Valtýr Björn

Mín skoðun

Sports EN ↓ 999 episodes

Podcast með Valtý Birni

Author

Valtýr Björn

Category

Sports

Podcast website

valtyrbjorn.podbean.com

Latest episode

Jul 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

290.Mín skoðun. 31032021 31.03.2021

290.þáttur. Mín skoðun. AUKAÞÁTTUR. Heil og sæl öllsömul. Landsleikjahrinu hjá U21 árs liðinu og A-landsliðinu í fótbolta er lokið. U21 árs lið er úr leik í úrslitakeppni EM en A-landsliðið náði að vinna Liechtenstein auðveldlega. Ég og Þórhallur Dan Jóhannsson ræðum um þessa leiki og margt fleira í þessum aukaþætti. Njótið og gleðilega Páska. 

289.þáttur. Mín skoðun. 31032021 31.03.2021

289.þáttur. Mín skoðun. Komiði sæl og blessuð. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir landsleiki Íslands sem eru í dag. U21 árs liðið mætir Frakklandi og A-landsliðið leikur gegn Liechtenstein. Við tölum einnig um KSÍ, mál Viðars Arnar Kjartanssonar og margt margt fleira. Hlustið og njótið og við félagarnir verðum með þátt strax að leik loknum. ÁFRAM ÍSLAND

288.þáttur. Mín skoðun. 30032021 30.03.2021

288.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Mikið er rætt og ritað um landsliðin okkar í fótbolta í karlaflokki, þar á ég við U21 árs landsliðið og A-landsliðið. Jákvæð og neikvæð umræða hefur verið í gangi og til að ræða við mig um þessi mál hringdi ég í Arnar Gunnlaugsson þjálfara Víkings og fyrrum landsliðsmann. Hann er í góðu og ítarlegu spjalli við mig í dag og segir sína skoðun. Njóti...

287.þáttur. Mín skoðun. 29032021 29.03.2021

287.þáttur. Mín skoðun. Komið þið sæl og blessuð. Í þætti dagsins er umræðuefnið U21 árs landsliðið sem og A-landsliðið í fótbolta. Það gekk ekki vel um helgina, reyndar afleitlega. Þórhallur Dan er á línunni og ég skal segja ykkur það að hann talar með tveimur hrútshornum. Njótið og eigið góðan dag. 

286.þáttur. Mín skoðun. 26032021 26.03.2021

286.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks þennan ágæta föstudag. Tippari vikunnar er að þessu sinni enginn annar en fótboltagoðsögnin Ásgeir Sigurvinsson. Auk þess að tippa á 5 leiki á Lengjunni þá spjalla ég aðeins við hann um U21 árs leik Íslands og Rússlands í gær og að sjálfsögðu tölum við um leik Þýskalands og Íslands í undankeppni HM.  Þorvaldur Örlygsson þjálfari hjá Stjörnu...

285.þáttur. Mín skoðun. 25032021 25.03.2021

285.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í dag er landsleikjadagur hjá okkar mönnum í karlafótboltanum. A-landslið Íslands hefur leik í undankeppni HM og andstæðingurinn er fjórfaldir heimsmeistarar Þýskalands á útivelli. U21 árs landslið karla hefur svo leik í úrslitakeppni EM og andstæðingurinn er Rússland en leikið er í Ungverjalandi. Þórhallur Dan er á línunni og við förum yfir líkleg byr...

284.þáttur. Mín skoðun. 24032021 24.03.2021

284.þáttur. Mín skoðun. Komiði sæl og blessuð. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir stöðu mála hjá íslenska A-landsliðinu í fótbolta og einnig U21 árs liðsins. Tóti velur sitt byrjunarlið gegn Þýskalandi og fleira og fleira. Þá heyri ég í Ágústi Jóhanssyni aðstoðarlandsliðsþjálfara Íslands í handbolta kvenna en Ísland mætir Slóveníu í umspili fyrir HM. Ágúst er mikill viskubrunnur og gam...

283.þáttur. Mín skoðun. 23032021 23.03.2021

283.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul og til hamingju með daginn. Ég og Þórhallur Dan komum víða við í dag. Tölum um kvennalandsliðið í handbolta, hugsanleg þjálfaraskipti hjá Juventus, Gísli Þorgeir handboltakappi meiddist á öxl um helgina og við ræðum aðeins um það sem og um A-landslið karla og U21 árs landsliðið. Tóti hefur sínar ákveðnu skoðanir og ég stilli upp fyrstu tillögu að byrjun...

