Silja Úlfars

Klefinn með Silju Úlfars

Sports IS ↓ 70 episodes

Í klefanum þá skoðum við hvernig við náum árangri og komumst nær markmiðunum okkar.  Í Klefanum þá talar allt íþróttafólk sama tungumálið!  https://klefinn.is/ https://www.instagram.com/klefinn.is/

Author

Silja Úlfars

Category

Sports

Podcast website

klefinn.is

Latest episode

Oct 31, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Elísabet Gunnarsdóttir - Knattspyrnuþjálfari 07.01.2025

Elísabet hefur verið aðalþjálfari knattspyrnuliðs í 30 ár, í 15 ár stýrði hún liði Kristianstads í sænsku úrvalsdeildinni með frábærum árangri. Hún hefur tvisvar sinnum verið útnefndur þjálfari ársins hjá sænsku úrvalsdeildinni og hefur meðal annars hlotið Fálkaorðuna fyrir sín störf í þágu kvenna knattspyrnu. 2023 hætti hún hjá Kristianstad til að róa á önnur mið og við bíðum spennt að sjá hvað h...

Eygló Fanndal Sturludóttir - Ólympískar lyftingar 30.12.2024

Eygló Fanndal Sturludóttir er 23 ára læknanemi og ein sú besta í Ólympískum Lyftingum í -71 kg flokki. Í ár hefur Eygló sannað sig sem eitt af framtíðarstjörnum í Ólympískum lyftingum, hún varð Norðurlandameistari, Íslandsmeistari, Evrópumeistari U23 og í 4rða sæti á Heimsmeistaramótinu núna í desember. Þá var hún hársbreidd frá því að komast inn á Ólympíuleikana og ræðir um áætlanir hennar fram a...

Guðbjörg Gunnarsdóttir - Markmannsþjálfari sænska knattspyrnusambandsins 23.12.2024

Guðbjörg Gunnarsdóttir er fyrrum markvörður sem lék með öllum yngri landsliðum Íslands ásamt A landsliði Íslands, yfir 100 landsleiki. Þá var hún atvinnukona frá 2009-2022 þar sem hún spilaði með 6 erlendum liðum í Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi. Í dag starfar hún sem markmannsþjálfari hjá yngri landsliðum sænska knattspyrnusambandsins, ásamt því að halda í fyrirlestra fyrir sænska sambandið sem sn...

Snorri Steinn Guðjónsson - Landsliðsþjálfari og fyrrum leikmaður 17.12.2024

Snorri Steinn Guðjónsson er landsliðsþjálfari íslenska karla landsliðsins í handbolta sem undirbýr sig nú fyrir Heimsmeistaramótið sem fer fram í janúar. Snorri Steinn spilaði 257 leiki fyrir íslenska landsliðið, þá var hann einnig atvinnumaður í Danmörku, Þýskalandi og Frakklandi.  Snorri ræðir landsliðsþjálfara starfið, aðdraganda Heimsmeistaramótsins og hvernig rútínan þeirra er úti. Snorri ræð...

XB - Ásmundur Einar Daðason 14.11.2024

Ásmundur Einar Daðason frá Framsókn kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.  Tímalína: (Ásmundur snertir þessi atriði út um allt í þættinum en tímalínan er gróf). 15:55 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar  33:45 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 40:15 - Brottfall og stytting menntaskóla 48...

XJ - Arnar Páll Gunnlaugsson 14.11.2024

Arnar Páll Gunnlaugsson frá Sósíalistaflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.  Tímalína: 4:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar  13:05 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 18:15 - Brottfall og stytting menntaskóla 24:10 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 25:50 - Veðmálastarfsemi...

XS - Hannes S. Jónsson 13.11.2024

Hannes S. Jónsson frá Samfylkingunni kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.  Tímalína: 12:00 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar  31:45 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 37:37 - Brottfall og stytting menntaskóla 45:30 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 50:50 - Veðmálastarfsemi á Ísland...

XP - Theodór Ingi Ólafsson 13.11.2024

Theodór Ingi Ólafsson frá Pírötum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.  Tímalína: 8:25 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar  17:10 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 21:25 - Brottfall og stytting menntaskóla 26:20 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 28:05 - Veðmálastarfsemi á Íslandi Þú...

XV - Bjarki Hjörleifsson 12.11.2024

Bjarki Hjörleifsson frá Vinstri Grænum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.  Tímalína:   5:10 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar  14:20 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 23:40 - Brottfall og stytting menntaskóla 31:14 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 35:52 - Veðmálastarfsemi á Ísl...

