RÚV

Mannlegi þátturinn

Society IS ↓ 578 episodes

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Ljósmyndir af hversdagsleikanum, íslenski refurinn og vísindaspjall með Eddu 20.05.2026

Á morgun verður opnuð ljósmyndasýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum, ljósmyndir eftir Þórdísi Erlu Ágústsdóttur. Þórdís hefur myndað fólk, sem flest er henni náið eða vel kunnugt, yfir löng tímabil. Myndirnar segja sögur af ólíku fólki sem hún hefur fylgt eftir og velur stundir úr hversdeginum, lítil augnablik sem segja stærri sögu. Þórdís kom í þáttinn í dag og...

Ofurhlauparinn Karlotta, bókin Hamingja og Olga Hörn á Heilsuvaktinni 19.05.2026

Við töluðum í dag við Karlottu Ósk Óskarsdóttur sem hefur verið kölluð ofurhlaupari og það er ekki fjarri sanni. Hún lætur sér ekki nægja til dæmis bara venjulegt maraþonhlaup, heldur hljóp hún 75 kílómetra að meðaltali á dag, tíu daga í röð, eða samtals 750 kílómetra í Búlgaríu í síðustu viku. Hún hefur slegið sjö Íslandsmet á síðustu níu mánuðum, þar af þrjú í Búlgaríu og það hlaup var lengsta v...

Crohns og sáraristilbólga, efni af Þjóðskjalasafni og Pétur Már lesandi vikunnar 18.05.2026

Alþjóðlegur vitundardagur tileinkaður bólgusjúkdómum í meltingarvegi er á morgun 19.maí. Talið er að yfir 10 milljónir, þar af um 3,4 milljónir í Evrópu, séu annaðhvort með Crohns-sjúkdóm eða sáraristilbólgu, oft nefnda IBD. Á Íslandi hefur tíðnin aukist mikið frá 1950 og nýgengi sáraristilbólgu á Íslandi er u.þ.b. 22 á hverja 100.000 íbúa sem er með því hæsta í heiminum. Í ár vekja samtökin athyg...

Daði Freyr föstudagsgestur og matarspjallið um sænskar kjötbollur 15.05.2026

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Daði Freyr Pétursson tónlistarmaður. Þjóðin kynntist honum fyrst í Söngvakeppninni og svo fór hann auðvitað fyrir Íslands hönd í Eurovision keppnina og hefur síðan samið og framleitt tónlist undir eigin nafni og farið í tónleikaferðir víða um heim. Hann er nýfluttur aftur til landsins eftir að hafa búið í ellefu ár erlendis, en fjölskyldan býr nú...

Ungt fólk og umhverfismálin, vísindaspjallið um tónlist og hreyfingu og Jónatan um Magnús Ingimarsson 13.05.2026

Við forvitnuðumst í dag um Uppskeruhátíð í verkefninu Umhverfisfréttafólk sem var á vegum Landverndar og Grænfánans, en hún fór fram í lok apríl. Á hverju ári berast fjölmörg vönduð og fjölbreytt verkefni í keppnina frá skólum víðsvegar á landinu. Í ár voru það m.a. rapplög, spil, myndbönd, hlaðvarp, fréttaskýringar, smásögur, dagatal, ljóð, listaverk, tímarit vöruhönnun og ljósmyndir. Við fengum...

Aldin samtökin og kórinn, leikhús í bíó og veðurspjallið með Einari 12.05.2026

Við kynntumst aðeins starfi Aldin, samtaka eldri aðgerðarsinna gegn lofslagsvá í þættinum í dag. Sólveig Baldursdóttir og Halldór Reynisson eru félagar í Aldin og þau komu til okkar og sögðu frá tilurð samtakanna, starfinu, samnefndum kór og þýðingu hans í þeirra starfi. Í lokin fengum við svo að heyra upptöku af kóræfingu. National Theatre Live er framtak Breska Þjóðleikhússins þar sem margar af...

