Hanna og Kristín

Lof mér að tala

Comedy IS ↓ 49 episodes

Lof mér að tala eru þættir í boði Hönnu Birgisdóttur og Kristínar Sigrúnar. Þær eru málglaðar vinkonur sem eiga það sameiginlegt að þrífast á athygli annara. Sumir myndu segja að Lof mér að tala fjalli fyrst og fremst um menningu, með sérstaka áherslu á lágmenningu. Hanna og Kristín kryfja fréttir og atburði vikunnar af einstakri nákvæmni og spila jafnvel skemmtileg hljóðbrot með. Aðrir eru hógværari og lýsa Lof mér að tala með þremur en um leið áhrifaríkum orðum: Fresh! Happy! Mex!‎ Instagram: @lofmeradtalaTiktok: @lofmeradtala

Author

Hanna og Kristín

Category

Comedy

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Lof mér að tala: 49. Hatursglæpur í parísarhjóli 09.07.2026

Stelpurnar koma sterkar tilbaka eftir hrakfaföll síðasta þáttar! Hatursglæpir við kirkjur, íslensk áhrifavaldapör á samfélagsmiðlum, vafasamur tónlistarsmekkur og íslenskt djammsumar voru meðal umræðuefna þáttarins. Lizzo hatar feitt fólk og gaf út plötu sem heitir Tík. Svo má auðvitað ekki gleyma að drengjakollur Kristrúnar Frostadóttur er allur. Njótið þáttarins!

Lof mér að tala: 48. Sumarsæla á Hard Rock 05.07.2026

Loksins er nýjasti þátturinn kominn í hús (eða það sem er eftir af honum… þetta kemur allt saman í ljós…)Siggi Bond er víst orðinn rasisti, Olivia Rodrigo gaf út tónlist, Trump yfirgaf landið og veitingastaðurinn Hard Rock kemur við sögu, eins og svo oft áður. Kristín skilur ekki HM æðið sem er svoleiðis að tröllríða landanum en Hanna horfði á Hunger Games í fyrsta skiptið og uppgötvaði hamingju í...

Lof mér að tala: 47. Bróðir Jakob (feat. Jakob Birgisson) 24.06.2026

Jakob Birgisson, uppistandari og bróðir Hönnu, er gestur í þessum nýjasta þætti af Lof mér að tala. Árshátíð íslensku sumarkonunnar á Þingvöllum, súkkulaðiplata Sólrúnar Diego, óhapp á hvalveiðiskipi og kvíði voru til umræðu. Jakob og Hanna ræða barnæskuna og ýmsa kvilla í fari þeirra beggja. Við förum yfir komandi uppistandssýningar Jakobs um allt land í sumar og heyrum skemmtilegar sögur úr uppi...

Lof mér að tala: 46. Hvar er Bjarni Ben? 18.06.2026

Hæ, hó, jibbí jei og jibbí jei! Týpur í útilegum, sósíalísk nöfn, Bjarni Ben og 17. júní voru til umræðu í þessum nýjasta þætti Lof mér að tala. Stelpurnar veltu fyrir sér fáránlegum auglýsingum og Kristín furðar sig á því að sumt fólk virðist elska hundana sína meira en börnin sín. Fréttir vikunnar eru ekki af verri endanum og við heyrum hljóðbrot frá konu sem er í miklu uppáhaldi hjá stelpunum #...

Lof mér að tala: 45. Bíddu, má ekkert lengur? 10.06.2026

New pod, who dis!? Abby Lee Miller, hundasamfélagið á Facebook, fantasíur ungra karlmanna og Bubbi Morthens eru meðal viðfangsefna þáttarins. Eitt heimsfrægt par sögðu skilið við hvort annað og ástin er tálsýn. Frétt vikunnar er af ógeðslegri kantinum og stelpurnar fara yfir stjörnuspánna, sem virðist vilja Hönnu eitthvað illt. Stelpurnar spyrja sig einnig að því hvers vegna það eru svona margar f...

