RÚV

Mannlegi þátturinn

Society IS ↓ 578 episodes

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Hannes Óli föstudagsgestur og portúgalskt matarspjall 10.04.2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hannes Óli Ágústsson. Frá því hann útskrifaðis frá Listaháskóla Íslands árið 2009 hefur hann leikið mikinn fjölda hlutverka á sviði og fyrir framan kvikmyndavélar, til dæmis í fjölmörgum áramótaskaupum og svo nú síðast í gamanþáttaröðinni Hæst sem er sýnd hjá Sjónvarpi Símans, en hann er einn handritshöfunda auk þess að leika annað aðal...

Formlegur og óformlegur stuðningur mikilvægur, Barnadjass og enn um höfnunarótta 09.04.2026

Við fræddumst í dag um rannsókn sem Þóra Katrín Erlendsdóttir, meistaranemi við í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri vann. En tilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun ungmenna af stuðningi í kjölfar sjálfsvígs vinar. Þátttakendur voru einstaklingar sem höfðu misst vin í sjálfsvígi. Þóra Katrín var hjá okkur í dag og sagði okkur frá rannsókninni og niðurstöðunum, þar sem til dæmis...

Hjóla 3500 km. á 34 dögum, Bústaðabúar og vísindaspjallið 08.04.2026

Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson eru á leið í afar krefjandi hjólreiðaferð þar sem þeir munu hjóla um 3.500 km um vesturströnd Bandaríkjanna á 37 dögum. Markmið ferðarinnar er að vekja athygli á Parkinsonsjúkdómnum og undirstrika mikilvægi líkamlegrar hreyfingar í baráttunni við sjúkdóminn, en Einar er sjálfur með Parkinson. Þeir komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá þessu ferðala...

Gömlu eyjalögin, trefjar á Heilsuvaktinni og Kári lesandi vikunnar 07.04.2026

Leifur Geir Hafsteinsson, forsprakki alþýðutónlistarhópsins Vinir og vandamenn og dóttursonur Oddgeirs Kristjánssonar, kíkti í heimsókn til okkar í dag en hópurinn vinnur að gerð hljómplötu þar sem finna má áður óútgefin eða sjaldheyrð gömul Eyjalög. Leifur sagði okkur frá hljómplötunni og lögunum og við heyrðum tvö laganna, þar á meðal Setjumst að sumbli en það er fyrsta Þjóðhátíðarlagið, frá ári...

Helgi Björns og Ísafjörður, Guðmundur Pétursson og blúshátíð og Edda Olgudóttir 01.04.2026

Páskahelgin er á næsta leyti og margir sem verða á faraldsfæti. Sumir fara í sumarbústað, aðrir til útlanda og svo eru margir sem fara vestur Ísafjörð, þar sem fram fer skíðavika og auðvitað tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður. Við töluðum við skíðagarp, frá Ísafirði sem margoft hefur troðið upp á þessari ágætu hátíð fyrir vestan - þó hann hafi sig hægan núna um páskana. Helgi Björnsson tónlistar...

Bragðlaukaþjálfun og matvendni, Sinfóníuhljómsveit Íslands og veðurspjall 31.03.2026

Við töluðum um matvendni í Mannlega þættinum - aðallega matvendni hjá börnum, orsakir hennar og hvað er til ráða. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði hefur undanafarið rannsakað þetta ásamt hópi vísindamanna í rannsókn þar sem áhersla er lögð á fæðuval, matvendni og líðan, bæði hjá börnum og foreldrum. Og stór hluti af þessari rannsókn er það sem er kallað ‘bragðlaukaþjálfun’ - hve...

