Ghost Network®

Mystík

Mystík er hlaðvarp sem fjallar um skrýtin og dularfull mál. Morð, mannshvörf, myrkraverur, mannrán og aðrar mysteríur. Ef þú hefur gaman að True Crime og öllu því skrýtna og undarlega sem er að gerast í heiminum þá skaltu prófa að hlusta á þessa þætti! Þáttastjórnendur eru hjónin Katrín Bjarkadóttir og Stefán John Stefánsson en þau halda einnig úti hlaðvörpunum Draugasögur Podcast og Sannar Íslenskar Draugsögur sem þú finnur á öllum veitum. Viltu meiri Mystík í lífið? Prófaðu áskrift FRÍTT í 7 daga og fáðu aðgang að öllum þáttum aftur í tímann, áskriftarþátt í hverri viku + opna þætti án auglý...

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: 0jisc0dicmv88b8fydms1y.captivate.fm

Author

Ghost Network®

Category

True Crime

Latest episode

Sep 25, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

MORÐ: Christa Pike - Satanic Panic Murder 25.09.2026

Enn í dag er málið eitt umdeildasta og óhugnanlegasta sakamál níunda áratugarins sem fólk tengir við myrkustu hliðar mannlegrar hegðunar. Christa Pike var aðeins 18 ára þegar hún varð yngsta konan í nútímasögu Bandaríkjanna til að hljóta dauðadóm. Málið hófst árið 1995 með hrottalegu morði og flæktist síðan inn í sögur um myrkan áhuga á satanisma og ofbeldi sem einkenndi hið alræmda Satanic Panic...

MORÐ: American Idol Killer 19.09.2026

Caleb Flynn, fyrrverandi keppandi í American Idol og worship pastor hringir í neyðarlínuna og segir að ókunnugur maður hafi brotist inn og skotið eiginkonu hans Ashley á meðan börnin sváfu í næsta herbergi... Rannsóknin bendir þó til annars og allt í einu snýst málið úr harmleik yfir eitthvað enn grunsamlegra. Var þetta innbrot… eða fullkomlega skipulagt morð bak við trúarlega trúbadora ímynd? Þet...

MANNSHVARF: El Pianista & myndavélin sem fannst! 11.09.2026

Árið 2014 fóru þær Kris Kremers og Lisanne Froon í saklausa gönguferð í fjallendi Panama og komu aldrei til baka. Myndir úr myndavél og dularfull neyðarlínu símtöl sem fundust mánuðum síðar kveiktu alþjóðlega ráðgátu sem enginn hefur endanlega leyst. Hvað gerðist? Atburðurinn á El Pianista gönguleiðinni er enn eitt af óhugnanlegustu málum síðari ára! Til að sjá allar myndir í heild sinni úr myndav...

DULARFULLT: Betty & Barney Hill 05.09.2026

Árið 1961 voru hjónin Betty og Barney Hill á leið heim úr ferðalagi í gegnum dimman skóg þegar ljós á himninum ákvað að fylgja þeim.. mjög creepy, og spes 👀 Þau stoppuðu, horfðu aðeins á þetta ljós … og svo allt í einu eru 2-3 klukkutímar horfnir úr lífi þeirra. En eitthvað hefur breyst, eitthvað er öðruvísi og hundurinn.... er órólegur 🐶 Þetta er málið um Betty & Barney Hill Endilega komið...

DULARFULLT: The Monster with 21 Faces 29.08.2026

Í þessum þætti förum við til Japans á níunda áratugnum þar sem eitt furðulegasta sakamál landsins hófst. Hópur sem kallaði sig The Monster With 21 Faces byrjaði að senda dularfull bréf til lögreglu, fjölmiðla og stórra fyrirtækja. Í bréfunum var gert grín að yfirvöldum, og gefið í skyn að sælgæti í verslunum væri eitrað. 🍫📮 Það sem fylgdi í kjölfarið var röð atburða sem hljóma næstum eins og kvi...

