RÚV

Mannlegi þátturinn

Society IS ↓ 578 episodes

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 26, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Tölum um endó, ljóð í þágu friðar og Skáldasuð í Reykjanesbæ 06.03.2025

Endósamtökin hafa farið af stað með vitundarvakningarátak undir yfirskriftinni - Þetta er allt í hausnum á þér - þar sem vakin er athygli á þeim hindrunum sem konur og fólk með endó, eða endómetríósu, lendir í heilbrigðiskerfinu og krefjast úrbóta. Næstkomandi þriðjudag verður heimildarmynd samtakanna, Tölum um ENDÓ - ekki bara slæmir túrverkir, sýnd á RÚV. Ásdís Elín Jónsdóttir, einn af viðmælend...

Rannsókn á fæðingartíðni, skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi 05.03.2025

Fæðingartíðni hefur lækkað víðast hvar í heiminum á síðustu áratugum. Ari Klængur Jónsson, nýdoktor og verkefnastjóri við Félagsvísindastofnun, kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá nýrri rannsókn þar sem rýnt er í fæðingartíðni á Íslandi út frá ýmsum þáttum, þar á meðal tekjum og uppruna. Í rannsókninni er lesið í mögulegar ástæður fyrir fallandi fæðingartíðni á Íslandi og í fyrsta sinn skoðuð f...

Skaðaminnkunarverkefni RKÍ, Dagur heyrnar og veðrabrigði í veðurspjallinu 04.03.2025

Við fræddumst í dag um skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins, Frú Ragnheiði og Ylju neyslurými. Sigríður Ella, teymisstjóri skaðaminnkunar- og félagsverkefna Rauða Krossins og Jónína Guðný Bogadóttir hjúkrunarfræðingar í skaðaminnkunarverkefnunum komu í þáttinn og fræddu okkur til dæmis um hugmyndafræði skaðaminnkunar, þau áhrif sem verkefnin hafa og þær ranghugmyndir sem gjarnan koma upp gagnvart...

Parkinson og borðtennis, fjármál á mannamáli og Bjarni lesandi vikunnar 03.03.2025

Hannes Guðrúnarson fékk í upphafi þessa árs styrk úr Íþróttasjóði og Lýðheilsusjóði til að bjóða upp á borðtennisæfingar fyrir fólk með Parkinson en hann hefur starfað sem borðtennisþjálfari og dómari í allnokkur ár og þegar hann heyrði af því að borðtennis hefði jákvæð áhrif á fólk sem glímir við Parkinson ákvað hann að kynna sér málið betur. Hannes er með hóp sem hittist tvisvar í viku í TBR hús...

Bjarni Arason föstudagsgestur og bollu- og saltkjötsmatarspjall 28.02.2025

Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni var enginn annar en Bjarni Arason söngvari sem tók þátt í Söngvakeppninni um síðustu helgi og stóð sig glimrandi vel. Bjarni va elsti þáttakandinn í ár og lagið sem hann söng, Aðeins lengur, mun hann sennilega syngja aðeins lengur því síminn hefur varla stoppað hjá Bjarna eftir keppnina. Bjarni hóf feril sinn mjög ungur, söng 16 ára Elvis lög í sjónvarpi og...

Píeta á Austurlandi, EMDR og TRE og Dóra um matarsóun 27.02.2025

Í dag opnaði meðferðarúrræði Píeta samtakanna á Reyðarfirði. Austurland hefur lengi kallað eftir þjónustu samtakanna, þau eiga fyrir skjól í Reykjavík, á Ísafirði, á Akureyri og á Húsavík, auk hjálparsímans sem þjónustar allt landið allan sólarhringinn árið um kring. Opnað hefur verið fyrir bókanir í viðtöl auk þess verður boðið upp á fjarviðtöl. Píeta samtökin veita auðvitað meðferð fyrir þau sem...

