RÚV
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sólveig Þorbergsdóttir á Heilsuvaktinni og seinni hluti örsagna ritlistarnema 19.12.2024 54:32
Mikill munur er á því að fara í kulnun vegna streitu og of mikils vinnuálags en í kjölfar áfalls því þá hefur maður enga stjórn á atburðarás. Þetta segir Sólveig Þorbergsdóttir myndlistarkona enhún er ein þeirra Grindvíkinga sem missti heimilið sitt til næstum þrjátíu ára vegna jarðhræringa en hún hafði ásamt eiginmanni sínum unnið að miklum endurbótum á húsinu í áraraðir. Hún keypti húsið illa fa...
Jólalandinn og eplaskipið, rakarakvartettinn Barbari og póstkort um óttann 18.12.2024 51:29
Margir sem komnir eru á efri ár muna vel eftir rauðu eplunum sem komu til landsins fyrir jólin og hægt var að kaupa í búðunum. Fyrir nokkrum árum var rifjuð upp í Landanum saga um siglingu skips sem flutti eplin til Íslendinga fyrir jólin og lenti í miklum sjávarháska. Við heyrðum söguna af eplaskipinu svokallaða en þau komu í þáttinn, Gísli Einarsson og Þórdís Claessen úr Landanum, og sögðu okkur...
Jólaálagið, írskur vinkill og örsögur ritlistarnema 17.12.2024 51:16
Þegar líður fer að jólum er ekki laust við að álagið verður meira og meira, jafn vel of mikið fyrir marga. Það á að njóta og njóta svo margs. Í rauninni hlöðum við afskaplega miklu, auk gríðarlegra væntinga, ofan á vinnuna, fjölskylduna og allt hitt í lífinu og svo geta peningaáhyggjur komið ofan á það allt saman. Hrund Þrándardóttir sálfræðingur var hjá okkur í dag og við minntum okkur á að fara...
Maríanna í Portúgal og Ágúst Páll lesandi vikunnar 16.12.2024 52:39
Maríanna Friðjónsdóttir sjónvarpsframleiðandi og leikstjóri hefur haft vetrarsetu í Portúgal síðustu 9 ár með móður sinni Viktóríu Særúnu Gestsdóttur. Yfir sumartímann hefur Marianna farið heim til Danmerkur þar sem hún bjó í 20 ár og mamma hennar verið á Íslandi en núna hefur Marianna flutt alfarið til Portugal. Við slógum á þráðinn til Mariönnu og fengum að vita hvernig lífið gengur fyrir sig hj...
Þorleifur Örn föstudagsgestur og matarspjall um bók Nigellu 13.12.2024 50:00
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri. Eftir að hann útskrifaðist úr leikstjóranámi frá einum virtasta leiklistarháskóla Evrópu hefur hann sett upp fjölda leiksýninga og ópera hér á landi, víða í Þýskalandi og í fleiri löndum. Hann var um hríð yfirmaður leiklistarmála hjá hinu fræga Volksbühne í Berlín. Hann hefur hlotið þýsku leiklistarverðlaunin f...
Þögnin með Sirrý Arnardóttur,Björn Hafþór á Stöðvarfirði,Guðaveigar ný kvikmynd. 12.12.2024 52:23
“Að hvíla vel í þögninni getur verið mikilvægur hluti af öruggri tjáningu. Í vinnu, stjórnmálum, fjölmiðlum, á Teams og vinasamböndum.” segir Sirrý Arnardóttir stjórnendaþjálfari, háskólakennari, rithöfundur og fjölmiðlakona. Við töluðum um mikilvægi þagnarinnar í dag. Það er nú ekki algengt að fólk á áttræðisaldri sé að gefa út geisladiska með eigin tónlist en við heyrðum af manni á Stöðvarfirði...
