RÚV

Mannlegi þátturinn

Society IS ↓ 578 episodes

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Tau frá Tógó, Eyrún kórstjóri og húmor og grimmd 14.11.2024

Tau frá Togó er nafn á nýrri netverslun þar sem allur ágóði rennur til heimilis í Togó fyrir munaðarlaus börn. Þau sem standa að þessu verkefni selja vörur sem búnar eru til á heimilinu og seldar til að fjármagna reksturinn og hafa með þessu fjármagnað skólagöngu barnanna á heimilinu og auk þess greitt fyrir einstaka eldri nemendur í framhaldsnám. Þetta samstarf byrjaði fyrir 10 árum þegar Guðný E...

Áhugaverðar niðurstöður nýrrar rannsóknar ÍE, Málæði og vinkill 13.11.2024

Ný rannsókn dregur fram hvernig líkamsþyngdarstuðull, eða öllu heldur ofþyngd, hefur áhrif á hættu á ýmsum sjúkdómum og niðurstöðurnar eru áhugaverðar þegar kemur að tengslum milli erfðabreytileika og sjúkdóma og hvaða áhrif líkamsþyngd getur haft á hættuna á sjúkdómunum. Guðmundur Einarsson, vísindamaður hjá Íslenskri erfðagreiningu og Kári Stefánsson, forstjóri, komu í þáttinn og fóru með okkur...

Vertonet, ástarþrá og ástarfælni og veðurspjallið með Einari 12.11.2024

Við fræddumst um Vertonet, samtök kvenna og kvára í upplýsingatækni á Íslandi, í þættinum í dag, eða nánar tiltekið um átaksverkefni Vertonet sem er samvinnuverkefni yfir 20 fyrirtækja, samtaka og menntastofnanna í upplýsingatækni til að auka hlut kvenna og kvára í tæknigeiranum á Íslandi. Tæknigeirinn hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum og talið er að það vanti um níu þúsund sérfræðinga...

Hulda Jóhannsdóttir ári síðar og Sólveig Ólafsdóttir lesandi vikunnar 11.11.2024

Grindvíkingar og aðrir landsmenn minntust þess um helgina að ár er liðið frá rýmingunni í Grindavík og þann 16.nóvember 2023 tókum við viðtal við Huldu Jóhannsdóttur leikskólastjóra í Grindavík sem lýsti þessu áfalli en hún var í sömu stöðu og aðrir í Grindavík, þurfti að yfirgefa heimilið sitt með hraði og óvissan mikil. Hulda skrifaði á þessum tíma færslu á facebook sem vakti athygli en þar tala...

Sigrún Eðvaldsdóttir föstudagsgestur og matarspjall um kjötbollur 08.11.2024

Föstudagsgesturinn okkar í þetta sinn var Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sigrún hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Gígju Jóhannsdóttur en lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1984 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur og lauk bakkalárprófi frá Curtis tónlistarháskólanum í Philadelphiu í Bandaríkjunum 1988. Hún hefur tekið þát...

Jósep baksérfræðingur og þáttaröð um læsi 07.11.2024

Margir þjást af bakverkjum í stuttan eða langan tíma og brjósklos er frekar algengur kvilli svo maður tali ekki um þursabit eða hekseskudd. Oft er erfitt að finna útúr bakverkjum því þeir geta verið margvíslegir og einstaklingsbundir. Jósep Ó. Blöndal skurðlæknir einn af stofnendum háls- og bakdeildar Franciskuspítala, kom í þáttinn og fræddi okkur um bakverki, greiningu þeirra og meðhöndlun í ljó...

Alli á Eyri, Svava og sinnepið og póstkort frá Magnúsi 06.11.2024

Grindvíkingurinn og netagerðameistarinn Aðalgeir Jóhannsson, eða Alli á Eyri eins og hann er jafnan kallaður, er einn þeirra sem er fluttur aftur heim til Grindavíkur eftir rýmingu bæjarins þann 10. nóvember 2023. Alli er einn af viðmælendum Gígju Hólmgeirsdóttur í heimildaþáttum hennar sem fjalla um hvernig líf Grindvíkinga hefur þróast frá rýmingu. Gígja heimsótti Alla í vor og hann sagði henni...

Glóð fyrir Konukot, skjánotkun barna og Stefaníu Thors í Heilsuvaktinni 05.11.2024

Konukot er neyðarskýli fyrir heimilislausar konur í Reykjavík, þar er grunnþörfum kvenna sem þangað leita sinnt hvað varðar húsnæði, hreinlæti og mat. Halldóra R. Guðmundsdóttir, forstöðukona Konukots, kom í þáttinn ásamt Erlingi Jóhannessyni gullsmiði sem hannaði Glóð nýjan íslenskan hönnunargrip sem seldur er til styrktar Konukoti. Að frumkvæði umboðsmanns barna hafa verið gefin út viðmið um skj...

