Silja Úlfars
Klefinn með Silju Úlfars
Í klefanum þá skoðum við hvernig við náum árangri og komumst nær markmiðunum okkar. Í Klefanum þá talar allt íþróttafólk sama tungumálið! https://klefinn.is/ https://www.instagram.com/klefinn.is/
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Júlían J.K. Jóhansson - Kraftlyftingar 31.10.2025 1:22:18
Júlían J.K. Jóhannsson er þekktur fyrir framúrskarandi árangur í kraftlyftingum. Júlían hefur ekki aðeins sett Íslands- og Evrópumet, heldur hefur hann þrisvar sinnum sett heimsmet í réttstöðulyftu. Þá á Júlían á tvö brons frá Heimsmeistaramótinu í Kraftlyftingum og þá var hann Íþróttamaður ársins 2019. Júlían ræðir ferilinn sinn, hvernig hann byrjaði í kraftlyftingum, stórmótin og "skákina&...
Emil Hallfreðs - fyrrum knattspyrnumaður og “skólastjóri” 24.10.2025 1:17:35
Emil Hallfreðsson fyrrum knattspyrnumaður kom í Klefann og ræddi "passionin" sín, frá knattspyrnu, í umboðsmennsku, ítalska matargerð og fleira. Emil var atvinnumaður í knattspyrnu, hann spilaði fyrir íslenska landsliðið og hefur verið með annan fótinn á Ítalíu síðustu ár. Þá er hann með Knattspyrnuskóla á Ítalíu þar sem hann fer með ungt knattspyrnufólk út og þau æfa við bestu aðstæður...
Fanney Þóra - Handbolti og krabbamein 17.10.2025 1:07:47
Fanney Þóra var nýbökuð móðir á bleiku skýi með þriggja mánaða gamalt barn þegar hún greinist með Choriocarcinoma krabbamein og þarf strax að hefja meðferð. Fanney segir frá greiningunni, að vera nýbökuð móðir með krabbamein og hvað stuðningur fjölskyldunnar í baráttunni skiptir miklu máli. Hún ræðir endurhæfinguna og ljósið og að byggja sig upp aftur þegar þú hefur týnt þér. Fanney hefur alltaf...
Mist Edvardsdóttir - Fótbolti og Krabbamein 13.10.2025 1:18:59
Mist Edvardsdóttir var landsliðskona í knattspyrnu þegar hún greindist með Hodgkins eitlakrabbamein aðeins 23 ára gömul. Mist fer yfir ferilinn sinn, en á hátindi ferilsins þegar hún var að ná markmiðunum sínum kom krabbameins greiningin. Hún segir okkur frá ferlinu og hvernig fótboltinn hjálpaði henni í þessari baráttu, Mist missti aðeins af þrem leikjum á tímabilinu í miðri krabbameinsmeðferð. ...
Sigurbjörn Árni fer yfir Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum 11.09.2025 2:10:58
Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum fer fram í Tókýó dagana 13.-21. september. Sigurbjörn Árni sem við þekkjum öll af sjónvarpsskjánum þegar hann lýsir mótunum með sinni einstakri snilld. Sigurbjörn æfði frjálsar og eftir að hafa fylgst með öllum þessum stórmótum síðustu ára þá er hægt að kalla hann sérfræðinginn. Bjössi og Silja fóru yfir keppnisgreinarnar og sigurstranglegasta íþróttafólkið...
Hrefna Hlín - Verkefnastjóri Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 15.08.2025 58:15
Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir verkefnastjóri Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka kom í Klefann og hleypti okkur aðeins bak við tjöldin á Reykjavíkurmaraþoninu. Það er að mörgu að huga þegar kemur að því að halda svona stóran hlaupaviðburð fyrir mörg þúsund manns. Hrefna segir okkur frá því hvernig dagarnir fyrir hlaup eru, hvernig þau halda utan um verkefni 600 sjálfboðaliða, Fit & Run, brautarm...
Elísa Viðars - Næring Hlaupara - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 05.08.2025 44:38
Elísa Viðarsdóttir næringarfræðingur kom í Klefann til að ræða næringu hlaupara þar sem nú nálgast Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, sem fer fram 23. ágúst. Elísa deilir dýrmætum ráðum um hvernig hlauparar geta bætt frammistöðu sína með réttri næringu og undirbúningi. Þá er farið yfir mikilvægi næringar fyrir hlaupara, hvernig á að undirbúa sig fyrir hlaup, orkuinntöku, kolvetnahleðslu og hvernig á...
Erla Björnsdóttir - Betri Svefn 10.06.2025 43:23
Ein besta recovery aðferð íþróttafólks er svefn, Dr. Erla Björnsdóttir kom í Klefann og fræddi okkur meira um það. Erla er stofnandi og framkvæmdagstór Betri Svefns, hún er sálfræðingur, doktor í líf- og læknavísindum og með sérþekkingu á hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi. Erla ræddi svefnvenjur, áhrif svefns á heilsuna, hvað er gott svefn umhverfi og sagði okkur hvers vegna svefn er mikilv...
