RÚV

Mannlegi þátturinn

Society IS ↓ 578 episodes

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Ingi köngulóamaður og Harpa um breytingaskeiðið á Heilsuvaktinni 27.01.2026

Ingi Agnarsson kallar sig stundum köngulóamann, en hann er prófessor hjá Líf- og umhverfisvísindadeild við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ og doktor í þróunarfræði. Ingi sérhæfir sig í köngulóm og hann hefur ferðast á mjög áhugaverða staði í heiminum og uppgötvað fjölda nýrra köngulóategunda, til dæmis á Madagascar. Og ef þú uppgötvar nýja tegund þá máttu gefa henni nafn. Hvernig endar maður f...

Hilma Hólm um blóðfitu, Hreyfispjöld og Margrét lesandi vikunnar 26.01.2026

Við fjölluðum um blóðfitu, eða kólesteról, í þættinum í dag og til okkar kom hjartalæknirinn Hilma Hólm. Há blóðfita er áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma og þeir eru algengasta dánarorsök Íslendinga. Þessir sjúkdómar gera miklar kröfur til heilbrigðiskerfisins enda er meðferð oft flókin og kostnaðarsöm. Í þessu samhengi er oft talað um „vonda kólesterólið“ (LDL) og „góða kólesterólið“ (HDL). Að...

Þórunn Sigurðardóttir föstudagsgestur og þorramatarspjall 23.01.2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þórunn Sigurðardóttir leikkona, leikstjóri. Hún var lengi stjórnandi Listahátíðar og hefur stjórnað stórum menningarverkefnum eins og þegar Reykjavík var valin ein af menningarborgum í Evrópu og nú síðast var hún formaður undirbúningsstjórnar þjóðaróperu. Við fórum með henni aftur í tímann skoðum hvar hennar rætur liggja og svo sagði hún okkur fr...

Dórótea og Tinkallinn, fuglatalning og samskiptin í vinnunni 22.01.2026

Sagan um Galdrakarlinn í OZ byggir á samnefndri bók Frank Baums sem öðlaðist nýtt líf með frægri kvikmynd frá 1939 þar sem Judy Garland fór með hlutverk Dóróteu. Síðan þá hafa óteljandi útgáfur litið dagsins ljós, bæði á sviði og á hvíta tjaldinu og ekkert lát virðist vera á vinsældum söngleiksins. Þar spillir ekki fyrir tónlistin með ógleymanlegum lögum á borð við Somewhe...

Kristín Sigurðardóttir um áhrif áfengis og Sóley og Auðbjörg fyndnari en nokkru sinni 21.01.2026

Það standa yfir læknadagar í Hörpu og ráðstefnan opnaði á mánudeginum með tveimur málþingum um áfengi og lýðheilsu og það hefur vakið athygli í fjölmiðlum og áfram verður fjallað um þetta mikilvæga málefni á opnu málþingi fyrir almenning í kvöld kl.20.00 - Áfengi í alfaraleið. Síðastliðinn mánudag flutti Kristín Sigurðardóttir læknir erindi sem hét Flótti í flöskuna – áhrif álags og áfalla. Kristí...

Perlað fyrir Kraft, Ástvaldur Zen ábóti og glæpahálka í veðurspjallinu 20.01.2026

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein stendur fyrir vitundarvakningu sem hefst á sunnudaginn í Hörpu þar sem perluarmböndin með áletrunni „lífið er núna“ eru perluð og seld. Sólveig Ása Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krafts, kom í þáttinn en hún þekkir það af eigin raun að berjast við krabbamein. Með henni kom Eva Sigrún Guðjónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Krafts, til að s...

Sóknaráætlun Vestfjarða, Skjaldbakan og Elín Björk lesandi vikunnar 19.01.2026

Við fræddumst um Sóknaráætlun Vestfjarða í þættinum í dag, en Uppbyggingarsjóður Vestfjarða er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja verkefni sem falla að Sóknaráætlun Vestfjarða. Sóknaráætlanir hafa skilað töluverðu til landshlutanna og hafa fjölmörg verkefni komið til framkvæmda fyrir þeirra tilstuðlan. Fjöldi verkefna hefur fært sér Uppbyggingarsjóðinn í nyt sem eflt hafa menningar...

Einar Örn og föstudagshandboltaspjall í tilefni EM og hrogn í matarspjalli 16.01.2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður og fyrrverandi landsliðmaður í handbolta. Hann er staddur í Kristianstad í Svíþjóð, hvaðan hann mun lýsa í beinni útsendingu fyrsta leik íslenska karlalandsliðsins í handbolta á móti Ítalíu á Evrópumótinu sem fram fer í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Þjóðin fylgist alltaf spennt með þegar íslenska landsliðið kep...

Leghálsskimanir, Reiðmaðurinn og mannlegu samskiptin 15.01.2026

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins í samstarfi við Samhæfingarstöð krabbameinsskimana, Ungar athafnakonur, Kraft og Lífskraft stendur fyrir nýrri vitundarvakningarherferð um leghálsskimanir undir slagorðinu „Leghálsskimanir – lítið mál!“ en janúar er alþjóðlegur vitundarvakningarmánuður gegn leghálskrabbameini. Markmiðið með vitundarvakningunni er að efla þekkingu, auka þátttöku og styrkja forv...

