Stúdering á Svörtu söndum

Sandkorn

Tv IS ↓ 21 episodes

Eitthvað grasserar á Glerársöndum og margir búast við svörum. Baldvin Z kvikmyndagerðarmaður og Tómas Valgeirsson bíófíkill grandskoða sjónvarpsþættina Svörtu sanda frá ólíkum hliðum. Vangaveltur neytandans koma ferskar að skaparanum, en Tómas kemur með getspár, kenningar og fyrirspurnir á meðan þeir í sameiningu varpa ljósi á framvindu sögunnar, persónurnar, þemu og myndlíkingar. Þá er líka stutt í sturlaðar staðreyndir á bakvið gerð seríunnar og um kvikmyndagerð eins og hún leggur sig. Þá má líka búast við fleiri vinklum og gestum í þessari djúsí djúpgreiningu. Hefst þá stúderingin.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: biofikill.blog

Author

Stúdering á Svörtu söndum

Category

Tv

Podcast website

biofikill.blog

Latest episode

Nov 24, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

16. Að fjara eða fríka út 24.11.2024

Íbúar Glerársanda sameinast í svartnættinu á meðan óbærilega tens leit nær hámarki. Áttundi/sextándi þáttur fer alla leið, eða allavega á átakanleg svæði sem þarft er að skoða. Baldvin og Tómas ræða þennan hinsta kafla í stærri sögu Anítu, Fríðu og Gústa og félaga á söndunum. Svörin eru skýrð út og hnútarnir hnýttir að mestu. Baldvin segir hver hugsunin og kjarninn er á bak við þennan lokasprett....

Poppkorn: Ókindin og formin 20.11.2024

Annar þáttur Lögguhornsins en hér halda Ragnar og Tómas áfram spjalli sínu um lífið, bíólifið, safnaradellu og skaðann við það að festast í gefnu formi. Efnisyfirlit: 00:00 - ,,Sloppy” vinnubrögð 03:40 - Nærandi að vera í teyminu 08:50 - Að rýna öðruvísi í hlutina 13:40 - Ókindin og meistararnir 20:08 - Sumt á haldast í minningunni 25:20 - Að festast ekki í forminu

15. Yfirheyrsla í hágír 17.11.2024

Allt er sett í hágír og löggufaktorinn er settur í forgang sem aldrei fyrr. Yfirheyrslur, svör og sársauki eru í brennidepli áður en líður að lokalendingunni. Gústi, Fríða og jafnvel Jonna díla við þungar tilfinningar og ljósara er orðið hvert hlutirnir stefna hjá Anítu og Erlu. Þarna er líka miklu ljósi varpað á hvernig þær Auður, Ragnheiður og Hildur raunverulega díla við hlutina. Erlendur leiks...

Fjandakornið: Um úrvinnslu áfalla 12.11.2024

Kolbeinn Arnbjörnsson er engum líkur og óhætt er að segja að líf hans hafi gjörbreyst með tilkomu Svörtu sanda. Skuggar Salómons Höllusonar hafa mikið geisað yfir Glerársöndum í seríu tvö og fær Kolbeinn jafnvel að skjóta upp kollinum í nokkur skipti. Þeir Kolbeinn og Tómas velta fyrir sér aðdráttarafl leiklistarinnar, söguform, úrvinnslu áfalla og mörgu lög Salómons. Efnisyfirlit: 00:00 - Hver va...

14. Einn, tveir og þegja! 10.11.2024

Þá er komið að stóra ‘flashback-þættinum’ og við bökkum um 40 ár í okkar narratífu. Rætur Helgu ömmu, Davíðs og fóstursystranna eru skoðaðar í þaula með örlagaríkum degi í lífi þeirra allra. Við skyggnumst á bak við tilurð ljósmyndarinnar frægu og Baldvin kafar út í tilurð þessa þáttar og hvernig hann er gerólíkur öðrum þáttum syrpanna beggja. Má heldur ekki gleyma því að kafli þessi varpar ljósi...

Gullkorn: Tengsl og aftenging 05.11.2024

Lengi vel er hægt að spekúlera um hvað lætur persónu eins og Anítu Elínardóttur tikka, en þá er auðvitað best að leita beint til einstaklingsins sem stendur hvað næst þessari persónu og á óneitanlega allra mest í henni. Aldís Amah Hamilton er múltítaskari mikill með skýr gildi í lífinu, mikla útgeislun, ómælanlega ást á dýrum og heilbrigða lyst fyrir alls konar list.  Í þætti þessum er kafað út í...

13. Í takt við tímaskekkju 03.11.2024

Núansar og stórar ósagðar tilfinningar koma til tals á meðan sögur fara að spyrjast út af nýjum likfundi á abstrakt litla sveitabænum. Álfheiður og Tómas greina ástandið á Anítu að sinni, mýktina í loftinu og tensjónana hjá unglingunum og hvað það er við Steffí sem gerir hana að tærum senuþjófi þáttarins.  Fimmti/Þrettándi þáttur leyfir heildarsögunni að taka hlutina rólega eða leyfa hlutunum svol...

Lögguhorn: Þorið og klisjurnar 02.11.2024

Margt og mikið hefur breyst hjá íslensku lögreglunni um síðustu áratugina. Ragnar Jónsson, bíódellukarl með meiru, er fulltrúi tæknideildar lögreglunnar og hefur sinnt allmörgum hlutverkum frá því að störf hans hófust árið 1990. Ragnar hef­ur lært að fresta aldrei hlut­um því eng­inn veit hvað morg­undag­ur­inn beri í skauti sér. Hann er einn hand­rits­höf­unda Svörtu sanda sem eru nú að gera það...

12. Með allt í óreiðu 27.10.2024

Álfheiður Marta Kjartansdóttir, leikstjóri fjórða/tólfta þáttar, hefur aldeilis skemmtilega og persónulega tengingu við atburðarásina á Glerársöndum. Þegar Baldvin bauð henni tækifærið að gerast stærri þátttakandi í seríu tvö var Álfheiður ófrísk og orðin nýbökuð móðir þegar leið að tökunum. Barnsburður kemur akkúrat sterkt til umræðu í þessum kafla ásamt fáeinum senum sem draga hjartað í gegnum a...

11. Skál fyrir gömlum tímum 20.10.2024

Óvænt áföll geta breytt tilverunni á örlagastundu og missirinn gagnvart nýlátnum einstaklingi er fljótur að taka sinn toll á nánustu aðstandendur. Mörk vinnulífs og fjölskyldulífs eru komin að frostmarki og er lítið annað en létt kaos í stöðunni þegar allir þekkjast í litlu bæjarsamfélagi og gegna nokkrum hlutverkum í einu. Má vissulega deila um hvort þetta sé besti tíminn fyrir Davíð til að varpa...

10. Brotinn kross og hlaðinn koss 13.10.2024

Aníta þarf nauðsynlega að komast út úr húsi í langþráð mömmufrí, en þá helst með ólíku móti en þar sem frá var horfið í þættinum áður. Gústi og Fríða standa frammi fyrir dularfullu máli sem er mögulega of persónulegt fyrir suma innan lögreglustöðvarinnar. Jonna er þó ekki lengi að dragast inn í nýjan vinahring þar sem örlög Salómons hafa verið mikið í brenndepli. Hvert það leiðir gæti haft í för m...

9. Daufur er barnlaus bær 06.10.2024

Þá er komið að seríu tvö. Baldvin og Tómas hafa sum sé framlengt ferðalag sitt um að djúpgreina helstu leyndarmál Glerársanda og framvinduna sem um ræðir í þetta sinn. Heill heljarinnar haugur af góðgætum bíður krufninga og má búast við alls konar sögum af framleiðslunni og meiru tengdu kvikmyndagerð. Tæplega þrjú ár hafa liðið síðan Svörtu sandar litu fyrst dagsins ljós en í heimi sögunnar eru fi...

Leikhorn: Saman í sandkassa 12.02.2022

Er ævintýrum Svörtu sanda lokið? Gæti verið að það sé pláss fyrir framhald og þar af leiðandi aðra seríu?  Í þessum hátíðlega aukaþætti Sandkorna taka þeir Tómas og Baldvin á móti helstu leikendum syrpunnar. Þau deila á milli sín sögum, fróðleiksmolum og nýtíðindum, allt sem að baki var og það sem bíður í nálægri (sem fjarlægri) framtíð.  Berlinale, sería tvö, leiktækni, undanþágur vegna Covid og...

