Unnur Borgþórsdóttir
Morðcastið
Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum. Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi. Til að hafa samband:mordcastid@gmail.cominstagram.com/mordcastidtwitter.com/mordcastid
Author
Unnur Borgþórsdóttir
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 9, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
106. Orð dagsins er: Skrímsli 01.07.2021 59:16
Annar dagur, fleiri skrímsli. Jú kæru hlustendur, það er fimmtudagur og það eru hrottaleg mál. Í þætti dagsins fer Bylgja yfir mál þar sem faðir drengs gengur berseksgang í kjölfar fótboltaleiks, svona vægt til orða tekið. Unnur hinsvegar tekur fyrir mál þar sem ungur maður misnotar aðstöðu sína í gegnum Craigslist. Allt ömurlegt. Í boði Geosilica og Ristorante.
Orð dagsins er: Uppstoppun 24.06.2021 51:54
Góðan daginn fimmtudaginn! Það er sama blaðrið í dag eins og aðra fimmtudaga nema í þessum þætti blöðrum við okkur bara í gegnum eitt mál, ekki tvö. Ekkert að því, málið er mjög merkilegt og mikið að ræða. Bylgja segir semsagt frá máli þar sem augu spila stórt hlutverk, meira þarf ekki að segja um það. Í boði Arion banka, Geosilica og Ristorante.
104. Orð dagsins er: Silfurskeið 17.06.2021 46:15
Hæ hó og jibbí jei! Gleðilegan þjóðhátíðardag og alls ekki síður, gleðilegan morðdag. Í þætti dagsins segir Bylgja frá ömurlegu máli sem gerist í Bandaríkjunum og Unnur líka. Svosem ekkert nýtt undir sólinni þar, en málin eru bæði mjög sorgleg. Í boði Arion banka, Ristorante og Geosilica.
103. Orð dagsins er: Túnfiskur 09.06.2021 37:35
Júhú! Það er einn helvítis fimmtudagurinn enn og við stöndum að sjálfsögðu vaktina. Í þætti dagsins segir Bylgja frá máli Brian Shaffer sem, jah, æj þið verðið eiginlega bara að hlusta. Mjög skrítið alltsaman. Í boði Arion banka, Ristorante og Geosilica. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
102. Orð dagsins er: Pontiac 03.06.2021 44:46
Júní er það. Afmælismánuður Unnar Örnu, sem þýðir vissulega að konan verður óvinnufær þar til júlí rennur upp. Í þætti dagsins fær Unnur alla munnræpuna og segir frá ungri stúlku í Bandaríkjunum sem hverfur eins og dögg fyrir sólu. Sumt fólk á í alvörunni ekki neitt gott skilið! Í boði Geosilica, Arionbanka og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
101. Orð dagsins er: Bröns 27.05.2021 54:18
Alveg er þetta að verða ótrúlegt með hvernig það er alltaf fimmtudagur. Allavega. Í þætti dagsins þá segir Unnur frá mjög klókum unglingi sem tekur vægast sagt slæmar ákvarðanir á lífsleiðinni. Aðallega eina slæma ákvörðun reyndar. Bylgja segir frá konu sem reyndar tók líka fullt af slæmum ákvörðunum. Æji þetta var allt mjög hræðilegt. Í boði Geosilica, Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram....
