RÚV
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Lífið er núna og slúður á vinnustöðum og í litlum samfélögum 30.01.2025 50:00
Lífið er núna dagurinn er haldin í dag, en þessi vitundarvakning Krafts er árleg og er ein stærsta fjáröflun félagsins og stendur til 12.febrúar. Kraftur hvetur vinnustaði til að brjóta upp hversdagsleikann með því t.d. að bjóða upp á appelsínugular veitingar og jafnvel að klæðast í appelsínugul föt og einhverjar byggingar eru lýstar upp með appelsínugulri lýsingu sem er litur Krafts. Við ræddum v...
G-vítamín, Quigong og Taiji og póstkort frá Magnúsi 29.01.2025 51:11
Þorrinn er hafinn og eins og undanfarin ár standa landssamtökin Geðhjálp fyrir geðræktarátakinu G-vítamín á þorranum með það að markmiði að setja geðrækt á oddinn. Af því tilefni gefa þau út geðræktardagatal, svona borðdagatal upp á gamla mátann, þar sem er einn skammtur af G-vítamíni á hverjum degi á þorranum, sem sagt ráðlagður dagskammtur. Svava Arnardóttir, formaður Geðhjálpar, kom í þáttinn í...
Gott aðgengi í ferðaþjónustu, Kvennaárið 2025 og efnaskipti á Heilsuvaktinni 28.01.2025 50:00
Mikill fjöldi, hvaðanæva að úr heiminum, hefur áhuga á því að ferðast, hefur bæði tíma og fjármuni til að gera það en heldur sig samt heima vegna þess að aðgengi fyrir fatlaða og hreyfihamlaða er víða ábótavant. Samkvæmt íslenskum lögum og reglugerðum á að gæta þess sérstaklega að aðgangur fólks með fötlun að manngerðu umhverfi sé til jafns við aðra. Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir, málefnafulltrúi...
Hjartastuðtæki á vinnustöðum, fjármál á mannamáli og Guðmundur Einar lesandinn 27.01.2025 52:17
Hjartastuðtæki á vinnustöðum hafa fyrir löngu sannað gildi sitt og bjargað mannlífum. Tíminn í slíkum atburðum skiptir öllu máli og . Ef hjartastopp á sér stað þá er mikilvægt að gefa rafstuð eins fljótt og auðið er og ef það næst að gefa rafstuð innan einni mínútu frá hjartastoppi þá aukast lífslíkur um 90%. Ef það næst að gefa rafstuð innan þriggja mínútna frá hjartastoppi þá aukast lífslíkur um...
Tinna Hrafnsdóttir föstudagsgestur og þorramatarspjall 24.01.2025 53:31
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Tinna Hrafnsdóttir, leikstjóri, leikkona handritshöfundur og framleiðandi. Hún er annar leikstjóra sjónvarpsþáttanna um Vigdísi Finnbogadóttur, hún gerði kvikmyndina Skjálfta upp úr bók Auðar Jónsdóttur, hún leikstýrði sjónvarpsþáttunum Heima er best auk þess að skrifa handritið ásamt tveimur öðrum og hún hefur leikið í fjölda verkefna á sviði og...
Keppni í fjármálalæsi, Katrín mikla og ný íslensk ópera 23.01.2025 51:11
Við höfum fjallað talsvert um fjármál og heimilisbókhald undanfarið í Mannlega þættinum, t.d. með Fjármálunum á mannamáli á mánudögum. Þá kemur gjarnan upp hugtakið fjármálalæsi og hvort það sé til dæmis lögð nógu mikil áhersla á að kenna fjármálalæsi í skólum landsins. Kristín Lúðvíksdóttir, sem vinnur í fræðslu- og menntamálum hjá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu, kom í þáttinn í dag og sa...
