Stefán Hrafn Hagalín
Landspítali hlaðvarp
Viðtöl um ýmis málefni sem tengjast heilbrigðismálum, starfsemi og mannauði Landspítala
Author
Stefán Hrafn Hagalín
Category
Podcast website
Latest episode
Feb 9, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Dagáll læknanemans: Berglind Bergmann Sverrisdóttir - Uppvinnsla á hita 06.10.2020 1:01:29
"Dagáll læknanemans" er nýtt hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og aðra áhugasama um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Í þætti vikunnar leiðir Berglind Bergmann Sverrisdóttir, sérnámslæknir á Landspítala, hlustendur gegnum almenna uppvinnslu á hita. Hvaða mismunagreiningar eru líkleg...
Dagáll læknanemans: Hrönn Harðardóttir og Signý Vala Sveinsdóttir - Blóðsegarek til lungna og bláæðasegasjúkdómur 28.09.2020 1:15:37
"Dagáll læknanemans" er nýtt hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og aðra áhugasama um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Hrönn Harðardóttir, sérfræðingur í lungnalækningum, og Signý Vala Sveinsdóttir, sérfræðingur í blóðlækningum, ræða blóðsegarek til lungna og bláæðasegasjúkdóm í þætt...
Dagáll læknanemans: Albert Sigurðsson - Blóðlækningar og blóðleysi 23.09.2020 1:21:52
Stjórnendur Dagáls læknanemans eru Sólveig Bjarnadóttir læknanemi á 6. ári og Teitur Ari Theodórsson læknanemi á 5. ári. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vefsvæðum spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast...
Dagáll læknanemans: Sunna Snædal - Bráður nýrnaskaði 14.09.2020 54:49
"Dagáll læknanemans" er nýtt hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og aðra áhugasama um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Í þessum þætti ræðir Sunna Snædal , sérfræðingur í nýrnalækningum og almennum lyflækningum, um bráðan nýrnaskaða. Hvað er bráður nýrnaskaði, hvaða lyf þarf að stöðva...
Dagáll læknanemans: Hjálmar Ragnar Agnarsson og bráð hjartabilun 10.09.2020 53:54
Dagáll læknanemans er nýtt hlaðvarp fyrir læknanema og aðra áhugasama um hvaðeina sem viðkemur klíník. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Stjórnendur Dagáls læknanemans eru Sólveig Bjarnadóttir læknanemi á 6. ári og Teitur Ari Theodórsson læknanemi á 5. ári. Hvað eru preload og afterload? Í þessum þætti leiðir Hjálmar Ragnar Agnarsson, sérnámslæknir...
Yoga Nidra með Lísu Briem 25.05.2020 33:15
Yoga nidra er leidd djúpslökun sem losar um streitu, bætir svefn, vinnur gegn neikvæðum hugsanamynstrum og bætir jafnvægi. Nidra þýðir svefn og yoga einingu og þannig merkir "yoga nidra" í rauninni vakandi svefn þar sem vitundin er vakandi en líkaminn fær djúpa hvíld og hugurinn hvílir í kyrrð. Þessi aðferð getur hjálpað til við að losa um þá spennu sem fylgir hraða og annríki nútímans....
Erla Dögg Ragnarsdóttir og Steinunn Erla Thorlacius: Stjórnendur fjarheilbrigðisþjónustu og röntgendeildar segja frá fjölbreyttum verkefnum í Covid-19 25.05.2020 58:01
Starfsemi Landspítala tók stökkbreytingum í Covid-19-faraldrinum. Erla Dögg Ragnarsdóttir er deildarstjóri á göngudeild 10-E á Landspítala og Steinunn Erla Thorlacius er deildarstjóri röntgendeildar. 10-E sér um göngudeildarþjónustu við skjólstæðinga sem tilheyra sérgreinum kviðarhols- og brjóstaskurðlækninga, brjóstholsskurðlækninga, nýrna- og meltingarlækninga og ígræðslu- og verkjateyma. Þegar...
