Vignir Egill Vigfússon

Popparasögur

Music IS ↓ 41 episodes

Umfjöllun um íslenska tónlist þar sem rætt er við tónlistarfólk og fjallað um hljómsveitir og tónlistarviðburði á Íslandi.  Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði –  Forestlagoon.is.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: Popparasogur.podbean.com

Author

Vignir Egill Vigfússon

Category

Music

Podcast website

Popparasogur.podbean.com

Latest episode

Nov 17, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

#41 | Snorri Helgason og að halda alltaf áfram að halda áfram 17.11.2026

Snorri Helgason kom fram á sjónarsviðið með Sprengjuhöllinni fyrir um 20 árum síðan og hljómsveitin bókstaflega keyrði yfir Ísland og íslenskan tónlistarbransa misserin þar á eftir. Síðan hefur hann gefið út sjö sólóplötur sem hafa innihaldið fjölmörg vinsæl lög.  Snorri vinnur nú að nýrri plötu og hefur fyrsta tóndæmið af henni fallið vel í kramið enda hefur lagið, sem er ábreiða af gamla Ríó trí...

#40 | Daníel Andri Eggertsson og sögurnar af goðsögnum íslenskrar tónlistarsögu 10.11.2026

Daníel Andri Eggertsson, gítarleikari í hljómsveitinni Færibandinu, hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum að undanförnu fyrir myndbönd þar sem hann rifjar upp sögur af tónlistarfólki sem setti svip sinn á íslenskt tónlistarlíf um miðja síðustu öld og áratugina þar á eftir. Með myndböndunum hefur hann meðal annars kynnt yngri kynslóðina fyrir listafólki á borð við Hallbjörgu Bjarnadóttur, Hauk Mort...

#39 | Einar Örn Jónsson og allt um það að vera Nakinn í Paradís þegar Jólin eru að koma 03.11.2026

Einar Örn Jónsson hefur farið mikinn í íslensku tónlistarlífi undanfarna áratugi. Hann gaf ungur út sólóplötu með eigin efni, hann spilaði dinner-tónlist fyrir matargesti á Lækjarbrekku, hann hefur síðustu ár spilað með vinsælasta tónlistarfólki landsins, gefið út efni undir nafninu Löður og stendur fyrir jólatónleikum, Einar um jólin, í desember. En þekkastur er hann sennilega fyrir störf sín með...

#38 | Sniglabandið og sannleikurinn um Jólahjól 27.10.2026

Fjórði og síðasti hlutinn um hljómsveitina Sniglabandið. Í síðasta hluta fóru þeir Diddi og Skúli yfir merkilega ferð bandsins til Sovétríkjanna árið 1989 þar sem þeir mútuðu löggunni, voru eltir af mafíunni, lentu í menningarsjokki, voru með fulla ruslapoka af rúblum og lifðu eins og rokkstjörnurnar sem þeir sögðust vera. Í þessum hluta segja þeir frá einu vinsælasta íslenska jólalagi allra tíma,...

#37 | Sniglabandið og mafían og mútur í Sovétríkjunum 27.10.2026

Þriðji hlutinn og mögulega einum þeim merkilegasta í sögu hljómsveitarinnar Sniglabandsins. Í fyrstu tveimur hlutunum var farið yfir upphaf sveitarinnar, ótrúlegar uppákomur frá fyrstu árunum, mannabreytingar, sunnudagskvöldið á Gauki á stöng, vinsælustu útvarpsþætti landsins og svo margt fleira. Í þessum þriðja hluta er fjallað um merkilega ferð Sniglabandsins til Sovétríkjanna árið 1989 þar sem...

#36 | Sniglabandið og vinsælasti útvarpsþáttur á Íslandi 20.10.2026

Annar hluti viðtalsins við hljómsveitina Sniglabandið. Í fyrsta hlutanum var farið víða og sagt frá upphafi sveitarinnar, ótrúlegum uppákomum frá fyrstu árunum þar sem kom við sögu dvergur að þvo bíl, hestur í Bólstaðarhlíðarbrekkunni, Jónas Friðrik, Hells Angels, putti í auga og margt fleira. Í þessum öðrum hluta fara þeir Diddi og Skúli yfir það hvernig hljómsveitin fór að þróa þá list að taka v...