Anna Hulda um Veganúar og Ásdís og Edda um Bríeti, blómin og Hannes 14.01.2026

Samtök grænkera á Íslandi standa fyrir Veganúar sem er hafinn. Samtökin leggja áherslu á að búa til sem minnstan núning í daglegu lífi fólks og hvetja því til þess að fólk byrji á að prófa að skipta út kunnuglegum hráefnum í sínu mataræði, frekar en að umturna því alveg yfir nótt. Anna Hulda Ólafsdóttir, verkfræðingur og yfirmaður loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands, er í stjórn...

Lausnahringur Arnrúnar, Einar krossgátusmiður og seinni hluti Júlíu og járnkallsins 13.01.2026

Samtalið fræðsla er ekki hræðsla er forvarnarverkefni með það að markmiði að efla fræðslu og forvarnir gegn ofbeldi og vanrækslu barna. Verkefnið nær til barna, starfsfólks skóla og frístundastarfs, uppalenda og allra áhugasamra sem vilja bæta framtíð barna. Arnrún María Magnúsdóttir leikskólakennari hefur mótað og þróað verkefnið frá aldamótum, en það hefur hlotið fjölda tilnefninga til foreldrav...

Lestrarörðugleikar á vinnumarkaði, ný mynd um Magnús Eiríksson og Sigríður Björg lesandinn 12.01.2026

Þar sem áreiðanlegar rannsóknir liggja fyrir, kemur í ljós að um það bil einn af hverjum fimm fullorðnum einstaklingum, upplifir námsörðugleika eins og lesblindu (dyslexia), reikniröskun (dyscalculia) eða áskoranir sem tengjast athygli, minni eða öðrum hugrænum ferlum. Þessir erfiðleikar hverfa ekki eftir að skólagöngu lýkur. Þeir hafa áhrif á daglegt líf fjölda fólks og hvernig því gengur í samfé...

Bergþóra og Jóel föstudagsgestir og langlúra í matarspjallinu 09.01.2026

Föstudagsgestirnir okkar að þessu sinni voru hjónin Bergþóra Guðnadóttir hönnuður og Jóel Pálsson tónlistarmaður. Þau reka íslenska hönnunarfyrirtækið Farmers Market sem fagnaði 20 ára afmæli í lok síðasta árs. Við kynntumst þeim betur í þættinum og fengum að heyra frá því hver aðdragandinn var að því að þau fóru saman í stofnun hönnunarfyrirtækisins, hvernig tónlistin var nauðsynleg rekstrinum fy...

Jákvætt hugarfar, Katrín Björk og fjármálamarkmið og mannlegu samskiptin með Valdimari 08.01.2026

Við erum flest hver meðvituð um að hugarfarið skiptir miklu máli þegar kemur að líðan en við gerum okkur ekki alltaf grein fyrir því, hversu mikið það hefur að segja um hvað gerist í lífi okkar. Niðurstöður rannsókna í þessum efnum hafa sýnt að það að virkja hugann betur í jákvæðri hugsun til þess að breyta lífinu og ná betri stjórn á hvaða skilaboð við sendum frá okkur. Við rædddum þetta við Href...

Að koma sér af stað eftir flensuna, Jónmundur Grétarsson og vatnsleikfimi með Helgu 07.01.2026

Nokkuð skæð flensa hefur verið að ganga yfir frá því í haust og hafa talsvert margir lent í henni. Við fengum nokkrar ábendingar frá hlustendum að þau hefðu verið dálítinn tíma að koma sér í gang aftur eftir flensuna því brugðum við á það ráð að hafa samband við Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfara og hann kom í þáttinn og gaf góð ráð til að koma sér í gang eftir svona glímu við flensu. Við notuðum...

Jasmina Vajzovic reynsluheimur innflytjanda og daggarmark í veðurspjallinu 06.01.2026

Jasmina Vajzovic stjórnmálafræðingur kom í þáttinn í dag en hún hefur áralanga reynslu af því að vinna í málefnum innflytjenda, hælisleitenda og flóttafólks auk þess að vera sjálf innflytjandi, en fjölskylda hennar þurfti að flýja heimkynni sín í Bosníu undan stríðsátökum á tíunda áratugnum. Hún hefur verið dugleg að tjá sig og svara umræðu um innflytjendur sem hefur farið vaxandi hér á landi og r...

50 ára afmælisbók FB, sjóbaðsleikjanámskeið og Ævar Þór lesandi vikunnar 05.01.2026

Í tilefni af hálfrar aldar afmæli Fjölbrautaskólans í Breiðholti hefur skólinn gefið út bókina Fjölbraut í 50 ár – Saga Fjölbrautaskólans í Breiðholti 1975–2025. Í bókinni er rakin viðburðarík saga þessa elsta fjölbrautaskóla landsins sem markaði tímamót í íslenskri skóla- og menntasögu. Í bókinni er sagt frá námi og kennslu, eftirminnilegum nemendum og metnaðarfullu starfsfólki sem mótað hefur sk...