Skátafélagið Hraunbúar 100 ára, Sagan af þér að breyta heiminum og póstkort frá Magnúsi 26.02.2025

Fjölmennasta skátafélag landsins Hraunbúar Hafnarfirði fagnar 100 ára afmæli um þessar mundir og félagsforinginn Bjarni Freyr Þórðarsson segir að aðalatriðið í skátastarfinu snúist um að undirbúa fólk fyrir lífið. Skátastarfið snúist ekki um bikara og medalíur heldur veganesti út í lífið, sjálfsbjargarviðleitni og að efla sjálfstæða einstaklinga og leiðtoga. Við ræddum við Bjarna og Hörpu Hrönn Gr...

Kynferðisbrot unglinga á milli, Smiðjan og nikótínpúðanotkun frá sjónarhorni tannlækna 25.02.2025

Um 730 unglingar í 8. til 10. bekk svöruðu því játandi að annar unglingur hefði brotið á þeim kynferðislega í Íslensku æskulýðsrannsókninni. Ekki tóku allir skólar þátt í rannsókninni og talið er að aðeins helmingur barna segi frá slíku ofbeldi, því má ætla að raunverulegar tölur séu hærri. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheill, kom í þáttinn...

Reynslusaga Hildar M. Jónsd., fjárhagslegt frelsi og Björg lesandi vikunnar 24.02.2025

Mannlegi þátturinn var áfram á heilsunótunum í dag. Hildur M. Jónsdóttir heilsuráðgjafi kom í þáttinn í dag, en hún glímdi í áratugi við gigtarsjúkdóma, bólgusjúkdóma og mikla verki og hún segir að það hafi tekið um 20 ára rannsóknarvinnu að koma sjálfri sér til heilsu á ný. Hildur kallar eftir nýrri nálgun innan heilbrigðiskerfisins og við heyrðum hennar sögu í dag. Georg Lúðvíksson sérfræðingur...

Vala Kristín föstudagsgestur og snúðadagurinn mikli 21.02.2025

Vala Kristín Eiríksdóttir leikkona og handritshöfundur var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn. Hún hefur auðvitað leikið fjölmörg hlutverk á sviði og í sjónvarpi undanfarin ár, jafnhendis í gríni og dramatík. Hún skrifaði sex þáttaraðir af grínþáttunum Venjulegt fólk ásamt Júlíönnu Söru Gunnarsdóttur og nú er hún annar handritshöfunda, ásamt Ólafi Agli Ólafssyni, af nýrri leiksýningu,...

Farsæld barna og áföll og áskoranir í nútímanum og Systrasamlagið 20.02.2025

Áföll af ýmsum toga geta haft alvarleg áhrif á þroska og velferð barna til framtíðar litið. Rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi þess að skólar og aðrar stofnanir mæti þörfum barna sem verða fyrir áföllum. Sigrún Harðardóttir, dósent við Félagsráðgjafardeild HÍ, kom í þáttinn í dag en hún stýrir málstofu um farsæld barna og áföll og áskoranir í nútímanum á Félagsráðgjafaþingi sem fram fer á föstu...

Samfélagsmiðlanotkun barna og leiksýning um Marlene Dietrich 19.02.2025

Við höfum fjallað talsvert um samfélagsmiðlanotkun og snjalltækjanotkun, ekki síst unga fólksins, í þættinum og þær afleiðingar sem hún getur haft. Þórhildur Halldórsdóttir, dósent við Sálfræðideild HR og barnasálfræðingur og Berglind Sveinbjörnsdóttir, lektor við Sálfræðideild HR og forstöðukona MSc námsins í hagnýtri atferlisgreiningu HR komu í þáttinn í dag og fræddu okkur um niðurstöður íslens...