DULARFULLT: Günther Stoll 21.08.2026

Hann var þrjóskur og þýskur ... ekkert að því. En þegar hann fannst dauður út í skurði, nakinn og undir dularfullum kringumstæðum var það svolítið skrítið. Mjög skrýtið 🤔 Hann hafði sagt að einhverjir væru á eftir honum, hann hafi loks komist að einhverju, hann skrifaði svo dulkóðaðan texta á blað og rauk út. Eftir það hófst ein furðulegasta atburðarrás sem þjóðverjar muna eftir.... og við ætlum...

EPSTEIN 13.08.2026

Engar áhyggjur, þetta er ekki þannig þáttur ! Við ætlum að skoða manninn á bakvið nafnið, hvernig venjulegur kennari gat orðið að einum umdeildasta manni síðari tíma. Nafnið sem engin vill nefna upphátt og enginn háttsettur vill tengja sig við. Við ætlum að kafa ofan í Mystíska hlutan tengdu þessu veldi hans, því þegar öllu er á botninn hvolft.... þá stemmir dæmið einfaldlega ekki upp - eða hvað?...

DULARFULLT: ROSWELL 06.08.2026

🛸 Sumarið 1947 hrundi eitthvað úr himninum í eyðimörk Nýju-Mexíkó 🌵 ... og heimurinn varð aldrei aftur eins! Herinn sagði að þeir hefðu fundið geimskip 🛸 en daginn eftir sögðu þeir... “nei þetta var blaðra 🎈”. Fólk vissi þó hvað var sagt áður en sögunni var skyndilega breytt, og heimamenn sáu þennan málm sem hvorki var hægt að beygja né brjóta 🧲 og líkamsleifar sem ekki voru af fólki 👽 Síðan...

MORÐ: Lainz Angels of Death 30.07.2026

Á Lainz sjúkrahúsinu í Vínarborg er deild þar sem dauðinn er hluti af starfinu, hann er oft fyrirsjáanlegur. En þegar dauðinn varð síðan kerfisbundinn, reglulegur og aðeins of algengur, þá fóru spurningar að vakna.... en samt ekki næstum því strax. Málið afhjúpaði alvarlega bresti í heilbrigðiskerfinu og situr enn þá sem svartur blettur í minningu Austuríkis... Þetta eru Lainz Angels of Death Endi...

MORÐ: SARAH GRACE PATRICK 23.07.2026

MORÐ: SARAH GRACE PATRICK EXTRA LANGUR þáttur þar sem við tökum DEEP DIVE í málið sem hefur verið alls staðar á samfélagsmiðlum seinustu vikur og þá sérstaklega TIKTOK ..... 🔫 Morðið á Kristin & James Brock og handtaka dóttur þeirra hinni 17 ára gömlu Sarah Grace Patrick.... Við erum DJÚPT sokkin í þetta mál og munum halda ykkur upplýstum! Hlustið á þáttinn og SEGIÐ YKKAR SKOÐUN Í ATHUGASEMDU...

RÁN: HATTON GARDON 16.07.2026

Á eftirlaunaárunum hugsa flestir um ferðalög, eignir á Kanarí, vilja eyða tíma með barnabörnum og röfla um allt og ekkert í heita pottunum. ...En ekki þeir silfur refir sem við fjöllum um í þættinum okkar í dag. Þeir vilja fremja rán, og ekki útaf peningunum heldur einungis því að þeir eru sko vissir um að þeir geti það ! 💪🏼 Þetta er Hatton Garden Ránið Endilega komið og verið með okkur, við hlö...

DULARFULLT: SPY IN A BAG 🎒 09.07.2026

Árið er 2010 og Garreth Williams hefur ekki mætt í vinnuna í nokkra daga, en það er engin að spá því fyrr en það líður tæp vika. Þegar lögreglan brýst inn í íbúðina hans þá kemur í ljós að Garreth var heima allan tímann. Ofan í tösku.... Um er að ræða eitt Mystíkasta mál síðari tíma og við ætlum að kafa ofan í þetta allt saman! Þetta er Spy in a Bag 🎒 Endilega komið og verið með okkur, við hlökku...

