RÚV

Mannlegi þátturinn

Society IS ↓ 578 episodes

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sálfræði peninganna, Ragnheiður Gröndal og Friðbjörn og Akureyrarklíníkin á Heilsuvaktinni 07.10.2025

Tvö viðfangsefni hafa áhrif á okkur öll hvort sem við höfum áhuga á þeim eða ekki: heilsa og peningar. Fólk hefur mjög mismunandi viðhorf til peninga og hegðun okkar þegar kemur að fjármálum fer gjarnan frekar eftir tilfinningum okkar til þeirra en því sem við mögulega kunnum og vitum. Hjónin Georg Lúðvíksson og Kristrún Tinna Gunnarsdóttir þýddu saman bókina Sálfræði peninganna eftir Morgan House...

Skítamix hljómsveitarinnar Evu, Lovísa Ósk og ÍD og Guðrún lesandi vikunnar 06.10.2025

Hljómsveitin Eva var einu sinni efnileg framúrstefnuhljómsveit og sviðslistahópur en þarf nú að horfast í augu við raunveruleikann; andleg veikindi, dauðann, adhd greiningar, snemmbúið breytingaskeið og þá staðreynd að þær hafa ekki samið nýtt lag í fimm ár. Svona hljómar kynning á verkinu Kosmískt skítamix sem þær stöllur Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir, sem einmitt skipa Hl...

Edda Björgvins og Ragnar Bragason föstudagsgestir og morgunmatur í matarspjallinu 03.10.2025

Í dag voru föstudagsgestirnir tveir, annar var með okkur hér í Reykjavík, Ragnar Bragason leikstjóri, og fyrir norðan í hljóðveri RÚVAK var Edda Björgvinsdóttir leikkona, en þau frumsýna nýja sjónvarpsþáttaröð, Felix og Klöru hér á RÚV á sunnudaginn. Edda og Jón Gnarr leika titilhlutverkin, hjónin Felix og Klöru sem standa á tímamótum. Við fengum þau auðvitað til að segja okkur aðeins frá nýju þát...

Kaffistofa Samhjálpar, Hlæjum fyrir milljón og hlutverk innan fjölskyldna 02.10.2025

Kaffistofa Samhjálpar mun flytja á Grensásveginn og opna þar í desember en á meðan á framkvæmdum þar stendur verður kaffistofan opin í Hvítasunnukirkjunni við Hátún. Samhjálp hefur undanfarin ár leitað logandi ljósi að nýjum stað fyrir kaffistofuna sem hefur verið í Borgartúni í Reykjavík frá 2007. Fyrirkomulagið á nýja staðnum mun breytast þannig að þjónusta við skjólstæðinga verður aðskilin eldh...

Læknanemi í Moulin Rouge, sjálfboðaliðar á Ryder Cup og hraðstefnumót í Bíó Paradís 01.10.2025

Moulin Rouge, söngleikurinn sem gerist á samnefndum skemmtistað í París í lok 19. aldarinnar og er gerður upp úr gríðarlega vinsælli kvikmynd frá árinu 2001, var frumsýndur um helgina í Borgarleikhúsinu. Þetta er mikið sjónarspil, söngur, dans, eldheit ást í meinum, veisla fyrir augu og eyru. Þetta var frumraun Péturs Ernis Svavarssonar á Stóra sviðinu, en hann fer með hlutverk Babydoll sem er ein...

Meðfæddir ónæmisgallar, Álfastund í Borgarnesi og Veðurspjallið í beinni frá Ísafirði 30.09.2025

Lind, félag fólks með meðfædda ónæmisgalla, vill vekja athygli á því að félagsmenn þess geta þurft á ævilangri lyfjagjöf að halda. Fram að þessu hafa flestir farið inn á sjúkrahús á þriggja til fjögurra vikna fresti í lyfjagjöf og þurfa þá að sækja lyfjagjöfina á Landspítala sama hvar á landinu þau búa. En annar möguleiki er lyfjagjöf undir húð með dælu heima einu sinni í viku og sá möguleiki eyku...

