Heiða Björk Sturludóttir og Guðrún Kristjánsdóttir
Lífskastið - Ayurveda á kvennamáli
Ayurveda lífsvísindin í spjalli þeirra Heiða Bjarkar, ayurveda practitioner hjá Ást og Frið, www.astogfridur.is og Guðrúnar Kristjáns hjá Systrasamlaginu, www.systrasamlagid.isFjallað er um heilsu og lífið í stóru samhengi með gleraugum þessara 5000 ára gamla heilsukerfis og lífsvísinda.
Author
Heiða Björk Sturludóttir og Guðrún Kristjánsdóttir
Category
Podcast website
Latest episode
May 3, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
12. Panchakarma (Aðgerðirnar Fimm) 03.05.2026 1:01:11
Panchakarma er einstaklingsmiðuð heilsumeðferð innan ayurvedavísindanna sem margir Vesturlandabúar eru byrjaðir að nýta sér. Í þessum þætti skoðum við hvernig panchakarma miðar að því að losa líkamann við uppsöfnuð eitur- og úrgangsefniefni (ama), endurheimta jafnvægi doshanna þriggja (vata, pitta og kapha) og styrkja náttúrulega getu líkamans til sjálfsheilunar. Við förum yfir helstu þætti meðfer...
11. Jurtir 07.01.2026 59:33
Í þessum þætti Lífskastsins er fjallað um jurtir og hvernig þær eru notaðar í ayurveda. Fjallað er um flokkunarkerfið sem notað er til að ákvarða hverjum hentar hvaða jurt og í hvaða tilfellum. Sem dæmi þá eru jurtir flokkaðar eftir því hvaða bragðtegund er ríkjandi í þeim: súrt, sætt, salt, biturt, sterkt eða herpandi. Síðan er það eftirbragðið sem hefur meiri áhrif á líkamsstarfssemina til lengr...
10. Abhyanga. Sjálfsnudd með olíu. 09.12.2025 58:15
Abhyanga, eða sjálfsnudd með olíu hefur verið iðkað í Austurlöndum í þúsundir ára og það er góð ástæða fyrir því. Þessi iðkun, abhyanga, er ein mikilvægasta athöfnin í ayurveda lífsvísindunum til að vinna gegn öldrun, næra vefi líkamans og halda dósjunum þremur í jafnvægi, - einkum vata dósjunni. Víða á Indlandi tíðkast að nýbakaðar mæður geri abhyanga og beri einnig olíu á litlu nýfæddu krílin. Þ...
9. Tungumál líkamans 17.11.2025 1:12:41
Í þessum þætti er fjallað um það hvernig líkaminn lætur okkur vita þegar eitthvað er að í starfseminni og að við þurfum að bregðast við. Þegar einhver af dósjunum þremur eykst úr hófi fram (Vata, Pitta eða Kapha) veldur það vandræðum í líkama og huga og við finnum fyrir einkennum. Með því að þekkja tungumál líkamans getum við brugðist við áður en einkennin þróast yfir í slæm veikindi sem erfitt er...
8. Lífskastið - Heilinn, hugurinn og svefninn 30.08.2025 58:44
Í þessum þætti er fjallað um heilann og hugann og hvaða aðferðum ayurveda lífsvísindin búa yfir til að styrkja þessa tvo pósta sem eru grunnurinn að góðri andlegri heilsu, einbeitingu, minni og svefninum. Sérstakur gaumur er gefinn að svefninum. (Þáttur 7 er á leiðinni en þar er fjallað um breytingaskeiðið. Það komu upp tæknileg vandamál sem gætu haft áhrif á hljómgæðin í þætti 7 og 8. ) Hugleiðsl...
7. Lífskastið - Breytingaskeiðið 29.08.2025 51:30
(Þáttur 7 var lengi í lagfæringum til að lappa upp á hljóðgæði og fer því í loftið á eftir þætti 8. ) Í þessum þætti er fjallað um breytingaskeiðið og þau vandamál sem konur geta upplifað á þessu merkilega umbreytinga tímabili. Breytingaskeið karla fær lítið pláss en þó er fjallað stuttlega um þau einkenni sem karlar geta upplifað. Það er munur á upplifun kvenna af breytingaskeiðinu á Vesturlöndum...
