RÚV
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Breyttur lífsstíll, umhverfislöghyggja og ráðleggingar garðyrkjufræðinga 21.10.2025 58:14
Breyttur lífsstíll er yndislegur hópur af fólki með þroskahömlun sem æfir undir leiðsögn Nönnu Guðbergsdóttur í World Class, Ögurhvarfi. Þau mæta tvisvar í viku til Nönnu og sum þeirra hafa gert það í fimmtán ár. Samfélagið fékk að kíkja með á æfingu hjá þessum dásamlega hóp. Og umhverfislöghyggja verður til umfjöllunar í vikulegum pistli Páls Líndals umhverfissálfræðings. Hún felur í sér að við s...
Staða flóttamanna, Dulminjasafn og gervigreindarkapphlaup 20.10.2025 55:00
Af hverju er fólk á flótta og hvernig erum við sem samfélag að taka á móti fjölskyldum á flótta? Nína Helgadóttir, teymisstjóri í málefnum flóttafólks hjá Rauða krossinum, ætlar að segja okkur frá aðstæðum flóttafólks, stöðuna í málefnum þeirra á Íslandi og hvernig er best að búa um þennan viðkvæma málaflokk til framtíðar. Í reglulegum pistli sínum ætlar Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV,...
Spartan hlaup, mengun Tjarnarinnar í Reykjavík og nakin moldvörpu rotta 17.10.2025 58:11
Ólafía Kvaran er nýkomin heim frá Hvar, í Króatíu, þangað sem hún fór með hóp hlaupara til að taka þátt í Spartan hlaupi. Í hlaupinu, sem var um 25 kílómetrar, þurftu hlauparar að leysa hinar ýmsu hindranir og þrautir. Ólafía sem er margfaldur meistari í sínum aldursflokki, ætlar að segja okkur allt um Spartan. Tjörnin í Reykjavík er menguð og þarf á hjálp að halda. Hjá Reykjavíkurborg eru nú uppi...
Hringborð norðurslóða, 40 ára afmæli Nordjobb og götuheiti í Reykjavík 16.10.2025 58:47
Aðalfundur þings Arctic Circle hófst nú í hádeginu á stóra sviðinu í Silfurbergi í Hörpu. Yfir 2.000 þátttakendur frá nær 70 löndum taka þátt og ræða þar málefni norðurslóða. Meðal þátttakenda eru ráðherrar og leiðtogar frá fjölmörgum löndum, stjórnendur vísindastofnana og alþjóðlegra fyrirtækja, auk fulltrúa loftslagssamtaka og frumbyggja á Norðurslóðum. Matthildur María Rafnsdóttir, samskiptastj...
Ákall félagsráðgjafa, opnun norður Íshafs og lyf við MS sjúkdómnum 15.10.2025 59:15
Félagsráðgjafar eru ómissandi hlekkur í geðheilbrigðisþjónustu. Með fagþekkingu, teymisvinnu og heildrænni nálgun styðja þeir fólk til aukins styrks, betri lífsgæða og samfélagslegrar þátttöku. Steinunn Bergmann, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands, verður gestur okkar í þætti dagsins. Félagsráðgjafar kalla eftir því að fjármagni verði ráðstafað í niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu. Og við höldum...
Stúlkur í knattspyrnu, hringborð norðurslóða og læsi kvenna 14.10.2025 59:23
144 stúlkur frá tíu knattspyrnufélögum á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í rannsókninni SKORA sem Sigurður Skúli Benediktsson, aðjúnkt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, stóð fyrir ásamt fleirum. Markmið rannsóknarinnar var meðal annars að kanna tengsl á milli getuskiptingar og ánægju á meðal íslenskra 12 ára stúlkna í knattspyrnu. Við ræðum niðurstöður rannsóknarinnar við Sigurð Skúla. Hringborð...
