RÚV
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Drengir á jaðrinum, Crazy Puffin ferðaskrifstofa og Ólína um heilaheilsu 22.05.2025 54:27
Í gærkvöldi var á dagskrá sjónvarpsins norska heimildarmyndin Drengir á jaðrinum, sem fjallar um reynslu 36 drengja í 10.bekk sem höfðu fundið sig illa í skólakerfinu og lífinu og voru flestir búnir að taka þá ákvörðun að fara ekki í framhaldsskóla. Þeir fengu tilboð um að fara í tveggja vikna skólabúðir, þétt skipulagðar. Símarnir voru teknir af þeim og þeir voru saman allan sólarhringinn í námi,...
Viljum við að færri fái krabbamein? Ívar rekur 20 osteopatastofur í Danmörku og póstkort frá Magnúsi 21.05.2025 53:30
Viljum við að færri fái krabbamein? Það ætti að vera auðvelt að svara þessari spurningu, en hún er einmitt yfirskriftin á málþingi sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir næsta laugardag. Þar verður rætt um hvort það séu vannýtt tækifæri til þess að fækka þeim sem fá krabbamein í íslensku samfélagi og sóknarfæri í forvörnum. Sigrún Elva Einarsdóttir, sérfræðingur og teymisstjóri fræðslu og forvarna h...
Bændasamtökin, Ungliðahreyfing Amnesty og ókeypis sumarnámskeið Okkar heims 20.05.2025 54:56
Bændasamtök Íslands standa að herferðinni - Við erum öll úr sömu sveit - þessa dagana. Beinir snertifletir almennings við bændur og matvælaframleiðslu eru færri en áður sem óhjákvæmilega bitnar á tengslum og innsýn. Samtökin vilja minnka bilið milli bænda og þjóðarinnar og opna faðminn og samtal við þjóðina. Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna var hjá okkur í dag og sagði betur frá þessu...
Gunnar Svanbergsson glímir enn við eftirköst Covid og Eydís Blöndal lesandi vikunnar 19.05.2025 53:55
Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari kom í þáttinn í dag, hann fékk Covid um jólin 2020, sem hann lýsti þá eins og bara ansi týpískri skítapest, en eftir hana var hann eiginlega alveg máttlaus og til að gera langa sögu stutta þá er hann ekki enn þann dag í dag búinn að jafna sig. Áður en hann veiktist var hann mikill útvistar- og ævintýramaður í toppformi. Nú, um það bil fjórum og hálfu ári eftir að...
Jóhannes Haukur föstudagsgestur, matarspjall um skrýtnar samsetningar 16.05.2025 52:34
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson. Hann hefur mikið látið að sér kveða eftir að hann útskrifaðist úr leiklistarskólanum, bæði í leikhúsi og fyrir framan myndavélina þar sem hann hefur leikið margvísleg hlutverk. En svo fyrir rúmum tíu árum fékk hann fyrsta hlutverk sitt í erlendu kvikmyndaverkefni og þá fór boltinn að rúlla. Í dag flýgur hann...
Mýrdalshlaupið, nýr veðurvefur á ruv.is og Baugur Bjólfs 15.05.2025 50:00
Mýrdalshlaupið hefur tryggt sér sess meðal bestu og stærstu utanvegahlaupaviðburða á Íslandi síðustu ár og fer nú fram í 12. skipti þann 31. maí að Vík í Mýrdal. Allt skipulag og utanumhald hlaupsins er í höndum einnar fjölskyldu frá Vík og hlaupið er ræst í fjörunni í Vík og hlaupa allir keppendur upp á Reynisfjall vestan við þorpið þar sem leiðir skilja. Hlaupið er eitt mest krefjandi utanvegahl...
Vinnuvernd og útvarpsþáttaröðin Kaflaskil um menntamálin 14.05.2025 51:51
Samskipti, streita, fjarvistir og félagsleg sjálfbærni á vinnustöðum er nokkuð sem fyrirtækið Auðnast vinnur með og leggur áherslu á gott umhverfi fyrir starfsfólk og vinnustaði. Ragnhildur Bjarkadóttir sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd kom í þáttinn í dag og við til dæmis veltum fyrir okkur hvað felst í orðinu vinnuvernd, en hér á árum áður þýddi það aðallega gulur hjálmur en í dag svo mi...
VÆB bræður á svið í kvöld, diskóball fyrir eldri borgara og veðurspjallið 13.05.2025 50:00
VÆB bræðurnir tveir, Hálfdán og Mattías Mattíassynir stíga á Eurovisionsviðið í kvöld ásamt dönsurum og syngja lagið Róa. Þeir voru sérstaklega valdir til að vera fyrstir af því stjórnendur keppninnar vildu að kvöldið myndi byrja með miklu stuði. Fararstjóri íslenska hópsins er sem fyrr Felix Bergsson og við vorum með hann á línunni í dag og fengum nýjustu fréttir frá Basel. Miðvikudagsbíó hefur v...