Stóra brauðtertubókin, 100. vinkillinn og Steinunn Lilja lesandi vikunnar 04.11.2024

Brauðtertan hefur fylgt okkur Íslendingum lengi og hún er borin á borð bæði á gleði- og sorgarstundum. Sagan segir að danska leikskáldið Ludwig Holmberg hafi kynnt til sögunnar samlokutertu í leikverki um aldamótin 1700 en það var svo í kringum 1940 sem samlokutertur, eða brauðtertur (smårgåstorta), urðu vinsælar í Svíþjóð og stuttu síðar í Finnlandi og svo hér á Íslandi var fjallað um brauðtertur...

Hilmir Snær föstudagsgestur og færeyskt matarspjall 01.11.2024

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn og leikstjórinn Hilmir Snær Guðnason. Hann hefur auðvitað leikið fjölda hlutverka á sviði, í sjónvarpi og kvikmyndum og hann byrjaði að leikstýra í leikhúsum ungur að aldri. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í miðbænum og vesturbænum. Við röktum ættir hans í báða ættliði til Vestfjarða og fórum svo með honum á handahlau...

Slagdagurinn okkar, fræðsla ekki hræðsla og kaffi og kólestról 31.10.2024

Hár blóðþrýstingur getur farið leynt og afleiðingarnar geta verið alvarlegar. Á laugardaginn er Slagdagurinn okkar og af því tilefni verður boðið uppá ókeypis blóðþrýstingsmælingu og ráðgjöf í Kringlunni og á Glerártorgi á Akureyri. Þórir Steingrímsson formaður Heilaheilla og Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir, taugasérfræðingur, yfirlæknir Taugadeildar Landspítalans, komu í þáttinn og fræddu okkur um...

Sjálfskaðahegðun unglinga, hvernig líður okkur á safni og listin að vera leiðinlegt foreldri 30.10.2024

Unglingar sem stunda sjálfsskaðahegðun nota yfirleitt hegðunina til það ráða við og/eða þola sterkar og erfiðar tilfinningar, segir Kristín Inga Grímsdóttir, sérfræðingur í barna og unglingageðhjúkrun. Algengi sjálfsskaðahegðunar er á bilinu 13-40%, eftir því hvaða aldurshópur er skoðaður. En hverjar eru ástæður sjálfsskaðahegðunar unglinga og hvernig geta foreldrar brugðist við ef þau komast að þ...

TRE spennulosun, lömunarveiki og veðurspjallið 29.10.2024

TRE (Tension, Stress & Trauma Release) er ný leið sem ætlað er að hjálpa líkamanum að losa um spennu, streitu og áföll sem liggja djúpt í vöðvum líkamans. Leiðin er þróuð af Dr. David Berceli til að virkja náttúruleg viðbrögð líkamans á öruggan hátt með því að leyfa líkamanum að skjálfa eða titra þannig að losni um vöðvaspennu og taugakerfið róist. TRE getur einnig verið hjálpleg leið til að losa...

Senjóríturnar, vinkill og Jens Pétur lesandi vikunnar 28.10.2024

Kór eldri kvenna, Senjóríturnar, varð til sem afsprengi út frá Kvennakór Reykjavíkur fyrir nokkrum árum og Senjóríturnar voru síðan formlega stofnaðar 2015. Þær hafa reglulega haldið tónleika, tekið þátt í kóramótum og farið í söngferðalög. Það er mikill metnaður í starfi Senjórítanna og á undanförnum árum hafa þær leitað í smiðju þekktra söngvara. Meðal þeirra sem hafa sungið með kórnum eru Raggi...

Helgi Björnsson föstudagsgestur og vetrarmatur 25.10.2024

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngvarinn og leikarinn Helgi Björnsson. Hann heldur þessa dagana upp á fjörutíu ár í tónlistarbransanum með tónleikum þar sem hann fer yfir vinsælustu lögin á farsælum ferli, í hljómsveitunum Grafík og Síðan skein sól og á mörgum hljómplötum í eigin nafni. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar, en hann er fæddur og uppalinn á Ísafir...

Skynjun og skynörvun, heimilisbókhaldið og Valgerður biskupsfrú 24.10.2024

Við leitumst við að stunda líkamsrækt og hreyfingu til að halda líkamanum við, halda vöðvunum við, en skynfærin geta gleymst. Við fræddumst í dag um skynjun og skynfærin okkar. Berglind Indriðadóttir, iðjuþjálfi, stendur fyrir námskeiðinu Skynjun og skynörvun - leiðir að betri líðan notenda öldrunarþjónustu þar sem hún kennir leiðir til að halda skynfærunum við. Berglind fjallar um leiðir til þess...

Stafrænt kynferðisofbeldi gegn börnum, Nýrnafélagið og póstkort 23.10.2024

Á föstudaginn fer fram málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytisins og Háskóla Íslands um hættuna á misnotkun gervigreindar og tækninýjuna til að brjóta kynferðislega á börnum. Með nýrri tækni blasir við nýr veruleiki sem vekur upp spurningar um það hvernig sé rétt að bregðast við. Sérfræðingar munu tala á málþinginu um það hvernig gervigreind og önnur stafræn tækni er misnotuð til að brjóta...