Leikveturinn í Landnámssetrinu, virkni eldri borgara og Sigrún lesandi vikunnar 29.09.2025

Við héldum áfram yfirferð okkar yfir það sem verður á leiksviðum leikhúsanna í vetur. Í dag var komið að Landnámssetrinu í Borgarnesi. Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir ráða ríkjum þar og Kjartan kom til okkar og sagði okkur sögu Landnámssetursins, sem verður 20 ára næsta vor og svo fór hann með okkur yfir það sem verður á döfinni hjá þeim þennan leikveturinn. Nú er að ljúka Íþ...

Sigurður Sigurjónsson föstudagsgestur og herragarðsmatarboð 26.09.2025

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Sigurður Sigurjónsson leikari og leikstjóri. Hann fór mjög ungur í leiklistarskólann og vakti fljótt athygli eftir útskrift. Auðvitað hefur grínið, Spaugstofan, Skaupin og margt fleira, verið fyrirferðamikið í hans ferli, en hann er einnig frábær í alvarlegri hlutverkum og í seinni tíð hefur hann einnig verið fantagóður í hlutverki skúrka. Það va...

Að gleyma sér, söngvar úr suðri og norðri og innra og ytra virði 25.09.2025

Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir var hjá okkur í dag, en hann skrifar mikið af pistlum og hugleiðingum sem hann deilir meðal annars á akureyri.net. Þar hefur hann meðal annars skrifað um geðheilsu aldraðra, orkuveitu heilans, það að vera öðruvísi og það að gleyma sér. Við ræddum við Ólaf í dag um mikilvægi þess að gleyma sér og nokkrar aðferðir til þess. Við litum inná æfingu í Salnum í gær, þar hitt...

Gæludýra- og húsapössun, BragðaGarður og Dávur í Dali 24.09.2025

Hunda-, katta- og gæludýraeigendur þekkja það að það getur verið snúið að fá pössun fyrir dýrin ef þau þurfa að fara erlendis eða eitthvað slíkt. Arnrún Bergljótardóttir stofnaði Sporið þar sem hún býður upp á heimapössunarþjónustu fyrir gæludýr og þá í leiðinni heimilin, á meðan eigendurnir eru ekki heima. Þar hugsar hún um allar þarfir dýrsins eða dýranna og nú býður hún líka upp á ummönnun og h...

Draumar, málþing um byggðafestu ungs fólks og Hafdís Inga í Heilsuvaktinni 23.09.2025

Draumar eru sammannleg fyrirbæri og draumatúlkun getur hjálpað fólki við að takast á við ýmis viðfangsefni í sínu lífi, hvort heldur sem þau eru tengd tilfinningum, aðstæðum eða jafnvel flóknum úrlausnarefnum og vandamálum. Á námskeiðinu Draumar – spegill sálarinnar sem Arna Ýrr Sigurðardóttir prestur hefur verið með í nokkur ár, byggir Arna á sinni eigin reynslu af því að nota draumavinn...

Leikárið hjá LA, innanhúshönnun og Silja Ingólfsd. lesandi vikunnar 22.09.2025

Við héldum áfram yfirferð okkar um leiksvið landsins þar sem skoðum hvað verður á fjölunum í leikhúsunum í vetur. Nú er komið að Leikfélagi Akureyrar, sem er hluti af Menningarfélagi Akureyrar, þar er leikhússtjóri Bergur Þór Ingólfsson, sem var í beinu sambandi frá hljóðveri RÚV á Akureyri. Bergur fór með okkur yfir hvað verður á döfinni hjá þeim í vetur. Í dag verður Katrín Ísfeld Guðmundsdóttir...

