Vignir Egill Vigfússon

Popparasögur

Music IS ↓ 19 episodes

Umfjöllun um íslenska tónlist þar sem rætt er við tónlistarfólk og fjallað um hljómsveitir og tónlistarviðburði á Íslandi.  Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði –  Forestlagoon.is.

Author

Vignir Egill Vigfússon

Category

Music

Podcast website

Popparasogur.podbean.com

Latest episode

Jul 7, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#19 | Bræðslan 2026 og endurkoma goðsagnakenndra hljómsveita 07.07.2026

Tónlistarhátíðin Bræðslan hefur verið haldin á Borgarfirði eystri síðan árið 2005 og fagnaði 20 ára afmæli á síðasta ári. Í dag er þetta orðin ein stærsta tónlistarhátíð landsins og jafnframt sú sem er erfiðast að fá miða á því aðeins eru tæplega eitt þúsund slíkir seldir á hverja hátíð. Á hátíðinni í ár, sem verður haldin laugardaginn 25. júlí, munu koma fram Ásgeir, Raven, Skandall, Greifarnir,...

#18 | Einar Björnsson og 40 ára ferðalag um íslenskan tónlistarbransa, frá sveitaböllum til Kótelettunnar 30.06.2026

Einar Björnsson hefur verið viðloðinn íslenskt tónlistarlíf í næstum 40 ár og óhætt að segja að hann hafi unnið með flestu, ef ekki öllu, vinsælasta tónlistarfólki landsins á þessum tíma. Hann var aðeins 17 ára gamall þegar Björgvin Halldórsson heitinn gaf honum tækifæri sem hljóðmaður og þar með var leið hans í lífinu ákveðin. Síðan þá hefur hann stýrt hljóði fyrir flestar af stærstu hljómsveitum...

#17 | Botnleðja og engar málamiðlanir 23.06.2026

Það hafa fáar íslenskar hljómsveitir komið inn á íslenskan tónlistarmarkað með jafn miklum látum og Botnleðja gerði árið 1995. Það ár sigruðu þeir Músíktilraunir og gáfu út plötuna Drullumall og hvort tveggja vakti verðskuldaða athygli. Rúmum 30 árum og fjölmörgum plötum síðar eru strákarnir úr Hafnarfirði enn að, og nú stíga þeir aftur á svið á heimavelli sínum í Bæjarbíói, í Hjarta Hafnarfjarðar...

#16 | Greifarnir og síðasta sveitaballið 16.06.2026

Árið 2026 voru 40 ár síðan hljómsveitin Greifarnir sigraði Músíktilraunir og varð á skömmum tíma ein vinsælasta hljómsveit landsins. Stuttu síðar kom lagið Útihátíð út og varð allra vinsælasta lagið á Íslandi það sumar. Greifarnir ferðast nú um landið á tónleikaferðalagi eða sveitaballaferðalagi sem þeir kalla Síðasta sveitaballið. Í þessum þætti tala þeir um hvernig sveitaballa- og tónlistarbrans...

#15 | Sigurður Guðmundsson og maðurinn með marga hatta 09.06.2026

Tónlistarmaðurinn Sigurður Guðmundsson er svo sannarlega maður margra hatta. Hann er söngvari, píanóleikari, gítarleikari, bassaleikari, upptökumaður, laga- og textahöfundur og eflaust margt fleira. Hér á eftir talar hann um hljómsveitirnar sínar, Hjálma, Góss, Mefismafíuna, Senuþjófana og fleiri. Hann segir frá samstarfinu með Megasi, Sigríði Thorlacious, Braga Valdimar og fleirum. Hann segir lík...

#14 | Haraldur Ari og leiðin frá Retro Stefson í sólóplötu 02.06.2026

Haraldur Ari Stefánsson sló í gegn með hljómsveitinni Retro Stefson. Hann hefur síðan getið sér gott orð sem leikari og mun gefa út sína fyrstu sólóplötu í haust. Í þessum þætti talar hann um tímann sinn með Retro Stefson, tímabilið sem þau bjuggu í Berlín, lokatónleikana, come-back, sviðsframkomu, ferðalögin um Evrópu, leikhúsið, söngleikina, áhrifavaldana, áskoranirnar, sólóplötuna, framtíðina o...

#13 | KK og hittararnir sem hann hættir ekki að spila 27.05.2026

Kristján Kristjánsson, KK, hefur verið eitt af stærstu nöfnunum í íslenskri tónlist allt frá því hann sló í gegn með plötunum Lucky One og Bein leið, snemma á tíunda áratug síðustu aldar. Hann varð nýverið 70 ára og hefur verið að fagna þeim áfanga með tónleikum víða um land að undanförnu og mun gera það út árið. Í þessu spjalli segir hann frá því þegar hann þróaðist úr því að vera Kristur á Frakk...

#12 | Hrafn Thoroddsen og mæting er bæting 12.05.2026

Hrafn Thoroddsen hefur farið víða á síðustu rúmlega 30 árum í íslensku tónlistarlífi og verið í hljómsveitum eins og Ensími, Jet Black Joe og Warmland, Hérna segir hann frá því hvernig hann hætti í skóla 19 ára gamall eftir að hafa gengið til liðs við Jet Black Joe, þegar hann fór sveitaballarúntinn með Helga Björns og SSSól, stofnaði Ensími sem hann hefur verið í forsvari fyrir í 30 ár, upptökurn...