Verkjasjúklingar, iðjuþjálfar og háþrýstimeðferð 22.10.2024

Við fræddumst í dag um verkjasjúklinga, sem sagt þegar fólk glímir við langvinnandi verki og stoðkerfisvanda, en um 20% þjóðarinnar býr við hamlandi verki að einhverju leiti. Hrefna Óskarsdóttir er sviðstjóri iðjuþjálfunar á verkjasviði Reykjalundar, auk þess að kenna við Háskólann á Akureyri, hún kom í þáttinn og sagði sína eigin reynslusögu. En hún hefur glímt sjálf við verki og þar sem hún er e...

Barnakvikmyndahátíð, vinkill um fráveitu og Stefán Halldórsson lesandinn 21.10.2024

Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í næstu viku. Hátíðin hefur fest sig í sessi sem árlegur menningarviðburður barna og unglinga. Þarna verða sýndar alþjóðlegar verðlaunamyndir fyrir alla fjölskylduna og opnunarmynd hátíðarinnar í ár er ævintýra og fantasíumyndin Flow, sem vann dómnefndar og áhorfendaverðlaun á Annecy teiknimynda hátíðinni í ár. Myndin er án tals og hefur verið kölluð...

Örn Árnason og Sigrún Hjálmtýsdóttir föstudagsgestir og matarspjallið 18.10.2024

Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í þetta sinn voru þau Örn Árnason og Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú. Þau þarf auðvitað vart að kynna. Tómas og við heitir söngdagskrá og ljóðalestur þar sem þau flytja lög með textum eftir Tómas Guðmundsson og ljóð eftir hann fimmtudaginn 31.okt. í Salnum í Kópavogi. Við ræddum við þau um Tómas og sín tengsl við ljóðin hans. Þau bæði lærðu ljóð eftir hann snemma á...

Húmor virkar og staða íslenskrar tungu 17.10.2024

Húmor virkar er heiti á fyrirlestri sem farið hefur víðreist um landið og þar er stuðst við meðal annras við niðurstöður viðamikilla rannsókna á virkni húmors á heilsu, sem er umtalsverð, og sem árangursaukandi afl í atvinnulífinu og lífinu almennt. Sveinn Waage er höfundur og flytjandi þessa fyrirlesturs en hann hefur meðal annars starfað sem markaðsstjóri, fyrirlesari og uppistandari. Sveinn fék...

Saga björgunarskipsins Maríu Júlíu og fatlað fólk í tæknivæddri framtíð 16.10.2024

Björn Erlingsson hafeðlisfræðingur kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá sögu hins fornfræga björgunarskips Vestfirðinga, Maríu Júlía BA 36, sem kom var safnað fyrir og að lokum smiðað í Danmörku. Skipið kom til Íslands árið 1950 og nýttist á fjölbreyttan hátt næstu áratugina, til dæmis er talið að áhafnir skipsins hafi bjargað um tvö þúsund manns og í skipinu var sérútbúin rannsóknarstofa fyrir...

Norðurhjálp, Snorri golfvallahönnuður og veðurspjallið með Einari Sveinbjörnss 15.10.2024

Norðurhjálp tekur við og selur allskyns notaðar vörur; fatnað, heimilisbúnað, húsgögn, bækur, smádót, listaverk og margt fleira. Allur ágóði fer í að styrkja einstaklinga og fjölskyldur á svæðinu sem ekki hafa mikið á milli handanna. Fjórar konur sem hafa starfað lengi við sjálfboðavinnu tóku höndum saman og vinna nú 6 daga vikunnar við að taka á móti vörum og við afgreiðslu. Við heimsóttum Norður...

Vegur að heiman, vinkill um kefír og Halldór Armand lesandi vikunnar 14.10.2024

Í kvöld verður fyrsti þátturinn á dagskrá sjónvarps í þáttaröðinni Vegur að heiman. Þetta eru þættir þar sem skoðað er, af hverju fólk flytur, í gegnum 24 sögur í sex þáttum. Þá erum við ekki að tala um að flytja úr einu húsi í annað heldur þegar fólk skiptir um félagslegt umhverfi, s.s. búferlaflutningar, eins og á milli landa og landshorna. Í hverjum þætti er ein saga skoðuð tvisvar, fyrir og ef...

Lára Zulima Ómarsdóttir föstudagsgestur og ítalskir brauðréttir 11.10.2024

Föstudagsgesturinn okkar í dag kom úr heimi fjölmiðlana og er manneskja sem hefur bæði unnið í útvarpi og sjónvarpi. Lára Ómarsdóttir, sem lét breyta nafninu sínu fyrir stuttu síðan í Lára Zulima Ómarsdóttir, en móðuramma hennar hét einni Lára Zulima. Lára hefur starfað sem fréttamaður og unnið við margskonar dagskrárgerð, hún hefur meðal annars gert þætti um náttúru Íslands í ferðaþáttum með föðu...

Listen to the Mannlegi þátturinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.