Ragnar Freyr Ingvarsson yfirlæknir og Sólveig Hólmfríður Sverrisdóttir deildarstjóri: Covid-19-göngudeild Landspítala - Uppsetning og verkefni 25.05.2020 1:32:59
Sérstök Covid-19-göngudeild Landspítala og þjónustan þar, ásamt öflugri fjarheilbrigðisþjónustu, gegndi lykilhlutverki í vel heppnuðum undirbúningi og viðbragði hér á landi gagnvart Covid-19-faraldrinum. Deildin er raunar talin einstæð á heimsvísu og þótti halda utan um krefjandi sjúklingahóp með afar farsælum hætti, en hún hefur nú lokið störfum. Yfirlæknir göngudeildarinnar var Ragnar Freyr Ingv...
Brautryðjendur í hjúkrun: Anna Gyða Gunnlaugsdóttir 13.05.2020 58:14
Vika hjúkrunar er haldin árlega á Landspítala kringum 12. maí, fæðingardag Florence Nightingale (1820) og alþjóðlegan dag hjúkrunarfræðinga. Að þessu sinni er vikan haldin 11.-15. maí. Í tilefni af Viku hjúkrunar ræsum við hérna hlaðvarpssyrpuna "Brautryðjendur í hjúkrun" og fyrsti viðmælandinn er Anna Gyða Gunnlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmyndari sem á ótrúlega fjölbreyttan fe...
Brautryðjendur í hjúkrun: Sigríður Gunnarsdóttir 13.05.2020 39:22
Vika hjúkrunar er haldin árlega á Landspítala kringum 12. maí, fæðingardag Florence Nightingale (1820) og alþjóðlegan dag hjúkrunarfræðinga. Að þessu sinni var hún haldin 11.-15. maí. Í tilefni af Viku hjúkrunar ræstum við hlaðvarpssyrpuna "Brautryðjendur í hjúkrun" og annar viðmælandinn þar er Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala. Gestastjórnandi er hjúkrunar...
Ólafur Guðlaugsson yfirlæknir sýkingavarnadeildar: Undirbúningur og starfsemi Landspítala í COVID-19-faraldrinum 05.05.2020 1:10:39
Ólafur Guðlaugsson hefur verið yfirlæknir sýkingavarnadeildar Landspítala frá árinu 2003 og samhliða gegnt stöðu við smitsjúkdómadeild spítalans. Deildirnar spiluðu ótvíræða lykilrullu í undirbúningi, viðbrögðum og starfsemi spítalans í COVID-19-faraldrinum. Ólafur sérmenntaði sig vestanhafs í því fagi og krækti sér þá að auki í meistaragráðu í lýðheilsufræðum. Hann er gestur Hlaðvarps Landspítala...
Ásdís Elfarsdóttir Jelle, deildarstjóri og hjúkrunarfræðingur: Starfsemi sýkingavarnadeildar Landspítala á tímum COVID-19 04.05.2020 1:08:54
Hjúkrunarfræðingurinn Ásdís Elfarsdóttir Jelle er deildarstjóri sýkingavarnadeildar Landspítala, sem hefur gegnt algjöru lykilhlutverki í undirbúningi og starfsemi spítalans í COVID-19-faraldrinum. Ádís er gestur Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni, en gestastjórnandi er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir. Hún hefur unnið innan heilbrigðiskerfisins frá árinu 1980 og sinnt þar fjölbreyttum störf...
Freyja Valsdóttir lífeindafræðingur og Máney Sveinsdóttir náttúrufræðingur: Starfsemi sýkla- og veirufræðideildar Landspítala á tímum COVID-19 29.04.2020 57:03
Freyja Valsdóttir lífeindafræðingur og Máney Sveinsdóttir náttúrufræðingur eru gestir Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni, en gestastjórnandi er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir. Freyja og Máney starfa báðar á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Mikið hefur mætt á veirufræðihluta deildarinnar í COVID-19 faraldrinum og vinnudagarnir lengst með margföldu álagi við greiningar á sýnum vegna CO...