Hreiðar Haraldsson - Hugarþjálfari 03.06.2025 1:28:29
Hreiðar hjá Haus Hugarþjálfun aðstoðar íþróttafólk, foreldra og þjálfara að byggja upp hugarfarslega þætti eins og sjálfstraust, einbeitingu og liðsheild. Hugarþjálfun er eitthvað sem íþróttafólk ætti að skoða. Hreiðar ræðir þægindahringinn og hvernig við stækkum hann, hvernig við eigum að fókusa á það sem við stjórnum, hvernig hugrekki skiptir máli, þá fer hann yfir kvíða, stress og segir frá si...
Baldur Þór Ragnarsson – Körfuboltaþjálfari og Íslandsmeistari 27.05.2025 1:38:35
Nýkrýndur þjálfari Íslandsmeistari karla í Körfubolta mætti í Klefann og fór víða, Baldur fór yfir þjálfaraferilinn, þjálfun, styrktarþjálfun körfuboltafólks, hugarfarið og hans þjálfara speki. Hvernig hann skapar liðsheildina, teymið í kringum liðið, traust milli þjálfara og leikmanna, hlutverk þeirra, foreldravandamál og margt fleira. Þá fór hann með okkur yfir úrslitarimmuna og hvernig hann sk...
Birgir Sverrisson - Framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands 20.05.2025 1:10:23
Birgir Sverrisson framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands er sestur hjá mér og við ætlum að ræða lyfjamál. Á heimasíðu Lyfjaeftirlitsins stendur að hlutverk þeirra sé fyrst og fremst að vernda hreint íþróttafólk og standa vörð um að íþróttir séu iðkaðar á jafnréttisgrundvelli. Lyfjapróf Bannlistar ADHD lyf Fæðubótaefni og margt fleira Þá er einnig farið inn á hagræðingu úrslita og veðmál sem það...
Davíð Snorri Jónasson - aðstoðarþjálfari A landsliðs karla - KSÍ 13.05.2025 1:31:13
Davíð Snorri Jónasson aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla kom í Klefann og ræddi starfsemi KSÍ og hugmyndafræði þeirra varðandi uppbyggingu leikmanna frá unga aldri upp í atvinnumennsku. Davíð hefur starfað sem þjálfari hjá Leikni, allt frá yngri flokkum upp í meistaraflokk. Þá hefur Davíð þjálfað yngri landslið Íslands og er nú aðstoðarþjálfari A-landsliðsins, en hann er með KSÍ Pro gráðuna sem ge...
Ólafur Loftsson - Afreksstjóri GSÍ 06.05.2025 1:31:35
Ólafur Björn Loftsson er afreksstjóri Golfsambands Íslands og einn reyndasti kylfingur landsins. Ólafur á að baki glæsilegan feril sem landsliðskylfingur, þá var hann Íslandsmeistari í golfi og fyrsti Íslendingurinn til að keppa á PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri PGA á Íslandi. Í spjallinu fer hann yfir: Vegferð sína sem afrekskylfings, reynslu hans á...
Jimmy Ekstedt - fyrrum landsliðsstjóri sænska fimleikasambandsins 29.04.2025 1:19:46
Jimmy Ekstedt er Svíi með sterkar tengingar við Ísland, hann þjálfar hér á landi og er giftur íslenskri konu og saman eiga þau tvær stúlkur. Þegar þátturinn var tekinn var hann landsliðsstjóri sænska fimleikasambandsins en hefur nú sagt upp störfum þar og tekið að sér verkefni á Íslandi. Þótt Jimmy komi úr fimleikunum þá hefur hann þjálfað íþróttafólk úr öllum íþróttum, þátturinn er því fyrir fólk...
Gestur Pálmason - Stjórnendaþjálfari 15.04.2025 1:29:31
Gestur Pálma hefur komið víða við, hann er meðal annars fyrrum sérsveitarmaður og segir okkur frá því ferli. Í dag starfar hann sem stjórnenda þjálfari hjá Complete og sagði okkur frá áhugaverði nálgun stjórnenda. Gestur hefur unnið með mikið af íþróttafólki og þá hefur hann aðstoðað hlaupara í bakgarðinum og ræðir sumar áskoranir þeirra. Gestur ræðir leiðtoga og hvernig þú færð liðið til að vinna...
Perla Ruth Albertsdóttir - Landsliðskona í handbolta 08.04.2025 50:20
Perla Ruth Albertsdóttir er landsliðskona í handbolta, hún mætti á sína fyrstu handboltaæfingu 17 ára og segir okkur frá því þegar hún byrjaði, hvernig hún æfði með yngri flokkum til að fá verkefni við hæfi og eyddi mörgum kvöldum að henda bolta í vegg til að læra grunnatriðin. Perla segir frá vegferð sinni í landsliðið eftir að hafa byrjað frekar seint í handbolta, en hún á 157 leiki með íslensk...