Fjöláfalla- og tengslavandi, svefntruflanir á breytingaskeiðinu og Alexanderstækni 22.01.2025 54:05
Grunnþörf okkar í barnæsku eru að tengjast tilfinningaböndum við foreldra og/eða ummönnunaraðila. Þannig fáum við þörfinni fyrir kærleika, öryggi og vernd mætt. En ef það verður tengslaröskun, tengslavandi, vegna vanrækslu, misalvarlegrar, þá geta afleiðingarnar og vandinn þróast og haft áhrif á allt nærumhverfi okkar, sérstaklega ef við fáum ekki hjálp við að vinna úr þeirri reynslu. Jóhanna Jóha...
Lánskjaravakt, afleiðingar myglu og slydduísing í veðurspjallinu 21.01.2025 49:50
Aurbjörg var stofnuð árið 2017 með það að markmiði að auka fjármálalæsi í landinu með því að bjóða upp á til dæmis óháðan samanburð á kjörum fjármálaþjónustu. Lánskjaravakt Aurbjargar fylgist með húsnæðislánamarkaðnum greinir lánamöguleika og ber saman lánakjör. Fólk getur sett inn upplýsingar um íbúðarlán sitt og borið það saman við það sem er í boði annars staðar. Ásdís Arna Gottskálksdóttir er...
Símennt, Fjármálin á mannamáli og Guðjón Friðriksson lesandi vikunnar 20.01.2025 53:33
Símennt eru samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva, en 11 símenntunarmiðstöðvar um allt land eiga aðild að samtökunum. Mikilvægt er að vinna að símenntun og framhaldsfræðslu á Íslandi þar sem lögð er áhersla á að efla þekkingu og hæfni einstaklingsins. Það er margt í boði fyrir fólk sem hefur t.d. hætt framhaldsskólanámi og vill bæta við sig, þá er í boði raunfærnismat sem hægt er að fá metna rey...
Egill Eðvarðsson föstudagsgestur og kvikmyndamatur 17.01.2025 52:30
Egill Eðvarðsson myndlistamaður og leikstjóri er föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Egill útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1971 og árið 2019 fékk hann heiðursverðlaun Eddunnar en hann hefur starfað við íslenska sjónvarps- og kvikmyndagerð í hartnær 50 ár lengst af við dagskrárgerð og upptökustjórn hjá RÚV. Við fórum með Agli aftur í tímann á æskuslóðirnar á Ak...
Kvennaathvarfið, hráfæði og litla tónlistarhornið 16.01.2025 53:09
Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfs, komst í desember á lista breska ríkisútvarpsins BBC yfir 100 áhrifamestu konur heims árið 2024. Linda segir að hún geti ekki neitað því að hún hafi verið hissa þegar hún heyrði af þessu, hún segist vera sett á listann sem málsvari Kvennaathvarfsins og að hún standi á herðum þeirra kvenna sem stofnuðu athvarfið árið 1982. Linda kom í þáttin...
Heimildarmyndin Gróa, Hótel- og matvælaskólinn og póstkort frá Magnúsi 15.01.2025 50:00
Við fræddumst í dag um lífræna ræktun á Íslandi og lífræna matvælaframleiðslu. Anna María Björnsdóttir tónlistkarkona bjó lengi í Danmörku, þar kynntist hún Jesper sem ólst upp á lífrænum bóndabæ á Jótlandi. Nokkrum árum og börnum síðar fluttu þau til Íslands og Anna fór að kynna sér lífræna ræktun á Íslandi, eða kannski skort á henni og hún fór að reyna að breyta því. Hún hefur nú framleitt heimi...
Foreldrafærninámskeið, HM í handbolta og Jóhannes Kr. á Heilsuvaktinni 14.01.2025 50:19
Við fræddumst í dag um foreldrafærninámskeið sem haldið hefur verið í Hafnarfirði í næstum aldafjórðung, frá árinu 2000. Í fyrra sóttu 100 foreldrar námskeiðið þar sem þau fá kennslu og eru þjálfuð í styðjandi leiðum í uppeldishlutverkinu og læra meðal annars að setja börnum sínum skýr mörk á mildan máta. Kolbrún Sigþórsdóttir, verkefnisstjóri PMTO - foreldrafærni í Hafnarfirði, sagði okkur frá þe...
