Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

Comedy IS ↓ 181 episodes

Í Undralandi Ólafssona er allt morandi í kanínuholum. Aron og Arnar reyna að tipla á tánum í kringum þær en eiga það til annað slagið að falla ofan í þær með tilheyrandi pælingum og vitleysu. Í Undralandi eru þó ekki einungis kanínuholur heldur líka fullt af glensi og meðþví!

Author

Útvarp 101

Category

Comedy

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Dec 14, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Besti þáttur sem Wöhler á 22.09.2024

Hann kíkti til okkar fjöllistamaðurinn Eyþór Aron Wöhler og ræðir við okkur um lífið og tilveruna, manninn sjálfann og Tímaflakk. Fótbolti, Ritlist, Söngur og TikTok eru örfá dæmi um það sem drengurinn leggur stund á og hefur, þrátt fyrir ungan aldur, náð eftirtektarverðum árangri á öllum þessum sviðum. Missið ekki af þessum besta þætti sem Wöhler á, kæru hlustendur!

Nýlendan Mars 15.09.2024

Kæru hlustendur. Hér er einn heilavíkkandi fyrir ykkur. Elon Musk ætlar með mannkynið á mars og það er lítið sem mun koma í veg fyrir það. Það eru allar líkur á því að við munum sjá siðmenntað samfélag mannfólks á plánetunni Mars í okkar lífstíð. Það er gjörsamlega fráleit hugmynd í sjálfu sér, en hér erum við!

Disney klám 08.09.2024

Gleðilegan sunnudag kæru Undralendingar. Í þætti dagsins ræðum við um samsæriskenningar Disney og klám. Fleira var það ekki. Bestu kveðjur, Arnar og Aron

Skemmtistaðaveröld sem var 01.09.2024

Sorry hvað við erum seinir í dag. Í guðanna bænum njótiði!

Við erum ekki byggð fyrir öryggi nútímans 25.08.2024

Þáttur dagsins tekur okkur á kunnar slóðir en þar ræða Ólafssynir um testósterón, föstur, og frumbyggjaeðlið sem blundar í okkur öllum. Við erum ekki byggð fyrir nútímann!

Dellur & íslenskt rapp 18.08.2024

Þáttur dagsins þekur ansi vítt svið eins og titillinn gefur til kynna en þó er hann skemmtilegur - við lofum ykkur því!

Eftirköst þjóðhátíðar & gamlar blaðagreinar 11.08.2024

Já það var ýmislegt sem bar á góma í þessum  þætti kæru hlustendur, allt frá framhjáhaldi til sökkvandi skipa. Svo leit nýr liður dagsins ljós sem gæti orðið skemmtilegur. Eigið dásamlegan sunnudag kæru Undralendingar!

ÓLAFSSYNIR Í DALNUM 2024 02.08.2024

Ólafssynir verða í dalnum árið 2024 gott fólk. 4 gigg á eyjunni fögru yfir helgina - Komið og kíkið á okkur! Fös: 17:00 - Ólafssynir í dalnum (frír bjór og frí stemming) 02:00 - Stóra sviðið (ásamt gamla 12:00) Lau: 12:00 - Ólafssynir á FM957 15:00 - Nova Fest (ásamt gamla 12:00)

Faðir Arnar 28.07.2024

Já þáttur dagsins er stórmerkilegur enda er það orðið ljóst að Arnar þarf formlega að fara að bera ábyrgð á einhverjum öðrum en sjálfum sér. Já krakka mínir, lífið! Verið góð við hvort annað.

Tilraunir & lífsvenjur 21.07.2024

Gleðilegan sunnudag kæru Undralendingar. Ólafssynir ræða allskonar í þætti dagsins, allt frá Þjóðhátíð til dáleiðslu og svo að sjálfsögðu það sem titill þáttarins segir til um. 

Mótorhjól (ó) 14.07.2024

Já, kæru hlustendur það var hann Óli Gull faðir Arons sem fékk að velja umræðuefni í þætti dagsins. Dæmi hver fyrir sig um þekkingu okkar á mótorhjólum en við getum því miður ekki stjórnað öllu sem fer hérna inn. Keyrið varlega um landið gott fólk.

Gói Sportrönd í Undralandi: Nuclear Fallout 07.07.2024

Það var löngu kominn tími á að fá hinn eina sanna Góa sportrönd í settið til okkar. Í þættinum ræðum við "Nuclear Fallout",  en umræðan byggist á tölvuleikja- og þáttaseríunni vinsælu Fallout. Góðar, fyndnar og heilavíkkandi pælingar þennan sunnudaginn. Eigið yndislega helgi!

Aron Kristinn í Undralandi 30.06.2024

ClubDub-arinn og athafnamaðurinn Aron Kristinn mætti til okkar í kærkomið spjall, stútfullt af pælingum og vísdómsorðum. Hann er upplýstur, hann horfist í augu við óttann, hann tekur ákvarðanir og stendur við þær. Eitthvað fyrir alla í þessu eyrnakonfekti úr smiðju Undralandsins. Verið góð hvert við annað.   

