Valtýr Björn

Mín skoðun

Sports EN ↓ 999 episodes

Podcast með Valtý Birni

Author

Valtýr Björn

Category

Sports

Podcast website

valtyrbjorn.podbean.com

Latest episode

Jul 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

214.þáttur. Mín skoðun 10122020 10.12.2020

214.þáttur.   Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar KR er á línunni vegna niðurstöðu dómstóls KSÍ í máli KR gegn KSÍ. Þórhallur Dan er einnig á línunni og við ræðum um landsliðsþjálfaramál kvenna hjá KSÍ og mál tengd því ásamt fleiru og fleiru. Njótið

213.þáttur. Mín skoðun. 09122020 09.12.2020

213.þáttur.  Handboltakappinn Viggó Kristjánsson sem farið hefur á kostum í þýsku deildinni í handbolta var  í góðu spjalli í þætti dagsins. Þórhallur Dan var á línunni og við fórum yfir landsliðsþjálfaramál karla og kvenna. Krummasögur koma við sögu í þeim málefnum. Njótið

212.þáttur. Mín skoðun. 08122020 08.12.2020

212.þáttur.  Mikael Nikulásson (Mikki) var í spjalli um landsliðsþjálfaramál kvenna og karla og við fórum einnig yfir riðil Íslands á HM. Þórhallur Dan var svo í viðtali þar sem við töluðum meðal annars um riðil Íslands, landsliðsþjálfaramál kvenna og Tóti spáir svo í helstu leiki kvöldsins í meistaradeildinni. Njótið

211.þáttur. Mín skoðun 07122020 07.12.2020

211.þáttur.  Í dag er afmælisdagur Óla Stefáns Flóventssonar og því ber að fagna. Ég hringdi í hann og talaði um "fatigue" landslið kvenna og fleira. Þá hringdi ég í Þórhall Dan og umræðuefnið var landsliðsþjálfaramál kvenna og fleira því tengt.  Njótið

210.þáttur. Mín skoðun. 04122020 04.12.2020

210.þáttur. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir það helsta í sportinu. Töluðum um Lar Lagerbäck sem hugsanlegan næsta landsliðsþjálfara. Fórum yfir leikina í gær. Töluðum um verðandi fjölmiðlafrumvarp og spáðum í leiki helgarinnar. Þetta og margt fleira í spjalli okkar í dag. Njótið helgarinnar. 

209.þáttur. Mín skoðun. 03122020 03.12.2020

209.þáttur. Í dag er alþjóðadagur fatlaðra og að því tilefni hringdi ég í Ólaf Magnússon framkvæmdastjóra Íþróttasambands fatlaðra og við fórum yfir stöðuna hjá fötluðu íþróttafólki. Þá hringdi ég í Þórhall Dan sem er hættur að tala um Fred hjá Man. Utd. hahaha. Ég og Tóti fórum yfir víðan völl í dag. 

208.þáttur. Mín skoðun. 02122020 02.12.2020

208.þáttur.  Ég og Þórhallur Dan tókum umræðuna um íslenska kvennalandsliðið, rýndum til gagns. Við ræddum líka um afhverju handbolti og körfubolti eru enn í frosti hér á landi og fórum svo yfir meistaradeildina í fótbolta. Njótið

207.þáttur. Mín skoðun. 01122020 01.12.2020

207.þáttur.  Ásthildur Helgadóttir fyrrum landsliðsdrottning er á línunni vegna landsleiks Ungverjalands og Íslands í dag. Við förum einnig inná fleiri hluti, svosem að hún er komin með nýtt starf og Ásthildur svarar spurningunni, hvort hún vilji verða landsliðsþjálfari.  Þórhallur Dan er svo í góðu spjalli þar sem við förum yfir gang mála í enska boltanum, Meistaradeildinni og fleira til. Áfram Í...

206.þáttur. Min skoðun. 30112020 30.11.2020

206.þáttur.  Ég hringdi í Þórhall Dan og við fórum yfir víðan völl. Körfubolti og fótbolti, höfumeiðsli, ruglið í VAR og fleira til.

205.þáttur. Mín skoðun. 27112020 27.11.2020

205.þáttur.  Hannes S. Jónsson formaður KKÍ er á línunni frá Bratislava og einnig Baldur Þór Ragnarsson einn af þjálfurum íslenska karlalandsliðsins. Baldur er nokkuð bjartsýnn fyrir leikinn gegn Kósóvó á morgun. Þá er Þórhallur Dan í viðtali og við förum ítarlega yfir leik íslenska kvennlandsliðsins í gær þar sem Ísland vann Slóvakíu í undankeppni EM. Við förum einnig yfir Evrópudeildina, enska b...

204.þáttur. Mín skoðun. 26112020 26.11.2020

204.þáttur. Páll Kristjánsson formaður knd. KR er á línunni um synjun aga-og úrskurðarnefndar KSÍ á kærumáli KR. Ég hringi í landsliðsrútu íslenska karlalandsliðsins í körfubolta sem mætir Luxemburg í dag. Þar eru í viðtali, Hannes S. Jónsson formaður KKÍ, Tryggvi Snær Hlinason, Jón Axel Guðmundsson og Ragnar Nathanaelsson. Þá er Þórhallur Dan á línunni um Meistaradeildina og Evrópudeildina og han...

203.þáttur. Mín skoðun. 25112020 25.11.2020

203.þáttur.  Þórhallur Dan er á línunni um boltann í gær og fleira til og þá hringdi ég í Jóhann Pétursson formann Víkings frá Ólafsvík en þeir voru að ráða nýjan þjálfara. 