XC - Hanna Katrín Friðriksson 12.11.2024

Hanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Hér má sjá stefnu Viðreisnar um Íþróttir og tómstundir.  Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.  Tímalína: 7:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar  23:45 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 29:25 - Brottfall og stytting menntaskóla 37:50 - Þjóðarhöllin...

XD - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir 11.11.2024

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir frá Sjálfstæðisflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.  Tímalína:  5:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar  17:40 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 25:45 - Brottfall og stytting menntaskóla 32:00 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 34:20 - Veðmálas...

XM - Anton Sveinn McKee 11.11.2024

Anton Sveinn McKee frá Miðflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk.  Tímalína: 8:00 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar  20:30 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi 25:00 - Brottfall og stytting menntaskóla 27:50 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn 29:30 - Veðmálastarfsemi á Íslandi Þ...

Margrét Lára - Hvernig seturðu þér markmið? 31.10.2024

Margrét Lára starfar sem sálfræðingur og leggur áherslu á markmiðasetningu sem hún vinnur oft með íþróttafólki sínu.  Í þættinum fer Margrét Lára yfir aðferðir sem hún notar í markmiðasetningu með fólkinu sem hún vinnur með. Markmiðasetning snýst ekki bara um að ná árangri, heldur eykur það einnig sjálfstraustið, er ákveðin streituþjálfun og getur aðsoðað með frammistöðukvíða. Það er mikilvægt að...

Margrét Lára Viðarsdóttir - Knattspyrnulegend og sálfræðingur 29.10.2024

Margrét Lára Viðarsdóttir kíkti í Klefann og fór yfir ferilinn, en hún er ein af farsælustu knattspyrnukonum Íslands, hún starfar í dag sem sálfræðingur við Heil Heilsumiðstöð sem hún rekur ásamt fjölskyldu sinni.  Margrét Lára fer yfir ferilinn sinn sem hófst hjá ÍBV, hún fer aðeins yfir liðin sín, lærdóminn og meiðslin sem höfðu mikil áhrif á hana. Margrét lék með öllum landsliðum Íslands á sama...

Erlingur Richardsson - handboltaþjálfari 22.10.2024

Í þessum þætti ræðum við við Erling Richardsson íþróttafræðing og handboltaþjálfara Austuríska liðsins Mödling og akademíunnar í Vestmannaeyjum. Erlingur ræðir þjálfaraferilinn, reynslu sína að þjálfa í nýju umhverfi, að setja saman teymið sitt, velja fyrirliðann og að byggja upp skipulagða þjálfun fyrir ungt íþróttafólk.  Erlingur talar um mikilvægi þess að æfa fleiri íþróttir og seinka sérhæfing...

Arnar Sölvi - Íþróttanæringarfræðingur 15.10.2024

Arnar Sölvi ræðir næringur íþróttafólks, en hann lærði íþróttanæringarfræði í Liverpool og var nálægt því að landa starfi hjá Tottenham Hotspur sem íþróttafræðingur.  Arnar vinnur með íþróttafólki með því markmiði að bæta æfingar og keppnisárangur, ná betri endurheimt, bæta líkamssamsetningu, minnka meiðslahættu og fleira.  Margt kom fram í þættinum meðal annars:  Hvað á íþróttafólk að fókusa á í...

Lára Hafliðadóttir - Þjálfun kvenna og tíðahringurinn 08.10.2024

Lára Hafliðadóttir hefur verið að sérhæfa sig í þjálfun kvenna og er fitness þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víking. þá er hún einnig að hefja doktorsnám til að skoða fitness hjá konum í fótbolta enn frekar.  Lára ræðir hvernig á að þjálfa konur og hún útskýrir tíðahring kvenna og hvernig áhrif hann hefur á æfingar og líkamann og hvað gerist í hverjum fasa í tíðahringnum og að konur ættu að tra...

Brynjar Benediktsson - Soccer & Education USA 01.10.2024

Brynjar Benediktsson kom í Klefann og sagði okkur hvernig ungt íþróttafólk getur farið út til Bandaríkjanna á háskólastyrk. Brynjar er eigandi Soccer and Education USA ásamt konu sinni Jónu Kristínu Hauksdóttur. Árlega aðstoða þau um 80 íþróttafólk að fá skólastyrk til Bandaríkjanna í fótbolta, körfubolta, frjálsum, sundi og golfi.  Brynjar segir okkur frá ferlinu til að komast út, hann gefur góð...