100. Orð dagsins er: H U N D R A Ð 20.05.2021 2:27:54
100 þættir maður, vá. 100 þættir, skrilljón klukkutímar, alltof mörg hræðileg sakamál og svo mætti lengi telja. Unnur segir frá breskum morðingja, Bylgja segir frá máli með jákvæðum endalokum og Bjarki segir frá manni í búri. Allt mjög undarlegt en áhugavert. Í boði Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
99. Orð dagsins er: Tannlæknir 13.05.2021 50:59
Enn einn fimmtudagurinn og ekki skánar það. Í þætti dagsins segir Bylgja frá tannlækni sem tekur málin í sínar hendur með pítsu í annarri. Án gríns. Unnur hinsvegar segir frá yngsta raðmorðingja í heimi. Allt mjög sorglegt og ömurlegt. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
98. Orð dagsins er: Legsteinn 06.05.2021 51:02
Það er kominn maí og íslenska vorið heilsar okkur með slyddu og 1 stiga hita. Æðislegt. Í þætti dagsins er allt ömurlegt eins og vanalega og eru systurnar báðar í Bandaríkjunum að elta uppi ömurðina. Þorsti í gosdrykk dregur dilk á eftir sér og unglingsárin eru stundum erfið. Gömul saga og ný. Í boði Marr, Ristorante og Ethique. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
97. Orð dagsins er: Sálarmorð 29.04.2021 41:39
97 fimmtudagar. Það eru mjög margir fimmtudagar. Í þætti dagsins segir Bylgja frá foreldrum sem hefðu betur sleppt því að fjölga sér og Unnur segir frá hræðilega sorglegu máli þar sem mjög illa er farið með unga konu af frumbyggjaættum. Í boði Marr, Ristorante, Vegan búðarinnar og Jömm. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
96. Orð dagsins er: Kartöflumús 22.04.2021 53:49
Fimmtudagur enn og aftur. Í þætti dagsins byrjar Bylgja, sjokk, og segir okkur frá vanhæfum foreldrum og vesalings börnum. Unnur hinsvegar segir frá konu sem tók málin í eigin hendur. Samt svona meira eigin kartöflumús. Í boði Jömm og Vegan búðarinnar, Ristorante og Marr.
95. Orð dagsins er: Stórfótur 15.04.2021 53:24
15 fimmtudagur ársins ef stærðfræðin bregst mér ekki, æðislegt. Í þætti dagsins segir Bylgja frá nokkrum ungmennum í Bandaríkjunum sem taka út einhvern innri trylling á einni vesalings stelpu. Unnur aftur á móti segir frá mannshvarfi sem á sér í rauninni engar skýringar. Var það stórfótur? Aðilar í máli: Christa Pike, Henry McCabe. pardus.is/mordcastid mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebo...
94. Orð dagsins er: Tæling 08.04.2021 59:23
Þáttur 94 bíður uppá allskonar, en aðallega kannski mannvonsku og vandamál heimsins. Unnur segir frá máli þar sem ung stelpa lendir í tælingarferli hjá eldri mönnum og Bylgja segir frá bandarískum manni sem fór mjög óhefðbundna leið við að greiða niður yfirdráttinn sinn. Í boði Marr, Veganbúðarinnar og Ristorante mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
93. Orð dagsins er: Apríl 01.04.2021 1:11:16
1. apríl. Sennilega leiðinlegast gríndagur allra tíma. En sjá, við boðum yður fögnuð og í stað þess að gera eitthvað glatað þá færum við ykkur nýjan þátt. Þemað er apríl og systurnar segja frá málum tveimur ungra stúlkna í Bandaríkjunum. Merkilega lítil munnræpa en mjög sorgleg mál. Þátturinn er í boði Forlagsins, Ethique, Marr, Veganbúðarinnar og JÖMM og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mo...
92. Orð dagsins er: Kolamoli 25.03.2021 1:20:38
Þegar þið hélduð kannski að við gætum ekki fengið meiri munnræpu, þá gerðist það. Í þessum þætti tekur Bylgja fyrir óupplýst mál sem gerist í Bandaríkjunum sem er vægast sagt óhugnalegt en Unnur segir frá ögn gleðilegra máli sem einnig gerist í Bandaríkjunum. Málsaðilar: Jessica Chambers og Dalia Dippolito. Í boði Vegan búðarinnar og Jömm, Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid...