Lof mér að tala: 44. Guð blessi Jónas Hallgrímsson 03.06.2026

LOF MÉR AÐ TALA ER EINS ÁRS! Gleðilegan júní og gleðilegt pride. Það er loksins komið að útskriftar-seasoni á Íslandi og fólk er í stuði! Hanna skrapp til Prag og Kristín fór á Patti Smith tónleikana, eins og allt fágað fólk í Reykjavík. Munnmök á hjólabáti, barir í kjallara, geggjaðar frænkur í veislum, Jónas Hallgrímsson og leiðinlegar íslenskar bíómyndir. Kristín vill vita hvað varð um minnka l...

Lof mér að tala: 43. Bjór í strætó 20.05.2026

Við erum komnar aftur. Did you miss us? Það hefur aldrei liðið svo langt á milli þátta í sögu LMAT og það heyrist, enda einstaklega óreiðukenndur þáttur. Ný borgarstjórn og misgóð kosningaloforð, leiðinlegir foreldrar á samfélagsmiðlum, gallaðir Tiktok algóritmar, Eurovision (sem enginn fylgdist með), þjóðarréttur Búlgaríu og spurning hvort maður eigi bara að byrja að gefa börnum bjór í strætó. Ha...

Lof mér að tala: 42. Risa tilkynning 29.04.2026

það er RISA TILKYNNING í þessum þætti sem þú vilt ekki missa af! #spennandi Stelpurnar fóru um víðan völl. Einstakt ástarævintýri Kristínar í Amsterdam (not), Rosalía, leiðinlegar sveitastjórnarkosningar og vafasamir leiðtogar. Svo eitthvað sé nefnt. Hvort sem að þú ert lengst uppi eða lengst niðri þá er þessi þáttur Lof mér að tala eitthvað fyrir þig!

Lof mér að tala: 41. Ljóð frá ástkonu 22.04.2026

Sólin skein í Reykjavík og hér er mikið um að vera. Týpurnar á Bastard, efnahagsvandamál Færeyinga, hvað er með óléttar konur og Vesturbæjarlaug? Stelpurnar leituðu til hlustenda og lesa upp það sem liggur þeim á hjarta. Kristín liggur ekki á skoðunum sínum um trúbadora og þá sérstaklega einn ákveðinn - en hún er svo sem ekki vön því að liggja á skoðunum sínum. Hanna les upp lista sem lítið vit er...

Lof mér að tala: 40. Dánartilkynning á Coachella 15.04.2026

Við erum #beliebers Stelpurnar eru flippkisar í dag, enda voru þær í galsa á meðan upptöku stóð. Hiti á Coachella, Justin Bieber að fara á kostum, falsaðar dánartilkynningar og lágflug yfir Vestmanneyjum eru meðal viðfangsefna þáttarins. Okkur finnst Ari Edwald taka furðulegar ákvarðanir og Hönnu finnst fólk sem veltir fyrir sér bílastæðum í borginni leiðinlegt. Kristín lenti í fyrirferðamiklum jú...

Lof mér að tala: 39. Krossfestu mig á Smitten 08.04.2026

Þögn er betri en þarflaus ræða. Brandarahorn Hönnu lítur dagsins ljós. Krossfestingar, víkingaþrep með Gumma Emil á hálendinu, trúboðar á Pride, að sprauta sig með HGH efni, Smitten að vera með óþarfa upplýsingar um fólk og leitin að sumarvinnu sem ætlar engan enda að taka. Jú og Kristín stofnaði nýjan sértrúnaðarsöfnuð, Náttúrubörn. Endilega tjékkið á því. Ert þú náttúrubarn og góður leiðtogi? Er...