LED væðing garðyrkjubænda, syngur Cohen og Védís Eva lesandi vikunnar 12.05.2025 53:20
Garðyrkjubændur geta fengið allt að 15 milljóna króna styrk úr loftslags- og orkusjóði vegna fjárfestinga í orkusparandi tækni, LED-ljósum, tölvu- og stýribúnaði og gardínukerfum. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð um styrkina sem geta numið allt að 40% af heildarkostnaði við fjárfestingu, en þó að hámarki 15 milljónir. Axel Sæland er formaður...
Inga Eydal föstudagsgestur og hnausþykkar pizzur og ofsoðið pasta í matarspjallinu 09.05.2025 52:56
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni kemur að norðan, söngkonan og hjúkrunarfræðingurinn Inga Eydal. Inga hefur verið að syngja frá blautu barnsbeini, dóttir Ingimars Eydal tónlistarmanns og Ástu Sigurðardóttir, en Ásta samdi fjölmarga dægurlagatexta við lög sem hljómsveit Ingimars flutti hér á árum áður. Inga söng með hljómsveit föður síns, rak sína eigin hljómsveit um tíma auk þess að starfa...
Sánuvagn Mæju, vorverkin í garðinum og Skjálftasögur 08.05.2025 53:08
María Pálsdóttir leikkona hefur svo sannarlega látið að sér kveða hér á Akureyri síðan hún flutti aftur þangað fyrir nokkrum árum. Hún opnaði Hælið, setur um sögu berklanna á Íslandi sem hefur hlotið mikla athygli enda fróðleg og áhrifarík sýning. Hún kom á fót Fiðringi, hæfileikakeppni grunnskólanna á Akureyri í ætt við Skrekk fyrir sunnan og í gærkvöldi kepptu níu grunnskólar til úrslita í Hofi....
Hollar skólamáltíðir, breytt nálgun í geðheilbrigðismálum og póstkort frá Magnúsi 07.05.2025 50:37
Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna er yfirskrift málþings sem verður haldið þann 13. maí í samstarfi Menntavísindasviðs HÍ og Aldins, samtaka eldri borgara gegn loftslagsvá. Meginmarkmiðið er að varpa ljósi á tengsl hollra skólamáltíða, umhverfis og líðan barna í námi og starfi. Málþingið er öllum opið og séstakir gestir koma frá Finnlandi og Svíþjóð og lýsa reynslu sinni af fyri...
Umhirða legstaða, appið Lifetrack og umhverfisveikindi á Heilsuvaktinni 06.05.2025 53:24
Kirkjugarðar Reykjavíkur bjóða aðstandendum og umsjónarfólki legstaða upp á fræðsludag á morgun í Fossvogskirkjugarði. Þar munu starfsmenn veita ráðgjöf um umhirðu legstaða og jafnvel einnig ráðleggingar sem gætu nýst í heimagörðum eða við sumarbústaðinn. Heimir Janusarson, garðyrkjufræðingur og starfsmaður Kirkjugarða Reykjavíkur, kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessu og göngu sem ha...
Doktorsrannsókn Ingu, samantekt á fjármálaspjalli og Svala lesandi vikunnar 05.05.2025 51:13
Þættir sem spá fyrir um flutning á hjúkrunarheimili og umönnunarbyrði aðstandenda, er heiti á doktorsritgerð sem Inga Valgerður Kristinsdóttir sérfræðingur í Heimahjúkrun varði í Hjúkrunarfræði við Hjúkrunar og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, fyrir 2 vikum. Doktorsrannsóknin hafði það að markmiði að varpa ljósi á þessa stöðu til að greina hvernig mætti þróa heimaþjónustu til að bregðast betur...
Helgi Pétursson föstudagsgestur og matur sem byrjar á emm 02.05.2025 48:44
Helgi Pétursson, eða Helgi Pé eins og hann er jafnan kallaður, kemur upprunalega úr Kópavoginum og hefur lengst af verið kenndur við Ríó Tríó, en þeir félagar stofnuðu hljómsveitina kornungir. Undanfarin ár hefur hann starfað fyrir Landsamband eldri borgara og hefur látið að sér kveða á þeim vettvangi, en er nú að hætta störfum sem framkvæmdastjóri sambandsins. Við buðum Helga velkomin sem föstuda...
Hláturjóga, leiðsöguhundar og golfsumarið 2025 30.04.2025 52:12
Það eru ekki allir sem treysta sér í jógaæfingar en líklega geta flestir tileinkað sér hláturjóga. Það er talið að hláturjóga dragi úr streitu og hjálpi líkamanum að framleiða endorfín og fleiri jákvæð efni sem hafa ýmis jákvæð áhrif á okkur, bæði líkamlega og andlega. Við fengum í dag tvo hláturjógaleiðbeinendur, Ástu Valdimarsdóttur og Þorstein Gunnar Bjarnason. Alþjóðlegur dagur leiðsöguhunda e...
VÆB á leið til Basel, Léttsveit Reykjavíkur og veðurspjallið með Einari 29.04.2025 50:00
VÆB bræður, Matthías og Hálfdán, stíga á svið í Basel fyrir Íslands hönd á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision 13.maí. Hópurinn fer til Sviss síðar í vikunni og það er skiljanlega mikil spenna fyrir því sem koma skal. Rúnar Freyr Gíslason fjölmiðlafulltrúi íslenska hópsins og VÆB var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir það sem er framundan og stemninguna í hópnum. Léttsveit Reykjavíkur er stærst...