6. Lífskastið - Brögðin 6 og Vefirnir 7 20.07.2025 1:00:03
Í þessum þætti fara Heiða Björk og Guðrún yfir fleiri grundvallaratriði í ayurveda lífsvísindunum. Í ayurveda er talað um 6 mismunandi bragðtegundir: Sætt, salt, súrt, biturt, sterkt og herpandi. Öll næring hefur eitt eða fleiri brögð í sér sem segir bragðkirtlum á tungunni hvað sé á leiðinni. Brögðin hafa mismunandi áhrif á líkamann og hugann og við þurfum að fá öll sex í okkur á hverjum degi. He...
5. Lífskastið - Agni, Ama, Ojas 17.07.2025 50:54
Í þessum þætti spjalla þær Heiða Björk og Guðrún um fleiri grunnhugtök í ayurveda lífsvísindunum. Agni er meltingar- og. efnaskiptaeldurinn. Ama eru illa meltar matarsameindir, úrgangsefni sem verða til við bruna í líkamanum og eitur sem berst í okkur með matvælum og drykk, inn með loftinu sem við öndum að okkur og gegnum húðina. En Ama getur líka verið andleg. Ojas er lífseleksírinn sem við fáum...
4. Lífskastið - Tími sólarhringsins, árstíðirnar og æviskeiðin þrjú. 24.06.2025 43:37
Í þessum þætti fjöllum við um það hvernig dósjurnar þrjár - vata, pitta og kapha - ríkja á mismunandi tímum sólarhringsins. Hvernig þær eru ríkjandi á mismunandi árstíðum og hvernig æviskeiðin okkar þrjú skiptast í vata, pitta og kapha æviskeið. Við endurspeglum umhverfið. Við erum microkosmos af macrokosmos. Það sem gerist hið ytra hefur áhrif á starfsemi líkama okkar og huga. Við þurfum því að t...
3. Lífskastið - Hver er þín meðfædda líkams- og hugargerð (Prakriti)? 24.06.2025 49:40
Við fæðumst öll með ákveðna líkams- og hugargerð sem kallast PRAKRITI í ayurveda lífsvísindunum. Öll erum við einstök og engir tveir eru með sama prakriti. Prakriti er það magn sem við höfum af vata, pitta og kapha við fæðingu og hvernig þessir lífskraftar dreifast um líkama okkar og huga. Prakriti er eins og erfðamengið okkar. Það breytist ekki yfir ævina. Til að vita hvað hentar okkur í fæðu og...
2. Lífskastið - Dósjurnar þrjár: Vata, Pitta og Kapha 13.05.2025 50:15
Í þessum þætti fjalla þær Heiða Björk og Guðrún um dósjurnar þrjár, vata, pitta og kapha og fjalla um frumkraftana sem búa að baki þeim. Þær skoða meðfæddu líkams- og hugargerðina sem kallast PRAKRITI í ayurveda og skoða þekkta einstaklinga og hvert þeirra PRAKRITI gæti verið. Prakriti er eins og erfðamengið okkar og ákvarðar styrkleika okkar og veika hlekki í líkama og huga. Heiða Björk er ayurve...
1. Lífskastið - Kynning á ayurveda 13.05.2025 41:09
Í þessum fyrsta þætti fjalla Heiða Björk og Guðrún um Ayurveda lífsvísindin vítt og breitt. Heiða Björk er ayurveda sérfræðingur (ayurveda practitioner) og starfar við heilsuráðgjöf og heldur námskeið um ayurveda lífsvísindin (sjá nánar á www.astogfridur.is). Hún skrifaði bókina Ayurveda. Listin að halda jafnvægi í óstöðugri veröld , 2023. Guðrún sem er stjórnmálafræðingur að mennt hefur skoðað og...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.