Orð dagsins er: Klan 18.03.2021 1:09:57
Hreint út sagt ótrúlegur fimmtudagur í dag. Unnur fær að byrja, reyndar bara eitt mál, en málið er stórmerkilegt og mjög langt og mjög áhugavert. Ég meina, vampírur, what a concept. Í boði Vegan búðarinnar og Jömm, Ristorante og Marr. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
90. Orð dagsins er: Sykurpúði 11.03.2021 1:12:53
90 þættir! Sjit. Allavega. Í þætti dagsins rennir Unnur lauslega yfir nokkur skrítin mál sem áttu sér stað árið 2019 og Bylgja tekur fyrir fremur þekkt mál drengs sem drepur systur sína. Í boði Vegan búðarinnar og Jömm, Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
89. Orð dagsins er: Samloka 04.03.2021 58:46
Góðan daginn fimmtudaginn, fimmhundraðasta fimmtudaginn á árinu. Í þætti dagsins segir Bylgja frá móður sem er vanhæf og á ekki að eiga börn á meðan að Unnur segir frá manni sem á ekki að vera í veitingastaðarekstri. Í boði Jömm og Veganbúðarinnar, Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid Facebook.com/mordcastid
88. Orð dagsins er: Skjaldbaka 25.02.2021 1:06:52
Fimmtudagar eru æði ekki satt? Í þætti dagsins segir Bylgja frá raunum ungs manns í Írlandi eftir frekar lélegt partý og Unnur segir frá máli þar sem einhliða ást unglings fer úr böndunum. Í boði Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
87. Orð dagsins er: Skordýr 18.02.2021 55:46
Skordýr voru það. Flugur, flugnaegg, bjöllur og líka kattahár. En kettir eru reyndar ekki skordýr. Allavega. Í þætti dagsins segir Bylgja frá tveimur málum, í báðum tekur Satan sjálfur völdin, en í máli Unnar segir hún "skemmtilegu" máli með allskonar beygjum. Í boði Ristorante og Marr. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
86. Orð dagsins er: Gullskór 11.02.2021 35:32
Þátturinn í dag er kannski stuttur, en hann er skrítinn! Unnur tekur fyrir mál (reyndar smá kannski tvö mál) sem gerast í Bandaríkjunum og leysast alltof seint. Í boði Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
85. Orð dagsins er: Illinois 04.02.2021 53:56
85 þættir. Vá. Í þætti dagsins fjallar Bylgja um tvær sænskar stelpur sem fara um Bandaríkin á puttanum. Vond hugmynd. Unnur segir frá óþægilegast yfirmanni veraldar og hversu mikið ógeð hann er. Fórnarlömb: Marie Lilienberg, Maria Wahlén og Alisha Bromfield. Í boði Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
84. Orð dagsins er: Rifjárn 28.01.2021 57:15
Það er svo oft fimmtudagur að ég vissi ekki að það væri fimmtudagur. Allavega. Í þætti dagsins fjallar Bylgja um breskt fólk sem hefur upplifað betri tíma og Unnur segir frá ungum strákum sem töpuðu sjálfum sér í rokkinu. Í boði Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
Orð dagsins er: Einkaspæjari 21.01.2021 59:26
Fimmtudagur, hvernig má það vera. Jæja, það þýðir bara eitt. Funheitur Morðcastþáttur. Í þætti dagsins segir Bylgja frá systkinum í Bandaríkjunum sem áttu aldrei séns og Unnur segir frá mjög sorglegu máli þar sem þrautseig vinkona spilaði lykilhlutverk. Í boði Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mordcastid
82. Orð dagsins er: Ugla 14.01.2021 54:57
Jæja þá er það u.þ.b. 39undi fimmtudagurinn á þessu ári. Í þætti dagsins fær Bylgja munnræpu sem er alltaf skemmtilegt, en í þessari ræpu segir hún frá ungri konu sem glímir við margskonar vandamál og erfiðleikar. Aðallega kannski ungum dreng sem á hræðilega ævi. Hræðilega. Það eru dúkkur, það eru uglur, það er salt. Í boði Marr og Ristorante. mordcastid.is instagram.com/mordcastid facebook.com/mo...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.