Systkinin í Blood Harmony, um Húsmæðraskólann frá 1948 og Friðrik lesandi vikunnar 11.05.2026

Blood Harmony er samstarfsverkefni systkinanna Arnar, Aspar og Bjarkar Eldjárn sem hófst snemma árs 2021 þegar heimsfaraldurinn skall á og þau voru flutt í heimahagana fyrir norðan. Þau umbreyttu kjallaranum á æskuheimilinu Tjörn í upptökustúdíó og hófu að taka upp lög. Nú, fimm árum síðar er loksins komið að því að fagna útgáfu plötunnar sem kemur út á vínyl þau halda upp á með útgáfutónleikum á...

Eva Ruza föstudagsgestur og húsráð og brauð í ofni í matarspjallinu 08.05.2026

Eva Ruža Miljević er föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Eva er þekkt útvarpskona, sjónvarpskona, skemmtikraftur, stjörnufréttakona hjá K100, velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna á Íslandi og áhrifavaldur. Og ef allt þetta er ekki nóg þá er hún líka í veitingabransanum, en hú rekur ásamt eiginmannisínum Svarta kaffi. Við ferðuðumt með Evu aftur í tímann, til Króatíu, en faðir hennar er þaða...

Undirskriftarlisti gegn brottfararstöð, hæglætisstefna í leikskólum og Jónatan um Önnu Vilhjálms 07.05.2026

Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfarastöð hefur hlotið gagnrýni, meðal annars vegna heimildar til að vista þar börn. Umboðsmaður barna segir frumvarpið vera andstætt Barnasáttmálanum og brjóta gegn réttindum barna. Yfir tvö þúsund manns hafa skrifað nöfn sín á undirskriftarlista á Ísland.is til að mótmæla þessu frumvarpi. Í gær bárust fréttir af breytingartillögu á frumvarpinu og mátti skilja á f...

Inngilding ungmenna með fötlun, hjólreiðar með Maríu og vísindaspjall um kaffi og þarmaflóruna 06.05.2026

Snæfríður Þóra Egilsson, iðjuþjálfi og prófessor í fötlunarfræðum við HÍ hefur um árabil rannsakað líf, þáttöku og aðstæður barna með fötlun. Hún hefur skoðað áskoranir sem börn og ungmenni með fötlun þurfa að ganga í gegnum, hverjar áskoranirnar eru og hún hefur lagt áherslu á og hefur lagt út af rannsóknum sem hafa beinst að börnunum og ungmennunum sjálfum, þar sem hlustað er á þeirra skoðanir o...

Málþing um læsi og námsorðaforða, Minecraft tónlist í Hjallakirkju og Anna María á Heilsuvaktinni 05.05.2026

Á morgun verður haldið málþing um læsi og námsorðaforða, að frumkvæði Íslenskrar málnefndar, þar sem farið verður yfir stöðu mála í íslenskukennslu. Þar verða flutt erindi þar sem meðal annars verður skoðað hrakandi læsi nemenda, staða barna með íslensku sem annað mál og hvernig sé gagnlegt að styðja kennara í þessum flóknu verkefnum og hvers konar verkefni virka. Doktor Sigríður Ólafsdóttir, dóse...

Leikskólamál: Ekki bara pláss, heimildir.is og Sigurlín Bjarney lesandi vikunnar 04.05.2026

Við sögðum í dag frá málþingi sem fór fram fyrir nokkru þar sem leikskólamál voru rædd og yfirskriftin var: Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi. Málþingið var hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og byggir á fagmennsku, þekkingu og skýrum gildum um réttindi barna, leik og vellíðan. Á sama tíma hefur umræða í samfélaginu í auknu...

kynferðisofbeldi í samböndum ungmenna, Hrafnhildur Reykjalín um gildi og lokakafli mannlegra samskipta 30.04.2026

Undanfarna viku hefur staðið yfir vitundarvakningin ÉG LOFA á vegum Barnaheilla. Markmiðið var að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gegn börnum með því að miðla upplýsingum og fræðslu. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnisstýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum kom í þáttinn í dag og sagði okkur aeðins frá þessu átaki og einnig frá ungmennaþingum sem haldin voru á sex stö...