Sjálfsdáleiðsla, tilfinningar tengdar peningum og Bjarni lesandi vikunnar 13.01.2025 51:27
Það er talið að í dáleiðsluástandi getum við leyst úr ýmsum vandamálum og heilað okkur. Dáleiðararnir og mæðgurnar Ásdís Olsen og Brynhildur Karlsdóttir kenna einfalda sjálfsdáleiðsluaðferð, Simpson Protocol. Á námskeiði hjá þeim læra þátttakendur að komast í dáleiðsluástand þegar þeim hentar, hvort sem er hjá tannlækninum eða á sófanum heima. Ásdís og Brynhildur sögðu okkur meira frá þessu í þætt...
Ingibjörg Stefánsdóttir föstudagsgestur og matarspjall að norðan 10.01.2025 52:11
Árið 1993 vann Jon Kjell Seljeseth Söngvakeppnina með laginu Þá veistu Svarið sem Ingibjörg Stefánsdóttir söng. Ingibjörg var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag, en þegar hún fór til Írlands til að taka þátt í Eurovision fyrir hönd Íslands var hún tvítug og hafði getið sér orðspors sem söngkona hljómsveitarinnar Pís of keik og fyrir að leika eitt aðalhlutverkið í kvikmyndinni Veggfóður. Ingi...
Íris Tanja og Fannar um Ungfrú Ísland og Daðey um snjallsímanotkun 09.01.2025 50:38
Leikararnir Íris Tanja Flygenring og Fannar Arnarsson komu í þáttinn í dag, en þau leika bæði í sýningunni Ungfrú Ísland, sem unnin er upp úr samnefndri verðlaunaskáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur, sem frumsýnd verður í næstu viku í Borgarleikhúsinu. Sagan er um Heklu, unga konu á Íslandi og þann veruleika sem hún bjó við um miðbik síðustu aldar, þar sem það að verða rithöfundur og vera til á eigin f...
Að setja og virða mörk og Sigurbjörn um Elvis Presley 08.01.2025 48:41
Okkar daglega líf felur oftast í sér að vera í kringum annað fólk, hvort sem það er á vinnustað, í námi, á meðal fjölskyldu og vina eða einfaldlega ókunnugra í ýmsum aðstæðum. Í öllum tilvikum þar sem við erum að umgangast annað fólk, hvort sem við eigum í beinum samskiptum við það eða ekki, þá reynir á mörkin okkar. Sumir eru með skýr mörk á meðan aðrir eru markalausir. Sumir virða mörk annarra á...
Veganúar, hryllingsmynd Þórðar og veðurspjallið með Einari 07.01.2025 54:01
Í upphafi árs, á þeim tímamótum, skoðum við gjarnan stöðuna á ýmsu, það eru vörutalningar, hvernig er formið? Eftir jólin og veislurnar endurskoðum við jafnvel mataræðið. Samtök grænkera á Íslandi standa fyrir Veganúar í janúar. Það er dagskrá af því tilefni allan þennan mánuð og við fengum nýjan formann samtakanna, Aldísi Amah Hamilton til að koma og segja okkur meira frá veganúar. „Á Vestfjörðum...
Namaste á Hrafnistu, fjármálin á mannamáli og Andrea lesandi vikunnar 06.01.2025 52:51
Á Hrafnistu hefur verið að innleidd hugmyndafræði sem er kölluð Namaste nálgun. Þessi nálgun er hugsuð sem hlýleg og róleg stund með það að markmiði að bæta vellíðan íbúa, draga úr óróleika og gefa starfsfólki verkfæri til að nálgast íbúa af nærgætni og kærleika. Namaste nálgun var upprunalega hugsuð fyrir fólk með langt gengna heilabilun en reynslan sýnir að Namaste stund hentar í raun öllum íbúu...
