Valtýr Björn
Mín skoðun
Podcast með Valtý Birni
Author
Valtýr Björn
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 3, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
240.þáttur. Mín skoðun. 21012021 21.01.2021 1:00:31
240.þáttur. Mín skoðun. Okkar allra besti Siggi Sveins er í spjalli um leikinn í gær gegn Sviss og Siggi hefur ýmislegt um þann leik og framhaldið að segja. Þórhallur Dan er á línunni og við förum áfram aðeins í landsliðsþjálfarakapal KSÍ og einnig ræðum við um umdeilt mark í leik Man. City og A.Villa í gær. Njótið
239.þáttur. Mín skoðun. 20012021 20.01.2021 1:00:31
239.þáttur. Mín skoðun. Handboltagoðsögnin Siggi Sveins er í spjalli og spáir í leiki dagsins og hvernig ætli hann spái leik Íslands og Sviss? Þá er Þórhallur Dan í viðtali en við tölum um margt og mikið meðal annars um þjálfarakapalinn hjá KSÍ. Áfram ÍSLAND
238.þáttur. Mín skoðun. 19012021 19.01.2021 1:00:08
238.þáttur. Mín skoðun. Handboltagoðsögnin Siggi Sveins er í spjalli um landsleikinn í gær og hann liggur ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn. Þórhallur Dan er að sjálfsögðu í viðtali þar sem við förum um víðan völl íþróttanna og Mourinho er ekkert í sérstöku uppáhaldi hjá Tóta. Njótið
237.þáttur. Mín skoðun. 18012021 18.01.2021 1:00:29
237.þáttur. Mín skoðun. Siggi Sveins handboltagoðsögn er á línunni í spjalli um HM í handbolta og hvernig ætli hann spái leiknum í kvöld? Þá er Þórhallur Dan í spjalli um boltann í Evrópu og svo einnig um landsliðsþjálfaramál U21. Njótið
236.þáttur. Mín skoðun 15012021 15.01.2021 1:00:56
236.þáttur. Mín skoðun. Tippari vikunnar hefur göngu sína að nýju í dag og Eggert Kristófersson forstjóri Festi er tippari vikunnar. Hvernig spáir hann stórleik Liverpool og Man. Utd. ? Siggi Sveins handboltagoðsögn fer yfir landsleikinn gegn Portúgal á HM í gær. Og Þórhallur Dan er á línunni þar sem hann spáir í helgina í boltanum og fer einnig inná sóttvarnarmál. Njótið helgarinnar.
235.þáttur. Mín skoðun. 14012021 14.01.2021 1:03:10
235.þáttur. Mín skoðun. Sigurður Valur Sveinsson handboltagoðsögn var í spjalli vegna HM í handbolta og við fórum yfir leikinn í kvöld gegn Portúgal. Þórhallur Dan var á línunni og við fórum yfir margt og mikið, svosem boltann í Evrópu, sóttvarnir í íþróttahúsum í Kópavogi og við fórum einnig aðeins í þjálfarakapalinn hjá KSÍ. Áfram ÍSLAND
234.þáttur. Mín skoðun. 13012021 13.01.2021 59:41
234.þáttur. Mín skoðun. Páll Kristjánsson formaður knd. KR var í viðtali þar sem hann fer yfir kærumál KR gegn KSÍ. Hvernig stendur það mál? Þórhallur Dan var svo á línunni og við ræddum um Man. Utd. þjálfaramál KSÍ og margt margt fleira. Njótið
233.þáttur. Mín skoðun. 12012021 12.01.2021 1:00:31
233.þáttur. Mín skoðun. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ var í spjalli þar sem við ræddum um þá gleði að körfuboltinn er að fara af stað á ný. Við ræddum einnig um breytt fyrirkomulag á bikarkeppninni og fleira til. Þórhallur Dan var í viðtali þar sem við fórum yfir boltann í kvöld, ræddum um Liverpool og Man. Utd. og Tóti spáir því að Sheff. Utd. vinni sinn fyrsta leik í kvöld. Njótið
232.þáttur. Mín skoðun. 10012021 11.01.2021 1:00:50
232.þáttur. Mín skoðun. Sigurður Valur Sveinsson (Siggi Sveins) handboltagoðsögn var í spjalli um landsleikinn í handbolta í gær. Sigga leið mjög illa í stöðunni 7-12 og var alvarlega að spá í að hætta að horfa á leikinn. Þórhallur Dan var einni í spjalli og við ræddum um boltann í Evrópu og við komum einnig inná landsleikinn í handbolta sem og þjálfaramál KSÍ. Njótið.
