RÚV

Konsert

Music IS ↓ 37 Folgen

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.

Autor

RÚV

Kategorie

Music

Podcast-Website

www.ruv.is

Neueste Folge

6. Nov 2025

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

06.11.2025
30.10.2025
Lola Young á Way Out West - Starsailor með strengjum í Liverpool 23.10.2025
Hjálmar & Jimi Tenor IA 2012 - Úlfur Úlfur IA 2024 - Altın Gün Rock IA 2022 16.10.2025
Gildran í Hlégarði 2010 09.10.2025
Baraflokkurinn - David Bowie - Kaleo - Todmobile og gestir 02.10.2025

Í Konsert kvöldsins förum við á Eurosonic Festival í Hollandi og heyrum í Kaleo og hvernig þeir hljómuðu þar árið 2015, en það ár spiluðu 19 atriði frá Íslandi. Við förum líka á Glastonbury Festival árið 2000 og heyrum nokkur lög með David Bowie. Við endum á að heyra nokkrar upptökur með Todmobile og vinur þeirra eins og Tony Hadley (Spandau Ballet), Midge Ure (Ultravox) og Jon Anderson (Yes). En...

Pétur Ben á Reykjavík Folk Festival og Ann Wilson 25.09.2025

Í Konsert vikunnar byrjum við á að heyra tónleika Péturs Ben á Reykjavík folk festival í Iðnó í sumar - en hátíðin var endurvakin með góðum árangri í sumar. Pétur spilaði sín eigin lög í bland við lög eftir Prince og fleiri. Í seinni hlutanum hlustum við á Ann Wilson úr hljómsveitinin Heart þar sem hún flytur sín eigin lög en líka lög úr smiðju Heart og lög eftir David Bowie og Led Zeppelin td.

Led Zeppelin og BB King á tónleikum 18.09.2025

Á fimmtudögum eru KONSERT-kvöld á Rás 2. Í Konsert bjóðum við upp á tónleikaupptökur héðan og þaðan og frá ýmsum tímum. Í Konsert kvöldsins heyrum við upptöku frá þýska ríkisútvarpinu í Bremen frá árinu 1968 með BB. King - í tilefni af því að 16. september voru 100 ár frá fæðingu meistarans sem hafði áhrif á fjölda annara gítarleikara sem á eftir honum komu - t.d. Eric Clapton, Keith Richards, Pet...

Karlsvaka 2025 og Radiohead 2003-2209 11.09.2025

Í Konsert vikunnar heyurm við brot af því besta frá Karlsvöku sem haldin var í Þorlákskirkju í Þorlákshöfn síðasta sunnudag á 75 ára afmælisdegi Karl. J. Sighvatssonar sem var fyrsti og fremsti Hammond-orgelleikari landsins. Kalli spilaði með Flowers, Trúbrot og Þurslaflokknum er fór síðar til orgelnáms í Vín og Salzburg í Austurríki, nam tónsmíðar í Boston og var organisti við kirkjur í Neskaupss...

Peter Gabriel á Womad 1982 og Lola Young á Way Out West 2025 04.09.2025

Í þessum þætti förum við á tónleika eins og alltaf- þetta er fyrsti Konsert þáttur haustsins. Við byrjum á að bjóða ykkur í ferðalag aftur til ársins 1982 á fyrstu WOMAD-tónlistarhátíðina sem haldin var í Somerset á Englandi. Þar var aðal maðurinn Peter Gabriel, tiltölulega nýhættur í hljómsveitinni Genesis og á barmi þess að festa sig í sessi sem einn áhrifamesti tónlistarmaður síns tíma. Eftir þ...

Bruce Springsteen í Manchester í maí 05.06.2025

Bruce Springsteen er á tónleikaferðalagi um Evrópu um þessar mundir með The E-street band. Hann byrjaði túrinn í Manchester 14. maí og hélt þrenna tónleika í Co-op Live höllinni í Manchester sem tekur rúmlega 20.000 manns í sæti. Þeir tónleikar vöktu athygli um allan heim vegna þess að hann var aðeins að punda á forsetann sinn – og forsetinn svaraði fyrir sig. Forsetinn sagði á Truth Social að þes...

Moses Hightower í Háskólabíó 2017 og Dire Straits í San Antonio 1985 22.05.2025

Í Konsert vikunnar ætlum við að hlusta á tvær flottar hljómsveitir: Heyrum tónleika með Dire Straits í San Antonio í Texas sem fóru fram árið 1985 þegar Dire Straits var að fylgja eftir metsöluplötunni Brothers in arms og var ein vinsælasta og stærsta hljómsveit heims. Og svo heyrum við brot frá útgáfutónleikum Moses Hightower í Háskólabíó í september 2017.