Gigt og mataræði, bækur með orðskýringum og veðurspjallið með Einari 18.02.2025

Við fjölluðum um gigt og mataræði í þættinum í dag. Talið er að einn af hverjum fimm fái gigtarsjúkdóm einhvern tíma á lífsleiðinni og allir geta fengið gigt, óháð aldri. Einkennin geta verið misjafnlega alvarleg, það fer eftir uppruna, en það sem flestar gigtar tegundir eiga sameiginlegt eru bólgur, stirðleiki og verkir. Vísindalegar rannsóknir sýna að bólgustemmandi mataræði dregur ekki bara ver...

Akureyrarklíníkin, húsnæðislánin á mannamáli og Jón Knútur lesandinn 17.02.2025

Akureyrarklínikin er fyrst sinnar tegundar í heiminum sem rekin er af hinum opinbera en um er að ræða samstarfsverkefni Sjúkrahússins á Akureyri og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, sem þekkingar– og ráðgjafamiðstöð fyrir ME sjúkdóminn og eftirstöðvar Covid 19. Akureyrarklínikin samanstendur af þverfaglegu teymi lækna, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, iðjuþjálfa og hjúkrunarfræðings. Teyminu er ætlað...

Þór Freysson föstudagsgestur og matarspjall um fisk og sósur 14.02.2025

Þór Freysson útsendingarstjóri, upptökustjóri, framleiðandi og tónlistarmaður var föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Þór hefur mikla reynslu af að stjórna stórum beinum útsendingum í sjónvarpi og er einmitt núna að stýra útsendingum Söngvakeppninnar. Þór byrjaði ungur á Stöð tvö sem hljóðmaður og vann sig svo upp, eins og algengt er í þessum bransa. Þór er gítarleikari í Baraflokknum frá Aku...

Þorvaldur og eldgosin, heilsa hinsegin fólks og dansslagur í Borgarleikhúsinu 13.02.2025

Hættumat Veðurstofu Íslands vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga helst óbreytt. Töluverðar líkur eru á eldgosi og kvika í kvikuhólfinu undir Svartsengi á Reykjanesskaga er komin að neðri þolmörkum og því gæti gosið á Sundhnúksgígaröðinni í þessari eða næstu viku. Kvikan sem hefur safnast fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi síðan síðasta eldgosi lauk er örlítið meiri en kvikan sem fór út þá. Þo...

Á slóðum vesturfara, gítarveisla Björns og póstkort frá Magnúsi 12.02.2025

Frá 1870-1914 yfirgáfu um 16 þúsund Íslendingar heimaland sitt og hófu nýtt líf í Norður-Ameríku, þetta var um fjórðungur þjóðarinnar. Snorri West er menningarskiptaverkefni milli Íslands og afkomenda Íslendinga í Norður-Ameríku. Eitt þeirra er fjögurra vikna reisa ungra Íslendinga vestur um haf þar sem heimsóttar eru slóðir vesturfaranna og samfélög afkomenda þeirra. Sigfús Haukur Sigfússon sagði...

Sjálfsvígsforvarnir, rannsókn á algengi kulnunar og heilaheilsa á Heilsuvaktinni 11.02.2025

Sjálfsvíg eru alvarlegt alþjóðlegt lýðheilsumál. Nýlegar rannsóknir sýna að eigi sjálfsvígsforvarnir að bera árangur þarf víðtækar samfélagslegar aðgerðir og þar er til dæmis ábyrg umfjöllun fjölmiðla mikilvægur þáttur. Nú er komin út, á vegum Landlæknisembættisins og Lífsbrúar - miðstöðvar sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis, handbókin Sjálfsvígsforvarnir: Ráðleggingar fyrir fjölmiðlafólk....

Dagur íslenska táknmálsins, fjármálin á mannamáli og Reinhold lesandi vikunnar 10.02.2025

Dagur íslenska táknmálsins er á morgun 11. febrúar en þann dag var Félag heyrnarlausra stofnað. Íslenska táknmálið var viðurkennt sem „jafnrétthátt íslensku sem tjáningarform í samskiptum manna í milli“ með lögum árið 2011 og bannað er að mismuna fólki eftir því hvort málið það notar. Íslenska táknmálið er eina hefðbundna minnihlutamálið á Íslandi og er fyrsta mál um 300 Íslendinga. Við ræddum við...

