Snorri Björns
LANGA - hlaðvarp
Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: podcasters.spotify.com
Author
Snorri Björns
Category
Podcast website
Latest episode
Nov 5, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
18. Andlega tilbúin í IronMan... og krabbamein - Kata Páls 15.11.2024 1:39:03
Kata Páls áttaði sig á því að hún yrði að vera andlega sterk ef hún ætlaði sér að komast til Kona á heimsmeistaramótið í IronMan. Langar vetraræfingar á Vestfjörðum og 'heilaæfingar' alla morgna klukkan 5 bjuggu til það sterkan haus að þegar hún greindist óvænt með lungnakrabbamein árið 2019 var hún andlega tilbúin að slátra því verkefni - og járnkarli í kjölfarið, með hálft annað lungað fjarlægt....
17. Siggi P - Íslandsmet í maraþoni í 26 ár 08.11.2024 1:52:27
Siggi P er stórt númer og brautryðjandi í íslenskri hlaupasögu. Flestum er kunnugt um Íslandsmetið hans í maraþoni, sem stóð í 26 ár áður en Kári Steinn sló það, en færri þekkja leiðina sem lá að árangri hans í langhlaupum. Við ræðum hvaða eiginleika langhlauparar þurfa að hafa, fókusinn sem hann hafði á árangur í íþróttinni, tenging afreksíþrótta við sveitalífið, fyrirmyndir, hvað hann hefði gert...
16. Andri og Latsi: Hvers vegna gefst maður upp? Heimsmet í boði kolvetna, ofurskóa eða lyfjakokteila? Norðmenn: Bestir í vonbrigðum. 01.11.2024 2:01:57
Andri Guðmundsson, bakgarðshetja og úthverfapabbi, og Einar Sigurjónsson, járnkarl og sjúkraþjálfari, tóku á stóru sem smáu málunum: Hvernig komst Ruth undir 2:10 í marþoni? Hvernig berum við það saman við heimsmet karla? En 100 metrana hjá Usian Bolt? Er þetta dóp? Eru þetta skórnir? Af hverju hættir maður að hlaupa í bakgarðinum? Hver eru algengustu orsakir þreytu og af hverju eru Norðmenn með a...
15. Þorleifur Þorleifsson - 415km // 62 hringir // Íslandsmethafi í þriðja sinn 24.10.2024 2:16:34
Þorleifur var kannski með harðsperrur þegar hann mætti í stúdíóið en hann var tilbúinn að leysa frá skjóðunni um allan þann tilfinningarússíbana sem hann fór í gegnum síðustu helgi og síðustu ár sem einn af okkar fremstu bakgarðs-hlaupurum. Hvernig var tilfinningin að missa Íslandsmetið? Hvernig var tilfinningin að endurheimta það? Af hverju hættir maður keppni í eitt skiptið en heldur áfram í næs...
14. Kári Steinn & Tobbi - æfingafélagar í tvo áratugi 19.10.2024 1:22:53
Æfinga- og keppnissaga Kára Steins og Tobba spannar tvo áratugi, fjölda Íslandsmeta, Ólympíuleika og þúsundir franskra kartaflna. Hér rifja þeir upp fyrsta Laugaveginn (og maraþonið) hans Kára, álit Bandaríkjamanna á brjálaða hlaupafélaganum sem heimsótti Kára til Berkeley, ótrúlegar framfarir í langhlaupum, hugmyndir um Bakgarðinn og bestu hlaupaminningarnar.
13. Langt leiddir - Egill og Hrólfur: gengið yfir Bandaríkin, 60m spretthlaup, Bakgarðurinn og carbon skór í UTMB 11.10.2024 2:01:38
Egill Trausti er Íslandsmeistari (30-34) í 60m spretthlaupi, fór 160km í Bakgarðinum og leiddi Hrólf yfir línuna í 100km Hengli fyrr í sumar. Hrólfur hefur allar fjörurnar sopið en hann hefur gengið Bandaríkin endilöng, þverað Ísland og Skotland, lokið CCC, UTMB og settist hér niður til að segja sögurnar af þessu öllu saman.