Hildur Björk í Glerárkirkju, systkinaofbeldi og vísindaspjall með Eddu 29.04.2026

Við heimsóttum Glerárkirkju í dag og ræddum við séra Hildi Björk Hörpudóttur og hún sagði okkur frá starfinu innan kirkjunnar en hún lítur á kirkjuna sem samfélagstorg og vill að hún sé opin fyrir alla. Úlfatíminn er tími fyrir fjölskyldur sem geta komið einu sinni í mánuði og leikið sér saman seinni partinn og borðað saman og þetta hefur mælst vel fyrir. Foreldrar eru líka með í fermingarfræðslun...

Jazzþorpið í Garðabæ, Sindri Sparkle og regnbogafánar og veðurspjallið með Einari 28.04.2026

Í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar stendur Jazzþorpið á Garðatorgi í 4 daga. Ómar Guðjónsson er listrænn stjórnandi dagskrárinnar sem verður óvenju vegleg í tilefni afmælisins og gestir geta látið fara vel um sig og jafnvel keypt húsgögn og vörur sem flutt hafa verið á Garðatorgið frá Góða hirðinum. Ómar Guðjónsson og Ólöf Breiðfjörð fyrsti menningarfulltrúi Garðabæjar komu í þáttinn og sögðu okk...

Fimmta hvert barn, gullmolinn af safninu frá 1947 og Guðrún Helga lesandi vikunnar 27.04.2026

Við fræddumst um verkefnið Fimmta hvert barn sem UNICEF hefur verið að vinna með yfir 800 börnum á Íslandi. Það er myndlistarsýning í Hörpu sem varpar ljósi á þá hrikalegu staðreynd að fimmta hvert barn í heiminum býr við afleiðingar stríðs og átaka. Sýningin stendur til 3.maí og þær Sigyn Blöndal kynningarstjóri og Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF komu til okkar í dag og sögðu okkur b...

Haukur Holm föstudagsgestur og matarspjall um snittubrauð 24.04.2026

Haukur Holm fréttamaður, öllu heldur fyrrverandi fréttamaður, hefur yfir 40 ára reynslu á þeim vettvangi en er nú hættur, nýorðin sjötugur. Haukur vann lengst af á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar en þar áður meðal annars á Alþýðublaðinu, Vikublaðinu Reykjavík og nú síðast hér á fréttastofu RÚV. Við fórum auðvitað aftur í tímann með Hauki, á æskuslóðirnar og upphaf fréttamannaferilsins, til dæm...

Ónæmisgallar, upprifjun í mannlegum samskiptum og býflugur í vísindaspjallinu 22.04.2026

Þessa vikuna er vitunarvakning hjá Lind, félagi fólks með ónæmisgalla. En markmið félagsins er að stuðla að öflugum forvörnum, greiningu og meðferð meðfæddra ónæmisgalla. Hrefna Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á ónæmisdeild Landspítalans kom í hljóðver og Guðrún Jóna Hreggviðsdóttir var á línunni frá Ítalíu, en sonur hennar fæddist með ónæmisgalla. Hún deildi með okkur þeirra sögu og Hrefna fræddi...

Græn samskipti, Græna gangan og Auður Bjarnadóttir á heilsuvaktinni 21.04.2026

Græn, gul og rauð samskipti og samspil við taugakerfið er nokkuð sem við skoðuðum í þættinum í dag. Hvernig streita hefur áhrif á öll samskipti og hvernig við skynjum okkur sjálf og aðra ólíkt eftir því hvort við erum í jafnvægi eða í streitu. Gyða Dröfn Tryggvadóttir kom í þáttinn, en hún er með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu frá Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig l...