15.05.2025
08.05.2025
17.04.2025
10.04.2025
Nýdönsk á Bræðslunni 2016 og Jónas Sig og Milda Hjartað á Bræðslunni 2019 03.04.2025

Dagskrá Bræðslunnar á Borgarfirði Eystra í sumar var opinberuð núna í vikunni og miðasalan fór líka í gang og hún fór heldur betur í gang af krafti – enda dagskráin stórglæsileg. Þetta er 20 ára afmælisveisla, Á föstudeginum verða t.d. sérstakir tónleikar með Emiliönu Torrini sem er eiginleg upphafskona Bræðslunnar - hún var aðalnúmerið á fyrstu hátíðinni 2005 og spilaði líka 2006. En núna í Konse...

Egill Ólafsson 60 ára í Fríkirkjunni 9. febrúar 2013 27.03.2025

Það sem við bjóðum uppá í Konsert kvöldsins eru útgáfutónleikar Egils Ólafssonar sem fóru fram í Fríkirkjunni í Reykjavík daginn sem hann varð sextugur þann 9. Febrúar árið 2013 og tilefnið er skemmtilegt. Í fyrsta lagi var hann að gefa þessa tónleika út á vinyl í fyrsta sinn núna á dögunum í takmörkuðu upplagi. Og svo í gær tóku þau hjónin Egill og Tinna Gunlaugsdóttir á móti heiðursverðlaunum Ís...

Ylja, Egill Ólafsson og GDRN & Magnús Jóhann á þægilegum nótum 20.03.2025

Konsert vikunnar er á þægilegum og næs nótum. Við byrjum á að heyra í Ylju á Reykjavík Folk festival á Kex-hostel 2013 í tilefni af því að hátíðin er endurvakin núna í byrjun maí. Þá heyrum við í Agli Ólafs og Finnsk-Íslenska Vetrardandalaginu í std. 12 árið 2013 – þegar Egill var að senda frá sér plötuna Vetur, en útgáfutónleikar þeirrar plötu voru að koma út á vinyl. Að endingu förum við á HEIMA...

Supersport, SúEllen, Tony Allen og The Strokes 13.03.2025

Í Konsert í kvöld byrjum við á að heyra ú Supersport á Eurosonic festival í janúar – Supersport spilaði á rokkklúbbnum Vera sem Nirvana, Joy Divison, U2, Mínus og Sólstafir hafa spilað líka. Þá förum við á Bræðsluna 2014 og hlustum á SúEllen sem er að spila á Græna Hattinum á laugardaginn – fyrstu tónleikana í 6 ár. Þá förum við á Hróarskeldu og hlustum á afróbít með Tony Allen og hljómsveit, og e...

Reykjavík Folk Festival 2013 06.03.2025

Reykjavík Folk Festival snýr aftur dagana 1.- 3. maí 2025 í tilefni af því að 15 ár eru liðin frá fyrstu hátíðinni. Hátíðin er sett upp að alþjóðlegri fyrirmynd þar sem spilagleðin er í forgrunni og órafmögnuð hljóðfæri eru í aðalhlutverki. Fyrsta hátíðin fór fram með þetta að leiðarljósi árið 2010. Forsvarsmaður, hugmyndasmiður, helsti hönnuður og fyrsti framkvæmdastjóri Reykjavik Folk Festival v...

Hildur Vala - Emmsjé Gauti og Soffía Björg og Pétur Ben á HEIMA 27.02.2025

Tónlistarhátíðin HEIMA er árlegur viðburður í Hafnarfirði og fer alltaf fram síðasta vetrardag. Hún fer þannig fram að fólk kaupir miða á TIX – fær svo armband afhent á hátíðardag og prentaða dagskrá með tímasetning og staðsetningum og fer svo þangað sem það vill fara – til að hlusta á það sem það vill hlusta á. Rás 2 hefur nokkrum sinum mætt á HEIMA og tekið upp og við ætlum að hlusta á 3 tóndæmi...

Iggy Pop á Montreux 2023 20.02.2025

Við ætlum að hlusta á afa pönksins í Konsert vikunnar – Iggy Pop! Iggy sem var í Stooges – Iggy sem var með Bowie í Berlín – Iggy sem er fyrirmynd Utangarðsmanna-Bubba – og fyrirmynd svo marga annara síðan. Við ætlum að hlusta á tónleika sem fóru fram á Montreux jazz Festival sumarið 2023. En hann heitir James Newell Osterberg jr. og er fæddur 21. Apríl árið 1947 – í bænum Muskegion í Michigan í B...

HAM og Jónas Sig á Airwaves 2011 13.02.2025

HAM og Jónas Sig á Airwaves 2011

Cat Power syngur Dylan í Royal Albert hall 06.02.2025

Það er heilmikið Bob Dylan æði í gangi um þessar mundir í tenglsum við kvimyndina um hann – A complete unknown sem er verið að sýna í bíó núna um allan heim og er tilnefnd til 8 Oscarsverðlauna. Við ætlum að hlusta á Dylan í kvöld í Konsert (óbeint) Við ætlum að hlusta á bandarísku tónlistarkonuna Cat Power syngja Dylan. Þetta eru tónleikar sem hún hélt 5. nóvember 2022 í Royal Albert hall í Londo...

Höre den Podcast Konsert in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet