RÚV

Mannlegi þátturinn

Society IS ↓ 578 episodes

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Kóresk kvikmyndahátíð, Stefán Atli kennir gervigreind og veðurspjallið með Einari 11.11.2025

Við fræddumst um kóreska menningu í þættinum í dag, en fyrsta kóreska kvikmyndahátíðin á Íslandi hefst á fimmtudaginn í Bíó Paradís og stendur yfir fram á sunnudag. Kóreskt kvikmyndaefni hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarin ár, kvikmyndin Parasite var valin besta kvikmyndin á óskarsverðlaunahátíðinni 2020, sjónvarpsþættirnir Squid Game slógu í gegn út um allan heim og svo er það auðvitað K-...

Síungir karlmenn, Kleinudagurinn og Eiríkur Jónsson lesandi vikunnar 10.11.2025

Út er komin bókin Síungir karlmenn - Innblástur, innsæi og ráð. Bókin hefur að geyma 45 hugleiðingar og hvatningu fyrir fólk af öllum kynjum að fara úr viðjum vanans, og brjóta upp eldri viðmið samfélagsins. kynjum. Með bókinni vilja höfundar ögra vanabundnum viðmiðum, ýta við hugsun og opna dyr að nýjum viðhorfum og möguleikum. Karl G Friðriksson og Sævar Kristinsson höfundar bókarinnar komu í þá...

Þorsteinn J. föstudagsgestur og nostalgískt matarpsjall 07.11.2025

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn er fjölmiðlamaðurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Hann hefur unnið við fjölmiðla frá unglingsaldri, hér á RÚV, á Bylgjunni, Stöð 2 og víðar. Hann rekur eigið framleiðslufyrirtæki og hefur framleitt meðal annars fjölda heimildamynda og sjónvarpsþátta. Nú síðast opnaði hann fjölmiðilinn TV1 Magazin, sem hann segir ekki vera eins manns fjölmiðil. Við feng...

Að nýta Lego kubba til lausna, Sara Rós og ADHD fræðsla og viðvörunarbjöllur í samböndum 06.11.2025

Við fræddumst í dag um Lego Serious Play, sem er aðferð fyrir stjórnendur og fyrirtæki til að finna lausnir við áskorunum með hjálp Lego kubba. Steinunn Ragnarsdóttir stjórnunarráðgjafi lærði þessa aðferð í Danmörku og hún sagði okkur betur frá henni í þættinum. Hvatningarverðlaun ADHD samtakanna 2025 hlaut Sara Rós Kristinsdóttir ráðgjafi fyrir ómetanlegt framlag til fræðslu og valdeflingu fólks...

Tolli og Batahús, barnabók um alzheimer og gamansýningin Lífið í Japan 05.11.2025

Við kynntum okkur starfsemi Batahúss í þættinum í dag. Batahús var stofnað árið 2021 og veitir húsnæði, jafningjastuðning og einstaklingsmiðaða þjónustu fyrir fólk sem hefur lokið fangelsisvist og er að stíga fyrstu skrefin til baka í samfélagið. Tolli Morthens, formaður stjórnar Bata, kom í viðtal og sagði okkur betur frá tilurð Batahúss, starfseminni og hugmyndafræðinni. Svo fræddumst við um bók...

Hatursorðæða um hinsegin málefni, pörupiltar með fræðslu í fyrirtækjum og Hrund og Innsæi 04.11.2025

Í lok síðustu viku voru kynntar niðurstöður rannsóknar sem bar nafnið Öruggarin hinsegin borgir, sem unnin er af Nordic Safe Cities fyrir Reykjavíkurborg. Þar kemur fram að ein af hverjum tíu athugasemdum um hinsegin málefni á samfélagsmiðlum inniheldur hatursorðræðu. Þar sést allt frá niðrandi athugasemdum til hótana og neteineltis sem getur valdið fólki vanlíðan, dregið fram skaðlegar staðalímyn...

