Ghost Network®

Mystík

Mystík er hlaðvarp sem fjallar um skrýtin og dularfull mál. Morð, mannshvörf, myrkraverur, mannrán og aðrar mysteríur. Ef þú hefur gaman að True Crime og öllu því skrýtna og undarlega sem er að gerast í heiminum þá skaltu prófa að hlusta á þessa þætti! Þáttastjórnendur eru hjónin Katrín Bjarkadóttir og Stefán John Stefánsson en þau halda einnig úti hlaðvörpunum Draugasögur Podcast og Sannar Íslenskar Draugsögur sem þú finnur á öllum veitum. Viltu meiri Mystík í lífið? Prófaðu áskrift FRÍTT í 7 daga og fáðu aðgang að öllum þáttum aftur í tímann, áskriftarþátt í hverri viku + opna þætti án auglý...

Author

Ghost Network®

Category

True Crime

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

DULARFULLT: STEVEN KUBACKI 24.10.2025

SMELLTU HÉR og Komdu í Mystík Klúbbinn 🔍 🩸 DULARFULLT: STEVEN KUBACKI  Málið sem við ætlum að taka fyrir í dag er vægast sagt dularfullt og skrýtið! 🤯 Steven Kubacki heldur af stað á gönguskíðunum sínum að Lake Michigan... Ári síðar vaknar hann á engi og man ekkert hvað hafði komið fyrir, eða hvar hann var búin að vera allan þennan tíma! Komdu í Mystík Klúbbinn 🔍 🩸Þar sem þú færð: 🎧&nbs...

SERIAL: BELLE GUNNESS 17.10.2025

SMELLTU HÉR og Komdu í Mystík Klúbbinn 🔍 🩸 Belle Gunness var furðulegt eintak...hún auglýsti eftir herramönnum í norskum dagblöðum og óskaði eftir félagsskap þeirra... en það var eitt skilyrði... maðurinn sem myndi svara auglýsingunni yrði að vera viljugur að sameina eigur þeirra.... Rautt flagg? Út á við var Belle ansi óheppin í lífinu, hús hennar og fyrirtæki brunnu og mennirnir í lífi hennar...

DULARFULLT: YUBA COUNTY FIVE 10.10.2025

SMELLTU HÉR og Komdu í Mystík Klúbbinn 🔍 🩸 DULARFULLT: YUBA COUNTY FIVE Yuba County Five málið kannast eflaust einhverjir við, það er svolítið flókið en það fjallar um fimm karlmenn sem fóru á körfuboltaleik en skiluðu sér svo aldrei heim! Komdu í Mystík Klúbbinn 🔍 🩸Þar sem þú færð: 🎧 Nýr áskriftarþáttur í hverri viku  🔥 Heitustu sakamálin í rauntíma 🎤 Hráa spjallþætti &...

DULARFULLT: TÍMAFLAKKARINN JOHN TITOR 09.10.2025

SMELLTU HÉR og Komdu í Mystík Klúbbinn 🔍 🩸 DULARFULLT: TÍMAFLAKKARINN JOHN TITOR Í dag ætlum við að spóla aftur í tímann… eða fram í tímann… eða, sko, við vitum það eiginlega ekki alveg...🤨 Við ætlum að segja ykkur frá manni að nafni John Titor - sem birtist á spjallborðum árið 2000, sagðist vera frá árinu 2036, með sjálfsöryggi, ferðatösku og flugmiða frá framtíðinni. Hann var með alls konar s...

DULARFULLT: MEL´S HOLE 29.09.2025

DULARFULLT: MEL´S HOLE Í miðjum skógi í Washington fylki er hola... en enginn veit hversu djúp hún er 🤔 Einn daginn fær útvarpsmaðurinn Art Bell símhringingu frá (sem virðist í fyrstu) ósköp venjulegum manni sem kynnti sig sem Mel. Mel hafði átt land í nokkur ár og á þessu landi var hola. Holan hafði verið á landinu þegar að Mel keypti eignina af gömlum manni og eiginkonu hans. Gamli maðurinn haf...

