Jón Ólafsson

Jón Ólafs á spjallinu

Leisure IS ↓ 36 episodes

Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á. Það er von Jóns að hlustendur verði margs vísari að lokinni hlustun.

Author

Jón Ólafsson

Category

Leisure

Podcast website

www.jon.is

Latest episode

Jul 3, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

11.þáttur: Egill Eðvarðsson 17.11.2025

Egill er afkastamesti upptökustjóri íslenskrar sjónvarpssögu.  Einnig hefur hann gert kvikmyndir, samið lög og ljóð auk þess að vera flinkur myndlistarmaður.  Á langri ævi hefur hann upplifað margt og komist í tæri við þekktasta fólk þjóðarinnar í áratugi í gegnum störf sín.  Svo veit hann upp á hár hvenær hann kveður þessa jarðvist. 

10.þáttur: Magga Stína 07.11.2025

Margrét Kristín Blöndal var í haldi ísraelska hersins í nokkra daga eftir að hafa siglt með skipinu The Conscience áleiðis til Gaza ásamt fleiri aðgerðarsinnum.  Tilgangurinn var að færa hinu hrjáða Palestínufólki á svæðinu mat og lyf.  Magga Stína hefur farið fremst í flokki íslenskra mótmælenda gegn þjóðarmorðinu á Gaza svo eftir hefur verið tekið.  Í viðtalinu heyrum við af þessu ferðalagi og ó...

9.þáttur: Óskar Bjarni Óskarsson 27.10.2025

Óskar Bjarni ætlaði sér að verða leikari en það fór öðruvísi en ætlað var.  Hann er svo mikill Valsmaður að það hálfa væri nóg.  Hr. Valur væri réttnefni.  Handboltinn á hug hans allan og hann þjálfar jöfnum höndum bestu leikmenn þjóðarinnar og börnin blíð.  Óskar Bjarni lætur konuna um að keyra bílinn úti á landi svo þau rati örugglega á áfangastað. 

8.þáttur: Björn Skúlason 23.10.2025

Fyrsti forsetaherrann á Bessastöðum elskar að elda mat fyrir sína nánustu og brennur fyrir heilsueflingu. Sjálfur er hann afreksmaður í íþróttum og stundar crossfit af miklum móð.  Björn Skúlason vildi skoða heiminn og fór frá Grindavík til Alabama í háskólanám.  Það mætti segja að sú ákvörðun hafi að lokum leitt hann í faðm Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. 

7.þáttur: Ingi Garðar Erlendsson 12.10.2025

Ingi Garðar hefur unnið eftirtektarvert starf sem stjórnandi Skólahljómsveitar Vesturbæjar og nágrennis; svo mjög að Reykjavíkurborg sá ástæðu til að útnefna hann Reykvíking ársins.  Hann hefur ferðast um víða um heim vopnaður sinni básúnu, gerir við blásturshljóðfæri og gríðarlegt safn 78 snúninga platna.  

6.þáttur: Brynhildur Guðjónsdóttir 05.10.2025

Brynhildur Guðjónsdóttir hefur verið í fremstu röð íslenskra leikara alveg frá því hún birtist okkur sem Mimi í RENT árið 1999 þar sem hún sló eftirminnilega í gegn.  Hún gegndi stöðu Borgarleikhússtjóra í nokkur ár og elskar Frakkland.  Svo segist hún vera heppin í leigubílum.

5.þáttur: Ása Berglind Hjálmarsdóttir 28.09.2025

Ása Berglind er marghöm kona sem situr nú á Alþingi Íslendinga.  Ferilsskráin er óvenju löng fyrir svona unga konu og ljóst að þarna fer engin meðalmanneskja.   Hún klífur fjöll í kjólum og hefur bragðað flest þau sæföng sem í boði eru á veitingahúsum. 

4.þáttur: Ólafur Páll Gunnarsson 21.09.2025

Ólafur Páll Gunnarsson, oftast kallaður Óli Palli, byrjaði sem tæknimaður hjá Ríkisútvarpinu en ekki leið á löngu þar til hann spreytti sig sem útvarpsmaður og sér ekki fyrir endann á því ævintýri.  Þættir hans á Rás 2 eru landsmönnum að góðu kunnir en er ekki bara tímabært  að hann setjist hinum megin við borðið og sitji fyrir svörum?

3.þáttur: Edda Björgvinsdóttir 14.09.2025

Edda Björgvinsdóttir hefur verið ein ástsælasta leikkona þjóðarinnar um árabil.  Hún hefur skapað marga eftirminnilega karaktera bæði á sviði, í útvarpi og ekki síst í sjónvarpi og kvikmyndum.  Lífið er þó ekki alltaf dans á rósum. 

2.þáttur: Ólafur Egilsson 08.09.2025

Ólafur Egilsson er höfundur nokkurra vinsælustu sýninga síðustu ára og má þar nefna Elly, Þetta er Laddi og 9 líf sem dæmi.  Það virðist hafa legið nokkuð beint við að listirnar tækju Ólaf í faðm sinn en hann ólst upp á miklu menningarheimili og eru hæfileikarnir honum vissulega í blóð bornir. 

1.þáttur: Halldóra Geirharðsdóttir 27.08.2025

Halldóra Geirharðsdóttir hefur verið í eldlínu íslenskra sviðslista um árabil og vakti fyrst athygli sem framlínukona rokksveitarinnar Risaeðlunnar þar sem hún blés í saxófón og söng.  En flestir þekkja hana þó úr leiklistinni en hún hefur leikið mörg eftirminnileg hlutverk í leikhúsi og á hvíta tjaldinu.  

Listen to the Jón Ólafs á spjallinu podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.