Karlakór Reykjavíkur 100 ára, af heimsókn konungs 1907 og Henning Emil lesandi vikunnar 20.04.2026

Það er mikil tónlistarveisla framundan hjá Karlakór Reykjavíkur sem fagnar 100 ára afmæli í ár. Frá árinu 1926 hefur kraftur og fallegur samhljómur einkennt kórinn og í tilefni afmælisins verður heil tónleikaröð í Langholtskirkju þar sem kynslóðabilið verður brúað með aðstoð vinakóra úr íslenska og færeyska karlakórssamfélaginu og stórvirki gömlu meistarana verða flutt auk léttari sönglaga. Stjórn...

Vigdís Hafliðadóttir föstudagsgestur og matarspjall um salat og sólskin 17.04.2026

Vigdís Hafliðadóttir söngkona, leikkona, grínisti, handritshöfundur og ýmislegt fleira var föstudagsgesturinn okkar. Hún nam heimspeki við Háskóla Íslands og hefur t.d. leikið í kvikmyndinni Ljósvíkingar, áramótaskaupum og nú síðast í þáttunum Tuttugu og eitthvað, en hún er einnig einn höfunda, en fyrsti þátturinn verður sýndur á RÚV í kvöld. Hún hefur einnig notið mikilla vinsælda sem kynnir skem...

Minningarsteinninn Eilífð, enn um höfnunarótta og Hrólfur Sæmundsson 16.04.2026

Við fræddumst um svokallaðan minningarstein í þættinum, en fjórir ungir menn tóku þátt í frumkvöðlakeppni þar sem þeirra vara var minningarsteinninn Eilífð. Á hverjum og einum steini er QR kóði sem leiðir inn á vefsíðu þar hægt verður að sjá myndir og myndbönd af þeim sem hefur fallið frá. Baldur Orrason Gröndal og Jóel Þeyr Kárason komu í þáttinn og útskýrðu betur fyrir okkur hvernig þetta virkar...

Stóri plokkdagurinn, Björgvin Valdimars sjötugur og vísindaspjallið með Eddu 15.04.2026

Stóri plokkdagurinn verður haldinn um allt land sunnudaginn 26. apríl. Dagurinn er orðinn fastur liður á vorin en hann var fyrst árið 2018. Tilgangurinn er að hvetja almenning, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélög til að taka höndum saman og hreinsa nærumhverfið draga úr rusli í náttúrunni og vekja athygli á því að litlar aðgerðir margra geta skilað miklum árangri. Björn Skúlason forsetamaki mu...

Endurunninn textíll og veður- og farfuglaspjall 14.04.2026

Nokkrar konur eru að koma á fót fyrstu textílendurvinnslustöð á Íslandi þar sem þær tæta niður textílúrgang og búa til nýjan textíl úr honum. Á HönnunarMars munu þær sýna fyrstu hljóðdempandi veggpanela sem eru unnir úr textílúrgangi og framleiddir hér á landi. Sigríður Tryggvadóttir textíllistakona kom í þáttinn og með henni kom Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Flöff, sem er fyrirtæk...

Að kunna að hlaupa hægt, hlustunarvenjur frá 1947 og Júlíus lesandi vikunnar 13.04.2026

Arnar Péturs er þrautreyndur landsliðshlaupari og hlaupaþjálfari. Hann hefur 73 sinnum orðið Íslandsmeistari og sigrað Laugaveginn tvisvar. Hann á einnig Íslandsmetið í 100 km hlaupi. Arnar skrifaði Hlaupabókina sem inniheldur þekkingu sem hann hefur aflað sér með því að æfa með bestu hlaupurum og þjálfurum í heiminum. Arnar kom í þáttinn í dag, en hann segir að allt sé hægt ef maður kann að fara...

Listen to the Mannlegi þátturinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.