Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Sævarsdóttir

Kvíðakynslóðin hlaðvarp

Society IS ↓ 25 episodes

Hlaðvarpið “Kvíðakynslóðin” mun beina sjónum sínum að tveimur meginþemum: áhrifum skjánotkunar á börn og unglinga, og mikilvægi hinna “þriðju staða” í samfélaginu. Þáttastjórnendur eru Anna Laufey tölvunarfræðingur og Kristín mannfræðingur og kynjafræðingur. Þær eru báðar mæður sem hafa fundið mikið fyrir áhrifum skjánotkunar og vöntun á sjálfstæði barna. Anna Laufey stofnaði vinsælu Facebook síðuna Kvíðakynslóðin - Stöndum saman og minnkum skjánotkun barna og fyrirtækið Stafræn velferð ehf.

Author

Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Sævarsdóttir

Category

Society

Podcast website

www.stafraenvelferd.is

Latest episode

Jul 1, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#25 Þegar tæknin tekur völdin - Björn Hjálmarsson geðlæknir 01.07.2026

Björn Hjálmarsson, barnagæðalækni, kom til að ræða um þróun uppeldis í hinum vestræna heimi. Við förum yfir þrjár stórar byltingar: 1. Uppbrot kynslóðafjölskyldunnar, 2. kvenfrelsisbaráttuna og 3. stafrænu byltinguna — og hvernig þær hafa áhrif á líf og geðheilsu barna í dag. Björn deilir með okkur sinni sýn á skjáfíkn, neteinelti, einmanaleika og hvað við sem foreldrar getum gert til að ramma inn...

#24 Hvað segir unga fólkið? - Trausti Magnússon 15.06.2026

Í þessum þætti ræðum við við Trausta Magnússon, 17 ára nemanda við Verslunarskóla Íslands. Hann varpar ljósi á það hvernig er að vera nemandi í "ipadda-væddum" grunnskóla og hefur frá ýmsu að segja.

#23 Hvernig byggjum við skothelt samband? Theódór Francis 02.06.2026

Theódór Francis frá Lausninni kemur til okkar og ræðir lífið, ástina, stjúptengsl og hvernig við byggjum upp skothelt samband.

#22 Við þurfum að byggja upp sterka stráka - Bjarni Fritzson 15.05.2026

Bjarni Fritzson er rithöfundur, þjálfari og námskeiðahaldari sem brennur fyrir velferð barna og ungmenna. Hann er höfundur fjölda bóka eins og Orra Óstöðvandi, Öflugir strákar og Tölvuheimurinn. Hann er núna í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Í þessum þætti ræðum við um hvernig við getum byggt upp sterka stráka, skaðleg áhrif samfélagsmiðla, símafrí í skólu...

#21 iPadar í skólum - Bergþóra Þórhallsdóttir 04.05.2026

Í þessum þætti ræðum við við Bergþóru Þórhallsdóttur, verkefnastjóra hjá menntasviði Kópavogsbæjar. Við förum í gegnum innleiðingu spjaldtölva í grunnskólum, hvernig stafræn borgarvitund er kennd, gervigreind í námi og samvinnu heimilis og skóla. Þátturinn er í boði: Balance Phone - https://balancephone.is/ Stafræn velferð - https://www.stafraenvelferd.is/ JoyBox.is - https://joybox.is/

#20 Símabönn bara virka - Kristján Ketill Stefánsson 18.04.2026

Nýtt nafn! Nýtt logo! Frábær gestur! Í þessum þætti fengum við til okkar Kristján Ketil - Dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hvað segja gögnin okkur um tengsl snjalltækja við líðan og námsárangur barna og ungmenna? Við tölum um spjaldtölvur í skólum, símabönn, gagnreyndar námsaðferðir og menntatækni. Þátturinn er í boði: Balance Phone Stafræn velferð JoyBox.is

#19 - Skemmtilegra að heimsækja skóla sem eru símalausir - Þorgrímur Þráinsson 04.03.2026

Þorgrímur Þráinsson rithöfundur og fyrirlesari kom í þáttinn til að ræða unglinga, lestur og snjalltæki. Hann ferðast um landið og heldur fyrirlestra fyrir 10. bekkinga um það hvernig maður getur orðið ástfanginn af lífinu.

