RÚV Hlaðvörp
Krakkaheimskviður
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar. Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir Ritstjórn: Birta Björnsdóttir, Karitas M. Bjarkadóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Súkkulaðiskortur og súkkulaðiát á páskum 17.04.2025 15:01
Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas hinn svokallaða súkkulaðiskort. Hvaða áhrif hefur hann á páskana og hvers vegna borðum við súkkulaðiegg á páskadag? Forstjóri Nóa Siríus, Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, útskýrir hvernig framleiðsla páskaeggja virkar og hvað er svona merkilegt við íslensk páskaegg. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hvað eru tollar og tollastríð? 12.04.2025 14:59
Í þessum þætti Krakkaheimskviða kafar Karitas ofan í stærstu fréttir vikunnar: Tolla Trump. Henni til aðstoðar eru fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson og fréttamaðurinn Birta Björnsdóttir. Hvað eru tollar, af hverju eru allir að tala um þá og hvaða áhrif hefur þetta nýjasta útspil Bandaríkjaforseta? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Kosningar í hinum ýmsu löndum 05.04.2025 16:21
Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas kosningar í fjórum löndum, Þýskalandi, Grænlandi, Kanada og Noregi, með aðstoð fréttamannanna Odds Þórðarsonar og Hallgríms Indriðasonar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Uppruni eftirnafna og staða þeirra í Færeyjum 29.03.2025 16:33
Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas eftirnöfn. Af hverju eru Færeyingar í auknum mæli að breyta eftirnöfnum sínum og hvernig virka eftirnöfn almennt? Í þætti dagsins skoðum við mismunandi nafnahefðir milli landa og hvernig þær breytast í tímans rás. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Asil og staðan í Gaza 22.03.2025 17:07
Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas hvað er að gerast á Gaza og hvernig er að vera barn þar? Við kynnumst líka hinni 18 ára Asil sem er frá þessu stríðshrjáða svæði en býr nú á Íslandi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Einbirnisstefnan í Kína 15.03.2025 14:12
Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas fólksfækkun í Kína. Lengi vel mátti bara eignast eitt barn þar í landi en nú hafa stjórnvöld þurft að breyta því. Af hverju er það? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Heimsmeistaramótið í skíðagöngu 08.03.2025 14:40
Í þessum þætti Krakkaheimskviða fer Karitas á heimsmeistaramótið í skíðagöngu í Þrándheimi. Með henni í þættinum í dag er íþróttafréttamaðurinn Gunnar Birgisson, sem er ansi fróður um íþróttina, enda var hann sjálfur í landsliðinu í skíðagöngu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Trump um Grænland og meira NATO 01.03.2025 17:09
Í þessum þætti Krakkaheimskviða svarar Karitas seinni tveimur spurningunum frá 6. bekk í Brekkuskóla sem að þessu sinni velta fyrir sér hugmyndum Trumps um að kaupa Grænland og framtíð NATO. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Flugslysið í Washington 22.02.2025 12:45
Í þessum þætti Krakkaheimskviða svarar Karitas fyrstu hlustendaspurningunni. Hún kemur frá 6. bekk í Brekkuskóla sem vill vita hvað gerðist þegar farþegaþota og herþyrla skullu saman í Washington í lok janúar með þeim afleiðingum að 67 manns létust. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Þjóðhátíðardagur Sama og uppruni Valentínusardagsins 15.02.2025 15:18
Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur Sama, þjóðflokkinn sem byggir norður-Noreg, Svíþjóð, Finnland og Rússland en þjóðhátíðardagur Sama var 6. febrúar. Í seinni hluta þáttarins höldum við okkur við dagatalið og skoðum uppruna Valentínusardagsins, sem var á föstudaginn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Verðlaunahátíðir og leðurblökur 08.02.2025 15:06
Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðuðm við verðlaunahátíðir í Bandaríkjunum með fréttakonunni Ingibjörgu Söru Guðmundsdóttur. Síðustu helgi fór ein sú virtasta fram, tónlistarverðlaunin Grammy, þar sem Íslendingurinn Víkingur Heiðar Ólafsson fékk fyrstu verðlaunin sín. Í seinni hluta þáttarins kynnum við okkur leðurblökur og heyrum frá dýraáhugakonunni Veru Illugadóttur. Hosted on Acast. See acas...
Umhverfisáhrif gervigreindar og HM í handbolta 01.02.2025 15:36
Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur umhverfisáhrif gervigreindaforrita eins og ChatGPT með aðstoð Ester Öld H. Bragadóttur sem er sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun. Í seinni hluta þáttarins skoðum við aðeins HM í handbolta og skyggnumst inn í heim handboltalýsandans með Einar Erni Jónssyni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Góðgerðarhetjan Joshua Williams og réttindabarátta hinsegin fólks 25.01.2025 16:18
Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnumst við góðgerðarhetjunni Joshua Williams, einni af upphafsröddunum í hverjum þætti. Hann hefur unnið við góðgerðarmál síðan hann var fjögurra ára! Í seinni hluta þáttarins ræðir Karitas við Hrefnu Þórarinsdóttur sem sér um ungmennastaf 10-12 ára í hinsegin félagsmiðstöðinni. Þær ræða baráttu hinsegin fólks og bakslag, en líka sigra eins og í Taílandi þar sem l...