12. Guðlaug Edda Hannesdóttir 02.10.2024 2:13:33
Þegar Guðlaug lagði sundið til hliðar og hljóp 10 kílómetrana á næst besta tíma íslenskrar konu (34:57) var nokkuð ljóst að þarna var um framúrskarandi þríþrautarmann að ræða. Sem reyndist rétt því Guðlaug er fyrst Íslendinga til að keppa á Ólympíuleikum í þríþraut. Við ræðum leiðina á Leikana (10 tíma leigubíll í Nepal, Namibía, Filippseyjar, Kína...), heimsmeistaratitil í Aquathon, hennar bestu...
11. Úr áföllum í ultra - Elísa Kristinsdóttir 26.09.2024 1:43:11
Elísa Kristins er sannkallaður ultrahlaupari með 4 bakgarða undir beltinu, í síðustu tilraun fór hún 375 kílómetra og ætlar sér mikið meira núna í október. Elísa kemur frá brotnu heimili og átti erfiða æsku sem mótaði styrk og hæfileika sem hún nýtir sér til að fara einn hring í viðbót. Við ræðum ótrúlegt hlaupasumar sem hún kemur undan, hvernig svakalegar vegalengdir í keppnum byggja á svakalegu...
10. Þorbergur Ingi - sigur í Sviss: "Þú ert að fara að vinna þetta" 17.09.2024 1:07:32
Tobbi sigraði nýverið Wildstrubel 70K og bætti þar með ofan á heimsklassa frammistöður sínar fyrir árið 2024 - þrátt fyrir að hafa ætlað að blása ferðalagið af aðeins nokkrum dögum fyrir hlaup. Snjóskaflar, lágfjallaloft, kolvetnainntaka og hvatningarorð dóttur hans lögðu drögin að einni bestu frammistöðu hlaupara á árinu. 👀 www.instagram.com/langa_hladvarp/
9. UPPGJÖRIÐ STÓRA: Hlaupasumarið gert upp af Hliðarlínunni 13.09.2024 2:02:24
Magnús Már Leifsson, Thelma Björk Einarsdóttir (Greiningardeild LANGA) og þáttastjórnandi sátu öll á hliðarlínunni þetta sumarið og fylgdust náið með frammistöðu íslenskra og erlenda hlaupara. Gagnasöfnun og úrvinnslu er formlega lokið og búið er að sjóða saman topplista yfir bæði íslensk og erlend afrek ásamt skemmtilegum fréttum, myrkum hestum og heiðurstilnefningum. 👀 www.instagram.com/langa_h...
8. Hjólreiðar: Erfiðasta íþrótt í heimi? Ingvar Ómars og Ragnar Árnason 10.09.2024 1:42:53
Er hægt að leggja meira á íþróttamann heldur en 23 daga í röð af peloton-þvottavélinni í frönsku ölpunum? Á Kristian Blummenfelt séns í pelotonið? Jonas Vingegaard: úr fiskverksmiðju í Tour de France, yfirburðir Tadej Pogacar, hjólarar sem hlaupa, hvað geta aðrar úthaldsíþróttir lært af hjólreiðum? Kolvetnainntaka, ketónar, sodium bicarbonate, þyngdarstjórnun og margt margt fleira.
7. 100 kílómetrar hvor - Andrea Kolbeins & Halldóra Huld 06.09.2024 1:03:50
Landsliðskonurnar og 100km hlaupararnir Andrea Kolbeins og Halldóra Huld gera upp sín lengstu hlaup til þessa: 100km og CCC, viðhorfið til langra vegalengda, keppa vs. njóta, UTMB og fleira skemmtilegt. Í boði Sjóvá, Gifflar og COLLAB HYDRO.