#18 Þurfa börn snjallsíma?! 25.02.2026

Í þættinum fáum við til okkar engan annan en Gunnar Helgason rithöfund og ræðum það hvort börn og ungmenni þurfi í alvörunni snjallsíma?

#17 Endurkoman: Nýjustu fréttir í samfélaginu og í heiminum 08.02.2026

Í þessum þætti fjöllum við um hvað hefur gerst í samfélaginu og í heiminum í þessum efnum síðan við byrjuðum með hlaðvarpið.

#16 - Tilfinningasnuðið. Ragga Nagli. 09.03.2025

Í þessum þætti fáum við til okkar enga aðra en Röggu Nagla. Við spjöllum um vítahringinn sem rústar svefninum okkar, einmanaleikann, gervidópamínið og þau vellíðunarhormón sem við gætum verið að fara á mis við.

#15 Hvað geta foreldrar gert? - Kristín Ólöf Grétarsdóttir 01.03.2025

Hvaða áhrif geta foreldrar haft á skólaumhverfi barna? Hvernig getum við gert alla skóla landsins snjallsímalausa? Kristín Ólöf Grétarsdóttir er foreldri tveggja drengja á grunnskólaaldri. Hún var formaður Foreldrafélags Áslandsskóla í sjö ár, situr í foreldraráði Hafnarfjarðar, er í stjórn Heimilis og skóla, og er menntaður kennari. Hún brennur fyrir að beina athygli að skjánotkun barna, því hún...

#14 Tengslarof vegna snjallsíma - Jón Pétur Zimsen 15.02.2025

Jón Pétur Zimsen, þingmaður sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri, segir að snjallsímar hafi valdið tengslarofi hjá börnum og unglingum. Með 30 ára reynslu úr skólaumhverfinu hefur hann orðið var við miklar breytingar á börnum eftir að snjallsímar urðu algengir.

#13 Agaleysi í skólum - Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir 08.02.2025

Sigrún Ólöf, skólastjóri Hörðuvalalskóla, kallaði nýlega eftir þjóðarátaki þar sem agaleysi í skólum er orðið óboðlegt. Hvar liggur rót þessa agaleysis? Hún var svo góð að koma í hljóðverið til okkar og ræða þessi málefni nánar við okkur.

#12 - Að alast upp undir allra augum 01.02.2025

Deilum við of miklu um börnin okkar? Ef þú myndir líta til baka, værir þú ánægð/ur með að þessi upplýsingar væru til um þig frá þinni barnæsku? Í þessum þætti ræðum við hugtakið „sharenting“, sem er sambland af orðunum „sharing“ og „parenting“. Hvar liggja mörkin? Hvað geta óvinveittir aðilar gert við myndir og upplýsingar barna? Og hvað segja börnin þegar þau eldast og uppgötva allt sem hefur ver...

#11 Hvað eru önnur lönd að gera? 25.01.2025

Í þessum þætti fer Kristín yfir sínar heimilisreglur um skjánotkun. Við ræðum einnig hvað önnur lönd eru að gera í tengslum við síma- og samfélagsmiðlabönn fyrir börn, og förum í gegnum það sem við höfum rætt í fyrri þáttum.

#10 Hér er ein pæling - Þórarinn Hjartarson 18.01.2025

Af hverju eyðum við – og börnin okkar – svo miklum tíma fyrir framan skjái í leit að ódýru og skjótvirku dópamíni? Hvað gerðist? Í þessum þætti fáum við frábæran gest, hann Þórarinn Hjartarson þáttarstjórnanda vinsæla hlaðvarpsins Ein pæling. Við ræðum um hvar við erum stödd og Þórarinn varpar ljósi á sína sýn á stöðuna í dag.

#9 Símar í skólum - Davíð Már Sigurðsson 13.01.2025

Hver eru helstu vandamál kennara þegar kemur að símanotkun barna? Gestur okkar í dag er Davíð Már Sigurðsson, sem er íþróttakennari og styrktarþjálfari með meistarapróf í íþróttaþjálfun, rannsóknum og kennarafræðum. Við ræðum um íþróttir barna og áhrif síma á skólaumhverfið. Eru spjaldtölvur og símar virkileg að hjálpa börnunum okkar í námi? Hvað þýðir að vera símalaus skóli? Lagar símabann öll ok...