282.þáttur. Mín skoðun 22032021 22.03.2021

282.þáttur. Mín skoðun.  Þórhallur Dan og ég förum yfir víðan völl í dag svo vægt sé tekið til orða. Covid, enski boltinn, Lewandowski, Tryggvi Guðmundsson, Gylfi Sigurðsson og margt margt fleira. Hann Tóti liggur ekki á skoðunum sínum og talar hreina og klára íslensku. Njótið

281.þáttur. Mín skoðun. 19032021 19.03.2021

281.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Tippari vikunnar er enginn annar en fjölmiðlamaðurinn Sigmar Guðmundsson.  Sigmar er að vanda bráðskemmtilegur og segir okkur afhverju hann heldur með Arsenal og fleira til.  Ég og Þórhallur Dan ræðum síðan um Meistaradeildina og Evrópudeildina í fótbolta. Tökum fyrir körfuboltann hér innanlands, tölum töluvert um Mourinho og hrakfarir Tottenham og komum svo vi...

280.þáttur. Mín skoðun. 18032021 18.03.2021

280.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir það helsta sem er í fréttum og byrjum á mest lesnu fréttinni inná Mannlíf.is þar sem umfjöllun er um Eið Smára og hans meintu ölvun í þættinum Völlurinn á Símanum síðasta sunnudag. Við förum einnig yfir gang mála í Evrópudeildinni og þar tölum við aðallega um leik AC Milan og Man. Utd. sem er í kvöld og fö...

279.þáttur. Mín skoðun.17032021 17.03.2021

279.þáttur. Mín skoðun. Íslenski landsliðshópurinn í knattspyrnu sem mætir Þýskalandi, Armeníu og Liechtenstein í undankeppni HM síðar í þessum mánuði var valinn í dag. Ég og Þórhallur Dan fórum yfir hópinn. Við fórum einnig aðeins í Olísdeild karla og margt margt fleira. Njótið

278.þáttur. Mín skoðun. 16032021 16.03.2021

278.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Þórhallur Dan og ég ræðum um boltann í þætti dagsins. Förum í lstöðu Liverpool, U21 árs landsliðshópinn sem fer á EM og margt margt fleira. Njótið

277.þáttur. Mín skoðun. 15032021 15.03.2021

277.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul og gleðilegan mánudag. Ársþing KKÍ (körfuknattleikssamband Íslands) var haldið um helgina. Nokkuð var tekist á um hin ýmsu mál og Hannes S. Jónsson formaður KKÍ er í viðtali dagsins. Hann fer yfir málefni þingsins með mér ásamt því að upplýsa okkur um styrki FIBA og íslenska ríkisins. Þórhallur Dan er að sjálfsögðu á línunni. Við förum yfir íþróttir hel...

276.þáttur. Mín skoðun. 12032021 12.03.2021

276.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Stórsöngvarinn og snillingurinn Magni er Tippari vikunnar að þessu sinni. Magni er að vanda bráðskemmtilegur og segir margar skemmtilegar sögur auk þessa að tippa á 5 leiki á Lengjunni. Þórhallur Dan er svo í spjalli og við förum um víðan völl, Evrópudeildina, enska boltann, Dominsodeild karla, Golf og margt margt fleira. Njótið helgarinnar.

275.þáttur. Mín skoðun. 11032021 11.03.2021

275.þáttur. Mín skoðun.  Heil og sæl og góðan dag. Sebastian Alexandersson þjálfari meistaraflokks karla hjá Fram í handbolta fékk uppsagnabréf um helgina og verður ekki með félagið á næstu leiktíð. Uppsögn Sebastians kom handboltaáhugamönnum verulega á óvart en Fram hefur verið að gera mjög góða hluti í Olísdeild karla í vetur. Sebastian er í viðtali vegna þessa en hann verður með liðið út yfirst...

274.þáttur. Mín skoðun. 10032021 10.03.2021

274.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF (íslensks topp fótbolta) er í viðtali í dag. Við ræðum um stöðu fótboltans hér á landi, ÍTF, sjónvarpssamninga og margt fleira. Ég og Þórhallur Dan ræðum síðan um Meistaradeildina í gær og í kvöld og við skiljum ekki þetta VAR lengur. Það er bara þannig. Njótið og eigið þið góðan dag. 