Börn náttúrunnar 23.06.2024

Já það eru ekki allir jafn heppnir og við að alast upp inni á steyptum og hlýjum heimilum. Sumir eru neflinlega það óheppnir að þurfa að alast upp með dýrum en við minnumst eitthvað á það ágæta fólk í þessum þætti. Njótið dagsins!

Loftsteinn að verðmæti $26.990.000.000.000.000.000 16.06.2024

Þá eru Ólafssynir mættir bakvið hljóðnemana 117. vikuna í röð. Það er ákveðið afrek að menn sem eru svo ólíkir í skapgerð skuli halda svona lengi út saman en það er eitthvað fallegt við það. Í þættinum förum við yfir tilkynningu sem er yfir meðallagi stór, ráðningu í beinni og space mining svo eitthvað sé nefnt. Verið góð hvort við annað.

"Ég finn smjörþefinn út um gluggan hjá mér af heimsstyrjöld" 09.06.2024

Aron var svartsýnn í þætti dagsins og mælti þessu fleygu orð sem standa í titli þáttarinns. Setningin er þó kannski ekki beint lýsandi fyrir umræður dagsins en það er samt eitthvað furðulegt að eiga sér stað í alheiminum um þessar mundir...

Shots fired 02.06.2024

Það er óhætt að segja að Ólafssynir hafi farið öfugu megin fram úr rúminu á tökudegi. Rifrildi einkennir þátt dagsins en þreytan einnig. Batnandi mönnum er best að lifa sagði einhvern en við lofum betrun í næsta þætti.

Q&A II 26.05.2024

Kæur Undralendingar! Því miður var enginn Ástþór Magnússon í þættinum okkar eins og til stóð. Í staðin gripum við í Q&A í annað sinn, þar sem við svörum spurningum frá hlustendum okkar. Stórskemmtilegur þáttur, þó við segjum sjálfir frá!

Steinunn Ólína í Undralandi 19.05.2024

Já kæru hlustendur, það er hún Steinunn Ólína sem er gestur Undralandsins að þessu sinni. Við Ólafssynir spurðum hana spjörunum úr en nú stendur hún í framboði til embættis forseta Íslands og því var óneitanlega freistandi að fara aðeins yfir samfélagsmálin í bland við persónulegri málefni. Eigið yndislegan sunnudag kæru Undralendingar!

Truflaðar tilviljanir 12.05.2024

Ótrúlegt en satt, þá undirbjuggu Ólafssynir sig fyrir þátt dagsins. "Truflaðar tilviljanir" var rauði þráðurinn í þættinum en að sjálfsögðu fylgir meira rugl með í kaupæti. Góðar stundir gott fólk.

Brunasaga Arons 06.05.2024

Þáttur þessi er stútfullur af hitamálum.

Stress & tilviljunarkenndir atburðir 28.04.2024

Kæru Undralendingar - gleðilegan sunnudag! Þáttur dagsins er spjall um hitt og þetta en þó að mestu leiti um stress og tilviljunarkennda atburði. Aron varð helvíti stressaður í vikunni sem leið og því bar að krifja það til mergjar. Svo eru það tilviljunakenndu atburðirnir sem farið verður yfir í þættinum en þeir eru svo tilviljunarkenndir að það meikar engan sens. Góða hlustun kæru vinir.

Aron reynir fyrir sér í uppistandi 21.04.2024

Já kæru hlustendur, þið lásuð rétt. Aron er á leiðinni í uppistandið. Við skulum bara vona að við missum hann ekki úr Undralandinu þegar hann verður kominn með sína eigin Netflix mynd um uppistandið sitt. Verið góð við hvort annað.

Viðar Pétur sérfræðingur í gervigreind skólar Ólafssyni til 14.04.2024

Það var löngu kominn tími á að fá sérfræðing inn í begmálshelli Ólafssona til að ræða gervigreind á fagmannlegum nótum, en til þess fengum við til okkar Viðar Pétur Styrkársson sérfræðing í gervigreind frá Advania. Við spurðum hann spjörunum úr um allt það nýja á döfinni, siðferðið og framtíðarhorfur í heimi þar sem gervigreind virðist ætla að taka yfir. Missið ekki af þessum þætti kæru hlustendur...

Gervigreind, greiningar & einkakokkur Arons 07.04.2024

Kæru hlustendur! Í dag er sunnudagur svo það þýðir nýr skammtur af Undralandi. Þáttur dagsins átti að vera upphirun fyrir næsta þátt, þar sem við fáum gervigreindarsérfræðing til að skóla okkur til, en fór í ýmsar áttir eins og endranær. Verið góð við hvort annað.

Listen to the Ólafssynir í Undralandi podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.