Silja Úlfars

Klefinn með Silju Úlfars

Sports IS ↓ 70 episodes

Í klefanum þá skoðum við hvernig við náum árangri og komumst nær markmiðunum okkar.  Í Klefanum þá talar allt íþróttafólk sama tungumálið!  https://klefinn.is/ https://www.instagram.com/klefinn.is/

Author

Silja Úlfars

Category

Sports

Podcast website

klefinn.is

Latest episode

Oct 31, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Jón Halldórsson - eigandi KVAN og formaður Vals í handbolta 18.06.2024

Jón Halldórsson fór yfir víðan völl þegar hann ræddi leiðtoga, liðsheild, menningu innan liða, Evrópumeistara ævintýri Valsar og fleira. Jón er einn af eigendum KVAN sem er mennta- og þjálfunarfyrirtæki. Einnig er hann formaður handknattleiksdeildar Vals sem átti stórt tímabil bæði hjá konunum og körlunum. Jón ræddi hvernig menningin var sköpuð innan liðsins, hvernig þeir fjármögnuðu Evrópukeppnin...

Hafdís Sigurðardóttir - hjólreiðakona Íslands 11.06.2024

Hafdís er margfaldur Íslands- og bikarmeistari, en hún keppir bæði í götuhjólreiðum, tímatöku og gravel. Hafdís keppir fyrir Íslands hönd og hefur farið á Evrópumeistaramót sem og Heimsmeistaramót. Hafdís fer með okkur yfir ferilinn, hvað þarf til að ná árangri í hjólreiðum hvernig er að æfa hjólreiðar á Íslandi, einnig þegar það snjóar ennþá í júní. Þá ræðir hún mótin hér heima, samkeppnina og st...

Helena Sverrisdóttir - fyrrum atvinnukona í körfubolta 04.06.2024

Helena er ein farsælasta körfuboltakona Íslands. Helena á nánast öll met sem hægt er að setja í körfuboltanum, en hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik 12 ára og fyrsta landsleik 14 ára.  Helena ræðir ferilinn, hún fór í Texas Christian University og náði frábærum árangri þar, en í haust verður hún tekin inn í frægðarhöll TCU. Helena spilaði sem atvinnukona í Slóvakíu, Ungverjalandi og Póllandi,...

EM í Utanvegahlaupum 28.05.2024

Evrópumótið í utanvegahlaupum fer fram í Annecy, Frakklandi dagana 30. maí - 2. júní.  Hlaupið er um 60km og um 3900 m hækkun, en hlaupaleiðin er í fjöllunum við Annecy vatn.  Við heyrðu í Friðleifi Friðleifssyni liðstjóra og formanns langhlauparanefndar um Evrópumótið og undirbúninginn. Þá heyrðum við einnig í fimm af átta hlaupurum um undirbúninginn fram að hlaupi, taktík, búnað og fleira.  Þátt...

Arnar Freyr Theodórsson - Umboðsmaður 21.05.2024

Arnar Freyr Theodórsson er umboðsmaður handboltamanna. Sjálfur lék Arnar handbolta lengi en fór út í umboðsmennsku þegar hann missti af tækifæri sem hann vildi ekki að aðrir myndu missa af.  Arnar Freyr segir okkur frá heimi umboðsmanna og hvað það felur í sér, en sjálfur segist hann vera í þjónustustarfi sem snýst mikið um samskipti. Þá ræðir Arnar einnig hvaða eiginleika hann vill sjá hjá leikmö...

Elísabet Margeirsdóttir - Ofurhlaupari 14.05.2024

Elísabet Margeirsdóttir ofurhlaupari var fyrsta konan í heiminum til að klára 400km Ultra-Gobi maraþonið undir 100 klukkustundum. Elísabet fer yfir feril sinn, hvernig hún byrjaði að hlaupa yfir í að vera í eigenda hóps Náttúruhlaupa og hvað starfið er fjölbreytt þar. Elísabet hefur 14 sinnum farið í Laugavegshlaupið, hún segir aðeins frá reynslu sinni úr hlaupinu. Bakgarðurinn hófst 4. maí og lau...

