Unnur Borgþórsdóttir
Morðcastið
Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum. Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi. Til að hafa samband:mordcastid@gmail.cominstagram.com/mordcastidtwitter.com/mordcastid
Author
Unnur Borgþórsdóttir
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 9, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
81. Orð dagsins er: Netkaffi 07.01.2021 1:17:31
Það hljóta að vera amk 4 fimmtudagar í viku, þetta meikar engan sens. Allavega, hingað erum við komin. Bylgja byrjar eins og alltaf og segir frá einstæðri móður sem hlýtur vægast sagt hræðileg örlög. Unnur segir frá máli sem gerist í Brasilíu og er virkilega fyrirséð en engu að síður mjög áhugavert. Í boði Pennans Eymundsonar og Marr mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
80. Orð dagsins er: Geisha 31.12.2020 1:24:12
Gleðilegan áramótaþátt! Það að Bylgja hlustar aldrei á Unni og Unnur er ALDREI með hlutina á hreinu þá tökum við óvart fyrir tvö mál í dag. Erum, óvart aftur, komin til Bandaríkjanna þar sem fjölskyldufaðir missir alla stjórn og lendum svo í Japan þar sem ung kona lendir í alls konar kynlífstengdum ævintýrum(?). Hlustun er sögu ríkar, systurnar hafa aldrei verið vitlausari allavega. Í boði Ristor...
79. Orð dagsins er: Jólamorð 24.12.2020 48:51
Hóhóhó og gleðileg jól! Nýr örþáttur til að hlusta á yfir jólamatnum. Allt undarlegt og ógeðslegt eins og vera ber. Eigið dásamleg jól og njótið hátíðanna. Í boði Ristorante, Pennans Eymundssonar og Stöð 2 Maraþon. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
78. Orð dagsins er: Raftæki 17.12.2020 1:30:28
Þáttur dagsins fer ansi víða, fyrst og fremst um mörg raftæki, en Elko býður uppá þemaþátt í dag. Málin eiga margt sameiginlegt eins og aðallega það að þau eru hræðilega sorgleg. Alveg virkilega sorgleg, og svo er málið hennar Unnar helvíti ógeðslegt. Í boði Elko, Ristorante, Stöð 2 Maraþon og Pennans Eymundsson. mordcastid.is instagram.com/instagram facebook.com/instagram
77. Orð dagsins er: Typpískt 10.12.2020 1:27:28
Já það er rétt sem þið sjáið, þetta er ansi langur þáttur. Í þætti dagsins verðum við báðar mjög miður okkar enda tvö erfið mál og annað þeirra mjög umdeilt enn þann dag í dag. Búið ykkur undir mikla reiði, mikil vonbrigði og mikið feðraveldi. Helvítis feðraveldið maður. Í boði Ristorante og Stöð 2 Maraþon. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
76. Orð dagsins er: Vampíruhús 03.12.2020 55:01
Það hljóta að vera extra fáir dagar á milli fimmtudaga, ekki satt? Í þessum þætti fékk Bylgja mjög óvænta munnræpu og ræpar stanslaust í næstum klukkutíma. Gott með hana, ekki alveg jafn gott með geranda dagsins. Mál sem gerist í Bandaríkjunum og er vægast sagt mjög áhugavert. Í boði Stöð 2 Maraþon og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
75. Orð dagsins er: Ostur 26.11.2020 1:09:18
Hvernig er það, er alltaf fimmtudagur? Þennan ágæta síðasta fimmtudag nóvembermánaðar höldum við okkur í Skandinavíu. Bylgja talar um sænska vampíru og Unnur um það hvernig lögreglan í Kaupmannahöfn var einu sinni með allt lóðbeint niður um sig. Þetta er alls konar. Í boði Ristorante og Stöð 2 Maraþon. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
74. Orð dagsins er: Smalabaka 19.11.2020 1:14:59
Við erum í Svíþóð og Suður-Kóreu í dag. Bylgja tekur fyrir mál sem er svo heimskulegt að öll heimsins hugarkort náðu ekki að bjarga því á meðan að Unnur uppljóstrar um vanhæfni lögreglu í Suwon. Evrópa og Asía í einni og sömu sæng, er eitthvað betra? Í boði Ristorante og Stöð 2 Maraþon. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
73. Orð dagsins er: Ummerki 12.11.2020 1:04:25
Risastór fimmtudagur í dag. Stærst af öllu auðvitað að tvö íslensk mál séu tekin fyrir í þessum þætti. Í dag er nefnilega þemaþátturinn: Ummerki. Bylgja segir frá nýlegu og virkilega sorglegu máli og Unnur segir frá eina skiptinu sem einstaklingur hefur látist eftir skotárás við lögreglu á Íslandi. Mjög áhugavert. Lofa. Í boði veganbudin.is, Ristorante og Stöð 2 maraþon. mordcastid.is instagram.co...