#35 | Sniglabandið og stundum þarf að stinga puttanum í augað 20.10.2026

Hljómsveitin Sniglabandið hefur verið ein af vinsælustu hljómsveitum Íslands síðustu áratugi og er hvergi nærri hætt. Hvort sem fólk tengir hljómsveitina við að vera í góðu skapi, útvarpsþættina þeirra vinsælu, Jólahjól, bifhjólasamtökin Sniglana, ferðalag þeirra til Sovétríkjanna, sunnudagskvöld á Gauki á stöng eða annað þá hafa þeir félagar verið áberandi nær allt frá stofnun árið 1985. Í þessum...

#34 | Friðrik Dór og listin við að rækta garðinn sinn 13.10.2026

Friðrik Dór hefur verið einn ástsælasti tónlistarmaður á Íslandi undanfarin eða allt frá því hann kom fram á sjónarsviðið með lög eins og Hlið við hlið, Leiðarlok og fleiri. Síðan þá hafa topplögin verið fjölmörg og vinsældir hans vaxið þrátt fyrir að hafa þurft að hafa fyrir hlutunum og takast á við áskoranir á leiðinni. Nýverið kom hann fram á tvennum tónleikum með SinfoniaNord í Hofi á Akureyri...

#33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti) 06.10.2026

Þá er komið að seinni hlutanum í spjallinu við Franz Gunnarsson, gítarleikara, tónleikahaldara og margt fleira, sem hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu áratugi, t.d. með hljómsveitum eins og Ensími, Dr. Spock og fleirum. Í fyrri hlutanum fór Franz yfir byrjunina með In Memoriam, Quicksand Jesus og Dr. Spock. Í þessum seinni hluta segir Franz frá hljómsveitinni Ensími, hvernig hún...

#32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti) 06.10.2026

Franz Gunnarsson hefur komið víða við á sínum tónlistarferli, hvort sem það er sem gítarleikari, höfundur, sólólistamaður eða tónleikahaldari. Hann hefur verið í hljómsveitum eins og In Memoriam og Quicksand Jesus sem voru áberandi á tíunda áratug síðustu aldar en þekktastur er hann sennilega sem meðlimur bæði Ensími og Dr. Spock. Í þessum fyrri hluta af tveimur talar Franz um Músíktilraunir, rokk...

#31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár 29.09.2026

Hljómsveitin Á móti sól fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og ætlar af því tilefni að halda stórtónleika í Háskólabíói í október. Hljómsveitin var stofnuð eins og margar aðrar á sínum tíma til þess að spila á sveitaböllum, búa til smá pening fyrir meðlimi og hafa gaman. Fyrst um sinn var ruglast á hljómsveitinni og öðrum sólarböndum, þá sérstaklega SSSól. En í dag er hljómsveitin Á móti sól lön...

#30 | Egill Örn Rafnsson og hversu línan getur verið þunn í tónlistarheiminum 22.09.2026

Egill Örn Rafnsson hefur átt langan og viðburðaríkan feril eftir að hafa byrjað mjög ungur að vinna sem tónlistarmaður. Hann var aðeins 15 ára þegar hann var farinn að spila á börum í miðborg Reykjavíkur og 18 ára þegar tónlistin varð að aðalstarfi. Fyrst með Buttercup, svo Ber, á sveitaböllum og í stúdíói. Hér á eftir fer hann yfir ferilinn, allt frá fyrstu árunum í skólahljómsveitinni og hljómsv...

