Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Sævarsdóttir
Kvíðakynslóðin hlaðvarp
Hlaðvarpið “Kvíðakynslóðin” mun beina sjónum sínum að tveimur meginþemum: áhrifum skjánotkunar á börn og unglinga, og mikilvægi hinna “þriðju staða” í samfélaginu. Þáttastjórnendur eru Anna Laufey tölvunarfræðingur og Kristín mannfræðingur og kynjafræðingur. Þær eru báðar mæður sem hafa fundið mikið fyrir áhrifum skjánotkunar og vöntun á sjálfstæði barna. Anna Laufey stofnaði vinsælu Facebook síðuna Kvíðakynslóðin - Stöndum saman og minnkum skjánotkun barna og fyrirtækið Stafræn velferð ehf.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.stafraenvelferd.is
Author
Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Sævarsdóttir
Category
Podcast website
Latest episode
Nov 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#8 Heimaró: frjáls leikur og flæði 29.12.2024 45:15
Í þessum þætti kemur Gunnhildur Jóhannsdóttir sérkennari og þroskaþjálfi í heimsókn til okkar og varpar ljósi á álag barna, séð með augum kennara. Við tölum um mikilvægi róar og næðis heimafyrir, færni barna til að vera í frjálsum leik í heimi þar sem börnum er stýrt meir og meir og vanda kennara eins og hún orðaði það: ,,Það er erfitt fyrir stærðfræðikennara að toppa Fortnite"
#7 Raunveruleiki barna í heimi snjallsíma - Skúli Bragi kemur í heimsókn 29.12.2024 52:13
Í þessum þætti fáum við Skúla Braga Geirdal í heimsókn til okkar. Hann er sérfræðingur á sviði upplýsinga- og miðlalæsis hjá fjölmiðlanefnd, heldur fyrirlestra og skrifar greinar til leiðbeiningar fyrir foreldra barna á tímum snjallsímavæðingar.
#6 Skjátími, heimilisreglur og rafíþróttir 29.12.2024 50:35
Í þessum þætti ræðum við um ólíka skjánotkun og tilgang hennar. Við opinberum eigin skjátíma, hvernig Anna Laufey notar stundum appið "the balanced phone", hvað okkur öllum finnst endurnærandi að fá "like" á samfélagsmiðlum og hvað skjátími er mikill upplifanaþjófur.
#5 Leikur barna og fullorðinna 17.12.2024 41:39
Hvernig brjótumst við út úr viðjum vanans og innleiðum meiri leik og útiveru í lífið okkar? Sabína Steinunn, íþrótta- og heilsufræðingur og áhugakona um hreyfifærni og þroska barna, kemur til okkar og eys úr viskubrunni sínum.
#4 Þorpið & leitin að þriðja staðnum 04.12.2024 44:42
Það segir að það taki heilt þorp að ala upp barn, en hvar er þorpið í dag? Og hvar eru svokallaðir „þriðju staðir“ – rými þar sem fólk kemur saman utan heimilis og vinnu? Anna og Kristín velta fyrir sér hlutverki þorpsins í nútímasamfélagi, þeim áskorunum sem fjölskyldur standa frammi fyrir í dag og mikilvægi þess að skapa staði þar sem einstaklingar geta hist, tengst og byggt upp samhug innan sam...
#3 Samfélagsleg áhrif skjánotkunar 24.11.2024 1:12:58
Í þessum þætti fáum við til okkar frábæran gest, hana Önnu Claessen. Anna er margreyndur markþjálfi, einkaþjálfari, fyrirlesari og skemmtikraftur, með sérþekkingu á viðfangsefnum eins og streitu, kulnun og sjálfsrækt. Við ræðum áhrif skjánotkunar á andlega og líkamlega heilsu, tengsl stafræns áreitis við streitu og kulnun, og hvernig við sem einstaklingar og samfélag getum tekist á við þessar ásko...
#2 Að alast upp á Mars 17.11.2024 42:57
Anna og Kristín fara í saumana á fjórum lykilleiðum sem Jonathan Haidt leggur til til að takast á við skjánotkun barna og skoða hvernig við sem samfélag getum innleitt þær í framkvæmd. Þær ræða einnig hlutverk frjáls leiks í þroska barna, mikilvægi þess að efla ábyrgð þeirra og hvernig öryggi barna getur samræmst sjálfstæði þeirra í nútíma samfélagi.
#1 Skjánotkun barna og unglinga 10.11.2024 37:10
Anna og Kristín ræða stöðu foreldra og barna í tengslum við skjátíma barna og þau samfélagslegu áhrif sem honum fylgja. Þær fara yfir helstu áskoranirnar sem blasa við, hvernig við lentum í þessari stöðu og hvað hægt er að gera til að bæta ástandið.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.