72. Orð dagsins er: Martröð 05.11.2020 1:13:05
Góðan daginn fimmtudaginn! Í dag er dagurinn sem Bylgja fær munnræpu, ótrúlegt en satt. Hún tekur fyrir stórmerkilegt mál sem gerist í Bandaríkjunum, lifandi martröð til að segja alveg eins og er. Unnur hinsvegar segir frá undarlegu máli alla leið frá Japan. Allt er skrítið, allt er áhugavert. Í boði hlaðvarpsins Leitin að peningunum, Stöð 2 maraþon, Ristorante og Vegan búðarinnar.
71. Orð dagsins er: Spegill 29.10.2020 1:10:31
Extra skrítinn þáttur í dag. Bylgja segir frá máli sem tengist bæði þjóðverjum og svíum, á meðan Unnur segir frá máli sem gerist árið 2017 í Bandaríkjunum. Smá Eurovision staðreyndir, smá grín. mordcastid.is Instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid mordcastid@gmail.com
70. Orð dagsins er: Læknisfræði 22.10.2020 1:09:57
Vissuði að það eru bara 9 föstudagar til jóla? Það þýðir bara eitt. 9 fimmtudagar! Sem þýðir auðvitað líka 9 Morðcastþættir fram að jólum. Jahérnahér, tíminn flýgur. Allavega. Nýr þáttur! Reyndar bara eitt mál þó hann sé langur. Í þætti dagsins fer Unnur mjög djúpt ofaní merkilegt franskt mál þar sem franskur "læknir" og narsisisti fer mikinn. Bylgja er á meðan bæði mjög undrandi og þreytt. mordca...
69. Orð dagsins er: Twitter 15.10.2020 53:01
Margskonar viðbjóður enn á ný. Unnur tekur óvænta stefnu til Japan þar sem hún segir frá áhugaverðu Twittermáli á meðan Bylgja segir frá þýskum manni sem lendi í veseni með lagnirnar hjá sér. Alltaf að passa uppá pípurnar! pardus.is mordcastid.is instagram.is/mordcastid facebook.com/mordcastid
68. Orð dagsins er: Homeboy 08.10.2020 1:09:38
Alltaf er það fimmtudagur. Systurnar fljúga heimsálfa á milli og koma við bæði í Kanada og í Þýskalandi. Það koma við sögu bæði leigumorðingjar og vampírur, barkakýli og námsbækur. Þátturinn er í boði Jömm og Oumph!, Marr, Stöð 2 Maraþon og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
67. Orð dagsins er: Frostlögur 01.10.2020 1:28:39
Make America Great Again? Systurnar eru báðar í Bandaríkjunum í dag og segja sögur af misógeðslegu fólki en ekki síst viðbjóðslegum mæðrum. Ótrúlega lítið fliss en töluvert vðökk! Nýr þáttur í boði Marr, Stöð 2 Maraþon, Coke á Íslandi (CCEP), Ristorante og Bónus. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
66. Orð dagsins er: Súpa 23.09.2020 59:55
Ísland og Svíþjóð. Gaaaaamla daga og nútíminn. Slúður, framhjáhald og margir hundar. Það er Sögucastið, Flisscastið og að sjálfsögðu Auglýsingacastið. Nýr þáttur í boði Stöð 2 Maraþon, Coke á Íslandi (CCEP), Ristorante og Bónus. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
65. Orð dagsins er: Maraþon 17.09.2020 1:03:03
Nýr dagur. Nýr þáttur í boði Stöð 2 Maraþon, Coke á Íslandi (CCEP), Ristorante og Bónus. Mælum innilega með áskrift! Í þætti dagsins er Bylgja umvafin laktósa á meðan Unnur veltist um í vatnsrúmi. Allt hefur þetta virkilega hræðilegar afleiðingar. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
