RÚV

Samfélagið

Society IS ↓ 477 episodes

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Feb 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Netglæpir, stórir verslunardagar og Kaffistofa Samhjálpar 25.11.2025

Síðustu tveir mánuðir ársins eru tími stórra verslunardaga – og margir kætast yfir því – en á þessum tíma árs herja líka netþrjótar á einstaklinga og reyna að nýta sér kaupgleði og kæruleysi þeirra til að svíkja út úr þeim pening. Guðrún Valdís Jónsdóttir, forstöðumaður ráðgjafarsviðs hjá Syndis, ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að segja okkur meira um netglæpi á þessum tíma árs og...

ADHD hjá konum, lokasprettur COP30 og draugaskipið Jamestown 24.11.2025

ADHD-samtökin gáfu á dögunum út nýjan fræðslubækling sem nefnist „Stúlkur, konur og ADHD.“ Honum er ætlað að varpa ljósi á stöðu stúlkna og kvenna með ADHD og hvernig ADHD hefur áhrif á líf þeirra. Birtingarmyndir ADHD koma fram með öðrum hætti hjá stúlkum og drengjum sem iðulega gerir það að verkum að umhverfið áttar sig ekki á þeim erfiðleikum sem stúlkur og konur glíma við dag hvern. Þær Inga A...

Hátíðarvandi, eldsvoði á COP30 og svellið á Ingólfstorgi 21.11.2025

Hátíðirnar geta verið tími gleði og eftirvæntingar fyrir mörg en fyrir önnur getur tíðin verið uppspretta streitu og álags. Hilja Guðmundsdóttir frá Mental ráðgjöf ætlar að kíkja til okkar í upphafi þáttar og spjalla við okkur um hvers vegna hátíðirnar geta kallað fram aukið álag og vanlíðan hjá mörgum og hvernig slíkt birtist. Hilja gefur okkur einnig góð ráð til að draga úr streitu og bæta líðan...

Nóbelsverðlaunahafinn umdeildi James Watson, Rosalind Franklin og COP30 20.11.2025

Í dag köfum við í erfðafræði og vísindasagnfræði – nóbelsverðlaunahafinn James Watson, sem hlaut nóbelinn árið 1962, ásamt þeim Francis Crick og Maurice Wilkins, fyrir uppgötvanir sem tengdust uppbyggingu DNA – lést á dögunum. Hann var síðasti eftirlifandi meðlimur þessa þríeykis. En ferill þessa merkilega manns er áhugaverður og gríðarlega umdeildur – í dag setjumst við niður með Arnari Pálssyni...

Menningarfordómar, málefni flóttafólks í Árborg og COP senn á enda 19.11.2025

Í gær hélt Félagsráðgjafafélag Íslands áhugavert málþing um fjölmenningarfélagsráðgjöf – þar voru haldin fjölmörg áhugaverð erindi en Samfélagið var á staðnum og ræddi við nokkur þeirra sem stigu á stokk. Sema Erla Serdaroglu, aðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, sagði þar frá nýjum rannsóknum um menningarfordóma og við ræðum þær við hana. Anna Katarzyna Wo...

Sérfræðingar nota gervigreind, Batahús fimm ára, húsnæðismál og heilbrigði 18.11.2025

Nýlega var sagt frá því í fréttum að samkvæmt rannsókn stéttarfélagsins Visku noti 80% sérfræðinga á vinnumarkaði gervigreind í starfi. Þá segir meirihluti þeirra að gervigreind auki afköst í starfi – en við vildum vita meira? Hvernig er gervigreindin notuð? Hvernig eykur hún afköst? Ástrós Signýjardóttir sest niður með Vilhjálmi Hilmarssyni, hagfræðingi hjá Visku, í lok þáttar til að ræða þessa á...