Staðan í Sýrlandi og kínverksi áhrifavaldurinn Li Ziqi 18.01.2025 15:36
Í þessum þætti Krakkaheimskviður tekur Karitas stöðuna í Sýrlandi með aðstoð fréttamannsins Ólafar Ragnarsdóttur. Í seinni hluta þáttarins liggur leiðin til Kína þar sem einn ástæslasti áhrifavaldur landsins sneri nýlega aftur eftir þriggja ára hlé. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Trump, Carter og Idol-stjarnan frá Gaza 11.01.2025 16:44
Í þessum þætti Krakkaheimskviða eru tveir bandaríkjaforsetar til umfjöllunar, þeir Donald Trump og Jimmy Carter. Fréttamaðurinn Oddur Þórðarson ræðir við Karitas um þá en í seinni hluta þáttarins kynnumst við Mohammed Asaaf, Idol-stjörninni frá Gaza. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
2000-vandinn og Ljóni aðstoðarborgarstjóri 04.01.2025 15:07
Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur hinn svokallaða 2000-vanda með aðstoð fréttamannsins Hauks Hólm og heyrum af ferfætta aðstoðarborgarstjóranum Ljóna í Lviv í Úkraínu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hvað er framundan 2025 og áramót um allan heim 28.12.2024 16:58
Í þessum þætti Krakkaheimskviða veltir Karitas hvað verður í fréttum á nýju ári með aðstoð fréttamannsins Boga Ágústssonar. Í síðari hluta þáttarins skoðum við áramót um allan heim, sem oft eru ekki á sama tíma og hjá okkur hérna á Íslandi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Alls konar jól og bannaðar bækur 21.12.2024 16:43
Í þessum þætti Krakkaheimskviða fær Karitas til sín þau Ölmu, Elísabetu, Livio og Þórdísi sem öll eiga eitt foreldri frá öðru landi og segja okkur frá ólíkum jólahefðum. Í seinni hluta þáttarins eru bannaðar bækur til umfjöllunar og Embla Bachmann, rithöfundur og dagskrárgerðarkona þáttanna Hvað ertu að lesa? ræðir um þær. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Formúla 1 og íþróttaþvætti Sáda 14.12.2024 15:04
Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðum við kappakstursíþróttina Formúlu 1, en keppnistímabil ársins kláraðist fyrir viku. Birgir Þór Harðarson, fréttamaður, þekkir íþróttina vel. Við förum svo til Sádi-Arabíu þangað sem margt af frægasta íþróttafólki heims hefur spilað undanfarin ár og skoðum ástæðurnar fyrir því með aðstoð Björns Bergs Gunnarssonar, fjármálaráðgjafa og sérfræðings í fjármálum í í...
Stolnu börnin frá Úkraínu og hnefaleikar á Grænlandi 07.12.2024 15:29
Í þessum þætti Krakkaheimskviða heyrum við frá fréttamanninum Dagnýju Huldu Erlendsdóttur sem segir okkur frá börnum sem rússneskir hermenn hafa numið á brott frá Úkraínu og hnefaleikaklúbbum í Grænlandi sem hjálpa andlegri heilsu ungmenna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Söngleikjamyndin Wicked og geirfuglinn 30.11.2024 14:46
Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur söngleikjamyndina Wicked sem var frumsýnd í síðustu viku við mikinn fögnuð aðdáenda sem margir hverjir höfðu beðið í 20 ár eftir myndinni. Kolbrún María Másdóttir, krakkafréttamaður, segir okkur meira frá Wicked. Hún er mikill söngleikjaaðdáandi og talar fyrir Nessu Rose í íslenskri talsetningu myndarinnar. Í seinni hluta þáttarins skoðum við hinn ú...
Norska konungsfjölskyldan og Þrándheimur 23.11.2024 16:11
Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við í Noregi og kynnumst norsku konungsfjölskyldunni sem hefur verið mikið í fréttum. Í síðari hluta þáttarins einbeitum við okkur að borginni Þrándheimi, tengslum hennar við Ísland og kíkjum á safn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Malala Yousafzai og samband Ástralíu og Bretakonungs 16.11.2024 16:23
Í þessum þætti Krakkaheimskviða segir Ingibjörg Fríða Helgadóttur okkur frá Malölu Yousafzai, einni af röddunum í upphafi allra Krakkaheimskviðuþátta. Í seinni hluta þáttarins ræðir Karitas við fréttamanninn Önnu Lilju Þórisdóttur um bresku konungsfjölskylduna og samband þeirra við Ástralíu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Trump aftur forseti Bandaríkjanna og fimm hundruð ára gamalt hálsmen 09.11.2024 15:32
Í þessum þætti Krakkaheimskviða ræðir Karitas við fréttamanninn Birtu Björnsdóttur um úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum, sem fóru fram í vikunni. Í seinni hluta þáttarins skoðum við fimm hundruð ára gamal hálsmen sem fannst í Bretlandi árið 2019 og tengist merkilegri konungsfjölskyldu þar í landi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hvað er að gerast í Venesúela og heimsyfirráð One Direction 02.11.2024 16:32
Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas hvað er að gerast í Venesúela með aðstoð fréttamannsins Róberts Jóhannssonar. Seinni hluti þáttarins er tileinkaður hljómsveitinni One Direction, en fréttir af andláti eins meðlims sveitarinnar, Liams Payne, bárust fyrir hálfum mánuði. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.