RÚV Hlaðvörp

Linsan

Tv IS ↓ 9 episodes

Linsan beinir sjónum sínum að konum í kvikmyndagerð, afrekum þeirra og reynslu. Fjallað er um hinar ýmsu kvikmyndir sem gerðar hafa verið af konum og hafa sett mark sitt spjöld sögunnar. Umsjón: Anna María Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: shows.acast.com

Author

RÚV Hlaðvörp

Category

Tv

Podcast website

shows.acast.com

Latest episode

Aug 30, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Guðrún Elsa Bragadóttir og Kristín Svava Tómasdóttir um Dunu 30.08.2024

Kvikmyndagerðarkonan Guðný Halldórsdóttir er einn afkastamesti leikstjórinn í íslenskri kvikmyndasögu. Með leiftrandi og beittum húmor að vopni hefur henni tekist að skapa ógleymanlegar persónur sem lifa í manna minnum. Til mynda hennar má nefna Stellu í orlofi, Karlakórinn Hekla, Veðramót og Ungfrúin góða og húsið. Árið 2018 var hún sæmd heiðursverðlaunum Eddunnar fyrir einstakt framlag sitt til...

For Sama og Hrafnhildur Gunnarsdóttir heimildarmyndagerðarkona 23.08.2024

Heimildamyndir geta verið öflugt pólitískt hreyfiafl en þær hafa einnig þann eiginleika að draga fram mennskuna sem býr erfiðum og flóknum aðstæðum að baki. Sýrlenska heimildarmyndin For Sama, eða Fyrir sömu, eftir leikstjórann Waad Al-Kateab fjallar um stríðið í borginni Aleppo þar sem hún bjó í fimm ár. Pálmi Freyr Hauksson, leikstjóri og handritshöfundur, ræðir myndina sem hlaut bæði BAFTA-verð...

Orlando og Helga Rós Hannam búningahönnuður 16.08.2024

Tímamótaverkið Orlando frá 1992 í leikstjórn Sally Potter byggir á samnefndri skáldsögu Virginiu Woolf frá 1928 og á enn við í dag. Í fyrstu þótti sagan tala inn í frelsisbaráttu kvenna en í dag eru það skilaboðin um hinseginleikann sem sitja eftir. Bókmenntafræðingurinn Soffía Auður Birgisdóttir fer í saumana á þessu verki enda þýddi hún skáldsöguna yfir á íslensku árið 2017. Helga Rós Hannam er...

Svar við bréfi Helgu og Valdís Óskarsdóttir kvikmyndaklippari 09.08.2024

Hvort er verra að svíkja ástina eða móðurjörðina? Svar við bréfi Helgu, í leikstjórn Ásu Hjörleifsdóttur, byggir á samnefndri skáldsögu Bergsveins Birgissonar. Ástríðufullt og forboðið ástarsamband upphefst milli ungs bónda og konunnar á næsta bæ með afdrifaríkum afleiðingum. Rætt er við Sunnu Dís Jensdóttur bókmenntafræðing um þessa brennheitu ástarsögu sem þó má efast hvort sé raunverulega ástar...

Aftersun og Herdís Stefánsdóttir tónskáld 02.08.2024

Kvikmyndin Aftersun í leikstjórn Charlotte Wells fjallar um ljúfsárt samband dóttur og föður og skoðar samband raunverulegra og skáldaðra minninga. Guðrún Elsa Bragadóttir, kvikmyndafræðingur, ræðir þessa áferðafallegu og nostalgísku mynd.  Herdís Stefánsdóttir er margverðlaunað kvikmyndatónskáld þrátt fyrir að hafa aldrei fengið formlega tónfræðimenntun í æsku. Hún segir frá þeim áskorunum s...

Ich bin dein Mensch og Tinna Hrafnsdóttir leikstjóri 26.07.2024

Þýska kvikmyndin Ich bin dein Mensch, eða Ég er þinn, í leikstjórn Mariu Schrader, segir frá rannsóknarkonu sem fær það verkefni að prufukeyra vélmenni sem hefur verið forritað til þess eins að gera hana hamingjusama. Pálmi Freyr Hauksson, leikstjóri og handritshöfundur, veltir fyrir sér spurningum um siðferðislega tilvist vélmenna og hvert gagn þeirra geti verið.  Síðar í þættinum er rætt vi...

Regína og Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur 19.07.2024

Litríka dans- og söngvamyndin Regína lifir vel í minnum þeirra sem hana sáu um aldamótin. Agnes Wild, leikstjóri og teymisstjóri barna- og ungmennaþjónustu RÚV, ræðir mikilvægi góðra sagna fyrir ungmenni og hvernig hægt sé að koma boðskapi til skila án predikunartóns.   Síðar í þættinum er rætt við Margréti Örnólfsdóttur, tónlistarkonu og handritshöfund sem skrifaði einnig Regínu. Hún segir f...

Pleasure og Kristín Lea nándarþjálfi 12.07.2024

Í kjölfar #MeToo-bylgjunnar hefur áhersla á virðingu og traust í kvikmyndageiranum aukist til muna og hafa störf eins og nándarþjálfun sprottið upp. Rætt er við Kristínu Leu Sigríðardóttur, fyrsta og eina starfandi nándarþjálfann á landinu, um starfið og mikilvægi þess.   Kvikmyndin Pleasure, eða Nautnir, frá árinu 2021 í leikstjórn Ninju Thyberg er einnig til umfjöllunar. Snædís Björnsdóttir...

Portrait de la jeune fille en feu og Hulda Helgadóttir leikmyndahönnuður 01.07.2024

Í þessum fyrsta þætti Linsunnar er farið inn á stöðu kvenna í kvikmyndabransanum á Íslandi. Rætt er við Guðrúnu Elsu Bragadóttur, kvikmyndafræðing, um kvikmyndina Portrait de la jeune fille en feu, eða Mynd af logandi hefðarfrú, í leikstjórn Céline Sciamma frá 2019. Myndin þykir hafa brotið blað þegar kemur að hinu kvenlega sjónmáli.   Síðar í þættinum er rætt við leikmyndahönnuðinn Huld...

Listen to the Linsan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.