Ásta Arnardóttir föstudagsgestur og rautt og appelsínugult matarspjall 07.02.2025

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ásta Arnardóttir. Ásta er eigandi og framkvæmdastjóri Yogavin, hún er menntuð leikkona, leiðsögukona og yogakennari og hún hefur tekið virkan þátt í náttúruvernd og var til dæmis tilnefnd til Nátturu- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2009. Við fórum með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í d...

Ný heimildarmynd um Sigurbjörn Bárðarson og Voces Masculorum 06.02.2025

Sigurbjörn Bárðarson, hestamaður, tamningameistari, landsliðsþjálfari og afreksmaður er þjóðsagnapersóna í lifanda lífi og einn verðlaunaðasti íþróttamaður íslenskrar íþróttasögu. Hann var kjörinn íþróttamaður ársins árið 1993 og var tekinn inn í heiðurshöll Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í ársbyrjun 2025. Á laugardaginn verður frumsýnd ný íslensk heimildarmynd, Sigurvilji, um Sigurbjörn og h...

Börn með hjartagalla, hákarlaveiðar á 19. öld og hraðstefnumót fyrir eldri borgara 05.02.2025

Það fæðast að meðaltali 70 börn á ári með hjartagalla á Íslandi, mörg þeirra þurfa flóknar aðgerðir og ævilanga eftirfylgni. Þrátt fyrir að læknisfræðilegri aðstoð hafi fleygt fram, þá gleymist oft andlegi og félagslegi þátturinn, til dæmis hvernig börnin og aðstandendur þeirra upplifa lífið með hjartagalla. Guðrún Kristín Jóhannesdóttir, formaður Neistans, styrktarfélags barna með hjartagalla og...

Börn og strætó, ástarljóð um eiginkonuna og veðurspjallið með Einari 04.02.2025

Um helgina fór fram fundur á vegum Umboðsmanns barna í samvinnu við ungmennaráðin á höuðborgarsvæðinu og UNICEF þar sem málefni Strætó voru rædd. Markmið fundarins var að koma á formlegum umræðum milli barna og ungmenna, Strætó og sveitastjórnum um umbætur á strætókerfinu með hag barna að leiðarljósi. Þau Dagur Jónsson og Júlíanna Rós Skúladóttir voru tveir af fulltrúum ungmenna á fundinum, þau vo...

Nýtt merki fyrir kynhlutlaust rými, fjárhagslegt uppeldi og Birta lesandinn 03.02.2025

Samtökin '78, Félag íslenskra teiknara og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs standa nú fyrir samkeppni um tákn fyrir kynhlutlaus rými, svo sem salerni, búningsklefa, sturtuaðstöðu o.fl. Fimm ár eru liðin frá því að lög um kynrænt sjálfræði voru samþykkt og Ísland er fremst í flokki hvað varðar lög sem þessi. Hins vegar er vandað og skýrt tákn fyrir kynhlutlaus rými enn ekki til. Samtökin '78 fá marga...

Benedikt Valsson föstudagsgestur og gult matarspjall 31.01.2025

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var annar hluti tvíeykisins í Hraðfréttum, Bennni, eða Benedikt Valsson. Við þekkjum hann auðvitað fyrst og fremst úr Hraðfréttum, en hann hefur gert ýmislegt annað, vissulega flest með Fannari félaga sínum, leikstýrt og skrifað Skaupið, verið kynnir í Söngvakeppninni og nú hafa þeir hleypt af stokkunum nýju hlaðvarpi sem þeir kalla Hraðvarpið. En vi...

Listen to the Mannlegi þátturinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.