RÚV Hlaðvörp
Innrás froskanna
Undanfarin ár hefur ný tegund látið á sér kræla í Garðabæ: froskdýr. Í Innrás froskanna (og fleiri kvikinda) rekur Arnhildur Hálfdánardóttir slóð froskdýranna út og suður í tíma og rúmi, en þó aðallega götu fyrir götu í hinu gamalgróna Ásahverfi. Undir niðri krauma stærri spurningar um heim sem er að breytast á áður óþekktum hraða og áhrif þess á lífríkið allt í kringum okkur. Umsjón og dagskrárgerð: Arnhildur Hálfdánardóttir. Sögumaður: Benedikt Sigurðsson Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
30 kanínuholur og norrænir vinir 21.09.2024 43:18
Í sjötta þætti af Innrás froskanna og fleiri kvikinda er rætt við fulltrúa stofnana og nefnda sem tengjast framandi og ágengum tegundum. Hefur hið opinbera gerst sekt um sofandahátt í stóra froskamálinu eða er út í hött að ætla að stjórnvöld hafi einhverja aðkomu að því yfirleitt? Arnhildur reynir að stoppa í götin í froskarannsókninni og finnur samhljóm milli Íslands og Færeyja. Hosted on Acast....
Ógnarhraði snigilsins 14.09.2024 40:54
Forvitnilegir eggjaklasar þekja Breiðafjörðinn. Hvalfjörðurinn er að breytast í einhvers konar umferðarmiðstöð. Allt virðist með kyrrum kjörum á yfirborðinu en það er ekkert að marka - spurðu bara burstaorminn og bogkrabbann. Tegundirnar eru framandi, sumar ágengar og eru farnar að slá ýmis heimsmet. Það er kominn tími til að fara í alvöru felt, finna vísindamenn í fjöru og taka stöðuna á rannsókn...
Ástarbréf til Bufo Bufo 07.09.2024 39:37
Arnhildur fær loksins að halda á körtu. Nágrannar grípa til aðgerða þegar froskafár dregur æstan múg inn í garð Karenar. Tilgátan um uppruna froskdýranna þróast í ýmsar áttir og eftir stendur spurningin: Hvernig í ósköpunum fær maður frosk til að opna munninn? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hani, krummi, krókódíll, hestur, leðurblaka 31.08.2024 42:17
Er til 130 ára þýsk/íslenskt froskakyn? Hvers vegna er Húsavík einhvers konar Mekka framandi tegunda á Íslandi? Í þriðja þætti af Innrás froskanna og fleiri kvikinda fáum við svör við þessum spurningum og rýnum í innflutning á ólíklegustu dýrum, viljandi innflutning og óviljandi, löglegan og ólöglegan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Körturnar vakna og Arnhildur rennir blint í lækinn 24.08.2024 39:04
Rannsókninni vindur fram á ýmsum vígstöðvum í lífríkinu og í netheimum. Körturnar vakna af vetrardvala, Arnhildur reimar á sig gönguskóna, Internetið heldur áfram að gefa og Anna Margrét Áslaugardóttir, nemi í dýrahjúkrunarfræði lyftir rannsókninni á hærra stig. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Þegar garðurinn fylltist af froskum 16.08.2024 34:26
Snemma vors lóðsar Karen Kjartansdóttir, íbúi við Melás í Garðabæ, Arnhildi um garðinn sinn - stóran og gróðursælan garð þar sem árum saman hafa dúkkað upp froskdýr. Karen rifjar upp froskafár liðinna ára og allt sem þeim fylgdi. Leitin að uppruna froskanna er hafin og ekki úr vegi að fá ráðgjöf um vísindaleg vinnubrögð. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.