Baujan sjálfshjálp, ykkar einlæg eftir Úlfar Bragason,Jurtaapótekið í 20 ár 11.12.2024 52:02
Guðbjörg Thoroddsen leikkona hefur gefið út bókina Baujan sem býr yfir einfaldri sjálfsstyrkingaraðferð og byggir á meðvitaðri öndun í tengslum við tilfinningavinnu, úrvinnslu áfalla og áfallastreitu. Guðbjörg eða Bauja eins og hún er kölluð hefur starfað sem ráðgjafi innan skólakerfis og utan samhliða leiklistinni í fjöldamörg ár og miðar bók hennar að því að hafa stjórn á líðan sinni og tileinka...
Amnesty Íslandsdeild 50 ára,Grænkeramatur um jólin,Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur 10.12.2024 52:33
Í dag 10. desember eru ýmsar byggingar í Reykjavík lýstar gular í tilefni alþjóðlega mannréttindadagsins og verið er að safna undirskriftum í tengslum við árlegu mannréttindaherferðina Þitt nafn bjargar lífi. Í kvöld verður svo frumsýnd ný heimildamynd Vonarljós, sem Íslandsdeild Amnesty International hefur látið gera vegna 50 ára afmælis deildarinnar. Framleiðandi myndarinnar er Hrafnhildur Gunna...
Áhrif langvinnra veikinda á aðstandendur, Lesandinn Svava O’Brien og Vinkill vikunnar 09.12.2024 51:55
Hver eru áhrif alvarlegra veikinda á aðstandendur? Langvinn veikindi geta haft víðtæk áhrif, ekki bara á þann sem veikist, heldur líka á þá sem standa honum næst. Niðurstöður erlendra rannsókna benda til að langvinn veikindi hafi margvísleg áhrif á líf og heilsu maka þess sem býr við heilsubrest. Við ræddum við Guðbjörgu Guðmundsdóttur iðjuþjálfa en hún fjallaði um þetta efni í meistararannsókn si...
Frostrósirnar Margrét Eir og Dísella og kengúrusteik í matarspjallinu 06.12.2024 52:52
Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í dag voru söngdívurnar og Frostrósirnar Margrét Eir og Dísella Lárusdóttir. Þær eru báðar á kafi í undirbúningi tónleika og ekki bara Frostrósatónleika heldur eru þær út og suður eins og margt tónlistarfólk þessa daganna. Við ræddum við þær í dag um lífið og tilveruna, Frostrósirnar og vertíðina í desember. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í da...
Draugar fortíðar, Búðu til pláss og bókabúð í Grenivíkurskóla 05.12.2024 50:00
Hlaðvarpið Draugar fortíðar sem stjórnað er af þeim Baldri Ragnarssyni og Flosa Þorgeirssyni hefur vakið mikla athygli og notið mikilla vinsælda. Þeir félagar taka fyrir ýmis mál úr mannkynssögunni og nálgast það úr ýmsum áttum á skemmtilegan og lifandi en umfram allt, fræðandi máta. Ekki síst hefur umræða þeirra um geðræn vandamál og andlega heilsu stuðlað að því að þeir eiga dyggan hóp hlustenda...
Hæglætishreyfingin, póstkort frá Magnúsi og Jónatan um Öddu Örnólfs 04.12.2024 54:28
„Stöðug pressa um að gera allt hraðar hefur þau áhrif að við flýtum okkur í gegnum lífið í stað þess að lifa því í raun og veru. Ef þú gírar þig niður, stígur á bremsuna, nærðu yfirsýn og allt raðast á sinn stað. Þú tengir betur, skapar meira, einbeitir þér betur og afkastar meiru. Þú einfaldlega lifir meira og betur.“ þetta eru orð Carls Honoré, en Hæglætishreyfingin á Íslandi fær hann á næstunni...