Kalkþörungar í málningarframleiðslu, eldri konur í Kvennaathvarfinu og leyndarskjalavörður 13.10.2025 58:48
Kalkþörungar eru notaðir meðal annars sem fæðubótarefni og í snyrtivörur. Kalkþörungar eru basískir, með hátt PH-gildi, og því lifa ekki bakteríur eða mygla í þeim. Því hefur það reynst vel að nota þá í málningu á húsum til að vinna gegn myglumyndun. Sirrý Ágústsdóttir, frumkvöðull, kom til okkar í upphafi þáttar og sagði okkur frá því hvernig hún vinnur efni úr kalkþörungum. Landssamband eldri bo...
Jólakötturinn og dularfulla kistan, smáríki í alþjóðasamfélaginu og Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins 10.10.2025 58:05
Barnaleikhús hefur alltaf verið ástríða Inga Hrafns Hilmarssonar, leikara. Hann hefur nú í nokkur ár farið með leiksýningar inn í leikskóla til að leyfa öllum börnum að upplifa töfra leikhússins. Ingi Hrafn sest hjá okkur á eftir og ætlar að segja okkur frá mikilvægi leikhússins og frá jólaleiksýningu þar sem börnin fá að taka þátt. Þótt stór ríki hafi yfirburði á flestum sviðum í alþjóðasamfélagi...
Undirróðursherferðir erlendra ríkja, innihaldslýsing á M&M og staða leiðsöguhunda 09.10.2025 58:15
Upplýsingaóreiða, ógagnsæir algóritmar samfélagsmiðla og djúpfalsanir, sem og áskoranir í aðdraganda kosninga eru meðal þess sem erlend ríki notfæra sér í undirróðursherferðum sínum hér á Íslandi og annars staðar. Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar ætlar að fræða okkur um þetta og segja okkur frá því hvernig við Íslendingar og löndin í kringum okkur eru að bregðast við. Hvað er...
Þegar mamma mín dó, Kriðpleir og Herv-K prótínið 08.10.2025 57:42
Þegar mamma mín dó er nýútkomin bók rithöfundarins og doktorsnemans Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur. Í bókinni lýsir hún þeirri reynslu að fylgja dauðvona móður sinni gegnum veikindi og sitja við hlið hennar við andlátið. Við heyrum viðtal við Sigrúnu Ölbu og fáum að vita meira um missinn og skrifin um hann. Við rifjum upp eldra viðtal úr safni Samfélagsins, þar sem fjallað var um vinnustofu leikhóps...
Þjóðsögukistan, umhverfissálfræði og Grænn dagur 07.10.2025 57:33
Þjóðsögukista heimsins er opnuð í hlaðvarpsþáttum í umsjón Ingibjargar Fríðu Helgadóttur. Sögurnar eru alls konar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar svolítið hræðilegar eða draugalegar. Þjóðsögurnar eru frá ýmsum heimshornum og Ingibjörg Fríða ætlar að setjast hjá okkur og segja okkur allt um Þjóðsögukistuna. Páll Líndal, umhverfissálfræðingur, fjallar um rannsókni...
Hrognkelsi gegn laxalús, 60 ára gömul verðlaunaritgerð og vellíðan í starfi 06.10.2025 59:17
Hrognkelsi hafa nýst vel í baráttunni við laxalúsina en lúsin er eitt stærsta vandamál laxeldis. Nýverið fór fram stór fiskeldisráðstefna í Hörpu þar sem laxeldisbændur, bæði á Íslandi og í Færeyjum, sögðu frá reynslu sinni af laxalús. Andri Rúnar Sigurðsson, frá Benchmark Genetics Iceland ætlar að segja okkur allt um þetta. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnastjóri RÚV, ætlar að rifja upp með okkur...
Kenna haflæsi í gegnum leiklist, áhrif samfélagsmiðla á stráka og fjárhættuspilahegðun ungmenna 03.10.2025 56:48
Þáttur dagsins var allur tileinkaður Menntakviku sem fer fram í Háskóla Íslands 2-4.október. Sjávarsögur til að stuðla að haflæsi í gegnum leiklist er málstofa sem Jóna Guðrún Jónsdóttir og Rannveig Björk Þorkelsdóttir leiða. Verkefnið snýst um haflæsi og vaxandi þörf til að auka vitund og fræðslu um hafið innan skólasamfélagsins. Jóna Guðrún og Rannveig Björk ætla að segja okkur allt um það hvern...