64. Orð dagsins er: Stálmagi 10.09.2020 1:09:41
Á þessum degi árið 1990 kom Keikó aftur til Íslands. Dýr sem gekk næstum því í gegnum jafn miklar hremmingar og fórnarlambið í málinu hennar Bylgju. Án gríns. Unnur tekur fyrir hvarf stelpna í Soham og saman blaðra þær í svakalega margar mínútur. Eins og alltaf. Love it! mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
63. Orð dagsins er: Forystuselur 03.09.2020 1:51:25
September?! Jahérna. Rosalega langur þáttur, mikið spjall. Margar fréttir! Enn einn þátturinn, ég get svo svarið það. Bylgja er föst í Bandaríkjunum þar sem hún segir frá stórfurðulegu máli sem gerist í Suðurríkjunum. Unnur segir frá raðmorðingjum frá Bretlandi. Næst tölum við minna! mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
62. Orð dagsins er: Jimothy 27.08.2020 1:25:00
Hvernig má það vera að það sé alltaf fimmtudagur? Allavega! Í dag tekur Bylgja fyrir mál sem gerist á Íslandi, samt ekki? Flókið. Unnur aftur á móti tekur fyrir mál sem gerist í Bandaríkjunum og gerir alla arga. Njótið! mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcastid
61. Orð dagsins er: Kentár 20.08.2020 1:05:51
Sagði einhver sveðja? Nei? Ólífuolía kannski? Barnamorð? Ekki? Kentár? Nei ég segi svona. Allt þetta í þætti dagsins, og meira til! Ekki gleyma að fylgja Morðcastinu á öllum helstu veitum til að missa ekki af neinu. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
60. Orð dagsins er: Steypuhár 13.08.2020 1:09:36
60 þættir. Vá. Þáttur dagsins er þemaþáttur. Óupplýst! Báðar erum við í Bandaríkjunum og báðar segjum við frá ótrúlega sorglegum og erfiðum málum. Passið að missa ekki af neinu og fylgið Morðcastinu á helstu miðlum: mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid mordcastid@gmail.com
59. Orð dagsins er: Pikkles 06.08.2020 1:08:29
Það er ágúst. Það er comeback. Unnur og Bylgja ferðast bæði til Bandaríkjanna og Rússlands og þar er eiginlega allt fólkið bara virkilega ógeðslegt. Það er dúkahnífur, það er súrsunarkrukka. Æsispennandi hlutir framundan svo ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagram.com/mordcasti...
58. Orð dagsins er: Slavemaster 02.07.2020 1:52:39
Eftir langa pásu sest Unnur niður með sérlegri gestasystur sinni. Báðar þreyttar, báðar með munnræpu. Bylgja skýrir frá því að internetið á það til að vera viðbjóðslegur staður og Unnur segir frá ógeðslegum manni á besta aldri. Þetta er alltaf jafn helvíti viðbjóðslegt. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is...
57. Orð dagsins er: Ræpa 30.04.2020 1:31:13
ÚBS! Þáttur dagsins er óeðlilega langur enda var bæði ráðandi munnræpa og annarskonar ræpa. Bylgja segir frá máli sem gerist í Svíþjóð þegar ung stelpa finnst látin og mjaðmabeinalaus. Unnur tekur fyrir mál sem gerist í Danmörku árið 1995. Ekki gleyma að subscribea, og munið að fylgja Morðcastinu á samfélagsmiðlum til að missa örugglega ekki af neinu: mordcastid.is facebook.com/mordcastid instagra...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.