Læknablaðið
Læknavarpið
Læknavarpið er hlaðvarp Læknablaðsins þar sem rætt er við lækna á faglegum og persónulegum nótum. Nýr þáttur með hverju nýju Læknablaði. Þáttastjórnandi: Kristborg Bóel SteindórsdóttirStef: Doctor Victor
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: podcasters.spotify.com
Author
Læknablaðið
Category
Podcast website
Latest episode
Oct 2, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#11/2023 Ágústa Waage 06.11.2023 49:05
Ágústa Waage svæfingalæknir hefur nú gengið Kambaslóðina á enda frá Mexíkó til Kanada, 4265 kílómetra. Hún flosnaði upp úr framhaldsskóla á Íslandi, ók trukk fyrir Sameinuðu þjóðirnar í Bosníustríðinu, en lauk svo við lækna- og sérnám í Svíþjóð. Þar starfar hún og sér ekki fram á að koma heim. Ágústa segir söguna í Læknavarpinu. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva...
#11/2023 Sigríður Dóra Magnúsdóttir 05.11.2023 36:45
„Stolt,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir spurð hvað hún ætli að taka út úr starfi sínu sem forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Ég veit þetta verður ekki aðeins dans á rósum, en þetta er gríðarlegt tækifæri,“ segir hún í Læknavarpinu, hlaðvarpi Læknablaðsins, við þessi tímamót. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva.
#10/2023 Sigurdís Haraldsdóttir 13.10.2023 43:22
Sigurdís Haraldsdóttir krabbameinslæknir segir okkur frá eftirliti sem hefur verið komið upp á Landspítala með einstaklingum í mikilli hættu á að fá briskrabbamein, því nýjasta í krabbameinslækningum og lífi sínu í Bandaríkjunum í nýjum þætti Læknavarpsins, hlaðvarpi Læknablaðsins. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva.
#10/2023 Sigurður, Helgi og Hlynur 09.10.2023 39:19
„Ég gerði mér grein fyrir því að þetta væri allt annað starf en það sem ég er að koma úr,“ segir Helgi Hafsteinn Helgason krabbameinslæknir kominn til starfa á Selfossi eftir um 23 ár í Hollandi. Þrír krabbameinslæknar eru á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Ásamt Helga þeir Hlynur Níels Grímsson og Sigurður Böðvarsson. Gunnhildur Arna ræðir við þá um vöxt stofnunarinnar, áskoranir og tækifæri. Þátta...
#09/2023 Sigurður Guðmundsson 05.09.2023 56:18
„Ég þarf ekki að bæta við CV-ið. Það er algjör óþarfi. Það les það enginn lengur,“ segir Sigurður Guðmundsson, smitsjúkdómalæknir og fyrrum landlæknir, í einlægu viðtali við Gunnhildi Örnu í Læknavarpinu – hlaðvarpi Læknablaðsins. Sigurður er á krossgötum, er að ljúka störfum, og gerir upp ferilinn í þessum þætti. Þáttastjórnandi: Gunnhildur Arna. Stef: Doctor Victor. Bakhjarl: Teva.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.