Gréta Salóme - Söngkona, lagahöfundur og fiðluleikari 07.05.2024

Gréta Salóme er þekkt fyrir hæfileika sína í tónlist, en til að ná árangri á stóra sviðinu þá þarftu að þora að dreyma, eltast við markmiðin þín og vera skipulögð. Gréta segir okkur frá hvernig hún setur sér markmið, hún segir okkur frá fjórum aðferðum sem hún notar til að ná árangri. Þá ræðir hún einnig hvernig er að vera tónlistarkona, hvernig hún byrjaði að vinna hjá Disney og áskorunum þar. Þá...

Ólympíuhópur staðan 3. maí 03.05.2024

Ólympíuleikarnir í París hefjast 26. júlí, en aðeins einn íþróttamaður hefur náð lágmörkum, en það er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee. Í Ólympíuhóp ÍSÍ eru 13 íþróttamenn, en það eru þau sem eru að stefna á Ólympíuleikana. Í þessum öðrum þætti þá ræddi Silja við Hákon Þór Svavarsson - haglabyssuskotfimi, Erna Sóley - kúluvarp, Valgarð Reinhards - áhaldafimleikar, Ingibjörg Erla - Taekwondo, Hilmar...

Birgir Leifur Hafþórsson - fyrrum atvinnu kylfingur 30.04.2024

Birgir Leifur Hafþórsson hefur sjö sinnum verið Íslandsmeistari í golfi, þá hélt hann þátttökurétti á Evrópsku mótaröðinni og sigraði áskorendamótaröð Evrópu. Birgir Leifur fer yfir hvernig hann byrjaði og hvað hann hefur lært af sínum ferli. Þá ræðir hann hugarþjálfun og hvernig hann sá fyrir sér hringina, hvaða triggera hann notaði til að komast aftur í gírinn, hvernig hann æfði og hvernig var a...

Ólympíuhópur staðan 26. apríl 26.04.2024

Ólympíuleikarnir í París hefjast 26. júlí, en aðeins einn íþróttamaður hefur náð lágmörkum, en það er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee. Í Ólympíuhóp ÍSÍ eru 13 íþróttamenn, en það eru þau sem eru að stefna á Ólympíuleikana. Í þessum þætti þá ræddi Silja við Baldvin hlaupara , Thelmu fimleikakonu , Guðlaugu Eddu þríþrautakonu og Guðna Val kringlukastara um hvernig gengur að komast á Ólympíuleikana,...

Logi Geirsson - Silfurverðlaunahafi á Ólympíuleikunum 23.04.2024

Logi Geirsson er handknattleiksmaður uppalinn í FH, lék með Lemgo í 6 ár, var í silfurliðinu á á Ólympíuleikunum 2008 í Peking og bronz liðinu á EM 2010.  Logi ræðir  hvernig hann setti sér markmið og náði þeim, þá ræðir hann hvað hugarfarið skiptir miklu máli hjá íþróttafólki og visualization, hann segir frá því þegar hann tók útihlaupin upp í rúmi. Hvernig á að tækla meiðsli, hvað sjálfstraust e...

Kári Steinn Karlsson - hlaupari og Ólympíufari 16.04.2024

Kári Steinn Karlsson keppti í Maraþoni á Ólympíuleikunum 2012 í London, en það var hans þriðja maraþon frá upphafi. Hann á 17 virk Íslandsmet ennþá í dag, en hefur aldrei orðið Íslandsmeistari í maraþoni.  Kári Steinn er aðeins byrjaður að hlaupa aftur og setti meðal annars brautarmet í hlaupi 2023.  Kári fór í háskólann Berkeley í California, en þar var hlaupamenningin öðruvísi. Þá ræðir hann mar...

Tinna Jökulsdóttir - Sjúkraþjálfari - Fókus Þjálfun 09.04.2024

Tinna Jökulsdóttir er sjúkraþjálfari í Sporthúsinu og eigandi Fókus þjálfunar. Tinna kemur úr handboltanum og er meðal annars sjúkraþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta.  Hvað er fókus þjálfun ? Þetta eru æfingar sem snúa að meiðslafyrirbyggjandi þáttum ásamt því að auka við færni hvers og eins leikmanns. Lögð er áhersla á liðkun, hreyfiteygjur, líkamsbeytingu, snerpu og samhæfingar þj...