Meindýraeyðir, Þjóðskjalasafnið og lesandi vikunnar 30.03.2026

Það vilja fáir fá meindýr inná heimili sitt og gera allt til að koma í veg fyrir það. Við ræddum við teymisstjóra meindýravarna hjá Dýraþjónustu Reykjavíkur, hann heitir Ólafur Ingi Heiðarsson og hann segir til dæmis að það sé mikil aukning á veggjalúsatilfellum í borginni og að rotturnar séu gáfaðar. Og við kíktum í heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands og hittum skjalavörðinn Kjartan J. Richter og h...

Agnar Jón Egilsson föstudagsgestur, Matarspjall með Sigurlaugu Margréti 27.03.2026

Það er föstudagur og gul viðvörun í gangi víða. Við látum það ekki á okkur fá og fögnum föstudagsgesti dagsins og sá er dósent við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands. Hann er einnig leikstjóri og höfundur, hann stofnaði Leynileikhúsið á sínum tíma og er, eins og vinir hans segja, alltaf önnum kafinn náungi. Núna í vetur leikstýrði hann leikritinu Mömmó sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Við töluðum...

Hugarafl, Guðríður Helgadóttir og garðurinn,Mannlegu Samskiptin 26.03.2026

Og þótt veðrið sé með versta móti og viðvaranir eins appelsínugular og þær verða, þá erum við í Mannlega þættinum farin að huga að vorinu sem er rétt handan við hornið. Það er nefnilega kominn tími til að byrja undirbúning fyrir garðyrkjustörf vorsins. Nú er til dæmis gráupplagt að byrja að sá fyrir alls kyns matjurtum og jafnvel sumarblómum. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur hugsar um fátt...

Dýr í sögum, Músík í Mývatnssveit og Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur 25.03.2026

Við fræddumst um sögur um dýr, íslenskar dýrasögur og hvernig er skrifað um dýr í þeim. Rithöfundurinn Gunnar Theodór Eggertsson beindi sjónum sínum að þessu efni í fyrirlestri á Borgarbókasafninu fyrr í vikunni, þar sem hann sagði frá ríkri sagnahefð Íslendinga um dýr og setti þær í alþjóðlegt samhengi, bæði í tengslum við bókmenntahefðir og einnig dýravernd. Gunnar Theodór kom í þáttinn. Skemmti...

Áfall, hvað svo? Ný bók eftir Dr.Sigrúnu Sigurðardóttur og Heilsuvaktin 24.03.2026

Hver eru helstu einkenni áfalla, hverjar eru afleiðingar og hver eru úrræði út frá fræðum og reynslu. Út er komin bókin Áfall, hvað svo? eftir Dr. Sigrúnu Sigurðardóttur, prófessor við háskólann á Akureyri, og fjallar um áföll, afleiðingar þeirra og úrræði. Bókin byggir á fræðilegum grunni og eigin reynslu höfundar og í henni kynnir Sigrún leiðir til bata. Hver eru helstu einkenni áfalla, hverjar...

Nýjar fjármögnunarleiðir í íbúðakaupum, frásögn Sigurður frá 1947 og Auður lesandi vikunnar 23.03.2026

Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna kom í þáttinn í dag og við skoðuðum með honum nýtilkomnar leiðir sem eru í boði í íbúðarkaupum þar sem til dæmis byggingafyrirtæki, verktakar eða fjármálaþjónustur bjóða fólki upp á að leggja t.d. einungis fram 10% af kaupverði, seljandinn, eða annar aðili, leggja til allt að 20% og svo eru þá 70% húsnæðislán. Neytendasamtökin segja að þessir samningar sé...

Ísleifur B. Þórhallsson föstudagsgestur og súpur í matarspjallinu 20.03.2026

Ísleifur B. Þórhallsson tónleikahaldari er heldur betur búin að vera mikið í fjölmiðlum undanfarið en hann hélt utan um tvenna stórtónleika Laufeyjar um síðustu helgi fyrir hönd Senu. Ísi í Senu, eins og hann er oftast kallaður, hefur hefur ýmislegt reynt í tónleikahaldi hér á Íslandi undanfarna áratugi en hann byrjaði ungur að spá í kvikmyndir, tónlist og viðburðahald. Hann var föstudagsgestur í...

