RÚV
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Heimildarmyndin Einstakt ferðalag, Jóhanna Birna Bjartmarsd. og veðurspjallið með Einari 02.09.2025 52:59
Sunnudagurinn næsti verður Duchenne dagurinn, en Duchenne er sjaldgæfur vöðvasjúkdómur sem skerðir hreyfigetu og hrjáir einn af hverjum fjögur þúsund drengjum. Við fræddumst um nýja íslenska heimildarmynd sem heitir Einstakt ferðalag. Hún er um Ægi Þór 9 ára dreng frá Höfn í Hornafirði, sem er með þennan sjaldgæfa sjúkdóm, og ferðalag hans um Ísland þar sem hann hittir önnur börn með sjaldgæfa sjú...
Bráðaskólinn, leikveturinn hjá Tjarnarbíói og Kári lesandi vikunnar 01.09.2025 53:09
Bráðaskólinn sérhæfir sig annars vegar í skyndihjálparkennslu fyrir almenning og fyrirtæki og hins vegar í ýmsum sérhæfðum námskeiðum fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Sérstaða skólans er einna helst sú að allir kennarar eru heilbrigðisstarfsfólk sem vinnur við bráðar aðstæður í daglegum störfum sínum. Skólinn var stofnaður árið 2011 og hefur síðan þá haldið yfir 580 námskeið af ýmsu tagi og nemendurni...
Kristín Jónsdóttir föstudagsgestur og Sigríður Wöhler rabarbarasérfræðingur 27.06.2025 53:06
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Kristín Jónsdóttir, eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur og starfar sem hópstjóri í náttúruváreftirliti hjá Veðurstofu Íslands. Hún er í vísindaráði Almannavarna og hefur starfað sem stundakennari við Háskóla Íslands. Við fengum Kristínu til að fara með okkur aftur í tímann á æskuslóðirnar í Breiðholtinu, í gegnum skólagönguna, MH, HÍ, doktorsnám...
Skeiðakenningin, systkinin í Blood Harmony og Eldblóm í Örlygshöfn 26.06.2025 54:23
Við fræddumst í dag um það sem kallast skeiðakenningin. Höfundur kenningarinnar, Christine Miserando, þróaði þessa kenningu til að geta útskýrt fyrir vinkonum sínum hvernig hún verður að skipuleggja hvern einasta dag og að hún gæti ekki gert allt sem hún vildi, en hún glímdi frá 15 ára aldri við skerðingar á daglegu lífi vegna þreytu og verkja. Guðrún Friðriksdóttir iðjuþjálfi hjá Ljósinu, endurhæ...
Kennsla íslensku sem annars máls og Þjóðlagahátíð á Siglufirði 25.06.2025 54:54
Við fræddumst í dag um nám og kennslu íslensku sem annars máls í framhaldsskólum, með sérstakri áherslu á inngildingu og fjölmenningu, en málþing um einmitt það var haldið í byrjun júní á Ísafirði. Þar kom fagfólk saman í málstofum og miðluðu reynslu og þekkingu sín á milli. Jóna Dís Bragadóttir, skólastjóri Tækniskólans og Heiðrún Tryggvadóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, sögðu okkur...
Vernd barna gegn ofbeldi, matarsaga Reykjaness og veðurspjallið 24.06.2025 53:31
Dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir dósent, við lagadeild Háskólans í Reykjavík, kom í þáttinn í dag og sagði frá Ráðstefnu um vernd barna gegn ofbeldi á heimilinu sem hún stóð að í HR í byrjun júní. Ein af frumskyldum hvers samfélags er að vernda yngstu þegnana og þessi ráðstefna var liður í því, enda eru afleiðingar ofbeldis gegn börnum margþættar og alvarlegar. Svala sagði frá því sem á ráðstefnunni k...
Gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu, sumartónleikar í Skálholti og Sigrún lesandinn 23.06.2025 50:00
Nú er tími útivista og gönguferða, fólkið í landinu reimar á sig gönguskóna og nýtur fegurðar íslenskrar náttúru. Yfirleitt þarf ekki að leita langt yfir skammt til að finna skemmtilegar gönguleiðir, en það getur þó verið erfitt að vita hvar skal byrja og hvar þær er að finna. Jónas Guðmundsson, gönguleiðsögumaður, landvörður og ferðamálafræðingur hefur varið ótal stundum á fjöllum og á göngu um n...
Eliza Reid föstudagsgestur og súkkulaðikökur í matarspjallinu 20.06.2025 54:01
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Eliza Reid, sagnfræðingur, rithöfundur og fyrrverandi forsetafrú. Við fórum með henni aftur á æskuslóðirnar í Ottawa í Ontario fylki Kanada, þar sem hún fæddist og ólst upp. Hún sagði okkur frá, tónlistarnámi, kórsöng, ferðalögum til Afríku og Asíu og þegar hún kom fyrst til Íslands. Svo fórum við með henni á handahlaupum í gegnum lífið til dagsi...