Lof mér að tala: 38. Páskaunginn les fan fiction (feat. Tinna Tynes) 01.04.2026

Tinna Tynes, aka Penis, kom til okkar í stúdíóið. Penis er einstaklega glögg og hnyttin en hún er upprennandi sviðshöfundur. Misskemmtilegar grunnskólagöngur, Wattpad, Inga Sæland og verstu páskar frá upphafi eru meðal umræðuefna þáttarins. Vegna mikillar eftirspurnar tók Tinna það á sig að skrifa fan fiction um stelpurnar sem þið, kæru hlustendur, fáið að njóta góðs af. Kristín les upp óhuggulega...

Lof mér að tala: 37. Swing klúbbur á Nesinu 25.03.2026

Seint koma sumir en koma þó. Ógöngur pars í barneignum, swing klúbbar á Seltjarnarnesi, Netflix þættirnir Inside the manosphere, afmælisgleði hjá Hönnu og ógeðsleg hostel eru meðal viðfangsefna þáttarins. Stelpurnar velta fyrir sér hvort það sé eðlilegt að sálfræðingurinn manns hætti með manni og fara yfir kostulegar ferðasögur sem tengjast öpum og geðveikum breskum konum. Jú, svo er nýtt hljóðbro...

Lof mér að tala: 36. Jesúbull í Múlaþingi 18.03.2026

Íslenski barinn, ástarsamband Kristínar og Marons Birnis, sumarbústaðir, Jésúbull í Múlaþingi og stúdentakosningar. En Kristín vill að fólk hlutgeri sig meira sem og bandarísku leikkonuna, Meryl Streep. Enda er hún einstaklega sexý. Stelpurnar svara spurningum hlustenda, sem voru jú margar en snerust líka margar hverjar að… samkynhneigð? Lífið er veisla og þið, kæru hlustendur, eruð veislugestir.

Lof mér að tala: 35. vbmm? (feat. Una Ragnars) 12.03.2026

Una Ragnarsdóttir er komin aftur til okkar! Í þetta sinn til að ræða dægurmenningu og leiksýninguna Kabarett, sem hún mun frumsýna í næstu viku í Þjóðleikhúskjallaranum. Abudabí, Timothee Chalamet að vera hrokafullur (með eða á móti?), nýja platan hjá Harry Styles og Óskarsverðlaunin. Kristín segist hafa verið með vafasamar hugmyndir sem barn og Hanna er komin með nóg af tónlistinni á Röntgen! Tak...

Lof mér að tala: 34. Suicide boys og kaþólska kirkjan 04.03.2026

Kæru hlustendur, velkomin í 34. þátt Lof mér að tala. Stelpurnar eru eldhressar og eins og svo oft áður leyfa þær hlustendum að svamla um í viskubrunni sínum. Davíð Oddsson, Kaþólska kirkjan, 69, BBL, Jim Carrey, Laufey gerir collab, Bjarkar eftirherma og síðan er spurning hvort Erika Kirk sé orðin… lesbía? Kristín kemur með reynslusögu sem tengist slæmum tónlistarsmekk og Hanna fer á kostum.

Lof mér að tala: 33. Kjarnorka og Grafarvogur 18 26.02.2026

Nýr þáttur! Stelpurnar ræddu um kjarnorkuvopn, konudaginn og Rússa á Ólympíuleikum. Óheppilegt atvik á verðlaunahátíð er rætt (úff) og Kristín segir frá ótrúlegum næturævintýrum sínum um helgina sem tengjast Grafarvogi 18. Jú og hvað gerði Bill Gates eiginlega af sér? Þátturinn er í samstarfi við Regn app!

Lof mér að tala: 32. Cancelled í leðuról 20.02.2026

Það var mikið hlegið í þessum nýjasta þætti Lof mér að tala. Ætti að vera hægt að fara í þungunarrof í Bónus? Af hverju er ekki til nein íslensk bíómynd um BDSM? Kristín gefur einhleypum karlmönnum ráð fyrir konudaginn en Hanna segir frá traumatíserandi reynslu sem tengist klippingu. Framhjáhald, tær, bolludagurinn og Andrés (ekki öndin) voru meðal viðfangsefna þáttarins. Þátturinn er í samstarfi...