Endurheimt votlendis, ný löggjöf um gervigreind og sjálfboðaliðar kenna íslensku 02.10.2025 59:08
Verkefnið Peatland lifeline snýr að endurheimt votlendis og stuðningi við líffræðilegan fjölbreytileika. Verkefnið er styrkt af LIFE sjóðnum og Landbúnaðarháskóli Íslands leiðir það. Verkefnið hófst formlega fyrir mánuði síðan og er eitt umfangsmesta verkefni sem Landbúnaðarháskólinn hefur stýrt. Jóhanna Gísladóttir, lektor, kom til okkar og sagði okkur frá þessu áhugaverða verkefni. Hver ætlar að...
Netsamskipti ungmenna, vika einmanaleika og Aldin loftslagsvá 01.10.2025 59:22
Óttar Guðbjörn Birgisson varði doktorsritgerð sína, í íþrótta-og heilsufræði við Háskóla Íslands, á dögunum. Rannsókn hans snéri að netsamskipum og heilsu ungmenna. Óttar Guðbjörn sagði okkur frá helstu niðurstöðum. Margir upplifa sig einmana í nútíma samfélagi. Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einmanaleika. Hvað getum við gert til þess að draga úr...
Aðstoð eftir afplánun, smáforrit fyrir heilsuna og vísindaspjall 30.09.2025 55:00
Aðstoð eftir afplánun er verkefni á vegum Rauða krossins og er ætlað að hjálpa föngum við ýmislegt er varðar daglegt líf og þær breytingar sem verða við það að ljúka afplánun. Pétur Kristófersson er sjálfboðaliði í verkefninu og ætlar að deila með okkur sinni reynslu. Mikilvægi mataræðis og svefns þegar kemur að bættri líðan verður varla ofmetið. Life Track er íslenskt smáforrit sem hefur náð miki...
Íslenskir frumkvöðlar, falin skýrsla í Þjóðskjalasafninu og dans fyrir alla í Danslistarskóla JSB 29.09.2025 57:44
Hlutverk KLAK er að stækka og styðja við samfélag frumkvöðla á Íslandi með það að markmiði að fjölga sprotafyrirtækjum. Nýverið lauk Startup Supernova verkefninu, sem leitast við að byggja upp viðskiptalausnir fyrir alþjóðamarkað. Haraldur Bergvinsson og Freyr Friðfinnsson, starfsmenn KLAK, kíkja til okkar. Svo bregðum við okkur í heimsókn í Þjóðskjalasafnið. Í dag ætlum við að heyra um skýrslu se...
Dauðakaffi, hvað býr að baki gervigreind? og það nýjasta úr heimi konungsfjölskyldna 26.09.2025 58:42
Er dauðinn tabú sem umræðuefni í nútímasamfélagi? Vikulega hittist fólk í Langholtskirkju í grafarspjalli þar sem dauðinn er ræddur á ýmsan hátt. Alda Lóa Leifsdóttir kom til okkar og sagði okkur frá dauðakaffi - þar sem má ræða allt sem tengist dauðanum. Með aukinni notkun á gervigreind eru margir að velta fyrir sér hvernig hún virkar? Hvaða stærðfræði er það sem gervigreindin byggir á? Hafsteinn...
Mikilvægi geðræktar, villt náttúra og 40 ára afmæli Alzheimersamtakanna 25.09.2025 56:59
Af hverju ættum við að stunda geðrækt eins og við stundum líkamsrækt? Er hægt að rækta eða styrkja geðið? Við ræðum við Sigrúnu Þóru Sveinsdóttur sérfræðing í geðrækt hjá Embætti landlæknis um geðrækt og fimm leiðir að vellíðan. Stefán Gíslason, umhverfisfræðingur, líkir villtri náttúru við spægipylsu í pistli vikunnar. Alzheimersamtökin fagna fjörutíu ára afmæli í ár og af því tilefni var haldin...