Katla smörrebrauðsjómfrú, örmagna heilbrigðisstarfsfólk og Þór lesandi vikunnar 03.11.2025

Katla Gunnarsdóttir er það sem kallað er smörrebrauðsjómfrú að mennt. Frá því hún lauk sveinsprófi hefur hún starfað á frokostveitingastaðnum Tívolíhallen í eigu smörrebrauðsjómfrúnnar Helle Vogt, en hún rekur eldhúsið uppá gamla mátann með klassísku smörrebrauði og dönskum réttum. Katla er þessa dagana með annan fótinn á landinu en hún er meðal annars að bíða eftir leyfi frá Reykjavíkurborg í sam...

Margrét Ákadóttir föstudagsgestur og smákökur og paté í matarspjallinu 31.10.2025

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Margrét Ákadóttir leikkona, listmeðferðarfræðingur og kennari. Við fórum með henni aftur í tímann á og í gegnum lífið og ferilinn til dagsins í dag. En Margrét leikur eitt aðalhlutverkið í nýrri íslenskri kvikmynd, Víkin, sem var frumsýnd í kvikmyndahúsum í gær. Spennumynd sem gerist á einum afskekktasta stað á landinu. Margrét sagði okkur betur...

Ofbeldi gegn eldri borgurum, rannsóknir á barnamat og mannleg samskipti með Valdimari 30.10.2025

Við fræddumst um ofbeldi gegn eldri borgurum í dag í kjölfar málþings sem Landsamband eldri borgara stóð fyrir um hvernig hægt er að tryggja öryggi eldri borgara og þar sem varpað var ljósi á algengi ofbeldis gegn eldri borgurum á Íslandi. Þeir Björn Snæbjörnsson og Sigurður Ágúst Sigurðsson skrifuðu grein á visir.is þar sem þeir fóru yfir það sem kom fram á þinginu og þeir komu einmitt til okkar...

Að þýða Shakespeare, Slagdagurinn á laugardaginn og Fadó tónlist á íslensku 29.10.2025

Þórarinn Eldjárn, rithöfundur og ljóðskáld, kom í þáttinn í dag. Hann þarf auðvitað ekki að kynna fyrir hlustendum, hann hefur sent frá sér fjölda ljóðabóka, smásagna og skáldsagna sem eru samofin menningu okkar. Auk þess hefur hann þýtt mikið úr Norðurlandamálum og ensku, en hann lærði í Svíþjóð og bjó þar nánast allan áttunda áratuginn. Þórarinn hefur þýtt fjögur leikrita Shakespeare og við rædd...

Staðan á húsnæðislánamarkaðinum, Steinunn Sara tilnefnd til Kammaprisen og snjóveðurspjall 28.10.2025

Óvissan er mikil á húsnæðislánamarkaði, í kjölfar dóms Hæstaréttar Íslands í máli sem höfðað var gegn Íslandsbanka. Stóru viðskiptabankarnir og nokkrir lífeyrissjóðir hafa dregið úr framboði verðtryggðra íbúðalána og í gær sagði Ingólfur Bender aðalhagfræðingur samtaka Iðnaðarins, í samtali við mbl.is, að stjórnvöld yrðu að koma að málinu til að eyða óvissu. Breki Karlsson formaður Neytendasamtaka...

Hólmfríður og Selma í Stapaskóla, Bragi Þór frumsýnir Víkina og Ásgeir Hvítaskáld lesandi vikunnar 27.10.2025

Í síðustu viku voru veittar viðurkenningar fyrir nýsköpun í kennslu og tungumálanámi. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi Rannís, Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi og mennta- og barnamálaráðuneytisins. Veitt voru Evrópsku nýsköpunarverðlaunin í kennslu og jafnframt voru veitt verðlaun í eTwinning, en það eru verefni sem tengja saman kennara og skóla í 46 löndum til að efla alþjóðlegt samtarf. Sjö...