Pétur Rúnar Heimisson - Markaðsmál íþróttafélaga 04.04.2025 1:15:21
Pétur Rúnar Heimisson er markaðs- og þjónustustjóri hjá fasteignafélaginu Heimum. Pétur hvetur íþróttafélög til að leggja meira áherslu á markaðsmál því það muni skila sér á endanum til félagsins. Núna er úrslitakeppnin hafin í handbolta og körfubolta og knattspyrnu tímabilið að hefjast, hvað eru íþróttafélögin að gera á samfélagsmiðlum. "Vörumerki íþróttafélaga eru með þeim verðmætustu á Ís...
Sigrún Haraldsdóttir - Happy Hips og bandvefslosun 04.03.2025 1:32:56
Sigrún Haraldsdóttir er eigandi Happy Hips , sem er æfingakerfi þar sem hún blandar saman bandvefsnudd, hreyfiflæði, teygjur og slökun til að fá sem mest út úr líkamanum. Hún mætti með Beinu með sér og við skoðuðum líkamann og hvernig við getum látið hann vinna með okkur. Sigrún fór yfir margt í þættinum eins og: Hvernig við rúllum okkur og hvað gerist í líkamanum Hvernig bolta viljum við frekar...
Viran Morros - retired Spanish handball player 25.02.2025 1:55:30
Viran Morros þykir einn besti varnarmaðurinn í handbolta síðustu 20 ára. Viran er spænskur 41 árs retired handboltamaður sem lék meðal annars með Barcelona Ciudad Real, Paris saint-germain, Fuchse Berlin og fleirum. Viran á bronz frá Ólympíuleikunum, þrjár medalíur frá Heimsmeistaramótinu og fjórar frá Evrópumeistaramótinu, þá hefur hann þrisvar sinnum unnið Meistaradeild Evrópu með Barcelona. Vi...
Kristinn Jónasson - Skattamál íþróttafélaga og körfubolti 18.02.2025 1:26:09
Kristinn Jónasson er lögmaður og eigandi hjá KPMG Law. Kristinn er einnig formaður körfuboltans í Haukum, en sjálfur lék hann með Haukum lengi. Þá er hann einnig einn af stofnendum körfuboltaliðs Hauka Special Olympics liðsins. Undanfarið hefur verið rætt um skattalegt regluverk í tengslu m við íþróttafélög, sem er mikið áhyggjuefni innan íþróttahreyfingarinnar. Kristinn skrifaði grein " Íþr...
Unnar Helgason - Osteopati 11.02.2025 1:36:05
Unnar Helgason er Osteopati og þjálfari, hann segir okkur frá samvinnu hans og Gunnars Nelsons sem á nú bardaga í mars. Þá vinnur hann með Eygló Fanndal sem keppir í Ólympískum lyftingum og hefur komið einmitt í Klefann. Þá hefur hann einnig unnið með fólki frá Hollywood þegar þau eru í tökum hér á landi og segir okkur aðeins frá því. Unnar fer yfir ýmislegt tengt líkamanum, axlaræfingar, mjaðmir...
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Landsliðskona í knattspyrnu 04.02.2025 1:04:53
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 23 ára er leikmaður leikmaður Bayer Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni, en er á láni frá Bayern Munich. Karólína er ein af lykil leikmönnum íslenska kvennalandsliðsins, hún hefur leikið um 50 leiki með landsliðinu og ræðir EM sem fer fram í Sviss í sumar og stemmninguna í landsliðinu. Karólína fer yfir ferilinn og leiðina að atvinnumannaferlinum í Þýskalandi, hvernig...
Dr. Birna Varðardóttir - REDs - Orkuskortur í íþróttum 21.01.2025 1:01:44
Dr. Birna Varðardóttir hefur síðustu 10 ár verið að mennta sig í því sem tengist næringu og þjálfun, þá hefur hún mikið verið að skoða hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, eða það sem við köllum REDs (Relative Energy Deficiency in sport). Á sínum tíma glímdi Birna við átröskun og þar af leiðandi langaði hana að skilja betur hvað gerðist í líkamanum og hvers vegna. Birna gerði doktorsverkefnið sitt...
Remix: Aron Pálmars & Logi Geirs 19.01.2025 21:15
Bæði Logi Geirs og Aron Pálma hafa kíkt í Klefann og rætt sinn feril, margt svipað með þeim og greinilegt að Logi hafði allskonar áhrif á Aron. Það er fyndið að bera saman sumar sögurnar þeirra, hér eru einhverjar sögurnar klipptar saman. Hlustaðu hér á Loga Geirsson. Hlustaðu hér á Aron Pálmarsson. Nú eru þeir í sviðsljósinu á HM á sitthvorum vettvangnum og þá er gaman að rifja upp eitt og annað....
Aron Pálmarsson - Landsliðsfyrirliði 14.01.2025 1:42:01
Aron Pálmarsson einn besti handboltamaður Íslands og jafnvel einn sá besti í heimi. Aron hefur leikið með mörgum af bestu liðum heims eins og Kiel, Veszprém, Barcelona, Álaborg og FH. Aron hefur unnið marga af helstu titlum í Evrópu, verið íþróttamaður ársins, rookie of the year í Þýskalandi, valinn í All Star Team á Ólympíuleikunum, MVP í Championship league og fleira. Aron fer yfir ferilinn, s...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.