Berglind Guðrún Chu, sérfræðingur í smitsjúkdómahjúkrun: Hjúkrun og verkefni hjúkrunarfræðinga á smitsjúkdómadeild á tímum COVID-19 23.04.2020 1:04:00
Berglind Guðrún Chu er sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með smitsjúkdóma. Hún veitir hér hlustendum Hlaðvarps Landspítala innsýn í starfsemi A7 smitsjúkdómadeildar á tímum COVID-19. Það er Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir sem ræðir við Berglindi, ásamt Stefáni Hrafni Hagalín, deildarstjóra samskiptadeildar. Farið er yfir helstu ráðstafnir og verkefni smitsjúkdómadeildar og vöngum velt yfir hjú...
Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar: COVID-19 faraldurinn og víðtæk áhrif hans á starfsemi Landspítala 21.04.2020 1:50:31
Már Kristjánsson er yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítala og hefur gegnt lykilhlutverki í undirbúningi, vibrögðum og starfsemi Landspítala kringum COVID19-faraldurinn. Hér ræðir Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir við Má, ásamt Stefáni Hrafni Hagalín, deildarstjóra samskiptadeildar. Tæpt er á bakgrunni beggja læknanna, en áherslan er þó á Má sem á einstaklega fjölbreyttan og farsælan feril a...
Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands: Bakgrunnurinn, baráttan, þjóðmálin og áhyggjurnar af Arsenal 06.12.2019 35:00
Sjúkraliðar gegna lykilhlutverki í heilbrigðisþjónustunni. Á Landspítala starfa yfir 600 sjúkraliðar, en á landinu öllu eru um 4.000 manns með sjúkraliðamenntun og þar af eru 2.100 manns starfandi sem slíkir. Sjúkraliðar eru næststærsta heilbrigðisstétt landsins og starfa á öllum heilbrigðisstofnunum; sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum, forvarnar- og endurhæfingarstofnunum, lækna- og rannsóknarstofum...
Anna Sigríður Guðnadóttir og Inga Ágústsdóttir: Heilbrigðisvísindabókasafnið, MR, stjórnmálaþátttakan og Íslandsmetið í langstökki án atrennu 10.11.2019 58:47
Viðmælendur Hlaðvarps Landspítala að þessu sinni eru tveir starfsmenn Heilbrigðisvísindabókasafns Landspítala og Háskóla Íslands, þær Anna Sigríður Guðnadóttir verkefnastjóri safnsins og Inga Ágústsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur. Við sögu koma safnið, bakgrunnur Önnu Sigríðar og Ingu og mikilvægi virkrar þátttöku í þjóðmálaumræðunni. Það er Stefán Hrafn Hagalín sem tekur viðtalið. Upptök...
Arabella Samúelsdóttir og Árný Ósk Árnadóttir: Tónlistin, blakið, fjölskyldan og og nýja móttökumiðstöðin fyrir starfsfólk Landspítala 31.10.2019 37:14
Gestir hlaðvarps Landspítala að þessu sinni eru þær Arabella Samúelsdóttir og Árný Ósk Árnadóttir. Tónlistarkonan Bella er úr Bökkunum, en blakarinn Árný er frá Ólafsfirði. Báðar eru verkefnastjórar hjá skrifstofu mannauðsmála og menntaðar í sálfræði með framhaldsnám í mannauðsstjórnun. Umræðuefnin eru bakgrunnur þeirra, helstu verkefni á Landspítala og splunkuný móttökumiðstöð fyrir nýtt starfsfó...
Hanna Kristín Guðjónsdóttir: Hjúkrunarfræðingur og eðalnörd - Alin upp á fjöllum, en er með annan fótinn í Amsterdam í seinni tíð 09.10.2019 35:40
Hanna Kristín Guðjónsdóttir er fædd í Kópavogi og alin upp í Reykjavík, en þó ekki síður inni á hálendinu þar sem hún eyddi drjúgum hluta frumbernskunnar. Hanna Kristín er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir með meistaragráðu í gagnagreiningu og upplýsingatækni. Hún er verkefnastjóri hjá Landspítala í dag, annars vegar í gæðadeild og hins vegar í heilbrigðis- og upplýsingatæknideild (HUT). Hún er fjög...
