Valtýr Björn

Mín skoðun

Sports EN ↓ 999 episodes

Podcast með Valtý Birni

Author

Valtýr Björn

Category

Sports

Podcast website

valtyrbjorn.podbean.com

Latest episode

Jul 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

265.þáttur. Mín skoðun. 25022021 25.02.2021

265.þáttur. Mín skoðun. Komiði sæl elskurnar. Í dag er yndislegur dagur. Ég og Þórhallur Dan ræðum um allt og allt en förum þó sérstaklega í viðtal sem Harmageddon tók við Lilju Alfreðsdóttur um Rúv og auglýsingamarkaðinn annarsvegar og streymisveitur hinsvegar. Þetta og margt margt fleira. Njótið 

264.þáttur. Mín skoðun. 24022021 24.02.2021

264.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl á þessum fallega degi. Já veðrið er fallegt. Ég og Þórhallur Dan förum yfir víðan völl í þætti dagsins. Meistaradeildina, enska boltann, Tiger Woods, spyrjum okkur að því hvort Liverpool nái inná topp fjögur í ensku deildinni og fáum réttan framburð á nafni þjálfara Chelsea. Þetta og margt fleira. Njótið

263.þáttur. Mín skoðun. 230232021 23.02.2021

263.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan förum um víðan völl í þætti dagsins, allt frá íþróttum og ótrúlegt en satt fórum við aðeins inní pólitík. Gerist ekki aftur  :)   Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari Vals í handbolta er á línunni en Valsmenn fóru ansi létt með Aftureldingu í gær og eru að finna fjölina á ný. Snorri Steinn er eins og ávallt einlægur og skemmtilegur. Njótið elskurnar.

262.þáttur. Mín skoðun. 22022021 22.02.2021

262.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan mánudag. Ég og Þórhallur Dan förum yfir víðan völl í spjalli dagsins, enski boltinn, körfubolti, tennis, Viaplay, Rúv og Sýn og margt margt fleira. Njótið elskurnar. 

261.þáttur. Mín skoðun. 19022021 19.02.2021

261.þáttur. Mín skoðun.  Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar er Tippari vikunnar hjá mér og það er mikið hlegið í þessu spjalli. Bráðskemmtilegt.  Elvar Már Friðriksson landsliðsmaður í körfuknattleik er í sjöunda himni eftir að Ísland vann Slóvakíu í gær í undankeppni EM. Elvar Már er léttur, ljúfur og kátur og segir skemmtilegar sögur.  Þá er Þórhallur Dan í skýjunum að vanda en h...

260.þáttur. Mín skoðun. 18022021 18.02.2021

260.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Það lítur út fyrir átakafund hjá Íslenskum Topp Fótbolta (ÍTF) í dag .  Tveir eru í framboði til formanns a aðalfundi félagsins, þeir Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri ÍA og Orri Hlöðversson formaður Breiðabliks. Þessir ágætu herramenn eru í viðtali hjá mér og Þórhalli Dan í þætti dagsins og njótið elskurnar. Áfram Ísland 

259.þáttur. Mín skoðun. 17022021 17.02.2021

259.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan öskudag. Ég og Þórhallur Dan ræðum í þætti dagsins um allt og allt eða þannig. Förum í Meistaradeildina, enska boltann, hvað kostar fyrir Tottenham að reka Mourinho, afhverju leyfa sóttvarnaryfirvöld ekki áhorfendum að vera á leikjum og margt margt fleira. Njótið og munið eftir öskupokunum. Hvar er eiginlega sú hefð?

258.þáttur. Mín skoðun. 16022021 16.02.2021

258.þáttur. Mín skoðun. Í dag heyri ég í Einari Andra Einarssyni handboltagúru og við förum yfir Olísdeild karla í handbolta. Maður kemur svo sannarlega ekki að tómum kofanum þar. Algjör viskubrunnur. Þórhallur Dan fer yfir enska boltann með mér og við erum ánægðir með Moyes og West Ham. Það er bara málið og þá förum við í Meistaradeildina og margt fleira.  Sprengidagur í dag og njótið elskurnar. 