Helgi Valur Pálsson - Íþróttasálfræðiráðgjafi 01.04.2024

Helgi Valur Pálsson er íþróttasálfræðiráðgjafi og deilir með okkur leiðum til að fá sem mest út úr íþróttunum (og lífinu). Helgi Valur æfði knattspyrnu á sínum yngri árum en glímdi við meiðsli sem hafði áhrif á hans feril. Helgi Valur ákvað að snúa sér að íþróttasálfræði þar sem hann vildi aðstoðað annað íþróttafólk í sínum meiðslum.  Helgi Valur fer um víðan völl og talar meðal annars um sjálfstr...

Dwight Phillips - 2/2 - World- and Olympic Champion - the Coach 28.03.2024

Dwight Phillips er fyrrum Ólympíu- og Heimsmeistari í langstökki.  Dwight sigraði Ólympíuleikana 2024 í Athens, þá hefur hann fimm sinnum orðið Heimsmeistari í langstökki. Þetta er seinni þátturinn af tveimur, en í fyrri þættinum ræddu þau feril hans, öll stórmótin, sigrana og allt sem fylgir því.  Dwight ræðir hvað einkennir góðan þjálfara, hvernig hann þjálfar afreksfólkið og unga íþróttafólkið,...

Dwight Phillips - World and Olympic Champion - the Athlete 1/2 26.03.2024

Dwight Phillips er fyrrum Ólympíu- og Heimsmeistari í langstökki.  Dwight sigraði Ólympíuleikana 2024 í Athens, þá hefur hann fimm sinnum orðið Heimsmeistari í langstökki. Við fórum yfir ferilinn hans, ræddum stórmótin, hvað gekk vel og hvað gekk illa, hann segir frá mistökunum sem hann gerði og fer yfir það hvernig það er að keppa á stærstu sviðunum. Þá ræðir hann einnig hvernig hann hafði trú á...

Sólveig Þórarinsdóttir - Sjúkraþjálfari 19.03.2024

Sólveig Þórarinsdóttir er sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun Íslands. Sólveig æfði knattspyrnu á sínum yngri árum en meiðsli settu strik í hennar feril og nú brennur hún fyrir því að fyrirbyggja meiðsli ungs íþróttafólks. Sólveig talar um rannsóknir á konum og körlum í knattspyrnum (p.s. prósentan er sjokkerandi), en konur eru ekki litlir karlar. Hún talar um FITTOPLAY.ORG þar sem hægt er að finna f...

Arnar Gauti “Lil Curly” - Áhrifavaldur og eigandi Happy Hydrate 12.03.2024

Arnar "Lil Curly" er þekktur á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem hann hefur yfir milljón fylgjenda. Í dag starfar hann sem “ vítamín sölumaður ” eins og hann orðar það, ásamt því að sinna fleiri verkefnum.  Arnar ræðir um áhrifavalda heiminn og segir að núna sé besti tíminn til að vera áhrifavaldur á TikTok. Hann ræðir “ tips and tricks ” á samfélagsmiðlunum og hvað eykur líkurnar á samst...

Elísa Viðarsdóttir - Næringarfræðingur og knattspyrnukona 05.03.2024

Elísa Viðarsdóttir hefur leikið knattspyrnu frá unga aldri og á yfir 50 landsleiki meðal annars á stórmótum. Elísa starfar sem næringarfræðingur hjá Heil Heilsumiðstöð.  Elísa ræðir um næringu íþróttafólks, hvernig er hægt að skipuleggja sig og skapa sér betri rútínur þegar kemur að næringu í kringum æfingar og keppnir. Elísa fer yfir það hvað íþróttafólk getur gert betur þegar kemur að næringu. E...

Ragga Ragnars - Ólympíufari og leikkona 28.02.2024

Ragnheiður Ragnars hefur farið tvisvar sinnum á Ólympíuleikana, árin 2004 og 2008. Eftir að hafa upplifað Ólympíudrauminn og eignast barn þá sneri hún sér að næsta draum, að gerast leikkona. Uppáhalds þættirnir hennar voru the Vikings og hún setti stefnuna þangað, nokkrum árum síðar var hún Gunnhild í the Vikings frá 2018-2020. Ragga segir okkur frá verkefnunum sem hún er að vinna í, hvað hún teku...

Listen to the Klefinn með Silju Úlfars podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.