Kristín Þórhallsdóttir - Kraftlyftingakona 24.09.2024

Kristín Þórhallsdóttir er sterkasti dýralæknir í heiminum, hún byrjaði í Kraftlyftingum 35 ára og er verðlaunahafi á Heims- og Evrópumeistaramótum, þá hefur hún meðal annars orðið Evrópumeistari og á Evrópumet.  Kristín ræðir ferilinn, hvernig hún kynntist íþróttinni og komst hratt í fremstu röð, þá fer hún aðeins yfir Kraftlyftingarnar, en þar er keppt í samanlögðum árangri í hnébeygju, bekkpress...

EM í götuhjólreiðum 10.09.2024

Evrópumótið í götuhjólreiðum fer fram í Belgíu dagana 11.-15. september.  Keppt er í tímatöku þar sem þau hjóla 31.2 km, og götuhjólreiðum þar sem Elite konur og U23 hjóla 162 km og Elite karla hjóla 222.8 km.  Mikael Schou afreksstjóri Hjólreiðasambands Íslands sagði okkur frá mótinu og umstanginu í kringum það, þá heyrðum við í Elite keppendunum ásamt Davíði sem keppir í U23.  Í þættinum ræða þa...

Anton Sveinn Mckee - sundmaður og Ólympíufari 03.09.2024

Anton Sveinn McKee sundmaður og fjórfaldur Ólympíufari settist hjá Silju og fóru yfir það hvað er að vera afreksíþróttamaður.  Anton gerði upp Ólympíuleikana hvað var öðruvísi og truflaði keppendur einnig ræddi hann hvað er frammundan þegar skýlan nálgast hilluna.  Þá sagði hann okkur ítarlega frá hvernig hann setur markmið og hvernig hann brýtur þau niður og hvað hann gerir til að ná þeim, hverni...

Ingeborg Eide - kastari og Paralympics fari 27.08.2024

Ingeborg Eide Garðarsdóttirer kúluvarpari úr Ármanni og keppir í flokki F37  í kúluvarpi, en hún er ein af fimm sem keppa fyrir Íslands hönd á Paralympics sem fer fram í París dagana 28. ágúst - 8. september.  Ingeborg á Íslandsmetið í kúluvarpi sem er 9.83 m og þá á hún einnig íslandsmetið í kringlukasti. Hún keppir á Paralympics þann 31. ágúst í kúluvarpi. Ingeborg þekkir stórmótin vel en hún á...

Frjálsíþrótta Ólympíu þáttur 31.07.2024

Ólympíuleikarnir eru á fullu og það styttist í frjálsíþróttaveisluna. Silja settist niður og tók saman 4 frjálsíþróttafréttir sem henni finnst áhugaverðar sem snúa að frjálsum á Ólympíuleikunum.  4:30 mín - Purple Speed King 9:30 mín - Repechage / endurtekningar umferð 14:00 mín - leiðin að Ól … eða ekki 19:30 mín - Ólympíu verðlauna afhending 12 árum seinna... skellur! Klefinn er í boði Nutrilenk...

Vésteinn Hafsteinsson - Afreksstjóri ÍSÍ 02.07.2024

Vésteinn Hafsteinsson er einn sigursælasti þjálfari okkar Íslendinga og nú er hann fluttur heim og starfar sem Afreksstjóri ÍSÍ.  Sem þjálfari þá hefur Vésteinn þjálfað 56 einstaklinga frá 10 löndum sem hafa samanlagt náð í 20 verðlaun á alþjóðlegum stórmótum - þar af 5 verðlaun á ÓL.  Hann er nú á leið á sína 11 Ólympíuleika en í nýju hlutverki, hann hefur farið áður sem íþróttamaður, þjálfari og...

Hlaupaspjall Klefans í Útilíf 26.06.2024

Þann 25. júní vorum við með hlaupaspjall í Útilíf þar sem Afreksfólk Útilífs settist niður með Silju. Þorsteinn Roy og Andrea Kolbeinsdóttir hlauparar svöruðu ýmsum spurningum um hlaup, undirbúning og fleira, þá var einnig Hildur Kristín sjúkraþjálfari með og svaraði spurningum um hlaupara meiðsli og gaf ráðleggingar.. Í þættinum ræða þau upphitun, recovery aðferðir, hreyfiflæði, hlaupaskó, meiðsl...

Listen to the Klefinn með Silju Úlfars podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.