Tímamótarannsókn á plönturíki Surtseyjar, mótmæli á COP30, Listkynning í skólum 17.11.2025

Það er ekki oft sem íslensk grasafræðirannsókn vekur athygli heimspressunnar, en í dag ræðum við rannsókn sem gerði einmitt það. Pawel Wasowicz, grasafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, hefur unnið við rannsóknir á Surtsey í rúman áratug og segir okkur frá niðurstöðum rannsókna sem gætu breytt viðteknum kenningum um hvernig plöntur ferðast langar vegalengdir. Þorgerður María Þorbjarnardóttir formað...

Fríðbúð í Gerðubergi, Jólaþorpið í Hafnarfirði og vegurinn til Belém 14.11.2025

Í dag heimsækjum við Gerðuberg í Breiðholti – þar er rekin áhugaverð verslun þar sem allt er ókeypis. Hver sem er getur komið við og tekið hluti úr hillum eða skilið eftir hluti sem aðrir geta tekið með sér heim. Ég heimsótti verslunina í vikunni og ræddi við verslunarstjórann og nokkra viðskiptavini. Við fáum líka þriðja pistilinn í örpistlaröð Þorgerðar Maríu Þorbjarnardóttur og Láru Sólveigar L...

Máltæknifyrirtæki kaupir orðabók og staður árins 13.11.2025

Svæðið við Elliðaárstöð í Elliðaárdal iðar nú af lífi árið um kring. Áður var þar afvikið iðnaðarsvæði en nú hefur svæðið verið endurhannað með almenningsrýmum, útisvæði, gestastofu og veitingastað. Gamlar byggingar hafa fengið nýtt hlutverk og saga svæðisins er vel varðveitt. Ástrós Signýjardóttir kíkti við og hitti Brynhildi Pálsdóttur, vöruhönnuð, sem er ein af þeim sem stóð að endurhönnun Elli...

Hjúkrunarheimilið Fellsendi, opnun og mótmæli á COP30 og virkni lyfs við Alzheimer 12.11.2025

Í þætti dagsins bregðum við okkur Vestur. Á Fellsenda í Dölum er rekið hjúkrunarheimili. Staðsetningin er óvenjuleg því heimilið er í dreifbýli. Það var stofnað árið 1968 og átti að vera heimili fyrir aldraða dalamenn en þegar til kastanna kom reyndist ekki nóg af þeim. Það var því ákveðið að bjóða geðfatlað fólk velkomið þangað. Síðan þá hefur allur húsakostur verið endurnýjaður og í dag er þar r...

Tækniframfaratrú, vara ársins og uppnám í bresku konungsfjölskyldunni 11.11.2025

Fjallahjólið Elja var nýverið valið vara ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands. Hjólið er uppfinning frá fyrirtækinu Lauf Cycles – og við fáum til okkar í dag Berg Benediktsson, verkfræðing og starfsmann fyrirtækisins – sem ætlar að segja okkur frá þessu hjóli og fyrirtækinu, sem hóf starfsemi sína í bílskúr í Grafarvogi. Andrés fyrrverandi prins verður hér eftir þekktur sem Andrew Mountbatten Winds...

Netöryggi og gervigreind, pistill frá COP30 og heimsókn á Þjóðskjalasafnið 10.11.2025

Vankunnátta þegar kemur að gervigreind kostar fyrirtæki dýrmæt tækifæri og fjármuni og fyrir almenning er þekking á netöryggi nauðsynleg t.a.m. varðandi vernd persónulegra upplýsinga. Þær Saga Úlfarsdóttir og Vigdís Helga Eyjólfsdóttir ætla að koma til okkar og fræða okkur um gervigreind og netöryggi. Næstu vikur fáum við hér í Samfélaginu póstkort frá Brasilíu. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, f...