257.þáttur. Mín skoðun. 15022021 15.02.2021

257.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan BOLLUDAG. Allir í stuði er það ekki? Ég og Þórhallur Dan er að minnsta kosti léttir, ljúfir og kátir í þætti dagsins. Við ræðum um enska boltann, Viaplay og íslenskan fjölmiðlamarkað, handbolta og svo pínulítið um ítalska boltann og margt margt fleira. Njótið 

256.þáttur. Mín skoðun. 12022021 12.02.2021

256.þáttur. Mín skoðun. Tippari vikunnar er á sínum stað þennan föstudaginn og Víðir Reynisson hinn eini sanni sér um að tippa á 5 leiki fyrir okkur á Lengjunni.  Víðir er eyjamaður upplýsir um uppáhaldslið og leikmann, hann talar einnig um Lars Lagerbäck og um Covid19 og fleira til. Þá er Þórhallur Dan á línunni og við ræðum um endurkomu Lars Lagerbäck í íslenskan fótbolta, faraldurinn og íþrótti...

255.þáttur. Mín skoðun. 11022021 11.02.2021

255.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan förum yfir sviðið. Tölum mikið um Gylfa Sig. Met Man. City er tekið fyrir, afmælisbörn dagsins fá kveðju og umræðu og veltum fyrir okkur afhverju áhorfendur mega ekki vera á íþróttaviðburðum. Þetta og margt, margt fleira. Njótið

254.þáttur. Mín skoðun. 10022021 10.02.2021

254.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan ræðum um ýmislegt sem var í gangi í gær, til dæmis Man. Utd og West Ham. VIð förum yfir KSÍ tillögur varðandi hugsanlega fjölgun, förum í niðurröðun fyrir Íslandsmótið og svo förum við í slúðrið og fleira til. Njótið

253.þáttur. Mín skoðun. 09022021 09.02.2021

253.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan ræðum um boltann og margt margt fleira. Dómgæslu og fleira.  Þá heyri ég í Einari Andra Einarssyni handboltaþjálfara og gúru en við förum yfir gang mála í Olís deild karla og Einar Andri liggur ekki á skoðunum sínum.  Njótið

252.þáttur. Mín skoðun. 08022021 08.02.2021

252.þáttur. Mín skoðun.  Ég og Þórhallur Dan fórum yfir sviðið um helgina. Töluðum meðal annars um Zlatan, dómgæslu í enska boltanum, SuperBowl, Liverpool-Man. City, Man. Utd.-Everton og margt fleira. Njótið

251.þáttur. Mín skoðun. 05022021 05.02.2021

251.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir leik Tottenham og Chelsea í gær auk þess sem Tóti tjáði sig um orð útvarpsstjóra Ruv í Morgunblaðinu í gær og fleira til.  Tippari vikunnar er Helgi Björns, sá mikli snillingur sem hefur yljað okkur með tónlistarveislu á Símanum í þessum heimsfaraldri. Helgi er mikill aðdáandi Tottenham en afhverju er það? Njótið elskurnar og góða helgi. 

250.þáttur. Mín skoðun.04022021 04.02.2021

250.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir boltann og fleira til. Hver verður næsti formaður ÍTF? Hverjar eru tillögurnar fjórar um deildarkeppnina í PepsíMax, Lengjudeildinni og neðri deildum? Þetta og margt fleira.  Njótið

249.þáttur. Mín skoðun. 03022021 03.02.2021

249.þáttur. Mín skoðun.  Kristinn Óskarsson körfuknattleiksdómari náði þeim ótrúlega árangri á dögunum að dæma 800 leiki í efstu deild. Það telst vera mikið afrek  en er talan hærri? Hver er eftirminnilegasti leikurinn? Kristinn svarar þessu og meira til en hann er í ítarlegu spjalli í þætti dagsins.  Ég og Þórhallur Dan förum svo yfir leiki gærkvöldsins í enska boltanum og Tóti er glaður í dag ef...