Kvöldvaktin # 1 06.07.2026

🌙 Við erum mætt á KVÖLDVAKTINA 🎙️ Við erum ótrúlega spennt að kynna nýjan vikulegan lið hjá Mystík . 🖤 Á Kvöldvaktinni setjumst við niður í stofunni heima, ýtum á REC og spjöllum aðeins við ykkur. Við ræðum hvað er framundan hjá Mystík, hvaða True Crime málum við erum að fylgjast með, og leyfum ykkur að kynnast okkur aðeins betur 🕺🏼 🎥 Og ef þið eruð að hlusta á Spotify þá eru góðar líkur á að...

MORÐ: Susan Avalon 🥪 03.07.2026

Málið sem við ætlum að taka fyrir í dag gerðist aðeins fyrir um tæpum mánuði síðan! Þetta er ósköp eðlilegur dagur sem byrjar eins og allir aðrir, Susan gengur inn í bakarí og bíður eftir hinu fullkomna tækifæri að hnuppla bakkelsi einhvers annars. Gjörsamlega kaldrifjaður þjófnaður og ófyrigefanlegur með öllu... En þetta var aðeins lítið plott í stærri atburðarrás sem átti eftir að breyta öllu !...

DULARFULLT: TROMP FJÖLSKYLDAN 26.06.2026

Hvernig hverfur heil fjölskylda – og birtist svo aftur, eins og ekkert hafi í skorist? Í þessum ótrúlega þætti förum við yfir hið dularfulla og margumtalaða mál Tromp fjölskyldunnar frá Ástralíu, sem árið 2016 yfirgaf heimili sitt skyndilega og hélt af stað í furðulega fjölskylduferð sem enginn virtist skilja – hvorki lögreglan, fjölmiðlar né fjölskyldan sjálf. Engin glæpavettvangur, engin augljós...

CULT: TWIN FLAMES 19.06.2026

Árið 2016 blossaði upp ný trúarhreyfing, dulbúin sem stefnumóta draumur. Samfélag sem lofaði fólki eilífa ást, hinn eina sanna “sálufélaga” sem alheimurinn hefði skapað sérstaklega fyrir hvern og einn. En á bak við þessi fallegu loforð leyndist dimmur veruleiki: þvinguð sambönd, stjórnun og peninga­græðgi. Fjöldi fyrrverandi meðlima lýsir því að hafa verið dregnir inn með hugmyndum um örlög og guð...

MORÐ: Mushroom Killer 🍄 12.06.2026

Þetta átti bara að vera venjulegur hádegisverður 🍽️ fínasta Beef Weelington🥩 og fyrrverandi tengdaforeldrar sem höfðu engan áhuga á að vera þarna 🙄 Þau höfðu svosum ekki mikinn áhuga á neinu eftir máltíðina, enda steindauð ⚰️ Þetta mál er eins og morðútgáfan af MasterChef Australia , og uppskriftin varð að umtalaðasta sakamáli sem heimsálfan hafði heyrt af 🇦🇺 Þetta er SVEPPAMORÐIÐ 🍄 Komdu í Mys...

MANNSHVARF: Drottning Vísindakirkjunnar 05.06.2026

Við höfum sjálfsagt flest öll heyrt minnst á Vísindakirkjuna og þá dularfullu starfsemi sem á sér stað bæði fyrir utan og innan veggja hennar og þær frægu Hollywood stjörnur sem tengjast henni. Söfnuðurinn er þekktur fyrir sínar óvenjulegu leiðir að ná sannleikanum úr fólki hvað sem það kostar og rukka þau fyrir það á sama tíma. Þeir sem fara uppá móti stjórnsýslunni hverfa á dularfullann hátt og...