Haraldur Þorleifsson föstudagsgestur og matarspjall um hvítlauk og skonsur 19.09.2025

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Haraldur Ingi Þorleifsson. Hann stofnaði hönnunarfyrirtækið Ueno árið 2014 í Bandaríkjunum, rekstur þess gekk gríðarlega vel, þau unnu fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum í heiminum og það vakti mikla athygli þegar hann seldi fyrirtækið árið 2021 til Twitter og fjölskyldan flutti aftur til Íslands. Eftir það hefur Haraldur brallað ýmislegt, hann ko...

Kvikmyndatónlist Herdísar, Dagbjört og Sigrún um Sæmund Hólm og mannleg (og meðvirk) samskipti 18.09.2025

Herdís Stefánsdóttir kvikmyndatónskáld hefur komið víða við í heimi kvikmyndanna og gert tónlist við bæði erlendar og íslenskar myndir, nú síðast Eldana sem nýlega var frumsýnd en þar áður við þættina um Vigdísi sem sýndir voru hér á RÚV við góðar undirtektar. Svo hefur hún samið tónlist við tvær kvikmyndir M. Night Shyamalan, leikstjórann heimsfræga. Herdís er búsett hér á landi og eignaðist sitt...

Húsnæðismál Konukots og ilmheimur Fischersunds 17.09.2025

Hvar eiga heimilislausar konur að vera ef þær eru óvelkomnar alls staðar? Við ræddum stöðu þeirra hér í dag í tilefni af grein sem birt var fyrir skömmu á Vísi um yfirstandandi ósætti um að Konukot, neyðarskýli fyrir heimilislausar konur, flytji tímabundið í nýtt húsnæði í Ármúla 34. Húsnæðið þar sem Konukot er rekið í Eskihlíð er nánast ónýtt og komið að þolmörkum í viðhaldi. 84 konur gistu í Kon...

Skyrið, Lífræni dagurinn og veðurathugunarstöðin á Grímsstöðum 16.09.2025

Hvað varð um íslenska hnausþykka og súra skyrið okkar og af hverju er það orðið að aukefnaþeyttri, jafnvel sykraðri þunnri jógúrt sem neytendum býðst nánast eingöngu í matvörubúðum í dag? Neytendur þurfa að leggja sig sérstaklega eftir því og fara á tiltekna staði til þess að nálgast alvöru skyr eins og þekktist í gamla daga. Hallgrímur Helgason rithöfundur hrinti af stað kröftugri umræðu um íslen...

Leikárið í Þjóðleikhúsinu, Bára og Kvæðamannafélagið og Sváfnir lesandi vikunnar 15.09.2025

Við héldum áfram yfirferð okkar um það sem verður á fjölum leikhúsanna í vetur, í síðustu viku var það Borgarleikhúsið, nú er komið að Þjóðleikhúsinu. Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóri, kom í þáttinn og sagði okkur frá því sem er á döfinni á nýhöfnu leikári, en Þjóðleikhúsið á einmitt 75 ára afmæli um þessar mundir. Dagur rímnalagsins er í dag og við fengum formann Kvæðamannafélagsins Iðunn...

Vigdís Hrefna föstudagsgestur og matarspjall um kjúlla, crepes og brokkolini 12.09.2025

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikkonan Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Hún hefur auðvitað leikið fjölda hlutverka á sviði og fyrir framan myndavélar og nú síðast leikur hún aðalhlutverkið, jarðskjálftafræðinginn Önnu í kvikmyndinni Eldarnir, sem byggð er á bók Sigríðar Hagalín Björnsdóttur. Við spurðum hana út í myndina og hlutverkið og fórum með henni aftur í tímann á æskuslóðirn...

Gleði Bjargar, Lalli töframaður og mannleg samskipti með Valdimar 11.09.2025

Listakonan Björg Þórhallsdóttir hefur búið í Noregi nánast allt sitt líf og kom núna til Íslands til þess að kynna nýja bók sem hún skrifaði, Gleði Bjargar - Hamingjan er markmið, gleðin er afstaða. Björg er líka höfundur hinna vinsælu dagbóka Tíminn minn, sem komið hafa út hér á landi í rúman áratug. Hún hefur haslað sér völl í Noregi sem myndlistarmaður og rithöfundur og þessi nýja bók hennar va...

