RÚV

Mannlegi þátturinn

Society IS ↓ 578 episodes

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Mottumars, Dagur heyrnar og veðurspjallið með Einari 03.03.2026

Mottumars, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins er í fullum gangi, þar sem vakin er athygli á málefnum tengdum krabbameinum hjá körlum og um leið safnað fyrir starfsemi félagsins. Nýju sokkarnir eru komnir í sölu um allt land og nýr matarvefur er kominn í loftið þar sem hollar uppskriftir eru aðgengilegar öllum. Ása Sigríður Þórisdóttir, kynningarstjóri Krabbameinsfélagsins, og...

Um Vargfélagið af Þjóðskjalasafninu og Óttarr Proppé lesandi vikunnar 02.03.2026

Heimsókn á Þjóðskjalasafnið sem var fastur dagskrárliður í Samfélaginu eftir hádegi á Rás 1 er nú komin til okkar í Mannlega þáttinn. Annan hvern mánudag förum við í heimsókn á safnið og fáum að fræðast um áhugaverða hluti af safninu, þar er úr nógu að moða og gríðarlegt magn af áhugaverðu efni sem þau munu kynna fyrir okkur. Í dag hittum við skjalavörðinn Jón Torfa Arason sem blaðaði í gegnum vel...

Stefán Hilmarsson föstudagsgestur og ofnpokar í matarspjallinu 27.02.2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngvarinn Stefán Hilmarsson sem verður sextugur í sumar og af því tilefni syngur hann á tónleikum í Hörpu þar sem mun syngja sín þekktustu lög enda hefur ferill hans verið langur og farsæll. Við fórum með honum yfir ferilinn, ferðumst aftur í tímann, hvar og hvernig söngurinn kom inn í hans líf, stikluðum svo á stóru í gegnum lífið fram til dags...

Lausa skrúfan, Karlar í skúrum og mannlegu samskiptin með Valdimari 26.02.2026

Lausa Skrúfan er vitundarvakning á vegum Grófarinnar Geðræktar á Akureyri. Markmið hennar er að auka meðvitund fólks um að gæta vel að andlegri heilsu sinni, efla forvarnir í geðheilbriðismálum og minnka fordóma gagnvart andlegum veikindum. Enn fremur, að hvetja fólk til þess að leita sér aðstoðar þegar þess er þörf og veita upplýsingar um hvar stuðning er að finna í samfélaginu okkar. Inga Bryndí...

Ingibjörg ljósmóðir, kjarakönnun Einingar Iðju og vísindaspjallið með Eddu 25.02.2026

Við kynntumst Ingibjörgu Eiríksdóttur ljósmóður, sérfræðingur í ljósmóðurfræðum og brjóstagjafaráðgjafa í þættinum í dag. Landspítalinn stóð fyrir heiðursmálþingi vegna starfsloka hennar sem sérfræðiljósmóður við spítalann og miðað við erindin sem þar voru flutt þá er óhætt að segja að hún hafi markað djúp spor í faginu og verið fyrirmynd og áhrifavaldur. Ingibjörg er brautryðjandi í umönnun og fr...

Snjallforrit gegn matarsóun, virkniþing fyrir eldra fólk og þýskir kvikmyndadagar 24.02.2026

Við kynntum okkur aðeins sprotafyrirtækið Humble í dag, þau hafa hannað smáforrit fyrir snjallsíma þar sem boðið er upp á mat sem annars færi til spillis á lækkuðu verði sem þá bæði býður notendum upp á ódýrari vöru og hjálpar til við að minnka matarsóun. Á einu ári tókst notendum appsins að koma í veg fyrir að 31 tonn af matvælum færu til spillis. Rósa S. Markúsdóttir og Hlynur Rafn Guðmundsson v...

Sánusafarí til Eistrasalts, húsmæðraferð frá 1950 og Örn Úlfar lesandi vikunnar 23.02.2026

Það virðist vera sem gufu- eða gusuæði sé runnið á Íslendinga. Framundan er ferðalag sem farið verður í maí og þemað í þessari ferð eru sánur og það verður farið til Eistlands, Lettlands og Finlands og þar verða allskonar mismunandi sánumeðferðir, t.d. með nuddi og dekri inni í sánunum. Leifur Wilberg Orrason og Jura Aku hafa verið að gusa saman í Sækoti, þar sem þau hafa haldið sánagusur. Við ræd...

Unnur Birna Jónsdóttir Backman föstudagsgestur og vorþrá í matarspjallinu 20.02.2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Unnur Birna Jónsdóttir Backman leikkona. Hún leikur eitt af aðalhlutverkunum í nýrri íslenskri kvikmynd, Röskun, sem var frumsýnd í vikunni. Hún er svo gott sem alin upp í leikhúsinu, en móðir hennar var Edda Heiðrún Backman leikkona. Hún lék sitt fyrsta hlutverk í stórri erlendri sjónvarpsþáttaröð, Örnen, en gekk svo í gegnum langt tímabil þar s...