202.þáttur. Mín skoðun. 24112020 24.11.2020

202.þáttur.  Hannes S. Jónsson formaður KKÍ er á línunni frá Bratislava þar sem íslenska landsliðið er við keppni. Hannes ræðir við mig um bubbluna, deilu FIBA og Euroleague og körfuboltann hér heima. Þá er Þórhallur Dan í spjalli um Meistaradeildina í fótbolta og fleira til. 

201.þáttur. Mín skoðun. 23112020 23.11.2020

201.þáttur.   Ég og Þórhallur Dan ræddum um boltann í Evrópu og einnig um Zlatan. Tóti er farinn að fara með bænir um að Fred verði seldur frá Man. Utd. Þetta og margt fleira.  

200.þáttur. Mín skoðun. 20112020 20.11.2020

200.þáttur. Mikael Nikulásson (Mikki) var á línunni en hann er afmælisbarn dagsins. Mikki ræddi meðal annars við mig um landsliðið og einnig hver á að verða næsti landsliðsþjálfari. Þórhallur Dan var svo á línunni og spáði fyrir um leiki helgarinnar í enska boltanum og fleira. Góða helgi

199.þáttur. Mín skoðun. 19112020 19.11.2020

199.þáttur. Guðjón Þórðarson fyrrum landsliðsþjálfari var á línunni og við ræddum landsleikinn í gær og Ísak Bergmann Jóhannesson sem kom inná í gær, aðeins 17 ára gamall. Þá var Þórhallur Dan á línunni og við fórum yfir A-landsleikinn, U21 árs landslið Íslands, leik Vals í Meistaradeilldinni í gær og dómgæslu. 

198.þáttur. Mín skoðun. 18112020 18.11.2020

198.þáttur.  Guðjón Þórðarson fyrrum landsliðsþjálfari var á línunni vegna landsleiksins í kvöld og sagði mér frá skemmtilegri staðreynd varðandi leikinn.  Þórhallur Dan spáði einnig í leikinn sem og leik Vals og Glasgow City í Meistaradeild kvenna í dag.  

197.þáttur. Mín skoðun. 171120202 17.11.2020

197.þáttur.  Páll Kristjánsson formaður knd. KR er í viðtali vegna frávísunar KSÍ á máli KR. Þá er Þórhallur Dan á línunni og við ræddum um þessa frávísun og margt annað tengt KSÍ og fleira. 

196.þáttur. Mín skoðun. 16112020 16.11.2020

196.þáttur.  Þóhallur Dan Jóhannsson var í spjalli dagsins. Við fórum yfir landsliðið okkar í fótbolta og ræddum um næsta landsliðsþjálfara og svo einnig um slúður og margt fleira. 

195.þáttur. Mín skoðun. 13112020 13.11.2020

195.þáttur.  Já við töpuðum fyrir ungverjum í gær og þannig er nú bara það. Guðjón Þórðarson fyrrum landsliðsþjálfari og þjálfari Víkings frá Ólafsvík er í viðtali um leikinn og Þórhallur Dan er ennig á línunni og við fórum að auki yfir  U21 árs tapleikinn gegn Ítalíu. Góða helgi.

194.þáttur. Mín skoðun 12112020 12.11.2020

194.þáttur. Ísland mætir Ungverjalandi í kvöld í úrslitaleik um hvort liðið fer í úrslitakeppni EM . Þá mætir U21 árs landslið Íslands liði Ítalíu í dag í riðlakeppni EM. Að þessu tilefni voru Arnar Grétarsson þjálfari KA og Þórhallur Dan Jóhannsson á línunni og spáðu í spilin. Áfram ÍSLAND

193.þáttur Mín skoðun 11112020 11.11.2020

193.þáttur.  Óli Stefán Flóventsson þjálfari er með athyglisverða hugleiðingu um Fatigue sem er andlegt og líkamlegt álag leikmanna. Við fórum einnig yfir hugleiðingar varðandi landsleikinn á morgun. Þórhallur Dan var að sjálfsögðu í spjalli og við ræddum meðal annars um formann enska knattspyrnusambandsins sem sagði af sér í gær. 

192.þáttur Mín skoðun 10112020 10.11.2020

192.þáttur. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ var á línunni frá Heraklion í Grikklandi þar sem íslenska kvennalandsliðið er að fara að leika í EM. Þórhallur Dan var einnig á línunni og við fórum yfir stöðu dagsins í boltanum. 

191.þáttur Mín skoðun 09112020 09.11.2020

191.þáttur. Þórhallur Dan var á línunni og við ræddum um boltann um helgina, nýja þjálfara hjá FH, brotthvarf Óla Jó frá Stjörnunni, VAR, Njarðvík og margt fleira. 

190.þáttur Mín skoðun 06112020 06.11.2020

190.þáttur.  Mikael Nikulásson (Mikki) var í góðu spjalli vegna brottreksturs síns frá Njarðvík.  Hákon Daði Styrmisson handboltakappi var á línunni en hann sló í gegn í landsleiknum gegn Litháen. Bjarki Már Elísson landsliðsmaður í handbolta og leikmaður Lemgo greindist með Covid 19 og ég hringdi í kappann og athugaði með líðan hans. Þá heyrði ég í Jóhannesi Lange vegna þáttarins Handboltinn Okka...

Listen to the Mín skoðun podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.