#8 Heimaró: frjáls leikur og flæði 29.12.2024

Í þessum þætti kemur Gunnhildur Jóhannsdóttir sérkennari og þroskaþjálfi í heimsókn til okkar og varpar ljósi á álag barna, séð með augum kennara. Við tölum um mikilvægi róar og næðis heimafyrir, færni barna til að vera í frjálsum leik í heimi þar sem börnum er stýrt meir og meir og vanda kennara eins og hún orðaði það: ,,Það er erfitt fyrir stærðfræðikennara að toppa Fortnite"

#7 Raunveruleiki barna í heimi snjallsíma - Skúli Bragi kemur í heimsókn 29.12.2024

Í þessum þætti fáum við Skúla Braga Geirdal í heimsókn til okkar. Hann er sérfræðingur á sviði upplýsinga- og miðlalæsis hjá fjölmiðlanefnd, heldur fyrirlestra og skrifar greinar til leiðbeiningar fyrir foreldra barna á tímum snjallsímavæðingar.

#6 Skjátími, heimilisreglur og rafíþróttir 29.12.2024

Í þessum þætti ræðum við um ólíka skjánotkun og tilgang hennar. Við opinberum eigin skjátíma, hvernig Anna Laufey notar stundum appið "the balanced phone", hvað okkur öllum finnst endurnærandi að fá "like" á samfélagsmiðlum og hvað skjátími er mikill upplifanaþjófur.

#5 Leikur barna og fullorðinna 17.12.2024

Hvernig brjótumst við út úr viðjum vanans og innleiðum meiri leik og útiveru í lífið okkar? Sabína Steinunn, íþrótta- og heilsufræðingur og áhugakona um hreyfifærni og þroska barna, kemur til okkar og eys úr viskubrunni sínum.

#4 Þorpið & leitin að þriðja staðnum 04.12.2024

Það segir að það taki heilt þorp að ala upp barn, en hvar er þorpið í dag? Og hvar eru svokallaðir „þriðju staðir“ – rými þar sem fólk kemur saman utan heimilis og vinnu? Anna og Kristín velta fyrir sér hlutverki þorpsins í nútímasamfélagi, þeim áskorunum sem fjölskyldur standa frammi fyrir í dag og mikilvægi þess að skapa staði þar sem einstaklingar geta hist, tengst og byggt upp samhug innan sam...

#3 Samfélagsleg áhrif skjánotkunar 24.11.2024

Í þessum þætti fáum við til okkar frábæran gest, hana Önnu Claessen. Anna er margreyndur markþjálfi, einkaþjálfari, fyrirlesari og skemmtikraftur, með sérþekkingu á viðfangsefnum eins og streitu, kulnun og sjálfsrækt. Við ræðum áhrif skjánotkunar á andlega og líkamlega heilsu, tengsl stafræns áreitis við streitu og kulnun, og hvernig við sem einstaklingar og samfélag getum tekist á við þessar ásko...

#2 Að alast upp á Mars 17.11.2024

Anna og Kristín fara í saumana á fjórum lykilleiðum sem Jonathan Haidt leggur til til að takast á við skjánotkun barna og skoða hvernig við sem samfélag getum innleitt þær í framkvæmd. Þær ræða einnig hlutverk frjáls leiks í þroska barna, mikilvægi þess að efla ábyrgð þeirra og hvernig öryggi barna getur samræmst sjálfstæði þeirra í nútíma samfélagi.

#1 Skjánotkun barna og unglinga 10.11.2024

Anna og Kristín ræða stöðu foreldra og barna í tengslum við skjátíma barna og þau samfélagslegu áhrif sem honum fylgja. Þær fara yfir helstu áskoranirnar sem blasa við, hvernig við lentum í þessari stöðu og hvað hægt er að gera til að bæta ástandið.

Listen to the Kvíðakynslóðin hlaðvarp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.