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins, hvað er sagnfræði og örmögnun og öndun í mannlegu samskiptum 19.02.2026

Í haust unnu Kópavogsbær og Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins greiningu á áfangastaðnum Kópavogi með það að markmiði að vinna hugmyndir um hvernig hægt sé að efla áfangastaðinn. Verkefnið mun nýtast fyrir framtíðarsýn Kópavogsbæjar í tengslum við ferðaþjónustu og einnig í tenglsum við þróun og markaðassetningu á höfuðborgarsvæðinu. Og það er ekki bara Kópavogur sem Markaðsstofa Höfuðborgarsvæðisin...

Hvenær ertu neyðartilfelli? Leiklistarverkefnið Léttir og vísindaspjallið 18.02.2026

Árið 2024 tóku 48 einstaklingar líf sitt á Íslandi og voru 35 þeirra karlar. Þessi háa tala er ástæða þess að augum er beint að körlum í meistaraprófsrannsókn sem Kristjana Atladóttir geðheilbrigðisfræðingur gerði í geðheilbrigðisfræði við Háskólann á Akureyri og kynnti nýlega niðurstöður úr. Rannsóknin er sú fyrsta hér á landi sem skoðar sérstaklega reynslu ungra karla sem hafa reynt að taka líf...

Svifryksmengun, Mál og vald og veðurspjallið með Einari 17.02.2026

Svifrykið sem mælst hefur á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana í froststillunum er mjög skaðlegt fyrir heilsu fólks. Það eykur tíðnina á hjartaáföllum og heilablóðföllum er krabbameinsvaldandi og í svifrykinu eru baneitraðar hárfínar agnir sem eru að berast inn í líkamann og valda heilsutjóni. Þetta er haft eftir Hjalta Má Björnssyni formanni félags lækna gegn umhverfisvá í viðtali á Vísi í gær. Hjal...

Andri Snær og nýja myndin og Dr. Gunni lesandi vikunnar 16.02.2026

Andri Snær Magnason er nýkominn til landsins eftir að hafa fylgt eftir heimildarmyndinni Time and Water, sem gerð er upp úr bók hans Um tímann og vatnið. Myndin hefur verið sýnd til dæmis á Sundance kvikmyndahátíðinni og vakti mikla athygli. Við fengum Andra til að segja okkur frá myndinni og hvernig hún kom til og hver væri munurinn á henni og bókinni. Svo tókum við aðeins með honum stöðuna í lof...

Ólafur Stefánsson föstudagsgestur og ítalskt matarspjall 13.02.2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ólafur Stefánsson handknattleikskappi. Hann er auðvitað búinn að vera talsvert inni í stofum landsmanna í janúar í gegnum sjónvarpstækin sem hluti af handboltastofunni að fjalla um íslenska handboltalandsliðinu á EM karla. Við nutum þess auðvitað að fylgjast með löngum og farsælum ferli Ólafs með landsliðinu og í atvinnumennskunni þar sem hann va...

Fuglainflúensa, Ísólfur ögrar sér og kulnun í mannlegum samskiptum 12.02.2026

Nýlega voru staðfest smit af skæðri fuglainflúensu í villtum fuglum hér á landi. Dauðir fuglar sem smit greindust í fundust m.a. við Tjörnina í Reykjavík og við tjörn við Ögurhvarf í Kópavogi, en smit af þessari gerð höfðu þá ekki greinst hér á landi frá sumrinu 2023. Andrea Björk Hannesdóttir dýralæknir hjá Dýrheimum kom í þáttinn og fór til dæmis yfir það hvað fólk á að gera finni það dauða fugl...

Samfélagsáhrif skapandi greina, að vinna á fordómum og Epstein-Barr veiran 11.02.2026

Er hægt að mæla samfélagsáhrif skapandi greina? Á viðburði sem haldinn var í síðustu viku af Rannsóknarsetri skapandi greina var leitast við að svara þessari spurningu. Og hvort hægt sé að rýna í hvernig skapandi starfsemi mótar samfélagslegar breytingar og hvort þær séu mælanlegar og hvert er gildi þeirra í samtímanum? Þorbjörg Daphne Hall, prófessor í tónlistarfræðum við LHÍ, og Erla Rún Guðmund...

Magnavita námið, Þórdís Nadia og Tara Sóley og Sigríður á Heilsuvaktin um beinheilsu 10.02.2026

Við fjölluðum um þriðja æviskeiðið í gær, þá var það út frá jákvæðri sálfræði, en í dag fræddumst við um Magnavita námið hjá Háskólanum í Reykjavík, sem er sérstaklega hannað fyrir fólk á þriðja æviskeiðinu, s.s. 55 til 75 ára. Benedikt Olgeirsson, verkfræðingur er einn af stofnendum Magnavita og Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir kennir í náminu, við fengum þá til að lýsa þessu námi betur fyr...

Jákvæð sálfræði á þriðja æviskeiðinu, handboltalandsliðið 1961 og Guðný lesandi vikunnar 09.02.2026

Þriðja æviskeiðið er tími þar sem margir staldra við og endurmeta stöðuna og forgangsröðun. Við forvitnuðumst í dag um hvernig jákvæð sálfræði getur nýst fólki sem komið er á þetta tímabili. Hrefna Guðmundsdóttir vinnusálfræðingur og sérfræðingur í jákvæðri sálfræði stendur fyrir námskeiðinu Þriðja æviskeiðið með augum jákvæðrar sálfræði, hún kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu. Svo hófst...