Staðan á fasteignamarkaðinum og performatífar pílagrímsgöngur 19.06.2025 53:30
Fasteignamarkaðurinn er gjarnan í fréttum af ýmsum ástæðum. Fasteignaverðið og þróun þess, framboð á íbúðum,leiguíbúðum og nú síðast nýtt fasteignamat. Við ákváðum því að skoða aðeins hver er staðan á fasteignamarkaðinum í dag. Monika Hjálmtýsdóttir formaður Félags fasteignasala kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir sviðið og skoða stöðuna og hvert fasteignamarkaðurinn er að stefna. Við fjöllu...
Björn Elí og ME taugasjúkdómurinn, alþjóðleg píanókeppni og síðasta póstkortið 18.06.2025 53:30
Við fræddumst um ME taugasjúkdóminn í dag og um sögu Björns Elí Jörgensen Víðissonar, en hann er 24 ára gamall og greindist með ME árið 2021. Það gæti komið einhverjum á óvart að hann hafi greinst svona ungur með ME, en þessi taugasjúkdómur getur þróast hjá einstaklingum á hvaða aldri sem er. Við tókum nýlega viðtal við Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfara sem glímir við ME í kjölfar langtíma Covid,...
Droplaugarstaðir, Hinsegin hátíð fyrir norðan og Hrefna Björg lesandinn 16.06.2025 55:06
Við kynntum okkur í dag starfsemi Droplaugastaða hjúkrunarheimilis sem fékk alþjóðlega viðurkenningu síðastliðið haust og hvatningarverðlaun Velferðaráðs Reykjavíkurborgar á dögunum. Jórunn Ósk Frímannsdóttir, forstöðumaður Droplaugarstaða og formaður Öldrunarráðs Íslands kokm í þáttinn og sagði okkur frá starfseminni, hvað Eden heimili felur í sér, verðlaununum og því helsta sem er á döfinni hjá...
Ásgeir Jónsson föstudagsgestur og þjóðhátíðarmatarspjall 13.06.2025 55:01
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri. Við ræddum við hann um lífið og tilveruna í dag. Svo var matarspjallið með Sigurlaugu Margréti auðvitað á sínum stað, í dag hringdum við í Albert Eiríksson og þjóðhátíðarmaturinn var ræddur, enda 17. júní á þriðjudaginn. UMSJÓN: FANNEY BIRNA JÓNSDÓTTIR
Áfengisvarnir, sorgarleyfi og ráðleggingar um mataræði 12.06.2025 50:49
Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, segir áfengisvarnarsamtök eiga í vök að verjast þegar markaðsöflin eru annars vegar en líka vegna minna fé renni til forvarnarstarfs en áður. Árni komst í fréttirnar í fyrra þegar hann gagnrýndi viðbragðsleysi og seinagang lögreglu eftir að hafa sjálfur kært sig til lögreglu fyrir ólögleg áfengiskaup á netinu árinu áður. Hann sagð...
Læsi og lesskilningur íslenskra barna og tilfinningar í Íslendingasögunum 11.06.2025 51:17
Læsi og lesskilningi íslenskra barna hefur hrakað þrátt fyrir allskonar átaksverkefni í gegnum tíðina. Deilt hefur verið um hver beri ábyrgð á þessari stöðu og sitt sýnist hverjum. En væntanlega eru allir sammála um að eitthvað verður að gera til að bæta stöðuna. Nú eru grunnskólar landsins komnir í sumarleyfi og væntanlega margir foreldrar sem velta fyrir sér hvernig eigi að halda lestri að börnu...
Myrkur Games með nýjan tölvuleik í sumar, Veðurspjallið og lesandi vikunnar María Elísabet Bragadóttir 10.06.2025 50:47
Fyrsti tölvuleikur íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Myrkur Games sem nefnist Echoes of the End eða Bergmál endalokanna í lauslegri þýðingu er að koma út í sumar eftir átta ára þróunarvinnu. Leikurinn er sá fyrsti sem fyrirtækið framleiðir og sameinar spennandi bardagakerfi, fjölbreyttar þrautir, og hjartnæma sögu í fantasíuheimi sem sækir innblástur í íslenskt landslag. Aldís Amah Hamilton leikko...
Hilmar Guðjónsson leikari föstudagsgestur og grískar ólífuolíur í matarspjalli Sigurlaugar 06.06.2025 50:00
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hilmar Guðjónsson. Hann hefur leikið ótal hlutverk á sviði og fyrir framan myndavélina á þeim 15 árum frá því hann útskrifaðist. Hann er vesturbæingur í húð og hár og KR-ingur, en við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar, ræddum töfra leiklistarinnar og áskoranir hennar. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var auðvitað á sín...
Sálræn fyrsta hjálp, Brúðubíllinn með barnabarni Helgu Steffensen og póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni 05.06.2025 53:00
Allir geta lent í því að koma að fólki sem hefur lent í áfalli, slysi, ofbeldi, náttúruhamförum eða einhverjum öðrum alvarlegum atburðum. Þá geta fyrstu viðbrögð verið mikilvæg og ýmislegt sem ber að varast. Auðvitað ætti fagfólk að veita slíka hjálp en alvarlegir atburðir gera oft ekki boð á undan sér, því getur verið gott að kunna einföld viðbrögð sem geta hjálpað þangað til fagfólk getur komið...