273.þáttur. Mín skoðun. 09032021 09.03.2021

273.þáttur. Mín skoðun.  Heil og sæl öllsömul.  Jónas Kristinsson framkvæmdastjóri KR er í viðtali í dag þar sem við tölum um íslenskan fótbolta. Hver er staðan? Hver er staðan hjá Íslenskum Topp fótbolta(ÍTF) ? Þessar og margar aðrar spurningar í ítarlegur spjalli okkar. Þórhallur Dan spáir svo í leiki dagsins í Meistaradeildinni og fleira til.  Njótið og vonandi eigið þið frábæran dag. 

272.þáttur. Mín skoðun. 08032021 08.03.2021

272.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og til hamingju með daginn konur, jú það er alþjóðlegur baráttudagur kvenna í dag.  Þórhallur Dan og ég erum í spjalli dagsins um helgina og fórum yfir boltann og fleira. Tóti er sérstaklega ánægður með sína menn í Man. United eftir sigur á City. Þá hringdi ég í afmælisbarn dagsins, Siggi  Hlö hinn eini sanni á afmæli í dag og hann segir okkur stöðu mála á fótbo...

271.þáttur. Mín skoðun. 05032021 05.03.2021

271.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl elskulega fólk. Tippari vikunnar þennan ágæta föstudaginn er formaður fjárlaganefndar, Willum Þór Þórsson. Við tölum um margt tengt honum og Willum segir frá sínu uppáhaldsliði sem er Chelsea. En afhverju Chelsea? Skemmtilegt spjall við skemmtilegan mann. Þórhallur Dan er svo á línunni og við tölum meðal annars um VAR í enska boltanum og einnig töluvert um ákvör...

270.þáttur. Mín skoðun. 04032021 04.03.2021

270.þáttur. Mín skoðun. Mikil umræða hefur verið um ársþing KSÍ sem var haldið um síðustu helgi. Þar hefur farið fremst umræða um fjölgun leikja í efstu deild sem ekkert varð af. Formenn FH, KR og Vals hafa t.d. stigið fram og eru ósáttir með margt og meðal annars ÍTF (íslenska topp fótbolta). Í þætti dagsins er ég með viðtal við Orra Hlöðversson formann Íslensks Topp Fótbolta en Orri er jafnframt...

269.þáttur. Mín skoðun. 03032021 03.03.2021

269.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í dag erum við Þórhallur Dan í stuði. Við ræðum um KSÍ þingið, fjölgun liða sem ekki gekk eftir og hvar við stöndum í dag. Engin breyting og okkar félagsliða fótbolti er að sitja eftir. Við ræðum einnig um enska boltann og svo Zlatan og margt margt fleira. Njótið

268.þáttur. Mín skoðun. 02032021 02.03.2021

268.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um ársþing KSÍ og förum þar yfir fjölgun og ekki fjölgun liða og önnur þingskjöl á þinginu. Einnig ræðum við um dómstól HSÍ og margt , margt fleira. Njótið.

267.þáttur. Mín skoðun. 01032021 01.03.2021

267.þáttur. Mín skoðun. Viðar Halldórsson formaður FH er í viðtali vegna ársþings KSÍ sem var um helgina. Viðar liggur sem fyrr ekki á skoðunum sínum og studdi meðal annars tillögu samstarfshóps KSÍ og ÍTF um fjölgun leikja. Þórhallur Dan er svo á línunni og við ræðum meðal annars um dómgæslu í ensku úrvalsdeildinni sem enn og aftur er til umræðu. Njótið

266.þáttur. Mín skoðun. 26022021 26.02.2021

266.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Tippari vikunnar í dag er rithöfundurinn og fótboltaáhugamaðurinn Einar Kárason. Hann hefur frá mörgu skemmtilegu að segja úr boltanum og fleiru til. Ég og Þórhallur Dan tökum langt viðtal við Þóri Hákonarson íþróttastjóra Þróttar. KSÍ ársþingið er um helgina og fyrir liggur að breyting verður á fyrirkomulagi deildanna, í það minnsta efstu deild. Þá ræ...

Listen to the Mín skoðun podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.