Tannvernd og munnheilsa, samverustundir með gamlar sorgir og meðvirkni og barnauppeldi 19.03.2026

Tannverndarvikan 2026 er einmitt þessa vikuna, Góð munnheilsa alla ævi er yfirskrift vikunnar í ár. Þó munnheilsa sé auðvitað mikilvæg á öllum stigum lífsins þá er í ár lögð sérstök áhersla á börn og ungmenni og áhrif nikótíns og koffíns á tennur og munnheilsu. Íris Þórsdóttir, tannlæknir í Vestmannaeyjum og nefndarmaður í Fræðslunefnd Tannlæknafélags Íslands kom í þáttinn í dag og sagði betur frá...

Alþýðutónlistarhátíð, fordómar gagnvar fólki með fíkn og áhrif ABS hljóða á kvíða 18.03.2026

Reykjavík Folk Festival snýr aftur næstkomandi helgi í Iðnó. Hátíðin er sett upp að alþjóðlegri fyrirmynd þar sem spilagleðin er í forgrunni og órafmögnuð hljóðfæri eru í aðalhlutverki. Fyrsta hátíðin fór fram árið 2010. Forsvarsmaður, hugmyndasmiður, helsti hönnuður og fyrsti framkvæmdastjóri Reykjavik Folk Festival var Ólafur Þórðarson, ástsæli tónlistarmaðurinn í Ríó Tríó og fleiri hljómsveitum...

Gervigreind í fjármálum, 100 ára saga útvarps á Íslandi og veðurspjallið 17.03.2026

Hvaða störf á fjármálamarkaði eru líkleg til að hverfa vegna gervigreindar og hvaða ný störf verða til og hvaða hæfni þarf starfsfólk helst að hafa í nánustu framtíð. Þessa viku fer fram ráðstefnan Viðskipti og vísindi hjá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Þar koma saman fræðafólk, sérfræðingar og stjórnendur úr atvinnulífinu til að ræða nokkur af heitustu viðfangsefnum viðskipta í dag, allt fr...

Þrumu lostnir 1865, nýting á rabbarbara og Dóra Lena lesandi vikunnar 16.03.2026

Við fórum á Þjóðskjalasafnið og hittum Indriða Svavar Sigurðsson skjalavörð og hann sagði okkur afar merkilega sögu. Hann hafði heyrt að langafi hans hafi veirð einn 9 manna sem urðu fyrir eldingu við bæinn Auðnar á Vatnsleysuströnd 16. mars árið 1865. Þessi viðburður hafði vakið mikla athygli á sínum tíma og Indriði, verandi skjalavörður, hóf að leita að heimildum á safninu. Hann fann nokkrar fru...

Davíð, Jónmundur og Unnsteinn föstudagsgestir og matarspjall á frönskum nótum 13.03.2026

Föstudagsgestir Mannlega þáttarins voru þrír í þetta sinn, Davíð Þór Katrínarson, Jónmundur Grétarsson og Unnsteinn Manuel Stefánsson, en þeir voru að frumsýna glænýtt leikrit á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi, Gæðablóð, sem þeir sömdu ásamt leikstjóra sýningarinnar Þóru Karítas Árnadóttur. Þeir eiga það sameiginlegt að vera rammíslenskir en geta hver um sig rakið uppruna sinn til tvegg...

Hvað er málið með Eddu? Kvenheilsa og mannlegu samskiptin 12.03.2026

Hvað er málið með Eddu? Þetta er nafnið á fyrirlestri Gísla Sigurðssonar rannsóknarprófessors við Árnastofnun sem hann mun flytja á laugardaginn í fyrirlestrasal Eddu. Undirtitillinn á fyrirlestrinum er Bók fyrir innvígða, ekki almenning, en Gísli fjallar um það hvernig heimsmyndin og hvers kyns hugmyndir og þekking var miðlað í lausu máli og bundnu á þrettándu og fjórtándu öld, án þess að vera ri...