Benedikt Erlingsson föstudagsgestur og nostalgískt matarspjall 06.02.2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikstjórinn og leikarinn Benedikt Erlingsson. Eftir að hafa leikið og leikstýrt á leiksviði við góðan orðstír söðlaði hann um og færði sig yfir í kvikmyndirnar og það er óhætt að segja að kvikmyndirnar hans hafi aukið við orðstírinn, Hross í oss, Kona fer í stríð og svo var sjötti og síðasti þáttur Dönsku konunnar sýndur á sunnudagskvöldið, en B...

Stofnun ársins 2025, þjónandi forysta og vinnustaðasamskiptin 05.02.2026

Á hverju ári er valin stofnun ársins á vegum og byggir valið á mannauðskönnun hjá starfsfólki stofnana ríkisins og vinnustaði Reykjavíkurborgar o.fl. tæplega 35.000 manns. Á sama degi og úrslitin eru kynnt fer fram málþing um mannauðsmál undir yfirskriftinni Virkni og vellíðan á vinnumarkaði og við fengum Kára Sigurðsson formann Sameykis, en Sameyki stendur fyrir báðum þessum viðburðum, og með hon...

Klínísk næringafræði, Tónlistarskóli Akureyrar 80 ára og vísindaspjallið 04.02.2026

Við kynntum okkur störf klínískra næringafræðinga í dag, en þeir vinna með fólki á öllum aldri, frá börnum til aldraðra, bæði heima fyrir og á hjúkrunarheimilum og heilbrigðisstofnunum. Rétt og góð næring gegnir lykilhlutverki þegar kemur að heilsunni og í dag er ýmislegt sem getur afvegaleitt á tímum samfélagsmiðla, upplýsingaóreiðu og tískubylgna. Við töluðum við Berglindi Soffíu Ásbjörnsdóttur...

Sundbíó í Hafnarfirði, kepptu á Ólympíuleikunum fyrir hálfri öld og ofsaveður rifjað upp 03.02.2026

Vetrarhátíð hefst í Hafnarfirði á fimmtudaginn og meðal viðburða er sundbíó þar sem hægt er að horfa á bíómyndina When Harry Met Sally í Sundhöll Hafnarfjarðar og þetta er ekki bara bíó því ungir og upprennandi leikarar fara á kreik í hlutverkum Harry og Sally, og djassband sér um að setja gesti í réttu stemninguna fyrir sýningu með því að leika djasslögin úr myndinni. Jón Agnar Ólason hjá RIFF og...

Grásleppan, Gefum íslensku séns og Svanhildur Óskarsd. lesandi vikunnar 02.02.2026

Grásleppan hefur verið veidd og nýtt gegnum tíðina einkum og sér í lagi vegna gómsætra hrognanna sem eru eftirsótt víða um heim. Áður fyrr var aflanum að stærstum hluta hent eftir að hrognin höfðu verið hirt. Í seinni tíð hefur grásleppan til dæmis verið seld heilfryst til Kína þar sem hún þykir mikið lostæti. Spegill fortíðar - Silfur framtíðar er heiti á viðburði sem verður í Breiðfirðingarbúð á...

Þorkell Gunnar föstudagsgestur og danskt matarspjall í tilefni leiksins 30.01.2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður. Handboltinn er okkur ofarlega í huga í dag, enda ekki á hverjum degi sem íslenskt landslið kemst í undanúrslit á stórmóti, leikur við Dani í kvöld. En við spjölluðum líka við Þorkel um hvar hans rætur liggja, hans ferðalag í gegnum lífið, hvar hans vegferð hófst og hvernig hann endaði í starfi íþr...

Vinir með söngleikjastæla, samskipti á vinnustaðnum og Eyjólfur og langspilið 29.01.2026

Leikararnir Bjarni Snæbjörnsson og Vala Kristín Eiríksdóttir kynntust á spunanámskeiði fyrir 10 árum og þau tengdu svo vel að Bjarni spurði hana formlega hvort hún vildi vera vinkona hans. Síðan þá hafa þau ferðast saman, unnið saman og verið til staðar ef eitthvað bjátar á. Við ræddum við þau í þættinum í dag um þennan góða vinskap og ást þeirra á tónlist úr söngleikjum og teiknimyndum, en þau, á...

Fyrsti svefnvottaði skólinn, öndunartækni og söfnun listamanna í Árnessýslu 28.01.2026

Betri Svefn og Víkurskóli hafa lokið samstarfsverkefni sem markar tímamót í skólaumhverfi hérlendis. Víkurskóli er nú fyrsti svefnvottaði skóli landsins, en svefnvottun felur í sér markvissa nálgun að bættri svefnheilsu starfsfólks. Í verkefninu fékk starfsfólk skólans fræðslu um mikilvægi svefns fyrir líkamlega og andlega heilsu. Jafnframt var starfsfólk skimað fyrir svefnvanda og fékk aðgang að...

Listen to the Mannlegi þátturinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.