#29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa 15.09.2026

Kristjana Stefánsdóttir er ekki bara ein allra besta söngkona og tónlistarkona landsins. Hún er líka söngkennari, raddþjálfari, tónlistarstjóri, höfundur, dansari og svo mætti lengi telja. Hún hefur starfað með ótrúlega breiðum hópi íslensks tónlistarfólks, komið víða við í leikhúsi og síðustu ár hefur hún meira að segja ferðast um heiminn sem dansari. Hér á eftir ræðir hún um fjölbreyttan feril s...

#28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti) 08.09.2026

Þá er komið að seinni hluta viðtalsins við Valdimar Guðmundsson, einn allra vinsælasta söngvara þjóðarinnar frá því hann kom fyrst fram á sjónarsviðið með hljómsveitinni Valdimar árið 2010. Í fyrri hlutanum var farið yfir hljómsveitina Valdimar, vinsælustu lögin, tónleikaferðalögin, lætin og allt það sem fylgdi fyrstu árum sveitarinnar. Í þessum hluta skyggnumst við hins vegar meira inn í önnur ve...

#27 | Valdimar Guðmundsson og lætin eftir að Yfirgefinn sló í gegn (fyrri hluti) 08.09.2026

Valdimar Guðmundsson hefur verið einn vinsælasti söngvari íslenskrar tónlistar undanfarin ár. Hvort sem það er með hljómsveitinni Valdimar, LÓN, Memfismafíunni eða öðrum verkefnum hefur rödd hans verið áberandi í íslensku tónlistarlífi. En ferðalagið að þessum tímapunkti hófst löngu áður en Valdimar varð þekktur sem söngvari. Sem ungur strákur lærði hann á básúnu og síðar tónsmíðar, en það var ekk...

#26 | Eyjólfur Kristjánsson og sannleikurinn um Nínu og Álfheiði Björk 01.09.2026

Eyjólfur Kristjánsson hefur verið gríðarlega áberandi í íslensku tónlistarlífi í rúm fjörutíu ár. Hann er söngvari, gítarleikari, píanóleikari, laga- og textahöfundur og maðurinn á bak við nokkur af þekktustu lögum íslenskrar poppsögu. Hann steig sín fyrstu skref á sviði sem fjórtán ára strákur í Kerlingarfjöllum, fór síðan í vísnabransann með Hálft í hvoru og varð síðar einn af liðsmönnum Bítlavi...

#25 | Birgir Örn Steinarsson og lengsta lyftuferð í heimi með Bubba (seinni hluti) 25.08.2026

Í fyrri hluta viðtalsins við Birgi Örn Steinarsson, BiggaMaus, var farið yfir sögu Maus fyrstu tíu ár sveitarinnar. Biggi hélt þá til London og þar biðu hans ótrúleg ævintýri sem innihéldu alþjóðlega pródúsera og óvænta vináttu við meðlim í The Cure. En þrátt fyrir byrjun sem lofaði góðu náði sólóferillinn ekki þeim hæðum sem Biggi hafði vonað. Platan sem hann varði tveimur árum í að gera floppaði...

#24 | Birgir Örn Steinarsson og allt um hljómsveitina Maus (fyrri hluti) 18.08.2026

Birgir Örn Steinarsson, BiggiMaus, hefur lengi verið hluti af íslensku tónlistarlífi. Hann stofnaði hljómsveitina Maus sem ungur maður og fór með vinum sínum í gegnum Músíktilraunir, plötuútgáfur, tónleika og tilraunir erlendis. Hann fór líka í gegnum tímabil þar sem allt virtist ganga upp og svo önnur þar sem hljómsveitin og ferillinn voru nálægt því að gliðna í sundur. Í þessum fyrri hluta viðta...

#23 | Birgir Nielsen og trommurnar sem tóku hann alla leið á toppinn 11.08.2026

Trommuleikarinn Birgir Nielsen hefur átt langan og viðburðaríkan feril. Hljómsveitirnar hans eru til dæmis fjölmargar og má þar nefna Vini Vors og Blóma, Sælgætisgerðina, Land og syni, Klaufana og nú síðast Gosana frá Vestmannaeyjum. Hér á eftir fer Birgir yfir ferilinn, allt frá því að hann byrjaði að spila á trommur í Breiðholtinu, yfir í velgengnina með Vinum vors og blóma, óvænta innkomu í Lan...

