RÚV
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Samhjálp og ABC barnahjálp og Axel Finnur á Heilsuvaktinni 16.12.2025 49:50
Við vorum á hjálparstarfsnótum í þættinum í dag. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar og Hrönn Svansdóttir framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar komu til okkar. Við töluðum við þær um starfsemi Samhjálpar g ABC barnahjálpar, mikilvægi sjálfboðaliða og það hversu mikilvægt er að gefa af sér og kenna börnunum okkar samkennd. Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Að þessu si...
Að nota gervigreindina rétt, sagan um Sleðaferðina og Unnur Steina lesandinn 15.12.2025 50:00
Mál málanna, gervigreindin, var til umfjöllunnar hjá okkur í dag. Hvernig getur gervigreindin nýst okkur í daglegu lífi og hvernig eigum við að spyrja? Það er nefnilega ekki sama hvernig við spyrjum gervigreindina spurninga og við eigum að fara varlega í að láta hana fá persónulegar upplýsingar. Það er ekki hægt að stóla 100% á svörin sem við fáum, því gervigreindin kann ekki að svara „Ég veit ekk...
Stefán Máni föstudagsgestur og súkkulaði- matarspjall 12.12.2025 50:08
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson. Hann hefur gefið út skáldsögur frá árinu 1996, u.þ.b. þrjátíu bækur á jafnmörgum árum. Margar af hans sögum fjalla um rannsóknarlögreglumanninn Hörð Grímsson, til dæmis sú nýjasta sem var að koma út, Hin helga kvöl, þar sem Hörður glímir við dularfullt mál eftir að lík af karlmanni finnst. Stefán Máni hefur...
Mannréttindi í geðheilbrigðismálum, ný talsetning á fyrstu íslensku talmyndinni og mannleg samskipti 11.12.2025 54:43
Í gær var Alþjóðlegi mannréttindadagurinn og af því tilefni stóð Geðhjálp fyrir opnu samtali á Facebook síðu samtakanna þar sem Oddur Ástráðsson lögmaður svaraði spurningum er snúa að mannréttindum í geðheilbrigðisþjónustu. Oddur kom til okkar í dag og sagði okkur frá því helsta sem þar var rætt, hvað hafi brunnið mest á þeim sem sendu inn spurningar, en þar voru frelis- og sjálfræðissviptingar fy...
Tau með tilgang, tónlistarbókin Bambaló og afstressun í Ásmundarsafni 10.12.2025 50:52
Við fræddumst í dag um verkefnið Saumó - tau með tilgang. Þetta er virkniverkefni fyrir flótta- og innflytjendakonur, þar sem þær slá nokkrar flugur í einu höggi, þær gera og selja handunnar vörur auk þess að læra íslensku og fræðast um samfélagið. Hjálpræðisherinn og Hjálparstarf kirkjunnar standa að Saumó og við fengum Hildi Loftsdóttur sem stýrir verkefninu til að segja okkur betur frá því, en...
Alzheimer og listir, öðruvísi jóladagatal og veðurspjallið með Einari Sveinbjörnss 09.12.2025 50:04
Í nóvember voru 10 ár síðan fyrsta sérsniðna dagskráin fyrir fólk með alzheimer var búin til fyrir Listasafn Íslands undir merkjum rannsóknarverkefnisins „Listir og menning sem meðferð“. Halldóra Arnardóttir listfræðingur er nýkomin frá heimsókn í MoMA safnið í New York þangað sem hún var boðin í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá stofnun dagskrár fyrir fólk með Alzheimer og aðstandendur þeirra....
Ævisaga Óla Gränz, Glóð kertastjakinn og Sólveig lesandi vikunnar 08.12.2025 52:12
Óli Gränz er eyjapeyi og grallari. Hann missti aleigu sína í Heymaeyjargosinu og ástarlíf hans var stundum umtalað í Eyjum. Hjá Óla hefur gleðin alltaf haft yfirhöndina en stundum hefur þó gefið á bátinn. Í ævisögu sinni segir hann á hispurslausan og skemmtilegan hátt frá lífshlaupi sínu sem er engu öðru líkt. Við hittum Óla og rifjuðum upp með honum áhuaverðar sögur. Hingað komu svo tveir leikara...
Bjartmar Guðlaugsson föstudagsgestur og matarspjall um fisk og smákökur 05.12.2025 53:47
Föstudagsgesturinn í þetta sinn var Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður, skáld og myndlistarmaður. Við rifjuðum upp með honum ferilinn, lögin hans sem allir þekkja, textana og lögin sem hann samdi fyrir aðra. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Við fórum yfir tölvupóst sem okku...
Leikstjórar Skaupsins, Anna Sigga og Soffía og enn um mörk og markaleysi 04.12.2025 54:15
Tíminn flýgur, jólin nálgast óðfluga og eftir þau eru áramótin handan hornsins. Upptökur á Skaupinu hafa staðið yfir og klárast fljótlega og við ákváðum að taka aðeins púlsinn á því hvernig gengur. Allan Sigurðsson og Hannes Þór Arason eru leikstjórar Skaupsins í ár. Þeir hafa báðir talsverða reynslu úr leikstjórn og framleiðslu grínefnis fyrir sjónvarp. Við kynntumst þeim aðeins betur í dag og he...