Guðrún Ágústsdóttir föstudagsgestur og mæður heiðraðar í matarspjallinu 24.10.2025

Það er auðvitað kvennafrídagurinn í dag, fimmtíu árum eftir að hann var haldinn fyrst. Því er Guðrún ekki með í þættinum í dag og föstudagsgestur þáttarins, Guðrún Ágústsdóttir, ekki heldur. Við tókum upp viðtalið við hana í gær, skemmtilegt spjall þar sem hún fór með okkur yfir aðdraganda kvennafrídagsins 1975. Guðrún gat ekki sjálf verið viðstödd því hún hafði flutt með fjölskyldunni til Edinbor...

Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf, barnakvikmyndahátíð og samskipti í ástarsamböndum 23.10.2025

Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf er geysilega mikilvæg í nútímasamfélagi, en það eru liðin 10 ár frá stofnun námsleiðarinnar Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf á meistarastigi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Af því tilefni verður haldið málþing í dag þar sem litið er til baka, heyrt í nemendum, kennurum og samstarfsaðilum, horft til framtíðar og mikilvægi foreldrafræðslu og uppeldisráðgja...

Ráðstefna um offitu, matarveisla í Skagafirði og 100 ára afmæli á Laugum 22.10.2025

Stjórn félags fagfólks um offitu stendur fyrir ráðstefnu í Salnum í Kópavogi í næstu viku þar sem innlendir og erlendir sérfræðingar fjalla um nýjustu þekkingu á offitu, ýmsa vinkla tengda forvörnum og meðferð við offitu. Erla Gerður Sveinsdóttir, sérfræðilæknir við offitumeðferðir fullorðinna, kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá ráðstefnunni og þróuninni þegar kemur að þessu mikilvæga málefni....

Eftirfylgni borgar sig og Lilja Ósk um Heimsins besta dag í helvíti 21.10.2025

Af hverju hættir fólk að nota eitthvað sem virkar? Og af hverju gerir fólk ekki það sem það segist ætla að gera til að efla heilsuna sína? Þessar spurningar urðu kveikjan að rannsókn Hrefnu Óskarsdóttur iðjuþjálfa á Reykjalundi og aðjúnkt við Háskólann á Akureyri. En hún kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá niðurstöðum rannsóknarinnar, sem hún segir að hafi verið bæði óvæntar og í raun mannlegar...

Sálrænt öryggi á vinnustað, Óperudagar og Hjálmar lesandi vikunnar 20.10.2025

Upplifir þú sálrænt öryggi á þínum vinnustað? Það er mikilvægt að finna til öryggis í hópnum á vinnustað, geta tjáð sig frálst á fundum fyrir framan aðra og þora að vera maður sjálfur. Ein skilgreining á sálrænu öryggi er einmitt sú meðlimir teymis upplifi öryggi til að taka félagslega áhættu og vera berskjaldaðir. Hilja Guðmundsdóttir ráðgjafi hjá Mental og sérfræðingur í Mannauðsstjórnun kom í þ...

Þrír föstudagsgestir og matarspjall 17.10.2025

Niflungahringurinn er í aðalhlutverki hjá föstudagsgestunum okkar í dag. Félagarnir í Hundur í óskilum og Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona munu á einni kvöldstund sýna Niflungahringinn í Borgarleikhúsinu og til þess þurfa þau marga búninga, fullt af hljóðfærum, nokkuð mörg sönglög og hraðar hendur. Hjörleifur Hjartarsson skrifaði leikgerðina og hefur verið vakin og sofin yfir þessu síðustu ár...

Slökkvilið Reykjavíkur, Sporið þjóðdansafélag og Valdimar Svavarsson ráðgjafi 16.10.2025

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna heldur á morgun og hinn daginn mikla námsstefnu, Á vakt fyrir Ísland, sem er mikilvægur vettvangur fræðslu, umræðu og samvinnu fyrir þau fjölmörgu sem starfa við viðbragðs- og björgunarstörf hér á landi. Bjarni Ingimarsson formaður landsambandsins ætlar að segja okkur betur frá þessu hér rétt á eftir. Danshópurinn Sporið sýnir íslenska þjóðdansa vi...