Hrafnhildur og útikennsla og Lára Sigurðardóttir um neyslu nikótínpúða 03.12.2024 54:24
Hrafnhildur Sigurðardóttir, kennari við Sjálandsskóla í Garðabæ, hlaut Íslensku menntaverðlaunin sem voru veitt á dögunum við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin hlaut hún í flokknum framúrskarandi kennsla, en Hrafnhildur var verðlaunuð fyrir þróun fjölbreyttrar og hugmyndaríkrar útikennslu, fjölbreyttar valgreinar og leiðsögn við kennara og kennaraefni um útivist og umhverfismennt. Hrafnhi...
Samskipti ungmenna, húfuvinkill og Tanja lesandi vikunnar 02.12.2024 50:00
Aukin harka er komin í samskipti barna í öllum árgöngum grunnskóla en þó sérstaklega á miðstigi og unglingastigi. Strákar þurfa að vera harðir og óhræddir og mega ekki klaga. Húmorinn er grimmur og stelpa eiga það til að lenda undir og láta lítið fyrir sér fara, en þar á bæ skiptir útlitið hvað mestu máli. Þetta segir Gunnlaugur Víðir Guðmundsson félagsmálafræðingur sem starfað hefur með ungu fólk...
Hannes Þór föstudagsgestur og smákökumatarspjall 29.11.2024 54:14
Föstudagsgestur þáttarins í þetta sinn er þjóðþekktur fyrir afrek sín í íþróttum og kvikmyndagerð. Út er komin bókin Handritið mitt um Hannes Halldórsson fyrrverandi markvörð, landsliðsmann og kvikmyndagerðarmann, sem var einmitt föstudagsgestur okkar í dag. Bókina skrifar Magnús Örn Helgason sem lýsir knattspyrnuferli Hannesar frá upphafi til enda, allt frá Shellmótinu árið 1994 þar sem hann var...
Hlaðvarp um Bráðamóttökuna, Emilía dansari og stjúpfjölskyldur um jólin 28.11.2024 52:52
Jóhannes Kr. Kristjánsson rannsóknarblaðamaður hefur varið yfir fjögur hundruð klukkustundum á Bráðamóttöku Landspítalans síðustu mánuði við gerð hlaðvarpsþáttanna Á vettvangi sem hann vinnur í samstarfi við Heimildina. Með þáttunum gefur hann hlustendum innsýn í raunverulega stöðu Bráðamóttökunnar sem er þröng og erfið, þar sem plássleysi fyrir sjúklinga er viðvarandi vandamál. Hann ræðir við sta...
Gervigreind fyrir venjulegt fólk og Drottningin í dalnum 27.11.2024 54:05
Gervigreind hefur tekið mikið pláss í umræðunni undanfarið, sérstaklega eftir að opnað var fyrir aðgengi almennings að ýmis konar tólum eins og ChatGPT, þar sem gervigreindinni virðast engin takmörk sett með hvað hún getur skrifað og jafnvel framkvæmt á ógnarhraða. Það er þó bara ein birtingarmynd gervigreindar, hún er í rauninni allt í kringum okkur og ekki er víst að allir viti nákvæmlega hvað h...
Roðagyllum heiminn, leiklistarkennsluaðferðir og veðurspjallið með Einari 26.11.2024 51:53
Soroptimistasamband Íslands samanstendur af 20 klúbbum um allt land sem eru hluti af alþjóðlegum samtökum kvenna sem stuðla að bættri stöðu kvenna og stúlkna um allan heim. Á sunnudaginn var Soroptimistaklúbbur Vestfjarða stofnaður. Við töluðum við Sigríði Kr. Gísladóttur og Hörpu Guðmundsdóttur um Soroptimista og þeirra starf og átakið Roðagyllum heiminn, en í gær, á alþjóðlegum baráttudegi gegn...
Karlar og krabbamein, vinkill frá Mongólíu og Ragnheiður lesandi vikunnar 25.11.2024 52:02
Krabbameinsfélagið Framför, félag karlmanna með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandenda var stofnað þann 12. febrúar 2007. Tilgangur félagsins er að styðja karlmenn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og maka þeirra og aðstandendur. Krabbameinsfélagið Framför starfar á landsvísu sem sjálfstætt stuðnings- og áhugamannafélag. Nú í nóvember er verið að selja Bláa trefilinn til sty...