#22 | Einar Bárðarson og pælingar með verslunarmannahelgina 2026 28.07.2026

Nú er verslunarmannahelgin 2026 framundan og er vel hægt að færa rök fyrir því að sjaldan eða aldrei hafi verið jafn mikið í boði fyrir fólk sem vill njóta íslenskrar tónlistar þessa helgi. Sem fyrr eru fastir liðir á sínum stað, eins og Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, en nú virðist meira hafa verið lagt í aðrar hátíðir, sérstaklega hvað varðar tónlistardagskrá, og er Ein með öllu á Akureyri besta dæm...

#21 | Ágúst Þór Brynjarsson og undirbúningurinn fyrir Brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum 21.07.2026

Einn maður, einn gítar og þúsundir radda sem sameinast á Brekkunni á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Á yfirborðinu virðist Brekkusöngurinn einfaldur en á bak við þessa einu klukkustund á sviðinu liggja margir mánuðir af undirbúningi, greiningu og vinnu. Fyrir Ágúst Þór Brynjarsson, sem mun stýra sínum fyrsta Brekkusöng á Þjóðhátíð í sumar, er þetta ekki aðeins stærsta svið sem íslenskur tónlistarmaður...

#20 | Stuðlabandið og leiðin sem enginn sá fyrir 14.07.2026

Flestar hljómsveitir verða vinsælar eftir að lag frá þeim slær í gegn í útvarpi eða á streymisveitum. En Stuðlabandið fór aðra leið. Í stað þess að byggja ferilinn á útvarpsspilun og vinsælum lögum hefur hljómsveitin skapað sér sterkt orðspor sem ein allra besta sveitaballahljómsveit landsins. Frá fyrstu æfingum í bílskúr í Ölfusi, þar sem unga stráka dreymdi um það að verða eins og Skítamórall, S...

#19 | Bræðslan 2026 og endurkoma goðsagnakenndra hljómsveita 07.07.2026

Tónlistarhátíðin Bræðslan hefur verið haldin á Borgarfirði eystri síðan árið 2005 og fagnaði 20 ára afmæli á síðasta ári. Í dag er þetta orðin ein stærsta tónlistarhátíð landsins og jafnframt sú sem er erfiðast að fá miða á því aðeins eru tæplega eitt þúsund slíkir seldir á hverja hátíð. Á hátíðinni í ár, sem verður haldin laugardaginn 25. júlí, munu koma fram Ásgeir, Raven, Skandall, Greifarnir,...

#18 | Einar Björnsson og 40 ára ferðalag um íslenskan tónlistarbransa, frá sveitaböllum til Kótelettunnar 30.06.2026

Einar Björnsson hefur verið viðloðinn íslenskt tónlistarlíf í næstum 40 ár og óhætt að segja að hann hafi unnið með flestu, ef ekki öllu, vinsælasta tónlistarfólki landsins á þessum tíma. Hann var aðeins 17 ára gamall þegar Björgvin Halldórsson heitinn gaf honum tækifæri sem hljóðmaður og þar með var leið hans í lífinu ákveðin. Síðan þá hefur hann stýrt hljóði fyrir flestar af stærstu hljómsveitum...

#17 | Botnleðja og engar málamiðlanir 23.06.2026

Það hafa fáar íslenskar hljómsveitir komið inn á íslenskan tónlistarmarkað með jafn miklum látum og Botnleðja gerði árið 1995. Það ár sigruðu þeir Músíktilraunir og gáfu út plötuna Drullumall og hvort tveggja vakti verðskuldaða athygli. Rúmum 30 árum og fjölmörgum plötum síðar eru strákarnir úr Hafnarfirði enn að, og nú stíga þeir aftur á svið á heimavelli sínum í Bæjarbíói, í Hjarta Hafnarfjarðar...

Listen to the Popparasögur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.