Raddheyrarar, börn foreldra með geðræn vandamál og koffínneysla unglinga 24.09.2025 55:51
Hearing Voices eru Landssamtök fyrir öll sem heyra raddir, sjá sýnir eða hafa aðrar óhefðbundar upplifanir og áhugafólk. Grétar Björnsson félagsfræðingur og starfsmaður hjá Hugarafli og Rakel Björk Haraldsdóttir sem hefur reynslu af því að heyra raddir - koma til okkar og segja okkur nánar frá samtökunum. og hvað það er að heyra raddir? Eitt af hverjum fimm börnum elst upp hjá foreldri með geðræna...
Vináttutengsl barna, notkun sýndarveruleika í rannsóknum og umhverfisáhrif íslenskra fæðukerfa 23.09.2025 59:12
Sýn og reynsla barna af vináttu og lausn ágreiningsmála er efni nýrrar rannsóknar Maritar Davíðsdóttur, aðjúnkts við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og annars eiganda Gleðiskruddunnar, og Eyrúnar Maríu Rúnarsdóttur dósents. Styðjandi og traust vinatengsl barna draga úr einmanaleika og ýta undir félagsfærni. Aðstoð foreldra, og eldri systkina, við að leysa úr ágreiningsmálum er mikilvæg. Samfélag...
Mönnunarvandi í heilbrigðiskerfinu, opnun Vesturbæjarlaugar 1961 og agnir í straumiðu 22.09.2025 58:31
Launasetning háskólamenntaðra á opinberum vinnumarkaði er hvað lægst hjá heilbrigðisstéttum. Hvaða áhrif hefur langtíma undirmönnun á gæði heilbrigðisþjónustu? Steinunn Bergmann formaður Félagsráðgjafafélags Íslands og Laufey Elísabet Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands komu til okkar í spjall og rýndu í stöðuna. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, fræðir okkur um sögu Vest...
Evrópskar sjálfsmyndir, Umhverfisráðherra um vernd hafsins, Dýraspjall með Veru 19.09.2025 57:17
Málþing um mikilvægi og áhrif evrópsks menningarsamstarfs er haldið í dag og þar er meðal annars verið að kynna verkefni um framleiðslu tíu stuttmynda frá jaðri Evrópu. Meðal umfjöllunarefna eru skynsegin sjálfsmyndir í íslensku landslagi. Dögg Sigmarsdóttir segir okkur frá þessu. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, segir Ísland ekki hafa staðið sig nógu vel í að vernda h...
Guðmundur í Brim um botnvörpuveiðar, staða skákkennslu og virkni eldra fólks 18.09.2025 56:15
Við höldum áfram að fjalla um botnvörpuveiðar og áhrif þeirra, ástand hafsins við Ísland og áform stjórnvalda um að ná verndarsvæðum í hafi úr 1,6% lögsögunnar í 30% fyrir árið 2030. Liður í slíkri umfjöllun hlýtur að vera að heyra í forsvarsmönnum sjávarútvegsins - við ræðum hafið við Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims sem ætlaði aldrei að koma nálægt trollum - enda alinn upp af línufólki. Han...
Áhrif botnvörpuveiða, börn með matvendni og nýjar rannsóknir á krabbameinsstofnfrumum 17.09.2025 58:55
Í heimildarmynd Davids Attenboroughs um hafið er mikið fjallað um möguleika þess til að milda áhrif loftslagsvandans - en slæm meðferð á hafinu og einkum hafsbotninum getur aukið á vandann. Botnvörpuveiðar valda raski á hafsbotni og þetta rask veldur losun gróðurhúsalofttegunda. En hversu mikil er þessi losun? Er fiskur kannski ekki jafn loftslagsvæn fæða og talið var? Þessu eiga vísindamenn erfit...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.