Ásthildur Úa og Ebba Katrín föstudagsgestir og matarspjall um afganga 02.01.2026

Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í þetta sinn voru tveir, eða öllu heldur tvær, leikkonurnar Ásthildur Úa Sigurðardóttir og Ebba Katrín Finnsdóttir. Þær útskrifuðust með árs millibili úr leikaranámi frá Listaháskóla Íslands og hafa báðar vakið mikla athygli fyrir góða frammistöðu í hinum ýmsu hlutverkum síðan. Þær leika báðar í Óresteiu, hátíðarsýningu Þjóðleikhússins sem var frumsýnd 2. í jólum...

Árljóð á nýársdag, seinni hluti örsagna og Júlía og þríþrautin á Heilsuvaktinni 30.12.2025

Á fyrsta degi ársins 2026 munu þrjátíu íslensk skáld standa fyrir óslitinni ljóðadagskrá, Árljóðum, frá sólarupprás til sólarlags. Þetta verður níunda árið sem dagskráin fer fram, og í þetta sinn í Hljómskálanum. Þar munu skáldin lesa, kveða og þylja meðan lesbjart er frá kl.10 að morgni 1. janúar. Tveir fulltrúar skáldanna og sýningarstjórar viðburðarins, Ragnar Helgi Ólafsson og Kristín Ómarsdót...

Haukur Gröndal fimmtugur, jólabók Blekfjelagsins og mannleg samskipti um áramót 29.12.2025

Saxófón- og klarínettleikarinn, tónskáldið og útsetjarinn Haukur Gröndal fagnar 50 ára afmæli með stórtónleikum í Norðurljósasal Hörpu annað kvöld. Haukur á að baki yfir þrjátíu ára feril í íslensku og alþjóðlegu tónlistarlífi, þar sem hann hefur skapað sér einstakan sess fyrir frumlega rödd. Við fórum aðeins með honum yfir ferilinn í dag og hann sagði okkur frá tónleikunum. Blekfjelagið er félag...

Þorgerður Katrín aðfangadagsgestur og sósumatarspjall 24.12.2025

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar var gestur okkar þennan aðfangadagsmorgun. Við töluðum þó ekki við hana um stjórnmál í dag, þess í stað töluðum við um jólin og hátíðirnar. Við rifjuðum upp jólahald á hennar æskuheimili, jólahefðirnar og jólamatinn og hvað af því hún tók með sér í jólahaldið með eiginmanni og börnum. Þorgerður og fjölskylda bjuggu til dæmis e...

Máni Svavarsson, jólaveðurspjall og Kristrún Halla lesandi vikunnar 22.12.2025

Máni Svavarsson er höfundur tónlistarinnar í Latabæ og nú loks eru öll 100 lögin sem hann samdi fyrir hin ýmsu Latabæjarverkefni komin á tónlistarveitur. Við fórum aðeins með Mána yfir þessa sögu ásamt því að heyra af öðrum verkefnum eins og leiksýningu um Gurru Grís (Peppa Pig) sem sýnd hefur verið til dæmis á West End í átta ár fyrir jólin en Máni samdi tónlistina við þessa sýninguna. Einar Svei...

Hrefna Hallgríms föstudagsgestur og kæfa í matarspjallinu 19.12.2025

Hrefna Hallgrímsdóttir leikkona var föstudagsgesturinn hjá okkur í þetta sinn. Hrefna fer með eitt aðalhlutverkanna í sjónvarpsþáttunum um Felix og Klöru sem sýndir voru hér á RÚV við miklar vinsældir en Hrefna lék dóttur þeirra hjóna. Hrefna er þó þekktari sem Skrítla í tvíeykinu Skoppa og Skrítla sem hún og Linda Ásgeirsdóttir hafa glatt íslensk börn með í rúm 20 ár. Þegar Hrefna nam jákvæða sál...

Hinrik Örn og hátíðarmaturinn og tilfinningalífið í aðdraganda jóla með Valdimari 18.12.2025

Við helltum okkur í sælkera- og hátíðarmatarspjall í dag með sérfræðingi. Hinrik Örn Lárusson er einn færasti matreiðslumaður landsins. Hann er nánast alinn upp í atvinnueldhúsi, en fjölskylda hans rak Hótel Heklu og hann tók sínar fyrstu kokkavaktir sem nemi 15 ára á Hótel Sögu. Hann hefur keppt fyrir hönd Íslands var matreiðslumaður ársins á íslandi 2024 og vann evrópukeppnina 2025. Í dag rekur...

Ólaunuð vinna kvenna, hjónin í Heiðmörk og Er ekki allt í lagi heima hjá þér 17.12.2025

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB og Steinunn Bragadóttir, hagfræðingur hjá ASÍ hafa reglulega skrifað greinar í fjölmiðla á kvennaárinu 2025 og í nýjustu grein þeirra, sem birtist á vísi.is undir fyrirsögninni Ólaunuð vinna kvenna, tala þær um könnun sem Varða, Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, gerði í sumar meðal félagsfólks stéttarfélaga innan ASÍ og BSRB. Þar voru kynntar niður...

Listen to the Mannlegi þátturinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.