DULARFULLT: NATALIA GRACE 20.02.2026

Hjónin Michael og Kristine áttu allt, þrjú heilbrigð börn, fullt af peningum og stórt hús. Árið 2010 ákveða þau að ættleiða stúlku. Stúlkan var frá Úkraínu, fædd 2003 og hún hét Natalia. En hún var með sjaldgæfan beinasjúkdóm sem að olli því að hún var dvergvaxin. Hún var einnig með kylfufót og átti erfitt með gang. Natalia flytur inn til þeirra, en það leið ekki á löngu þar til Michael og Kristin...

RÁN: LOUVRE SAFNIÐ 13.02.2026

Það er sunnudagsmorgunn í París. Nokkrir grímuklæddir menn ryðjast inn í Louvre safnið sem hafði lifað af heimsstyrjaldir og byltingar ... en ekki þetta. Á innan við sjö mínútum voru þeir farnir með milljarða virði af verðmætum og skildu eftir sig spurninguna: Hvernig rænir maður Louvre – og kemst upp með það? Nú ætlum við að kafa ofan í málið sem er á allra vörum þessa dagana og kannski náum við...

DULARFULLT: Manhattan Alien Abduction 👽 06.02.2026

🗽Í borginni sem aldrei sefur, þar sem fólk hverfur daglega inn í Starbucks, leigubíla og neðanjarðarlestir 🚕☕️🚇 — þá ákvað alheimurinn allt í einu að bæta smá kryddi inn í tilveruna 🌌 Linda svaf vært þegar hún var skyndilega dregin upp úr rúminu sínu af skæru bláu ljósi! Vitni sáu hana svífa út um gluggann 🪟✨ og hverfa inn í...... jáaa, þið verðið bara að hlusta á þáttinn! 🎧👀 Þetta er sag...

1000 Þættir - Þúsund Þakkir - Draugasögur 02.02.2026

Frá árinu 2020 höfum við hjónin undir merkjum Ghost Network framleitt eitt þúsund podcastþætti með hlaðvörpunum Draugasögur, Mystík Podcast og Sannar Íslenskar Draugasögur. ÞÚSUND ÞÆTTIR! Við viljum nota tækifærið aftur og þakka ÞÉR fyrir að hafa náð þessu stóra markmiði með okkur, þetta er gleðidagur og ekki sjálfsagt að ná svona stórum og merkum áfanga! 🥰 ÞÚSUND ÞAKKIR ❤️ SMELLTU HÉR OG VERTU M...

MORÐ: ONLY FANS MORÐIÐ 30.01.2026

Í dag förum við inn í heim þar sem glamúr, peningar og ást blandast hættulega vel saman. 💋✨Hún var vinsæl á OnlyFans og hann var ástmaðurinn sem stóð við hliðina á henni. En eitthvað dekkra kraumaði undir yfirborðinu, þar til það kom að suðupunkti. Þetta er sagan sem sýnir að ekki allt gull sem við sjáum á netinu glóir⚡ Var þetta sjálfsvörn eða kaldrifjað morð? 🔪 Þetta er saga af peningum, ást...

MORÐ: CHARLIE KIRK 23.01.2026

Charlie Kirk var bandarískur pólitískur athafnamaður og stofnandi Turning Point USA, ungliðahreyfingar sem margir dáðu fyrir rökræður- og málfrelsi en aðrir fyrirlitu fyrir öfgafullar skoðanir og hvassa gagnrýni á vinstri stefnur. Starf hans vakti jafn mikið hatur og það gerði að sameina fólk í kærleika og trú. Hann var því með stórt fylgi íhaldssamra en óhjákvæmilega jafnframt óvini líka sem mótm...

MORÐ: Eitraða Eiginkonan 16.01.2026

MORÐ: Eitraða Eiginkonan Í maí árið 2022 fannst Eric Richins látinn í rúminu sínu, aðeins fertugur að aldri. Fyrst var talið að um skyndilegt heilsufarsvandamál væri að ræða, en fljótlega kom í ljós eitthvað mun óhugnanlegra. Eiginkona hans, Kouri Richins, hélt partý daginn eftir andlátið og skrifaði barnabók um sorg og missi var svo sökuð um að hafa eitrað fyrir honum með of stórum skammti af Fen...

Listen to the Mystík podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.