Dýravernd á Íslandi, Spilakvöld á miðvikudögum og tangóhátíð í Reykjavík 10.09.2025

Við fræddumst í dag um Ingunni Einarsdóttur frumkvöðul í baráttu fyrir velferð dýra á Íslandi. Hún fæddist árið 1850 og hvatti til dæmis til stofnunar dýraverndarfélagsins, sem heitir í dag Dýraverndarsamband Íslands. Hún hafði líka forgang um að félagið gæfi út rit til að fræða almenning um velferð dýra. Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambandsins og hestafræðingur, var hjá okkur o...

Helga og Heilsuvaktin, Sirrý og Lífskraftur og Friðrik og arabískar nætur 09.09.2025

Helga Arnardóttir kom til okkar í dag, en hún verður með Heilsuvaktina annan hvern þriðjudag í þættinum, eins og síðasta vetur. Í dag sagði hún okkur frá því sem hún ætlar að fjalla um í haust, til dæmis langvarandi einkenni Covid, þyngdarstjórnunarlyfjum, breytingar á lífstíl til að ná bata eða tökum á sjúkdómum, heilsusamlegt mataræði og hreyfingu, mýtur þegar kemur að heilsu og fleira. Á Ísland...

Leikárið í Borgarleikhúsinu, íslensk matargerð í Japan og Rósa lesandi vikunnar 08.09.2025

Við héldum áfram yfirferðinni um leikhúsin í dag, að skoða það sem verður á fjölunum í vetur. Í síðustu viku var það Tjarnarbíó, nú var komið að Borgarleikhúsinu. Egill Heiðar Anton Pálsson, leikhússtjóri, kom í þáttinn og sagði okkur allt um leikárið framundan í Borgarleikhúsinu. Hinrik Carl Ellertsson, íslenskur matreiðslumaður og kennari við Menntaskólann í Kópavogi, er nýkominn heim úr ferð ti...

Þórhildur Sunna föstudagsgestur og Albert gestur í matarspjallinu 05.09.2025

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, mannréttindalögfræðingur, fyrrverandi þingmaður og þingflokksformaður Pírata var föstudagsgestur Mannlega þáttarins að þessu sinni. Þórhildur er nýtekin við stöðu framkvæmdastjóra alþjóðlegu samtakanna Courage International, samtök sem helga sig baráttunni fyrir frjálsu flæði upplýsinga, tjáningarfrelsi, fjölmiðlafrelsi og friðhelgi einkalífsins. Við fórum með Þórhildi...

Þjóðræknisþing, Valdimar og mannleg samskipti og Uppskriftabókin á RÚV 04.09.2025

Næsta sunnudag stendur Þjóðræknisfélag Íslendinga fyrir Þjóðræknisþingi í Reykjavík, en markmið félagsins er að efla tengsl, samhyggð og samstarf milli Íslendinga heima og erlendis, fólk af íslenskum ættum í Norður-Ameríku. Guðrún Ágústsdóttir, formaður félagsins og Pála Hallgrímsdóttir sem er í stjórn félagsins komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá þinginu og félaginu. Valdimar Þór Svavarsson r...

Magnús kenndi jóga í Kabúl, maraþonbakstur og Vonarbrú 03.09.2025

Það eru ekki allir sem finna „einu og réttu“ leiðina í því sem þau vilja gera í lífinu. Sumir vita upp á hár hvað þau vilja læra og vinna við, jafnvel frá því þau voru mjög ung, en svo er líka töluvert margir sem hafa ekki hugmynd um hvað þau vilja verða „þegar þau verða stór“. Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, er einn þeirra. Hann fór úr einu í ann...

Listen to the Mannlegi þátturinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.