Vala Höskuldsdóttir föstudagsgestur og matarspjall með soðbrauð og kæfu 03.01.2025 50:42
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Vala Höskuldsdóttir. Hún er söngkona og lagahöfundur og annar helmingur Hljómsveitarinnar Evu, hinn helmingurinn er Sigríður Eir Zophoníasardóttir. Auk tónlistarinnar hefur Vala unnið sem ráðgjafi, leikkona, leiklistarkennari, hér í útvarpinu og ýmislegt fleira. Vala er að norðan og við fórum með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar á Eyrinni á A...
Áhyggjur vegna ályktana í Grænbók um ADHD og Heilsuvaktin í fyrra og á nýju ári 02.01.2025 50:00
Nefnd skipuð af fyrrverandi heilbrigðisráðherra birti í samráðsgátt stjórnvalda á dögunum svokallaða Grænbók, þar sem skoðuð er staðan í málum tengdum ADHD á Íslandi. Skoðaðir eru til dæmis langir biðlistar eftir greiningu og algengi lyfjameðferðar. Mat nefndarinnar er að gæðum sé ábótavant, bæði þegar kemur að greiningum og lyfjameðferð. Formaður ADHD samtakanna sagði í síðustu viku að þær álykta...
Ársuppgjör veðurs, síðasti vinkillinn og póstkort frá Magnúsi 30.12.2024 52:26
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON Við byrjuðum þennan síðasta þátt ársins með því að spá í veðrið auðvitað. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingurinn fór með okkur yfir veðurárið sem er að líða. Það var um margt óvenjulegt. Hér fyrir neðan er uppgjörið í textaformi í fullri lengd. Hann fór svo auðvitað aðeins yfir áramótaveðrið og veðrið næstu vikuna. Guðjón Helgi Ólafsson sendi okkur í d...
Höfundar Skaupsins, María, Katla og Friðgeir föstudagsgestir 27.12.2024 53:27
Við vorum með þrjá föstudagsgesti í dag, það voru þau Katla Margrét Þorgeirsdóttir, María Reyndal og Friðgeir Einarsson, en þau eru öll í höfundateymi Skaupsins í ár. Við fórum með þeim yfir árið sem er að líða, hvernig það hefur verið fyrir þau, bæði persónulega og svo í því samhengi að vera að skrifa Skaupið. Eins töluðum við um hátíðar- og áramótahefðir og hvað þau gera á þessum tímamótum sem á...
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, aðfangadagsgestur Mannlega þáttarins 24.12.2024 54:30
Í dag, á aðfangadag jóla, bjóðum við sérlega velkomna í Mannlega þáttinn kærkominn gest, forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur. Við áttum skemmtilegt spjall við hana um jólin, jólahald í bernsku, nútíð og jafnvel framtíð. Jólaminningar, hefðirnar, fyrstu jólin að Bessastöðum, jólahald erlendis, æskujólin í Kópavoginum, riddara kærleikans og margt fleira. Hátíðleg stund með Höllu Tómasdóttur. Tónlist...
Sigyn Blöndal föstudagsgestur á Filippseyjum og sósuklúður í matarspjalli 20.12.2024 53:33
Sigyn Blöndal er nafn sem við þekkjum vel úr þáttagerð í sjónvarpi og útvarpi og þá sérstaklega hefur hún gert efni fyrir börn og unglinga. Sigyn sá um Stundina okkar lengi og þegar hún hætti hjá RUV fyrir fáeinum árum hóf hún störf se, réttindaskólastjóri UNICEF á Íslandi. En enn eru breytingar hjá Sigyn og nú í byrjun hausts flutti hún og fjölskyldan til Manila, höfuðborgar Filippseyja, þegar ei...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.