231.þáttur. Mín skoðun. 08012021 08.01.2021 59:54
231.þáttur. Mín skoðun. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í handbolta er í góðu spjalli í dag en Ísland mætir Portúgal öðru sinni á sunnudag í undankeppni EM. Guðmundur er að vanda einlægur í þessu viðtali. Þá er Þórhallur Dan á línunni og þar er annar maður sem ávallt er einlægur. Ég og Tóti vörum yfir víðan völl íþróttanna. Góða helgi kæru landar.
230.þáttur. Mín skoðun. 07012021 07.01.2021 1:00:36
230.þáttur. Mín skoðun. Sigurður Valur Sveinsson (Siggi Sveins) handboltagoðsögn var á línunni og við ræddum um landsleikinn í gær gegn Portúgal og við spjölluðum einnig um framhaldið. Þórhallur Dan var í spjalli um fótboltann í gær og við komum einnig inná önnur mál. Tóti Dan er t.d. ekki mjög hrifinn af Trump. Njótið
229.þáttur. Mín skoðun. 06012021 06.01.2021 1:00:09
229.þáttur. Mín skoðun. Sigurður Valur Sveinsson (Siggi Sveins) handboltagoðsögn var á línunni vegna landsleiks Íslands gegn Portúgal í kvöld í undankeppni EM. Siggi fór yfir sviðið eins og honum er einum lagið. Þá hringdi ég í Þórhall Dan og ræddi við um boltann, slúðursögur og fleira. Njótið
228.þáttur. Mín skoðun. 05012021 05.01.2021 1:02:10
228.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir íþróttasviðið og Krummasögur voru á sínum stað. Þá heyrði ég í Róberti Gíslasyni framkvæmdastjóra HSÍ en hann er staddur útí Portúgal með íslenska landsliðinu en Ísland mætir Portúgal í riðlakeppni EM á morgun. Njótið
227.þáttur. Mín skoðun. 04012021 04.01.2021 1:00:03
227.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir íþróttasviðið um áramótin og það sem er framundan. Ég skal bara segja ykkur það að þar var ekki töluð vitleysan. Njótið
226.þáttur. Mín skoðun. 30122020 30.12.2020 1:00:31
226.þáttur. Viggó Haraldur Viggósson eigandi Golklúbbsins er á línunni þar sem við ræðum afar undarlega lokun klúbbsins en er Viggó búinn að opna aftur? Ég og Þórhallur Dan fórum síðan yfir það sem um var að vera í gærkvöldi og Þórhallur Dan svarar spuriningunni, hvað var eftirminnilegast á árinu. Þetta og margt fleira að vanda. Ég vil óska öllum gleðilegs árs og friðar. Heyrumst aftur 4.janúar....
225.þáttur. Mín skoðun. 29122020 29.12.2020 1:00:36
225.þáttur. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir málin í sportinu. Ræddum um Aron Pálmarsson, kjör íþróttamanns ársins, spurðum afhverju Þórir Hergeirsson er ekki á lista þriggja manna yfir valið á besta þjálfaranum og margt margt fleira. Njótið dagsins elskurnar.