Lof mér að tala: 31. Maka- og markalausar á Valentínusardeginum 11.02.2026

Stelpurnar gefa öllum ástföngnu hlustendum sínum ráð um hvað væri gaman að gera á Valentínusardeginum, sem er næstkomandi laugardag. Ofurskálin, fólk á tánum í ræktinni og andlega veikir unglingar eru meðal viðfangsefna þáttarins. Annars er bernskan krufinn en börn eru víst byrjuð að mynda tilfinningaleg tengsl við vélmenni á netinu. Við förum yfir stöðu snapchat kvennanna í samfélaginu í dag, end...

Lof mér að tala: 30. Guð er andlega veik kona 04.02.2026

LOF MÉR AÐ TALA ER 30 ÁRA! Stelpurnar deila sögum úr lífi þeirra. Kristín les úr dagbókarfærslum frá skiptinámsdögunum sínum á Spáni en þar koma við sögu ástarjátning spænsks bekkjarbróðurs og graftarkýli, betur þekkt undir nafninu Tvíburabróðir. Grammy verðlaunin, fuglaflensan og dauðir smáhundar. Stelpurnar velta því fyrir sér af hverju allir og ömmur þeirra eru í Epstein skjölunum. Jú, svo tók...

Lof mér að tala: 29. Alþjóðlegt kyntákn 30.01.2026

Hæhæ stelpur, verið velkomnar í 29. þátt Lof mér að tala! Margt er rætt og völlurinn er víður, eins og svo oft áður. Prófkjör, kyntáknið Kristín, handbolti, Beckham drama, Hallmark myndir og komment hjá gaurum á instagram. Jú svo er Dónald víst pabbi Íslands…

Lof mér að tala: 28. Lesbíur í krísum 21.01.2026

Þessi þáttur er ekki af verri endanum! Stelpurnar ræða til að mynda vændiskaup þingmanna og eitt ákveðið deyjandi listform. Þær fengu fagmann til að þýða internet slangur og veittu hlustendum ýmis ráð við vandamálum sem þeir sendu inn - margt var um lesbíur í krísum en sumt beintist að strætóskýlum. Vonandi nýtast ráðin sem flestum hlustendum! Þetta og margt fleira í þessum þætti af Lof mér að tal...

Lof mér að tala: 27. Háskólagellur 14.01.2026

Gleðilegan nýjan þátt! Þessi er stuttur og laggóður… flugdólgar, Golden Globes, endurkoma Harry Styles, jamaíski hreimurinn, borgarpólitíkin og litlir kóngar (iykyk), enn og aftur, TAKK FYRIR AÐ HLUSTA!

Lof mér að tala: 26. Feitar, lágvaxnar og sköllóttar (feat. Hildur Halla Þorvaldsdóttir) 09.01.2026

Fyrsti þátturinn á nýju ári! Stelpurnar eru einstaklega ferskar, enda komnar með góðan gest í hús… bjóðum Hildi Höllu Þorvaldsdóttir, fellow konu og micro áhrifavald velkomna. Trend, arabískar lýs, hvítt stolt, ferðasögur frá helvíti og Heated Rivalry. Jú svo má ekki gleyma nýja hljóðbrotinu frá Kristínu… ÞETTA ER VEISLA!

Lof mér að tala: 25. 2025 recap! 31.12.2025

SÍÐASTI ÞÁTTURINN 2025! Elsku Hinrik er staddur á Kanarí þannig stelpurnar fengu til sín nýjan tímabundin hljóðmann, hana Þórhildi Þorsteinsdóttur. Bjóðum hana velkomna<3 Stelpurnar fara yfir fréttir og viðburði ársins, segja frá markmiðum og áramótaheitunum sínum en Kristín spilar tvö ný hljóðbrot. Hanna spáir fyrir um hvað verði í tísku árið 2026. Þátturinn er kaotískur og viðburðaríkur, alve...

Listen to the Lof mér að tala podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.