MORÐ: Eddie Politelli 19.09.2025

Í dag ætlum við að fara yfir mál sem hefur fengið rosalega litla umfjöllun. Það er um morðið á Eddie Politelli, 72 ára karlmanni sem var drepinn með sveðju í Pizzastað í Los Angeles árið 2006!   Komdu í Mystík Klúbbinn 🔍 🩸Þar sem þú færð: 🎧 Nýr áskriftarþáttur í hverri viku  🔥 Heitustu sakamálin í rauntíma 🎤 Hráa spjallþætti & bónusklippur 📂 Aðgang að ö...

DULARFULLT: Tunguska Atburðurinn 12.09.2025

Þáttur vikunnar er svo sannarlega á léttu nótunum sem þið hafið vonandi bara gaman að 😄 Við reyndum okkar allra besta að bera þessi rússnensku nöfn rétt fram en fengum svo símtal frá Andra klippara eftir að upptökum var lokið þar sem hann benti okkur hispurslega á að við bárum Tunguska fram vitlaust allan þáttinn - en það verður bara að hafa það 😅  Í dag ætlum við að fjalla um vægast sagt f...

MORÐ: CHILDREN OF THUNDER 05.09.2025

Við erum stödd í bænum Woodacre í Bandaríkjunum. Lögreglan er að rannsaka tvöfalt morð og mannshvarf en þeim er ekki að ganga nógu vel. Lögreglan í Concord sem er 79 km frá, er að leita að eldri hjónum sem hurfu frá heimilinu sínu. Um svipað leiti rúllar kona í hjólastól inní banka. Hún er klædd í skærgræn föt og ber kúrekahatt á höfði.... Hvernig í fjáranum er hægt að púsla öllum þessum brotum sa...

SERIAL: MONSTER OF FLORENCE 29.08.2025

Á áttunda áratugnum virtist eitthvað vakna í sveitum Flórens á Ítalíu. Eitthvað sem faldi sig í myrkrinu, eins og rándýr að bíða eftir rétta augnablikinu til þess að ráðast á bráð sína og án þess að skilja eftir sig ummerki. Þegar fólk fór að deila sögum af skrímsli sem bjó við borgarmörkin , hlógu flestir... þar til lík fóru að safnast saman. Þetta er saga um einn frægasta raðmorðingja Evrópu, um...

MORÐ: RUNAWAY JOE 21.08.2025

Í dag ætlum við að kynna ykkur fyrir ótrúlega furðulegum karakter.... Joe Maloney. Hér erum við með mann, sem að myrti fyrverandi eiginkonu sína og flúði svo til Írlands þar sem hann faldi sig undir fölsku flaggi..... Það voru allir á eftir honum.....og á endanum var hann handsamaður....en þá fyrst byrjar ævintýrið! PRÓFAÐU FRÍA ÁSKRIFT AF MYSTÍK OG FÁÐU ÁSKRIFTARÞÁTT Í HVERRI VIKU + ÞESSA OPNU ÞÆ...

MORÐ: PAPIN SYSTURNAR 15.08.2025

Við erum staðsett í borginni Le Mans sem er í norð vestur hluta Frakklands. Hér ætlum við að skoða frægt sakamál þar sem Papin syturnar eru í aðalhlutverki, þær Christine og Léa. Systurnar störfuðu sem vinnukonur hjá Lanceline fjölskyldunni og höfðu gert það í rúm 7 ár þegar þær allt í einu fengu nóg. Og það sem þær gerðu var brútal! PRÓFAÐU FRÍA ÁSKRIFT AF MYSTÍK OG FÁÐU ÁSKRIFTARÞÁTT Í HVERRI VI...

MORÐ: ROLEX MORÐIÐ 14.08.2025

MORÐ: ROLEX MORÐIÐ 🍤 Árið 1995 flæktist lík manns í neti sjómanna. Hann bar enginn skilríki á sér en hann var með Rolex úr á vinstri úlnlið. Kannski íhuguðu sjómennirnir að stela úrinu og kasta honum aftur í sjóinn... en þeir ákváðu að vera ekki hálfvitar svo þeir hringdu í lögregluna....👮🏼 Upp hófst alveg ROSALEGA skrýtinn ratleikur þar sem löng röð tilviljana leiddi sannleikann að lokum í ljó...