Lífið með Parkinson-sjúkdóminn og KÞBVD uppistand í Tjarnarbíó 07.11.2025

Parkinson-sjúkdómurinn hrjáir tólf hundruð einstaklinga hérlendis. Parkinson er hæggengur taugahrörnunarsjúkdómur sem hefur áhrif á líkamlega færni. Misjafnt getur verið milli einstaklinga hver sjúkdómseinkennin eru. Enn sem komið er er ekki til nein lækning við sjúkdómnum. Ágústa Karen Andersen, forstöðumaður Takts endurhæfingar hjá Parkinson-samtökunum, og Vilborg Jónsdóttir, sem greindist með s...

Rannsókn á heimilisleysi kvenna, innkauparáð og gervigreind í fréttamennsku 06.11.2025

Nýlega voru birt fyrstu áfangagögn verkefnisins, Landsskýrsla INTERACT. Hún veitir innsýn í það hvernig sex Evrópuríki, Þýskaland, Grikkland, Ítalía, Portúgal og Rúmenía, auk Íslands, nálgast málefni heimilislausra kvenna. Niðurstöðurnar sýna að víða skortir á samþættingu jafnréttis- og kynjasjónarmiða, þjónusta við heimilislausar konur er að stórum hluta brotakennd og ósamþætt og tekur of lítið m...

Reykur, Tilvera og áhrif Covid bólusetninga á krabbamein 05.11.2025

Síðasta febrúar var verkefnið Reykur sett á laggirnar á vegum Matthildarsamtakanna – Reykur veitir skaðaminnkandi þjónustu fyrir fólk sem reykir ópíóíða og örvandi vímuefni og hefur – síðustu átta mánuði – náð til fólks sem hefur áður ekki fengið viðeigandi þjónustu eða aðstoð. Svala Jóhannesdóttir, sérfræðingur í skaðaminnkun og forormaður mattmildarsamtakanna Reyks, sest hjá okkur í upphafi þátt...

Brestir í norrænu samstarfi, fuglalíf og votlendi 04.11.2025

Þing Norðurlandaráðs var í Stokkhólmi í Svíþjóð í síðustu viku. Þar voru öryggismál Norðurlandanna ofarlega á baugi ásamt stöðu Grænlands, Færeyja og Álandseyja innan norræns samstarfs. Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins á Íslandi, var í Stokkhólmi og ætlar að kíkja til okkar í upphafi þáttar. Samtökin Fuglavernd héldu málþing á dögunum um stöðu votlendis og hvernig votlendi hefur...

Ástin í Bíó Paradís, mótmæli við Reykjanesbraut og ADHD 03.11.2025

Bíó Paradís býður nú þeim sem leita ástarinnar að koma á hraðstefnumót. Markmið stefnumótanna er að gefa einhleypum tækifæri á að kynnast nýju fólki á léttum og skemmtilegum kvöldum. Í október var tvisvar blásið til hraðstefnumóta og þær Ása Baldursdóttir og Lisa Attenberger frá Bíó Paradís ætla að koma og segja okkur allt um þau. Síðan ætlar Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, að kíkja ti...

Gallar í nýbyggingum, tilfinningavinna fangavarða og hamfaraáætlanir íslenskra heimila 31.10.2025

Þjóðarspegillinn fer nú fram í Háskóla Íslands og í þætti dagsins ætlum við að ræða við fyrirlesara þriggja erinda. Byggingargallar hafa lengi verið til umræðu á Íslandi. Í nýrri rannsókn er lagt mat á eðli og umfang galla í nýbyggðum fjölbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu og hvernig ábyrgðar- og eftirlitskerfi virka í framkvæmd. Frumniðurstöður benda til að núverandi ábyrgðar- og eftirlitskerfi nýby...

Málþing um inngildingu listnáms, snúbúabókmenntir og krukkuhefðir 30.10.2025

Þær hindranir sem fatlað fólk mætir í námi á háskólastigi og leiðir til umbóta með áherslu á listnám er viðfangsefni málþings sem verður haldið á laugardaginn á vegum Listaháskóla Íslands. Við fáum til okkar í þáttinn Kristínu Eysteinsdóttur rektor LHÍ og Heklu Björk Hólmgeirsdóttur aðjúnkt við Háskóla Íslands, sem stýrir málþinginu. Fólk hefur lengi verið meðvitað um áskoranir þess að flytja til...