Starfsmótun, Öryggi í umferðinni og vísindaspjall um peptíð 11.03.2026

Án vafa sækjast flestir eftir vellíðan í starfi, en hvað er starfsmótun? Í örstuttu máli snýst starfsmótun um það hvernig hægt er að móta og aðlaga störf fólks að styrkleikum og áhugasviðum þeirra til að auka vellíðan þeirra í starfi. Sigrún Þorgeirsdóttir ráðgjafi gerði lokaverkefni um einmitt vellíðan í starfi og starfsmótun í meistaranámi sínu hjá HÍ og hún kom í þáttinn í dag og sagði okkur me...

ACT nálgunin, heilbrigð vinnustaðamenning og Thelma Björk á Heilsuvaktinni 10.03.2026

Við fræddumst í dag um það sem kallast ACT-nálgunin, en samkvæmt Rúnari Helga Andrasyni, er það sálfræðileg nálgun sem snýst í grunninn um það að hætta tilgangslausri baráttu við erfiðar hugsanir og tilfinningar. En Rúnar, sem er sérfræðingur í klínískri sálfræði og er yfirsálfræðingur á Reykjalundi hefur nýtt sér þessa aðferð í starfi sínu bæði á Reykjalundi og hjá VIRK. Rúnar kom í þáttinn og sa...

Sprengjan sem sprakk, gullmoli frá 1968 um brautryðjanda og Benedikt lesandi vikunnar 09.03.2026

Guðrún Hálfdánardóttir, dagskrárgerðarkona hér á Rás kíkti til okkar í dag og sagði okkur frá þáttum sem hún hefur verið að gera, Sprengjan sem sprakk, sem segir áhugaverðar sögu og frásagnir tengdar hernámi Breta á fimmta áratug síðustu aldar, atburðir sem aldrei hafa liðið úr huga þeirra sem þá upplifðu. Hún segir okkur frá símtali sem hún fékk frá hlustanda, Erni Smith, 82gja ára og er búsettur...

Ögmundur Jónasson föstudagsgestur og matarspjall um hrísgrjón 06.03.2026

Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni er fyrrverandi sjónvarps- og útvarpsmaður, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra og fyrrverandi formaður BSRB. Ögmundur Jónasson kom til okkar í dag og við spjölluðum við hann um lífið og tilveruna, forvitnuðumst um hvar hans rætur liggja, af hvaða fólki hann er komin en hans ættir skiptast í tvær fylkingar í stjórnmálaskoðunum, hægri í móðurætt og vinstri í...

Golfsýning í Laugardalshöll, 10CC og Placido Domingo og þrennt sem meðvirkni getur leitt til 05.03.2026

Á þessum árstíma eru kylfingar um allt land að verða alveg viðþolslausir að bíða eftir vorinu og að geta farið út á golfvelli landsins að elta litlu hvítu boltana. Reyndar nýta sífellt fleiri kylfingar innanhús aðstæður sem spretta upp út um allt land eins og gorkúlur og um helgina geta kylfingar fengið forsmekkinn af golfsumrinu í Laugardalshöllinni, en þar fer fram stórsýning á því nýjasta sem í...

Þorbjörg og breytingaskeiðið, Þorvaldur Lúðvík segir sína sögu og vísindaspjall Eddu 04.03.2026

Hormónar, breytingaskeiðið, mataræði og ýmislegt fleira sem snýr að heilsu kvenna. Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkrungarfræðingur og næringarþerapisti er komin til landsins og við spjölluðum við hana um þessi mikilvægu mál í dag. Fyrir ári greindist Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson athafnamaður á Akureyri með erfitt krabbamein í vélinda og hefur í kjölfarið þurft á aðgerð að halda, einu sinni í viku, t...

Listen to the Mannlegi þátturinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.