RÚV
Konsert
Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Nick Cave & the Bad Seeds í París 17. nóvember 2024 23.01.2025 1:57:25
Við ætlum að fara til Parísar í kvöld á tónleika með Nick Cave og Bad Seeds og heyra upptöku frá Franska útvarpinu (France Inter) en tónleikarnir fóru fram í Accord Arena í París 17. Nóvember sl. ***Cave og Bad Seeds hafa verið að fylgja eftir nýjustu plötunni sinni Wild God sem er 18. plata Cave með Bad Seeds og kom út 30 ágúst sl.. Platan hefur selst vel – fór í fyrsta sæti vinsældalista í Belgí...
David Bowie á sviði 1978 09.01.2025 1:55:10
Það er 9. Janúar í dag sem er dagurinn milli fæðingardags og dánardags David Bowie. Og í tilefni dagsins förum við á tónleika með David Bowie vorið 1978 þegar Bowie var 31 árs, -á hátindi ferils síns myndu sumir segja. Bowie fæddist 1947 og lést 69 ára að aldri árið 2016.
GDRN, Hipsumhaps og Flott 02.01.2025 1:54:45
Í fyrsta Konsert ársins heyrum við í Hipsumhaps og GDRN á Aldrei fór ég suður 2024 og svo í hljómsveitinni Flott á Iceland Airwaves 2024.
Soldið jólalegt með Megasi og Sauðrekunum, Baggalúti og Bogomil Font og Stórsveit Reykjavíkur 19.12.2024 1:53:44
Í Konsert vikunnar rifjum við upp brot frá nokkrum jólatónleikum úr safni Rásar 2. Við komum við í Háskólabíói laugardagskvöldið 7. desember 2013 á tónleikum Baggalúts. 13 desember sama ár með Megasi og Sauðrekunum, og í ráðhúsi Reykjavíkur í desember 2006 með Stórsveit Reykjavíkur og Bogomil Font.
Ragnheiður Gröndal 30 ára í Norðurljósum í desember 2014 12.12.2024 1:53:07
Ragnheiður Gröndal er í aðalhlutverki í Konsert vikunnar. Hún hefur lengi verið ein ástsælasta söngkona, eða tónlistarkona okkar Íslendinga núna í meira en 20 ár. Þegar hún var þrítug fyrir áratug hélt hún upp á afmælið sitt með tónleikum í Norðurljósum í Hörpu og við ætlum að útvarpa þeim í Konsert í kvöld. Hún gerði óformlega könnun á Facbook og spurði vina sína og aðdáendur hvað þeir vildu heyr...
Las Vegas christmas show 2024 05.12.2024 1:54:56
Upptaka frá Las Vegas christmas show í Gamla bíó 1. desember 2024
KK & Maggi Eiríks í Stúdíó 12 2003 og Mannakorn á Bræðslunni 2013 28.11.2024 1:52:53
Þakkarorða íslenskrar tónlistar verður afhent í fyrsta skipti á sunnudaginn (1. desember) á degi íslenskrar tónlistar og fyrsti orðuhafinn er Magnús Eiríksson. Þessi verðlaun eru heiðursverðlaun nýstofnaðs Tónlistarráðs og er þeim ætlað að heiðra starf og sköpun þess listamanns er fyrir valinu verður og um leið bjóða landsmönnum upp á einstaka tónlistarveislu í Eldborg í Hörpu á sunnudaginn þar se...
Skip Marley á Rototom 2024 og Hjálmar á Akranesi 2019 21.11.2024 1:55:53
Í Konsert vikunnar heyrum við í Skip Marley á Rototom Sunsplash Reggae festival í Benicassim á Spáni í sumar, og svo Hjálmum í Bíóhöllinni á Akranesi í júní 2019. Skip Marley er barnabarn Bob´s Marley, - sonur Cedellu Marley sem er dóttir Bob´s og Ritu Marley. Skip er að gera það nokkuð gott, hann er t.d. með rúma milljón mánaðarlega hlustendur á Spotify og hefur tvisvar verið tilnefndur til Gramm...
U2 1993 - Úlfur Úlfur IA 2024 - The Cure 1986 14.11.2024 1:54:17
Í Konsert í kvöld ætlum við að fara á þrjá staði – förum aftur til ársins 1986 og á Glastonbury hátíðina Það árið og heyrum upptökur með hljómsveitinni The Cure, en Cure er á toppnum á breska vinsældalistanum þessa vikuna með nýju plötuna sína; Songs of a lost World sem er fyrsta platan þeirra í 16 ár og besta platan þeirra í meira en 20 ár segja sumir. Iceland Airwaves fór fram um síðustu helgi –...
Kris Kristofferson í Stokkhólmi 2016 og Árný Margrét á Airwaves 2023 03.10.2024 1:57:37
Í kvöld förum við á tónleika með Kris Kristofferson í Gothenburg Concert Hall árið 2016 og svo á Iceland Airwaves í fyrra og heyrum í Árnýju Margréti. Kris Kristoffersson lést á heimili sínu á sunnudaginn – 88 ára að aldri. Hann var lagasmiður, söngvari, leikari og allt mögulegt, litríkur karakter sem átti að baki langan og gæfuríkan feril. Hann spilaði þrisvar á Íslandi. Fyrst kom hann 1992 og sp...
50 ára afmæli Stax í Royal Albert Hall 29.02.2024 1:55:39
Í Konsert vikunnar förum við á tónleika sem BBC stóð fyrir í Royal Albert Hall 1. September 2018 í tilefni af 50 ár afmæli STAX hljómplötu-útgáfunnar í Memphis í Tennesse í henni Ameríku.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.