Bergþóra Baldursdóttir: Sjúkraþjálfun og lífsbjargandi byltuvarnir 07.10.2019 41:51
Dr. Bergþóra Baldursdóttir sjúkraþjálfari segir frá sínum uppvexti í Smáíbúðahverfinu og hvers vegna hún valdi sjúkraþjálfun á sínum tíma, en hótelstýra í Kaupmannahöfn átti þar hlut að máli. Bergþóra hefur verið ráðin til eins árs í stöðu verkefnastjóra byltuvarna. Um er að ræða tilraunaverkefni á vegum framkvæmdastjóra hjúkrunar og lækninga. Nýlega varði hún doktorsritgerð sína sem fjallaði um á...
Bára og Berglind : Vinnuvernd, móttökumiðstöð og önnur risaverkefni hjá mannauðssviði Landspítala á haustönn 2019 01.10.2019 39:45
Stærstu verkefni mannauðssviðs Landspítala á haustönn 2019 lúta að október sem mánuði vinnuverndar, jafnlaunavottun, samskiptasáttmála, viðverustefna, vellíðan í vaktavinnu og stofnun miðlægrar móttökustöðvar í Skaftahlíð fyrir nýtt starfsfólk Landspítala, en sú tala nemur um 1.500 manns ár hvert á þessum vinnustað 6.000 manna. Einnig er núna hugað sérstaklega að þjálfun starfsfólks af erlendu ber...
Ósk Sigurðardóttir: Verkefnastjóri og iðjuþjálfi sem leggur stund á nám við Oxford og þróar aðgengisapp í frístundum 01.10.2019 48:36
Ósk Sigurðardóttir er verkefnastjóri hjá verkefnastofu Landspítala, sem hefur verið drifkrafturinn í umbótavegferð Landspítala undanfarin ár og byggir að miklu leyti á straumlínustjórnun (lean). Ósk hefur átt langan og farsælan feril á Landspítala, fyrst sem iðþjuþjálfi en síðustu árin sem verkefnastjóri. Hún státar nú þegar af nokkrum háskólagráðum og vinnur í augnablikinu að einni til viðbótar v...
Keli ljósmyndari: Ekki bara fjallgöngur, peningasmygl og stríðsátök, heldur líka Mogginn, klínískar myndatökur og hugsjónastarf 18.09.2019 1:08:20
Þorkell Þorkelsson er ljósmyndari Landspítala. Alltaf kallaður Keli. Í hlaðvarpi Landspítala segir okkar maður frá því hvernig hann myndaði bumbur 4 ára að aldri, gekk sem táningur á Mont Blanc í strigaskóm og fékk seinna starfsfólk Moggans til að smygla fyrir sig dollurum í ársskýrslu Seðlabankans til Afríku. Keli hefur átt viðburðaríkan starfsferil með óteljandi hápunkta. Hann hefur myndað jarða...
Tómas Þór: Framhaldsmenntun, sykursýki, neikvæðni og skrautfiskar 30.08.2019 1:13:43
Tómas Þór Ágústsson er sérfræðingur í lyf- og innkirtlalækningum og formaður framhaldsmenntunarráðs lækninga á Landspítala. Tómas Þór ræðir hér sérgrein sína og verkefnin hjá ráðinu, ásamt því að velta vöngum yfir neikvæðri umræðu um framúrskarandi heilbrigðiskerfi og Landspítala, sem hann segir frábæran vinnustað. Að endingu segir hann frá ástríðu sinni: skrautfiskaræktun. Það er Stefán Hrafn Hag...
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - Andri Konráðsson, Gylfi Ólafsson og Kristjana Milla Snorradóttir 12.06.2019 1:02:24
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sér um alhliða heilbrigðisþjónustu í fimm sveitarfélögum á Vestfjörðum eða nánar tiltekið Bolungarvík, Ísafirði, Súðavík, Tálknafjarðarhreppi og Vesturbyggð. Um er að ræða sjúkrahús, heilsugæslur og öldrunarþjónustu, sem saman mynda stærsta einstaka vinnustað Vestfjarða með 250 starfsmenn. "Sjúkrahús allra landsmanna" var yfirskrift ársfundar Landspítala vor...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.