Hörður Torfa og múrarnir falla, Uppskrift að jólum og La bohéme í Borgarleikhúsinu 03.12.2025 53:39
Í bók sinni, Þegar múrar falla, fjallar Hörður Torfason um persónuleg og samfélagsleg mál, reynslu og átök hans við samfélagið síðastliðin 50 ár. Hann segir að hann hafi þurft að brjóta niður þá múra sem voru innra með honum til þess að geta tekist á við ytri múra. Það gerði hann með sýnileika og hugrekki. Hörður kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá bókinni og innri og ytri múrum. Sigurður...
Vellíðan og velsæld á vinnustað, Berklar á Íslandi og Þorsteinn um sykursýki eitt 02.12.2025 50:00
Vellíðan og velsæld á vinnustaðnum skiptir miklu máli. Við eyðum flest svo miklum tíma í vinnunni að það ætti að vera þess virði að vinna að því að líða vel í þeim aðstæðum. Þær Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir eru báðar sérfræðingar og ráðgjafar í mannauðsmálum og þær kenna einmitt þetta í fyrirtæki sínu Auki og þær eru líka með fjögur mismunandi námskeið á vegum Endurmenntu...
Ásgeir og heimstónlistardjassinn og Þorfinnur lesandi vikunnar 01.12.2025 51:07
Ásgeir Ásgeirsson tónlistarmaður gaf nýverið út þrefalda vínilplötu eftir 5 ár í vinnslu. Crossing Borders heitir platan og á hennir er frumsamin jazztónlist með heimstónlistaráhrifum, hljóðrituð af tónlistarmönnum búsettum á Íslandi, Indlandi, Jórdaníu og Íran. Ásgeir hefur farið í ferðir til þessara landa, sótt einkatíma á strengjahljóðfæri, farið á námskeið, spilað með þarlendum tónlistarmönnum...
Gestur Einar föstudagsgestur og matarspjall að norðan 28.11.2025 52:29
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag heitir einmitt Gestur, Gestur Einar Jónasson, útvarpsmaður og leikari. Hann vann í um tuttugu ár hjá RÚVAK á Akureyri, stjórnaði nokkrum af vinsælustu útvarpsþáttum Rásar 2 og var í fréttum og íþróttafréttum. Hann er einnig leikari, stóð á sviðinu hjá Leikfélagi Akureyrar í um tvo áratugi og lék í kvikmyndum, flestir muna eftir honum í hlutverki Georgs í St...
Sesselía, Ester og Nína fyrir norðan, íslensk máltækni og mörk og markaleysi 27.11.2025 52:20
Við fengum heimsókn frá þremur rithöfundum í hljóðver RÚV á Akureyri, ungar konur sem eiga það sameiginlegt að vera allar að gefa út sínar fyrstu bækur og þær hafa þann háttinn á að vera saman í því að kynna þær. Þær sögðu okkur frá ferlinu að skrifa bækurnar og lásu svo allar stutta kafla úr bókum sínum, þ.e. Sesselía Ólafs úr bók sinni Silfurberg, Ester Hilmarsdóttir úr bók sinni Sjáandi og Nína...
Þörungasmakk með Eydísi, Átak UN Women og jólahlaðborð á Króknum 26.11.2025 53:17
Hvernig má nýta betur matþörunga og aðra ofurfæðu fjörunnar? Flest þekkjum við söl og margir hafa bragðað þau en hvað annað úr fjörunni er hægt að nýta? Á morgun mun Eydís Mary Jónsdóttir, umhverfis- og auðlindafræðingur kynna ofurfæðuna sem finna má í fjöruborðinu og gefur gestum að smakka. Eydís kom í þáttinn í dag. UN Women á Íslandi standa fyrir árlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi og í...
Kanadískir hermenn í hernáminu, Léttsveitin þrítug og veðurspjall um sólgos og héluísingu 25.11.2025 51:08
Við töluðum í dag við Karen Lilju Loftsdóttur, doktorsnema í sagnfræði við Queen's háskólann í Ontario í Kanada. Doktorsverkefni hennar skoðar með menningarsögulegri nálgun kanadíska hermenn sem voru á Íslandi á hernámsárunum. Flestir vita að Bretar hernámu Ísland árið 1940 og svo Bandaríkjamenn frá 1941, en færri vita að um það bil 2500 hermenn frá Kanada hafi verið á Íslandi og sumir þeirra af í...
Sæunn Kjartansdóttir, greiðsluerfiðleikaráðgjöf og Vala Húnboga lesandi vikunnar 24.11.2025 51:15
Í síðustu viku fjallaði fréttaskýringaþátturinn Kveikur um málin sem komið hafa upp í leikskólanum Múlaborg, þar sem starfsmaður skólans hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni. Í þættinum kom fram að meira en ári áður en það mál kom upp tilkynnti móðir annars barns á leikskólanum grunsemdir um að dóttir hennar hefði verið misnotuð kynferðislega. Henni finnst kerfið hafa brugðist. Sæunn...