Guðmundur Pétursson föstudagsgestur og Jamie Oliver í matarspjallinu 22.11.2024 54:57
Föstudagsgesturinn okkar í þetta sinn var gítarleikarinn og tónskáldið Guðmundur Pétursson. Hann var að senda frá sér glænýja LP plötu og á henni er t.d. lagið sem hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir, Wandering beings en það er einmitt heiti plötunnar. Við ræddum við Guðmund um tónlistina og upphafið með gítarinn og þegar hann varð frægur á einni nóttu eftir að hafa komið 14 ára fram í k...
Aldin kór aðgerðarsinna og ferðahjónin Trausti og Rún 21.11.2024 52:51
Aldin er heitið á hreyfingu fólks sem komið er á þriðja aldursskeiðið, eða samtök eldri aðgerðarsinna gegn loftslagsvá eins og þau segja sjálf. Mörg þeirra eru afar og ömmur og þau vilja leggja lóð sín á vogaskálarnar til að knýja á um þær breytingar sem þarf til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, fyrir afkomendur sína og komandi kynslóðir. Við hittum hluta af hópnum í gær, þar sem þau voru...
Kosningafundur LEB, Jónatan um Óðinn Valdimarsson og póstkort frá Magnúsi 20.11.2024 51:35
Landssamband eldri borgara hefur boðað til kosningafundar á morgun með frambjóðendum allra flokka sem bjóða fram á landsvísu. Málefni fundarins verða þau mál sem brenna mest á eldri borgurum þessa lands, svo sem kjaramál, heilbrigðismál og húsnæðismál. Frambjóðendur allra flokka sem bjóða fram á landsvísu munu kynna sín stefnumál í þeim málaflokkum sem snúa að eldri borgurum og að því loknu verða...
Nagladekkin og svifrykið, Petra paprika og rafsegulmeðferð á Heilsuvaktinni 19.11.2024 50:00
Reykjavíkurborg hefur sett sér markmið til næstu ára um að bæta loftgæði í borginni og vill hvetja íbúa til að taka þátt í þeirri vegferð. Eitt af fyrstu og mikilvægustu skrefunum er að draga verulega úr notkun nagladekkja, sem spilar stóran þátt í slæmum loftgæðum, sérstaklega yfir vetrartímann. Fyrir utan við svifryksmyndun og slæm loftgæði, valda nagladekk miklu sliti á götum sem eykur viðhald...
Ný bók um hjátrú, vinkill frá Guðjóni og Ástrós Hind lesandi vikunnar 18.11.2024 53:37
Flestir Íslendingar eru að einhverju leyti hjátrúarfullir og þekkja þetta helsta að forðast að ganga undir stiga og berja í tré og segja 7-9-13. Nú er komin út ný bók hjátrú; Svartir kettir, fullt tungl og rauðhærðar konur. Hér er fjallað um hjátrú af ýmsum toga, innlenda, erlenda, gamalgróna og nýja. Þjóðháttafræðingurinn Símon Jón Jóhannsson er höfundur bókarinnar og hann kom í þáttinn í dag. Vi...
Ástvaldur Zenki Traustason föstudagsgestur og hyggematarspjall 15.11.2024 53:18
Ástvaldur Zenki Traustason tónlistarmaður, prestur og kennari hjá Zen á Íslandi var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hann hefur iðkað Zen hugleiðslu undir handleiðslu bandarísks Zen meistara síðan árið 1998 og hlotið þjálfun meðal annars í Japan. Ástvaldur nam tónlist í FÍH og í bandaríska tónlistarskólanum Berklee College of Music og rak um tíma tónlistarskólann Tónheima. Hann starfar einnig sem o...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.