6. Fyrsti maraþonhlaupari Íslands - Hafsteinn Sveinsson 22.08.2024 1:09:43
Hafsteinn Sveinsson hljóp, fyrstur Íslendinga, heilt maraþon árið 1957. Hann verður 95 ára gamall eftir fáeinar vikur og hló að mér þegar ég spurði hvort hann hafi keyrt sjálfur í stúdíóið. Aðstæður til að æfa hlaup á sjötta áratugnum voru vægast sagt lélegar svo Hafsteinn þurfti að láta sér nægja að klofa snjó í stígvélum til að komast uppá Ingólfsfjall í kolniðamyrkri eftir 17 tíma vinnudag. Í þ...
5. Lífeðlisfræðin á bakvið bætingar - Latsi/Einar Sigurjónsson 16.08.2024 2:03:18
Vo2max, zone 2, mjólkursýruþröskuldur, tempó... hvað þýða þessi hugtök og af hverju er mikilvægt að vita hvernig líkaminn bregst við mismunandi álagi sem við setjum á hann? Einar, betur þekktur sem Latsi, heldur hér fyrirlestur um þjálffræði og lífeðlisfræðina á bakvið æfingar ásamt því að útskýra hvernig úthaldsíþróttamaður getur fundið sína veikleika og bætt þá fyrir næstu áskorun.
4. Hundrað kílóa hybrid og maraþon róður - Björgvin Karl og Þröstur Ólason 08.08.2024 1:15:25
Björgvin Karl er fremsti karlkyns Crossfittari okkar Íslendinga og Þröstur er fyrrum heimsmeistari í kraftlyftingum. Báðir eiga það sameiginlegt að hafa verið til staðar fyrir hvorn annan í þeirra lengstu áskorunum: 106km ultrahlaupi og maraþon róðri. Við fáum keppnissögu þeirra beggja; hvernig Þröstur kom sér í gegnum 106 kílómetrana í 100 kílóa líkama og hjálpina sem hann fékk (ekki) frá Björgvi...
3. Þorbergur Ingi, besti utanvegahlaupari Íslendinga 05.08.2024 2:05:01
Þorbergur Ingi / Tobbi er besti utanvegahlaupari okkar Íslendinga. Enginn hefur skorað jafn mörg ITRA stig, hann er eini Íslendingurinn sem hefur farið Laugaveginn undir 4 klukkutímum (þunnur?), margfaldur landsliðsmaður, lenti í 6. sæti í einu stærsta utanvegahlaupi heims, hann hefur tvisvar sinnum farið UTMB og gerir þetta allt samhliða fullu starfi hjá Marel sem véla- og orkufræðingur - og tveg...
2. Noregur, hvað hefuru gert? Gunnar Birgisson og Aron Gauti Laxdal 01.08.2024 1:31:04
Hvernig fer snæviþakinn Noregur að því að sigra Ólympíuleikana í strandblaki? Hvernig komst Jakob Ingebrigtsen hlaupandi í mark á undan Kenýumanninum? Síðan hvenær var heimsmeistarinn í Ironman norskur? Í stúdíóið mæta Aron Gauti Laxdal, dósent við háskólann í Agder og Gunnar Birgisson, íþróttafréttamaður, til að kryfja þessar spurningar og gera grein fyrir því hvernig Norðmenn ala af sér íþróttam...
1. Mæst á miðri leið - Andrea Kolbeins og Andri Guðmunds 26.07.2024 1:22:52
Andrea Kolbeins og Andri Guðmundsson fundu sér sameiginlegan vígvöll í Laugavegshlaupinu um miðjan júlí. Andrea kom undan þriggja Íslandsmeistaratitla keppnishelgi, 10km götuhlaupi, hálfmaraþoni og ultrahlaupi áður en hún mætti á startlínuna en Andri tók 350km í bakgarðinum og tók svo afleiðingunum. Umræðuefni þáttarins eru meðal annars: Hversu stressandi er Laugavegurinn miðað við önnur hlaup á á...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.