#11 | Erna Hrönn og að taka stjórn á eigin lífi 05.05.2026

Erna Hrönn hefur verið afar áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu 20 ár. Henni hefur verið lýst sem ríkisbakrödd, hún hefur tekið þátt í 60 lögum í undankeppni Eurovision, tvisvar sinnum tekið þátt í keppninni sjálfri og syngur núna 80´s lög um land allt með hljómsveitinni Hr. Eydís svo fátt eitt sé nefnt. Hér fer hún yfir ferilinn og hvernig henni hefur aldrei liðið betur eftir að hafa tekist...

#10 | Skálmöld og Börn Loka 28.04.2026

Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar. Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben. Þeir tala um samstarfið við Sinfó, sögurnar, textana, aðdáendurnar, samstarfið, framtíðina, mögulega plötu og fleira. Viðtölin voru tekin up...

#9 | Skálmöld og ótrúleg byrjun 28.04.2026

Skálmöld er ein allra vinsælasta þungarokkshljómsveit Íslandssögunnar. Hér er rætt við þá Snæbjörn Ragnarsson (Bibba), Þráin Árna Baldvinsson, Jón Geir Jóhannsson og Björgvin Sigurðsson (Böbba). Auk þeirra eru í hljómsveitinni Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben. Þeir tala um e-mailið sem kom þessu af stað, fyrstu tónleikana, tónleikaferðirnar, markaðssetningu og fleira. Viðtölin voru tekin upp á Græn...

#8 | Jónas Sig og Hafið er svart 21.04.2026

Þriðji og síðasta hluti viðtalsins við Jónas Sig.   Hér er rætt um hans langvinsælasta lag, Hafið er svart, hljómsveitina Dranga, Áhöfnina á Húna, tónleikamaraþon, Milda hjartað, textana, sögumanninn og nýju plötuna sem kemur vonandi út á þessu ári.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

#7 | Jónas Sig og leiðin aftur á toppinn 21.04.2026

Annar hluti af þremur í viðtalinu við Jónas Sig.   Hérna segir hann frá leiðinni aftur á toppinn. Hvernig hann þurfti að takast á við sjálfan sig, fyrstu tónleikaferðinni um Ísland, lögin sem urðu til, Ritvélum framtíðarinnar og mörgu fleiru.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

#6 | Jónas Sig og endurkoma Sólstrandargæjanna 14.04.2026

Jónas Sigurðsson hefur verið mjög áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu tvo áratugi.   En áður, fyrir rúmum 30 árum, sló hann í gegn með hljómsveitinni Sólstrandargæjunum og þá sérstaklega laginu Rangur maður. Sú hljómsveit spilaði síðast saman árið 2001 en ætlar að koma saman á ný á Bræðslunni í sumar. Þetta er fyrsti hluti af þremur af viðtalinu við Jónas. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

#5 | Guðrún Árný Karlsdóttir 07.04.2026

Guðrún Árný Karlsdóttir hefur verið ein vinsælasta söngkona landsins undanfarna áratugi. Hérna ræðir hún um Sing-Along, Söngkeppni framhaldsskólanna, Eurovision, Brekkusönginn, jarðarfarir, plöturnar sínar, tónmenntakennslu, framtíðina og fleira. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon  

#4 | Hreimur Örn og endurkoma Lands og sona 02.04.2026

Seinni hluti viðtalsins við Hreim í Landi og sonum. Hérna ræðir hann um það fer að hægjast um hjá Landi og sonum, hvernig hann þurfti að enduruppgötva sig sem tónlistarmann, Þjóðhátíðarlögin og fyrstu viðtökunum á laginu Lífið er yndislegt, vinamissi og endurkomu Lands og sona í sumar.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

#3 | Hreimur Örn og ævintýri í Bandaríkjunum 02.04.2026

Hreimur Örn Heimisson, Hreimur í Landi og sonum, hefur farið víða á sínum tónlistarferli. Í þessum fyrri hluta ræðir hann um það þegar Land og synir slógu í gegn á einni nóttu með laginu Vöðvastæltur, hvernig hljómsveitin fékk fimm plötu samning við útgáfufyrirtæki í Bandaríkjunum og misstu fljótt eftir árásina 11. september, hvernig honum bauðst að svíkja aðra meðlimi hljómsveitarinnar og hvernig...

#2 | Aldrei fór ég suður 2026 | Seinni hluti 29.03.2026

Umfjöllun um rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður árið 2026. Hátíðin fer fram á Ísafirði um páskana eins og hún hefur gert allt síðan árið 2004.   Í þættinum er rætt við Skítamóral (Adda Fannar), Amabadama (Sölku Sól), Úlfur Úlfur (Arnar Freyr) og Spacestation (Björgvin).   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

#1 | Aldrei fór ég suður 2026 | Fyrri hluti 29.03.2026

Umfjöllun um rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, árið 2026. Hátíðin fer fram á Ísafirði um páskana eins og hún hefur gert allt síðan árið 2004.   Í þættinum er rætt við Friðrik Dór, Pál Óskar, Kristján Frey, rokkstjóra Aldrei fór ég suður, og Kusk og Óvita, Kolbrúnu og Hrannar.   Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

Listen to the Popparasögur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.