Arnór Pálmi föstudagsgestur og vonir og væntingar í matarspjallinu 21.11.2025 51:37
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Arnór Pálmi Arnarson leikstjóri. Hann byrjaði mjög ungur að leikstýra kvikmyndaefni, sjónvarpsþáttaraðirnar Hæ gosi, Ligeglad, Ráðherrann, áramótaskaupið og fleiri. Og svo nú, ný spennuþáttaröð, Heimaey, sem hóf göngu sína hjá Sjónvarpi Símans í gær. Við ferðuðumst um í tíma og rúmi með Arnóri Pálma og forvitnuðumst auðvitað um þessa nýju þætti s...
Krabbameinsfélagið Framför, kynbundinn tekjumunur lífeyris og narsisísk samskipti 20.11.2025 52:03
Það er blár nóvember, þ.e.a.s. í þessum mánuði er vitundarvakning um blöðruhálskirtilskrabbamein hjá körlum. Við kynntum okkur helstu upplýsingar um það og krabbameinsfélagið Framför í þættinum í dag, en Guðmundur Páll Ásgeirsson formaður og Hólmfríður Sigurðardóttir varaformaður komu í þáttinn og sögðu okkur frá starfi félagsins, Makafélaginu Traustir makar og fleiru. Hvað tekur við þegar starfsæ...
Töfragleraugun í Hrafnistu, Jóðlageitin 2025 og saumað í Textílmiðstöð 19.11.2025 50:00
Svavar Jónatansson vinnur við prufuverkefni hjá Hrafnistu þar sem hann hefur nýtt sér tækni sýndarveruleika til þess að færa heimilisfólkinu á Hrafnistu í aðstæður sem þau ættu annars erfitt með að komast í. Hann sem sagt fer með 360° myndavél á kóræfingu og svo getur heimilisfólk sett á sig sérstök sýndarveruleikagleraugu, eða töfragleraugu eins og hann kallar þau, og þá eru þau nánast komin á st...
Að seinka klukkunni eða ekki, Barnaþing og sykursýki eitt á Heilsuvaktinni 18.11.2025 55:01
Doktor Erla Björnsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns. Í doktorsnámi sínu rannsakaði Erla svefnleysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn. Erla hefur haldið fjölda fyrlestra og námskeiða um svefn og svefnvenjur og stendur nú fyrir undirskriftum um að leiðrétta klukkuna á Íslandi. Leiðrétting á klukkunni felur í sér að seinka klukkunni um eina klukkustund, og hal...
Þóra, Eyrún, Lubbi og málbeinið, Karl Ágúst og minningar og Guðrún lesandi vikunnar 17.11.2025 52:07
Lubbi finnur málbein er bók eftir Eyrúnu Ísfold Gísladóttur og Þóru Másdóttur og kom út árið 2009 og var valin besta fræðibókin fyrir börn árið 2010. Vinsældir Lubba hafa vaxið jafnt og þétt síðan og efnið verið mikið notað við kennslu á fyrstu stigum grunnskólans. Bókin er hugsuð til málörvunar og hljóðanáms fyrir börn á aldrinum tveggja til sjö ára, höfundar hennar Þóra og Eyrún Ísfold eru talme...
Emilíana Torrini föstudagsgestur og jólasalöt og marineringar í mataraspjallinu 14.11.2025 53:11
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan Emilíana Torrini. Hún vakt ung mikla athygli þegar hún kom syngjandi fram á sjónvarsviðið. Svo flutti hún til Englands og bjó þar í nærri tvo áratugi en er nú aftur flutt heim til Íslands. Hún hefur gert það mjög gott í tónlistinni og nú það nýjasta er plata og kvikmynd sem komu upp úr innblæstri sem hún varð fyrir eftir að hafa lesið f...
Nýtt meðferðarúrræði fyrir kvíðaraskanir, Brauðtertudagurinn og narsissismi í mannlegum samskiptum 13.11.2025 51:59
FLIKK er nýtt meðferðarúrræði fyrir börn með kvíðaraskanir og foreldra þeirra. Úrræðinu er ætlað að veita börnum aðstoð mun fyrr en ella, stytta biðtíma og sömuleiðis minnka kostnað fyrir heilbrigðiskerfið. Um er að ræða internetmeðferð fyrir foreldra barna með kvíðaraskanir. Meðferðin byggir á hugrænni atferlismeðferð (HAM) þar sem foreldrar fá aðstoð frá sálfræðingi í gegnum meðferðina með það a...
Jafningjastarf í geðheilbrigðismálum, styrktarsjóður geðheilbrigðis og Gló stuðningsfélag 12.11.2025 53:27
Jafningjastuðningur innan geðheilbrigðiskerfisins hefur færst í aukana og nú starfa jafningjar á mörgum stofnunum og deildum fyrir fólk í geðrænni krísu. Í september útskrifuðust 15 nemendur búsettir á Íslandi úr námi við Yale, alþjóðlegu leiðtogaþjálfunarnámi sem boðið er upp á af Bata- og lýðheilsudeild háskólans. Þessir nemendur luku gagnvirku og þverfaglegu fjarnámi sem Yale prófessorar og lei...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.