Þóra og Ævintýrajóga, lífeyrismálin á mannamáli og Bergdís lesandi vikunnar 28.04.2025 50:40
Þóra Rós Guðbjartsdóttir dansari og jógakennari lærði listdans í Mexíkó og er núna á skjám landsmanna þar sem hún kennir börnum jóga í gegnum þættina Ævintýrajóga. Í Mexíkó ferðaðist hún um með danshópum og sýndi dans en fann sig svo betur í jógafræðunum og er með ýmis plön í farvatninu og ekki bara fyrir börn. Þóra kom til okkar í dag. Eins og undanfarna mánudaga kom Georg Lúðvíksson til okkar í...
Grétar Örvarsson föstudagsgestur og sumarmatarspjall 25.04.2025 51:15
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var tónlistarmaðurinn Grétar Örvarsson. Hann þekkja auðvitað flestir úr hljómsveitinni Stjórninni þar sem hann og Sigga Beinteins hafa sungið sig inn í hjörtu þjóðarinnar, til dæmis í Eurovision og mun víðar. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar á Höfn í Hornafirði, þar sem hann ólst upp á heimili ömmu sinnar og afa. Hann sagði til dæmi...
Stóri plokkdagurinn, skólagangan í dægurtextum og póstkort frá Magnúsi 23.04.2025 51:58
Á sunnudaginn mun forseti Íslands setja Stóra plokkdaginn og svo verður haldið upp á daginn um allt land með tilheyrandi plokki. Stóri plokkdagurinn hefur verið haldinn frá árinu 2018 og hefur hann vaxið og dafnað síðan. Fólk er hvatt til að skipuleggja plokk í sínu nágrenni, eða bara hvar sem er með því að sameinast í útiveru og plokka rusl. Rótarý hreyfingin, í samstarfi við Landsvirkjun og Umhv...
Íslenskubrú Breiðholts, Tekla Hrund á Heilsuvaktinni og Urður lesandi vikunnar 22.04.2025 48:09
Grunnskólar í Breiðholti hlutu veglegan nýsköpunar- og starfsþróunarstyrk frá mennta og barnamálaráðuneytinu á síðasta ári fyrir verkefnið Íslenskubrú Breiðholts. ÍSAT stendur fyrir námsgreinina íslenska sem annað tungumál og markmið þess var að útbúa verkefni, leiðbeiningar, áætlanir, námsmat og ýmislegt fleira til að kennarar hefðu fleiri verkfæri og tól til þess að kenna íslensku sem annað mál....
Logi Bergmann páskagestur og páskalambið með Úlfari Finnbjörnss. 16.04.2025 52:13
Í dag er síðasti virki dagurinn fyrir páska, því ákváðum við að fá ekki föstudagsgest, heldur miðvikudags-föstudags-páskagest. Logi Bergmann Eiðsson hefur nú búið í Washington í um það bil 8 mánuði, en eiginkona hans, Svanhildur Hólm Valsdóttir, er sendiherra Íslands þar. Við spurðum hann út í dvölina í Washington, fórum með honum aftur í tímann og í gegnum ferilinn og lífið á handahlaupum til dag...
SLF leitar að nýju nafni, jazzsöngkonur og páskaveðrið 15.04.2025 51:14
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra kallar eftir hugmyndum um nýtt nafn fyrir félagið. Þegar félagasamtökin voru stofnuð, um miðja síðustu öld, geysaði skæð farsótt, lömunarveikin, sem lagðist af þunga á fjölmörg börn og ungt fólk. Tímarnir hafa breyst og margt hefur breyst til hins betra í samfélaginu og enn er ýmsir þröskuldar á vegi fólks með fötlun, áþreifanlegir og óáþreifanlegir. Bergljót Borg...
Þorvaldur og staðan í jarðhræringum, fjármálin á mannamáli og Hjörtur lesandinn 14.04.2025 52:51
Aukin skjálftavirkni hefur mælst innan Ljósufjallakerfisins á Snæfellsnesi síðan 2021 og farið mjög vaxandi síðan í ágúst í fyrra. Mælingar benda til þess að upptök skjálftanna séu á 15 til 20 kílómetra dýpi. Svo er það Reykjanesið, aflögunargögn sýna skýrt merki um að landris haldi áfram undir Svartsengi. Landris mælist nú hraðara en eftir síðustu eldgos. Og svo hefur töluverð jarðskjálftahrina v...
Kristín Þóra föstudagsgestur og litlir matarmarkaðir í matarspjallinu 11.04.2025 52:08
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona. Síðan hún útskrifaðist sem leikkona hefur hún leikið fjölda hlutverka bæði á sviði og fyrir framan myndavélina og ávallt hefur hennar frammistaða vakið eftirtekt. En svo er það sýningin sem hún bjó til, Á rauðu ljósi, þar sem hún er ein á sviðinu í Þjóðleikhúskjallaranum og fjallar um eigin reynslu, af stressi...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.