MORÐ: SKINHEADS 14.08.2025

Komið þið sæl kæru hlustendur! Þann 12. nóvember árið 1997 braust út skotbardagi á milli lögreglunnar í Denver og skinheads  við íbúðarblokk í Denver USA. Lögreglumaðurinn Bruce Vanderjagt var drepinn í þessum bardaga og í kjölfarið var hin 21 árs gamla Lisl Auman handtekinn og ákærð við morð. Vandamálið var bara... að Lisl var í handjárnum og inni í lögreglubíl þegar morðið átti sér stað! PR...

MORÐ: Herbergi 1046 25.07.2025

Hversu mikla sögu getur eitt herberbergi geymt? Þegar dularfullt morð átti sér stað á hótelherbergi í Kansas City árið 1935 vakti það ekki bara athygli um allt landið heldur um heim allan! Málið var þrautarefni og varð eitt það dularfyllsta í sögunni. Því þetta er ekkert venjulegt morð, kringumstæðurnar og lýsingar vitna benda til þess að eitthvað sérkennilegt og mjög hrottalegt hafi átt sér þar s...

DULARFULLT: ÍSDALSKONAN 18.07.2025

DULARFULLT: ÍSDALSKONAN Við förum til nágranna okkar í Noregi, nánar tiltekið í Bergen árið 1970. Kona finnst vel skorðuð á milli stórra steina í bröttum fjallshlíðum Ísdals, allir miðar höfðu verið klipptir af fötum hennar, einnig miðar og merkingar ásamt fingraförum, en það var ekki allt.... Hver er þessi kona og hvernig komst hún alla leiðina uppí ísilagt fjallið í þykkum snjó og svo ...brunnið...

MORÐ: KNUTBY MORÐIÐ 15.07.2025

MORÐ: KNUTBY MORÐIÐ Það sem átti að vera friðsælt trúarsamfélag breyttist í vettvang glæps, blekkinga – og morðs. Í litla bænum Knutby í Svíþjóð árið 2004 köfum við djúpt í eitt ótrúlegasta morðmál Norðurlandanna. Einn morðingi og tvö fórnarlömb sem bjuggu hlið við hlið! Hver stjórnaði hverjum? Hvernig varð trú að vopni? Og hvaða leyndarmál lágu að baki sakleysislegu yfirborði? PRÓFAÐU FRÍA ÁSKRIF...

MORÐ: DOLLY 15.07.2025

MORÐ: DOLLY Saga okkar í dag fjallar um konu að nafni Walburga Oesterreich en hún er mun betur þekkt sem ...Dolly! Litríkt líf, læst loft og leynilegar ástir... Ástarsambönd geta verið flókin, ... en þau eru eitthvað aðeins meira en það hjá henni Dolly, og það hljómar eins og einhver endi dauður...! Færustu handritshöfundar Hollywood gætu ekki skrifað handrit sem væri jafn lygilegt og sagan sem vi...

DULARFULLT: BITCOIN KÓNGURINN 26.06.2025

Árið 2013 stofnaði Gerald Cotten fyrirtæki sem hann kallaði Quadriga CX sem átti að einfalda Kanadamönnum að kaupa og selja bitcoin. Quadriga leyfði notendum einnig að skipta bitcoin í dollara og tóku þau lítinn hagnað fyrir það. En haustið 2018 fóru fleiri og fleiri notendur Quadriga að taka eftir því að peningurinn sem þau voru að reyna að taka út skilaði sér aldrei til þeirra. Notendur héldu sí...

MORÐ: JOHN GOTTI 26.06.2025

Hann er sennilega einn frægasti mafíósi síðari tíma. Fæddur með glæpahneygð í blóði sínu og hikaði ekki við sína vald sitt hverjum sem ætlaði á móti honum. Fólk í kringum hann var ekki bara myrt, heldur gufaði það upp og sást aldrei nokkurn tímann aftur. 🎵 Stebbi heiðrar okkur með blús fíling í bland við góðann jazz til að fanga stemmninguna í eyrum okkar. 🎼 Njótið vel og komið með okkur í...