248.þáttur. Mín skoðun. 02022021 03.02.2021

248.þáttur. Mín skoðun. Dagný Brynjarsdóttir knattspyrnukona er nýgengin til liðs við enska félagið West Ham United. Dagný er í góðu spjalli um sig og svarar spurningunni hvernig þetta kom til? Dagný er að vanda einlæg og segir okkur afhverju hún hefur alltaf haldið með West Ham. Þórhallur Dan er á línunni og við ræðum meðal annars um nýjan samning Viaplay við UEFA og margt fleira. Njótið elskurna...

247.þáttur. Mín skoðun. 01022021 01.02.2021

247.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir sviðið í sportinu og byrjuðum á HM í handbolta og töluðum meðal annars um Loga Geirs og Arnar Péturs gegn Guðmundi Guðmyndssyni. Hvað er málið þar? Við fórum einnig í fótboltann og Tippari vikunnar s.l. föstudag, Katrín Jakobsdóttir, á afmæli í dag. Til lukku með daginn en hversu marga rétta fékk Katrín? Njótið

246.þáttur. Mín skoðun 29012021 29.01.2021

246.þáttur. Mín skoðun.  Það er fjölbreyttur þáttur í dag.  Tippari vikunnar er Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og hún fer á kostum skal ég segja ykkur. Siggi Sveins handboltagoðsögn fer yfir gang mála á HM en undanúrslitin eru í dag. Siggi er alveg með þetta.  Þórhallur Dan liggur ekki á skoðunum sínum sem fyrr og talar um ráðningar og annað hjá KSÍ og svo er Hannes S. Jónsson formaður Körfu...

245.þáttur. Mín skoðun 28012021 28.01.2021

245.þáttur. Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir sviðið í sportinu, ráðning landsliðsþjálfara kvenna í fótbolta, HM í handbolta, U21 í fótbolta, KKÍ dómarahneykslið og fleira. Njótið

244.þáttur. Mín skoðun. 27012021 27.01.2021

244.þáttur Mín skoðun. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir víðan völl sportsins. Fórum í dómgæslu, töluðum um Zlatan vs Lukaku í gær, landsliðsþjálfaramál kvenna í fótbolta en það er víst búið að ráða þó svo að það hafi ekki enn verið tilkynnt. Þetta og fleira til. Njótið

243.þáttur. Mín skoðun. 26012021 26.01.2021

243.þáttur. Mín skoðun.  Ég og Þórhallur Dan fórum yfir víðan völl í sportinu og svo fórum við aðeins inná A-landsliðsþjálfaramál kvenna hjá KSÍ og þar talar Tóti með tveimur hrútshornum. Njótið dagsins elskurnar. 

242.þáttur. Mín skoðun. 25012021 25.01.2021

242.þáttur. Mín skoðun.   Siggi Sveins handboltagoðsögn er á línunni og tekur fyrir lið Íslands á HM  en Ísland lék sinn síðasta leik í keppninni í gær.  Þórhallur Dan er í spjalli og við förum yfir leiki helgarinnar í boltanum. Tóti er sérlega glaður í dag.  Njótið

241.þáttur. Mín skoðun. 22012021 22.01.2021

241.þáttur. Mín skoðun.  Hermann Guðmundsson forstjóri Kemi er Tippari vikunnar og hann spáir í spilin ásamt skemmtilegum sögum.  Handboltagoðsögnin Siggi Sveins spáir í leik Íslands og Frakklands í dag og sem fyrr liggur Siggi ekki á skoðunum sínum.  Þórhallur Dan er svo í spjalli um boltann og er sem fyrr léttur, ljúfur og kátur. Áfram ÍSLAND og gleðilega Bóndadag. 

Listen to the Mín skoðun podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.