224.þáttur. Mín skoðun. 28122020 28.12.2020 1:00:42
224.þáttur. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir gang mála í sportinu og ræddum nánast um allt, Fótbolta, handbolta, körfubolta og svo fórum við aðeins inná bóluefnið við Covid 19 sem er komið til landsins. Njótið dagsins.
223.þáttur. Mín skoðun. 23122020 23.12.2020 1:01:04
222.þáttur. Ég og Þórhallur Dan erum í góðu jólaspjalli um fótbolta og handbolta yfir hátíðarnar. Við tölum um nýja landsliðsþjálfara Íslands, förum í aðgerðir ríkisstjórnarinnar, förum yfir það sem um er að vera yfir jólin og margt margt fleira. Gleðileg jól elskurnar.
221.þáttur. Mín skoðun. 21122020 21.12.2020 1:00:45
221.þáttur. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir sviðið í heimi íþróttanna um helgina. Tóti elskar Hurðaskelli og við ræðum um það og fleira. Einnig um Liverpool og ekki síst Mourinho. Þetta og margt margt fleira.
220.þáttur. Mín skoðun. 18122020 18.12.2020 1:01:02
220.þáttur. Jóhannes Lange einn sá fróðasti um evrópskan kvennahandbolta var á línunni um EM kvenna og spáði í spilin fyrir úrslitahelgina. Hverjir verða meistarar í Evrópu? Og hann er einnig með nokkuð stóra frétt af mótinu. Ég hringdi í Þórhall Dan og ræddi við hann um valið á besta knattspyrnufólkinu hjá FIFA. Við fórum einnig yfir leiki helgarinnar og fleira til. Njótið og góða helgi.
219.þáttur. Mín skoðun. 17122020 17.12.2020 1:00:13
219.þáttur. Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar KR er á línunni um mál KR gegn KSÍ. Ávallt gott að ræða við Pál og margt athyglisvert sem hann segir. Ég og Þórhallur Dan fórum svo yfir gang mála í boltanum. Völdum knattspyrnufólk ársins og Tóti tjáði sig um Mourinho og fleira til. Njótið.
218.þáttur. Mín skoðun. 16122020 16.12.2020 1:00:22
218.þáttur. Ásgrímur Helgi Einarsson formaður knattspyrnudeildar Fram var á línunni en Fram hefur ákveðið að áfrýja dómi dómstóls KSÍ til dómstóls ÍSÍ. Ásgrímur svarar einnig spurningunni hver sé hans uppáhaldsjólasveinn. Þórhallur Dan var að vanda í spjalli og við fórum yfir leiki gærkvöldsins í boltanum og í kvöld. Fórum aðeins inná þjálfaramál KSÍ og margt margt fleira. Njótið
217.þáttur. Mín skoðun. 15122020 15.12.2020 1:00:16
217.þáttur. Víðir Sigurðsson er viðtali í dag þar sem við förum yfir útgáfu bókarinnar, Íslensk knattspyrna 2020 sem er að koma út. Um er að ræða merkisútgáfu og við förum yfir það allt ásamt því að Víðir tjáir sig um hvern hann velji sem íþróttamann ársins 2020. Þórhallur Dan er á línunni og við förum yfir víðan völl að vanda og skemmtum okkur vel. Njótið
216.þáttur. Mín skoðun. 14122020 14.12.2020 1:00:07
216.þáttur. Ég og Þórhallur Dan ræddum um allt sem um var að vera um helgina . Handbolti og fótbolti. Man. Utd. Liverpool, West Ham, Dortmund, EM í handbolta og margt margt fleira
215.þáttur. Mín skoðun. 11122020 11.12.2020 1:00:49
215.þáttur. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir landsliðsmál kvennalandsliðsins og einnig karlaliðsins. Auk þess sem við fórum aðeins í nýjustu reglugerðina varðandi samkomur. Þetta og margt margt fleira. Margt áhugavert sem Tóti segir í dag. Góða helgi
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.