8. Búið og blessuð börnin 31.01.2022

Móðurhjarta í rústum, dauðsföllum fjölgar, mömmustrákur með magnandi berserksgang og allar byssur komnar á loft. Nú er engin æfing, allt komið í há(drama)gír og má vont síður versna hjá Anítu á þessu stigi, en neyðin kennir naktri konu að spinna á meðan allt er á suðupunkti og ómögulegt er að aðskilja starfið frá persónulega lífinu. Tómas og Baldvin hafa margt að ræða, gera upp, endurskoða, spekúl...

7. Hversu milt er móðurhjartað? 30.01.2022

Oft er nauðsynlegt að stíga til baka að geta komist lengra áfram. Í sjöunda þætti Svörtu sanda er horft aftur til fortíðar og hrært vandlega í tímalínum til að varpa nánara ljósi á ógnina sem herjar á Anítu, fjölskyldu hennar og teymi innan bæjarins. Í kjölfar uppákomunnar með Helgu hefur hinn dularfulli og margumtalaði Davíð skotið loksins upp kollinum eftir margra ára fjarveru. Davíð kemur þó ek...

6. Lítill drengur með frómas í hausnum 23.01.2022

Rauðsíldarflaggið er úr sögunni en rauðir fánar alls staðar í lífi Anítu og félaga, enda púslin hægt og bítandi farin að smella saman á meðan fleiri spurningar raðast upp. Grímur falla, kúli er tapað og verða ‘mömmukomplexar’ allsráðandi en á þessu stigi í sögunni verður ekki aftur snúið. Til að bæta gráu ofan á svart er ömurlegasta pizzukvöld allra tíma í vændum á heimili Elínar. Nú eru það eitra...

5. Enn ein súpan 16.01.2022

Veganréttir og makamál eru áberandi í fókus í fimmta hluta Svörtu sanda. Hér að sinni er varpað ljósi á klassíska klisju í morðsögugeiranum sem hér byrjar að laumast inn í Svörtu sanda, þegar tengingar við hundgamalt, dularfullt sakamál fara að birtast úr óvæntum áttum. Þá er aldeilis kannaður púlsinn á ástarmálum okkar fólks. Nú sitja allir helstu karakterar í súpunni, með salt í sári á meðan nok...

4. Um kindina, kynhvötina og harðhausinn að sunnan 10.01.2022

Í fjórða þætti er meira lagt á Anítu og vinnuálagið þegar lögreglan á Glerársandi neyðist til að taka á móti „hot-shottanum“ að sunnan og þungum farangri hans. Gústi er loksins kominn úr felum en óþægindin magnast þegar erfiðara verður að aðskilja starfið og einkalífið á meðan hitnar í kolunum hjá fleirum en bara makanum hans Gústa. Tómas og Baldvin hafa nóg til að stúdera enda markar fjórði kafli...

3. Baugar fortíðar 03.01.2022

Leikstjórinn kallar þetta ‘Stóra lögguþáttinn’ og lýsir þessu sem brúarþætti. Hér eru eftirmálar teitisins, saga Lenu, kærastinn Stephen og óvæntur stjúpi í brennidepli, en dökkir baugar og fortíðardraugar eru allsráðandi í óvissunni framundan og að baki. Ýmist kraumar enn undir yfirborðinu enda skiptast helstu persónur nú á að fá sér kríu á meðan beðið er eftir óhjákvæmilegum suðupunkti í sakamál...

2. Brostu bara og haltu partí! 28.12.2021

Í öðrum þætti Sandkorna eru rauðsíldarpælingar teknar á næsta stig á meðan andrúmsloftið á Glerársandi kraumar enn fremur með partíhaldi í nánd. Baksögur fara hægt og bítandi að skýrast en þó eru merki um að aðalsöguþráðurinn eigi enn eftir að skýrast.  Tómas og Baldvin velta fyrir sér partísenur, svokallað „exposition“ í handritsgerð og gildrur slíkra reglna. Einnig bregða fyrir umræður um óséðar...

1. Úr fjöru í alvöru 27.12.2021

Baldvin Z og Tómas Valgeirsson grandskoða sjónvarpsseríuna Svörtu sanda í sameiningu. Tómas skoðar hvern þátt út frá sjónarmiði neytandans og spyr leikstjórann spjörunum úr og spyr leikstjórann spjörunum úr; stúdering beint frá áhorfanda til skaparans.  Sýningar á þáttunum hófust á Stöð 2 á jóladag, 25. desember. Baldvin Z leikstýrir fyrir Glassriver, en auk hans skrifa Aldís Amah Hamilton og Ragn...

Listen to the Sandkorn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.