Afdrif fósturbarna, siðferði almannatengla og GLP-1 lyf 29.10.2025

Umboðsmaður barna óskaði nýverið eftir því við forsætisráðherra að fram fari rannsókn á afdrifum barna sem hafa verið vistuð í meðferðarúrræðum á vegum ríkisins. Félag fósturforeldra vill að sambærileg rannsókn fari fram á afdrifum fósturbarna. Guðlaugur Kristmundsson, formaður félags fósturforeldra, ætlar að ræða við okkur um mikilvægi slíkrar rannsóknar fyrir framtíð málefna fósturbarna á Ísland...

Slökkviliðsstjórinn í Grindavík, deildastjóri Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu, rófuútskurður í Árbæjarsafni og varnartengd starfsemi 28.10.2025

Aldrei hefur snjóað jafnmikið í Reykjavík í október, en jafnfallinn snjór mældist 27 sentímetrar við Veðurstofuna í dag. Það snjóar enn og breytast gular veðurviðvaranir í appelsínugular þegar líður á daginn. Færðin er í takt við veðrið og má búast við að hún versni enn. Lögreglan á Suðurnesjum mælist til þess að fólk gisti ekki í Grindavík á meðan appelsínugular viðvaranir eru í gildi, en þar er...

Snjóflóðasetur á Ísafirði, hártogsmál í Yfirrétti á 18.öld og Dýraverndunarfélagið Villikettir 27.10.2025

Í gær voru liðin þrjátíu ár frá því að mannskætt snjóflóð féll á Flateyri í Önundarfirði. Tuttugu fórust í flóðinu. Fyrr sama ár hafði annað flóð fallið í Súðavík, þar sem fjórtán fórust. Níu árum síðar opnaði Snjóflóðasetur Veðurstofu Íslands á Ísafirði, eftir ákall frá heimamönnum. Við heyrum viðtal Grétu Sigríðar Einarsdóttur við Hörpu Grímsdóttur um snjóflóðasetrið og starfsemi þess. Hártogsmá...

Kvennaverkfall 2025 24.10.2025

Það er kvennaverkfall í dag og af því tilefni höfum við fengið til okkar þrjár konur til að ræða stöðuna í jafnréttismálum. Þetta eru Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, Saga Davíðsdóttir frá femínistafélaginu Emblu við Menntaskólann í Hamrahlíð og Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga. Kvennafrídagurinn var fyrst haldinn fyrir fimmtíu árum síðan, árið 1975. Þá lögðu konur niður störf til...

Skipulagsmál: Gæði í hinu byggða umhverfi og ný íbúðahverfi, og umhverfismerktar vörur. 23.10.2025

Skipulagsmál verða í forgrunni í fyrri hluta þáttarins í dag. Skipulagsdagurinn stendur nú yfir á vegum skipulagsstofnunar og sambands íslenskra sveitarfélaga, þar sem umhverfið sem við sköpum okkur sjálf er til umræðu út frá ýmsum sjónarhornum. Við heyrum hugleiðingar Magneu Guðmundsdóttur arkitekts um gæði í hinu byggða umhverfi. Henni þykir vanta að umræða um skipulagsmál fari meira á dýptina,...

Netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, Happy hour kórinn og rannsóknir á þunglyndi 22.10.2025

Gagnagíslatökur, álagsárásir og svikapóstar eru meðal þeirra áskoranna sem netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, CERT-IS, þarf að eiga við í sínum störfum. Starfsmönnum þar hefur fjölgað úr tveimur í fjórtán á fimm árum, sem er til marks um aukið álag og áherslu á netöryggi hér á landi. Magni Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, fræðir okkur um störf sveitarinnar í þættinum í dag. Happy Hour kórinn...

Listen to the Samfélagið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.