Hækkun fasteignamats, Menningargarðurinn og vinningshafi Verðlaunasjóðs lækna 04.06.2025 53:38
Fasteignamat hækkar enn og samkvæmt nýju mati fyrir árið 2026 hefur það hækkað um 9,2% á milli ára. Þetta getur auðvitað haft áhrif á fasteignagjöld en þarf ekkert endilega að gera það. Tryggvi Már Ingvarsson framkvæmdastjóri Fasteigna hjá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun ræddi þetta og fór einnig yfir hvernig staðið var að matinu og hvað hafði raunverulega áhrif á hækkun þess. Á mánudaginn snýr Menn...
Sæunn býflugnabóndi, nýútskrifað kvikmyndagerðarfólk og staða sviðslista 03.06.2025 52:51
Við heyrðum í dag í Sæunni Vigdísi Sigvaldadóttur, þroskaþjálfa á Egilsstöðum og býflugnabónda í Hallormsstaðaskógi. Sæunn er stödd í Seattle í Bandaríkjunum þar sem hún ætlar að læra tæknifrjóvgun býflugnadrottninga. Áætlunin er að gera Ísland sjálfbært í býflugnarækt til þess að draga úr innflutningi á býflugum, sem reynist sífellt erfiðara sökum býsjúkdóma. Við fengum Sæunni í dag til að segja...
Arnar Ásgeirsson og skúlptúrarnir og Kristín Hulda lesandinn 02.06.2025 49:53
Sex skúltpurverk eftir Arnar Ásgeirsson myndlistarmann voru valin úr fjölda hugmynda í samkeppni um listaverk í nýbyggingu Grensáss- endurhæfingardeildar LSH fyrir skömmu. Skúlptúrarnir mynda form sem gætu líkst framfaraferli. Þeir sýna örvar sem liðast út og suður, taka dýfur, kollsteypast en vísa upp á endanum. Örvarnar sýna að bataleiðin er ekki endilega stöðug eða bein. Arnar þekkir þetta af e...
Saga Garðarsdóttir föstudagsgestur og matarspjall frá Krít 30.05.2025 51:24
Saga Garðarsdóttir leikkona var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn. Hún leikur eitt aðahlutverkið í nýrri kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Ástin sem eftir er sem frumsýnd var í Cannes fyrr í mánuðinum og fékk ljómandi góðar viðtökur. Saga er tiltölulega nýlent eftir viðburðaríka daga í Cannes en hún hefur auðvitað verið á sviðum leikhússanna síðustu ár ásamt því að vera sjálfstætt starfandi...
Erfið staða fjölmiðla á Íslandi og tíbetskur lama á leiðinni til landsins 28.05.2025 50:00
Ísland skipar 17.sætið á heimsvísu þegar kemur að frelsi fjölmiðla á meðan Noregur trónir á toppnum níunda árið í röð samkvæmt nýlegri úttekt samtakanna Blaðamenn án landamæra. Er fækkun og hnignun fjölmiðla undanfarin ár um að kenna eða er versnandi samband milli stjórnmálafólks og fjölmiðla ástæða þessarar niðurstöðu, í samanburði við hin Norðurlöndin? Formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður...
Ný uppgötvun í sambandi við fósturlát, Discover Grindavík og veðurspjallið 27.05.2025 53:30
Við fræddumst í dag um nýja uppgötvun vísindafólks Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólks þeirra í Danmörku þar sem þau raðgreindu tæplega fimm hundruð sýni úr fósturlátum meðal danskra fjölskyldna og komust að því að ein af hverjum 136 þungunum endar með fósturláti vegna nýrra stökkbreytinga í fóstrinu. Þetta samsvarar því að slíkar stökkbreytingar valdi um milljón fósturlátum árlega á heim...
Veislan - ný þáttaröð og Ásta Sigrún lesandi vikunnar 26.05.2025 50:00
Sjónvarpsþáttaröðin Veislan með Michelin matreiðslumanninum Gunnari Karli Gíslasyni og Sverri Þór Sverrissyni er að hefja göngu sína á ný á RÚV um miðjan júní. Þetta er þriðja þáttaröðin sem unnin er og að þessu sinni heimsækja þeir eyjar í kringum landið. Þetta eru eyjarnar Flatey í Breiðafirði og á Skjálfanda, Hrísey, Vigur og Heimaey. Þar hitta þeir fyrir heimamenn og elda með þeim kræsingar úr...
Karl Olgeirsson föstudagsgestur og óvenjulegar samsetningar í matarspjallinu 23.05.2025 53:00
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Karl Olgeirsson tónlistarmaður. Hann hóf nýlega störf sem organisti í Ástjarnarkirkju og þar stofnaði hann kirkjukór. Hann hefur samið tónlist nánast frá því hann fékk hljóðfæri fyrst í hendurnar. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hlíðunum, til Svíþjóðar og aftur heim og fórum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagins í dag....
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.