Mýrin, UNICEF á Gaza og Stamfélag Íslands 15.10.2025

Mýrin, alþjóðleg barna- og unglingabókmenntahátíð hefst á morgun í Norræna húsinu. Þetta er í tólfta sinn sem hátíðin er haldin og yfirskriftin að þessu sinni er Týnd útí mýri. Áhersla er lögð á Norrænar barna- og unglingabókmenntir og lestrargleði og sköpun höfð að leiðarljósi og ýmis konar uppákomur og viðburðir verða fyrir börn, ungmenni og alla aðra sem láta sig barnabókmenntir varða. Gunnar T...

Inflúensa, prótein og veðurspjall 14.10.2025

Við tölum um flensuna í þætti dagsins. Umsjónarmönnum Mannlega þáttarins hafa borist fregnir af fólki sem hefur veikst nokkuð kröftuglega af inflúensu í þessum mánuði, sem okkur þykir nú full snemmt, október er rétt að verða hálfnaður. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir ætlar að spjalla við okkur um inflúensu, hvernig hún hegðar sér - er hún óvenju snemma á ferðinni? Og viðbrögðin - eru bólusetningar...

Vínlaus lífsstíll, ofsafengin sjálfsrækt og lesandi vikunnar 13.10.2025

Sífellt fleiri velja sér vínlausan lífsstíl og nú er til dæmis hægt að sækja námskeið í því að tileinka sér þann lífsstíl, Full af lífi-vínlaus lífsstíll. Þau Gunnar Hersveinn heimsspekingur og rithöfundur og Margrét Leifsdóttir arkitekt og heilsumarkþjálfi hafa hannað námskeiðið í samstarfi við SÁÁ og þau segja að það krefjist að sjálfsögðu hugrekkis að breyta líferni sínu og hætta því sem telst...

Jóhann og Edda föstudagsgestir og kjötsúpumatarspjall 10.10.2025

Við vorum með tvo föstudagsgesti að þessu sinni, tónlistarfólkið Edda Borg og Jóhann Helgason en þau verða saman á útgáfutónleikum Jóhanns í Bæjarbíói en hann er að gefa út nýja sólóhljómplötu með nýjum lögum en það gerði hann síðast árið 1999. Jóhann og Edda kynntust fyrst þegar þau hittust í því einstaka og sögufræga hljóðveri Hljóðrita fyrir margt löngu síðan. Þau Jóhann og Edda tóku einnig lag...

Klúbburinn Geysir, Roof Tops og hlutverk innan fjölskyldunnar með Valdimari Þór 09.10.2025

Í meira en tuttugu ár hefur Klúbburinn Geysir markað spor sín í geðheilbrigðismálum Íslendinga með því að bjóða einstaklingum með geðrænar áskoranir hlutverk, ábyrgð og tækifæri til þess að hafa stöðugleika í lífi sínu. Klúbburinn starfar eftir gagnreyndri hugmyndafræði Clubhouse International og er tilgangur hans að virkja félaga klúbbsins til þátttöku í samfélaginu. Benedikt Gestsson, aðstoðarfr...

Heimildarmynd um heilatengda sjónskerðingu, súrdeigsráðgjafi og rafrænt námskeið um makamissi 08.10.2025

Annað kvöld verður sýnd heimildarmynd á RÚV eftir Bjarney Lúðvíksdóttur um heilatengda sjónskerðingu eða CVI, myndin heitir á íslensku Fyrir allra augum og er eina heimildarmyndin í heiminum í fullri lengd um heilatengda sjónskerðingu. Myndin fjallar um Dagbjörtu Andrésdóttur, metnaðarfullan söngnema sem les ekki nótur heldur lærir þær með eyranu en það dugar ekki til að útskrifast. Í leit að svör...

Listen to the Mannlegi þátturinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.