SERIAL: DR. DEATH 13.06.2025

Þegar starfsfólk spítalans í Quincey Illinois byrja að veikjast eitt af öðru mætir heilbrigðiseftirlitið á staðinn til þess að rannsaka málið. Þau komust að þeirri niðurstöðu að líklegast hafi eitthvað á kaffistofunni gert þau veik. En svo gerist þetta aftur og aftur! Á endanum fattar starfsfólkið að það veiktist alltaf einhver þegar einn ákveðinn aðili var á staðnum....Dr. Michael Swango..... Kem...

DULARFULLT: Flug 19 13.06.2025

Góðan dag kæru Mystík hlustendur, gleðilegan Mystík dag og verið velkomin í splunkunýjan þátt. Í dag ætlum við að taka fyrir mál sem hefur vakið mikinn óhug í hátt í 80 ár en yfir því liggur ákveðin dulúð sem þið munið eflaust finna fyrir þegar líða tekur á söguna. Þetta er nefnilega sagan af flight 19, eða flugi 19, sem við ætlum að taka fyrir hér í dag. Svo spennið sætisólarnar og sitjið róleg,...

MANNSHVARF: HATAÐASTA KONA BANDARÍKJANNA 25.05.2025

MANNSHVARF: HATAÐASTA KONA BANDARÍKJANNA  Í marga áratugi hafði Madelyn Murray O´Hair verið talskona trúleysis. Það var hún sem kærði ríkið og lét fella niður bænastundir í almennings skólum og fékk hún í kjölfarið titilinn „hataðasta kona Bandaríkjanna.“..... Svo þegar hún hverfur einn daginn þá eru ansi margir sem að koma til greina! PRÓFAÐU FRÍA ÁSKRIFT AF MYSTÍK OG FÁÐU ÁSKRIFTARÞÁTT Í HV...

MORÐ: NANPEI OWADA SUPERMARKET 25.05.2025

MORÐ: NANPEI OWADA SUPERMARKET Í dag erum við stödd í Japan og við ætlum að tala um Nanpei Owada Supermarket morðin, en þetta er mjög áhugavert mál og það var löng rannsókn sem fylgdi því.... PRÓFAÐU FRÍA ÁSKRIFT AF MYSTÍK OG FÁÐU ÁSKRIFTARÞÁTT Í HVERRI VIKU + ÞESSA OPNU ÞÆTTI ÁN AUGLÝSINGA + AÐGANG AÐ ÖLLUM ÞÁTTUM FRÁ UPPHAFI!!! Skráðu þig í áskrift á Patreon Skráðu þig í áskrift á Spotify Frábær...

DULARFULLT: MUNAÐARLEYSINGINN 10.05.2025

Þegar vinsæli sjónvarpsþátta-kokkurinn hún Nafsika ræður mann að nafni Nicholas Brown til að sjá um að finna gesti í þáttinn sinn og redda fjárveitingum, fer hegðun Nicholas að vekja grunsemdir. Sérstaklega þegar margir mánuðir líða án þess að hann hafi nokkuð borið til borðs.  -Nema endalausar afsakanir. Hann var klárlega ekki sá sem hann sagðist vera og reyndist bera fjölmörg nöfn sem fylgd...

RÁN: Hollywood Bandit 09.05.2025

Í upphafi tíunda áratugs síðustu aldar fór borgin Seattle að blómstra og taka á sig mynd stórborgar þegar Microsoft flutti þar að. Peningarnir flæddu í fyrsta skipti inn í Seattle sem þýddi að það þurfti að opna fleiri banka en nokkru sinni fyrr. En reiðufénu fylgdu rán. Mjööööög mörg bankarán. Maður hefði haldið að ef að fólk ákveður að ræna banka einhvern tímann á lífsleiðinni, að þá myndi það g...

Listen to the Mystík podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.