráa markaðnum". 22.09.2024 35:31
Karin Kristjana Hindborg er mörgum kunn, en síðustu 10 ár hefur hún rekið verslunina NOLA og þekkir snyrtivörumarkaðinn gríðarlega vel. Karin hefur um þó nokkurt skeið tekið umræðuna á sínum miðlum um neytendablekkinguna sem fyrirfinnst hér á landi hvað varðar snyrtivörur af gráa markaðnum og fyrir skömmu rataði sú umræða í fjölmiðla. Hún segir það vera henni hjartans mál að þetta komi upp á yfir...
48. Kári Sverris ljósmyndari - „Ef þú tekur skrefið, þá opnast heimurinn fyrir þér" 15.09.2024 58:40
Kári Sverris ljósmyndari og fagurkeri er gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hann ákvað að taka lífstíl sinn í gegn fyrir ekki svo löngu síðan, fara að stunda líkamlega og andlega rækt og setja sjálfan sig svolítið í fyrsta sæti. Hann segir að þá hafi hann fundið sköpunarkraftinn aftur sem býr innra með honum og hann hafi farið að sjá fegurðina í litlu hlutunum, skuggum og ljósi. Sýningarnar,...
47. Þorbjörg Hafsteinsdóttir - „Ég vil verða 100 ára ef ég er hraust“ 08.09.2024 1:02:39
Þorbjörg Hafsteinsdóttir er mögnuð kona. Hún rithöfundur, lífsmarkþjálfi og yogakennari . Hún hefur skrifað fjölmargar bækur um heilsu og heilbrigði og í dag heldur hún fyrirlestra fyrir stjórnendur fyrirtækja til að koma til móts við konur á breytingaskeiðinu. Ein vinsælasta bókin hennar 10 árum yngri á 10 vikum kom út árið 2011. Hún segir að sá titill eigi kannski ekki við í dag en þó snúist þe...
46. Jónas Tryggvi Stefánsson - „Tantra er lykillinn að geggjuðum forleik" 01.09.2024 48:00
Gestur Spegilmyndarinnar er Jónas Tryggvi Stefánsson markþjálfi en hann er mikill áhugamaður um samskipti, sambönd og meðvirkni. Jónas fékk töluvert áfall þegar hann skildi eftir 11 ára samband og ákvað að fara í mikla naflaskoðun hvað varðar sambönd og tilfinningar. Í dag heldur hann úti miðlinum Betra Box þar sem hann hjálpar fólki að vera samkvæmt sjálfum sér - en hann er á því að fólk eigi ekk...
45. Aðalheiður Jensen - „Það er minn tilgangur að sá þessum fræum heilsu og heilbrigðis" 25.08.2024 43:20
Aðalheiður Jensen þjálfari er leikskólakennari í grunninn. Hún lærði Rope Jóga og lífsráðgjafann hjá Guðna Gunnarssyni heilsu- og lífsráðgjafa og um tíma kenndi hún vinsæla hópatíma hjá Primal. Fyrr á árinu stóð hún á tímamótum og hugleiddi að breyta til í lífinu sínu. Fyrir algjöra tilviljun var hún leidd áfram í átt til Guðna að nýju og hefur nú opnað sitt eigið heilsusetur í Garðabænum þar sem...
44. Valdimar Þór Svavarsson - „Rannsóknir hafa sýnt að áföll geta borist í gegnum 4 ættliði" 17.08.2024 1:03:36
Í þessum þætti ræddi ég við Valdimar Þór Svavarsson en hann er eigandi og ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu sem er ráðgjafaþjónusta. Valdimar er með MS gráðu í stjórnun og stefnumótun og BA gráðu í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Auk þess er hann sérfræðimenntaður í áfalla- og uppeldisfræðum Piu Mellody og hefur gríðarlega reynslu af úrvinnslu í tengslum við meðvirkni, samskipti para og hjóna. Í þes...
43. Sigrún Jónsdóttir eigandi Míró - „Ég elska að valdefla ADHD fólk eftir að hafa strögglað sjálf við ýmsa hluti" 08.08.2024 1:10:39
Sigrún Jónsdóttir er þroskaþjálfi og ADHD og einhverfu markþjálfi. Hún lauk framhaldsnámi í ADHD markþjálfun frá ADD Coach Academy ADDCA í Bandaríkjunum árið 2018 og rekur nú fyrirtækið Míró í Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði. Þar markþjálfar hún, veitir ráðgjöf og heldur valdeflandi námskeið. Til að mynda námskeiðið ADHD á kvennamáli sem er fyrir konur á aldrinum 18 og upp úr. Námskeiðið segir hún v...
42. Sunneva Halldórsdóttir - „Það eru svo mörg efni í kringum okkur sem eru því miður hormónaraskandi" 09.07.2024 1:03:06
Eins og svo oft áður hef ég ákveðið að skyggnast inn í heim heilsu, lífstíls og fegurðar en einnig að kynnast spennandi fólki sem lifir áhugaverðu lífi. Að þessu sinni kom Sunneva Halldórsdóttir í spjall en hún er mastersnemi í Líf -og læknavísindum og með BS gráðu í Lífeindafræðum. Hún heldur einnig úti mjög áhugaverðum instagrammiðli sem nefnist EFNASÚPAN . Sunneva byrjaði með miðilinn í fæðin...
41. Ragnheiður Ragnarsdóttir - „Ég setti mér það markmið að verða drottning í Vikings" 26.06.2024 1:20:56
Ragnheiður Ragnarsdóttir leikkona eða Ragga Ragnars er gestur Marín Möndu í Spegilmyndinni að þessu sinni. Ragga er fyrrverandi afrekskona í sundi og ólympíufari en eftir að hún eignaðist son sinn ákvað hún að uppfylla annan draum, að flytja erlendis og fara í leiklistarnám. Fyrir nokkrum árum landaði hún svo stóru hlutverki sem Gunhild í Neflix seríunni Vikings og í fyrra fór hún með hlutverk Bai...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.