EKKERT RUSL - Lena og Margrét

EKKERT RUSL

Science IS ↓ 22 episodes

Ruslið okkar kemur upp um okkur segja sérfræðingarnir. EKKERT RUSL er að vonum skemmtilegt og lifandi hlaðvarp um umhverfismál í umsjón Lenu Magnúsdóttur, sem hefur verið umhverfissinni frá fæðingu og Margréti Stefánsdóttur, sem er ekki beint umhverfissinni en er öll af vilja gerð að læra. Við fáum til okkar skemmtilega og jafnvel óvenjulega gesti í samhengi við umhverfismál sem og viðmælendur sem þekkja hvað best til málanna. Umhverfisvernd er heita kartaflan í dag – flestir hafa eitthvað til málanna að leggja, eða vilja það að minnsta kosti. Það er ekki nóg að kaupa Teslu og telja sig umhver...

Author

EKKERT RUSL - Lena og Margrét

Category

Science

Podcast website

rss.com

Latest episode

May 23, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

EKKERT RUSL - Sea Growth er frumkvöðlafyrirtæki sem hyggst rækta fiskmeti með hjálp vísindanna með því að framleiða fiskhrávörur úr fiskfrumum, svokallaðan vistfisk. Birgitta Guðrún Schepsky Ásgrímsdóttir er einn stofnenda Sea Growth. 23.05.2024

Nýr heimur opnaðist þeim Lenu og Margréti þegar þær ræddu við Birgittu sem er einn af fjórum stofnendum frumkvöðlafyrirtækisins Sea Growth. Fyrirtækið hlaut Gulleggið 2024 en hugmyndin gengur út á það að framleiða fiskhrávörur úr fiskfrumum svokallaðan vistfisk. Ferlið er þannig að frumusýni er tekið úr villtum heilbrigðum fiski og frumurnar ræktaðar upp í þar til gerðum líftönkum. Draumurinn er a...

EKKERT RUSL - "Hættum að væla og hugsum í lausnum,, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra í líflegu viðtali. 24.04.2024

„Við verðum amk næstu tvö árin með öfug orkuskipti sem þýðir að við erum með neikvæða þróun í grænu orkunni sem við státum okkur af. Það er skortur á raforku og því þurfa fyrirtæki í stóriðju að fara í olíu aftur, losun eykst og loftslagsbókhaldið okkar hefur farið niður,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra í viðtali í hlaðvarpinu Ekkert rusl. Hann segir að við ve...

EKKERT RUSL - Carbfix er fyrirtæki sem við erum afar áhugasamar um því þar virðast gerast töfrar sem líkja eftir náttúrunni til þess að stuðla að hreinna andrúmslofti. 27.03.2024

Ásdís Nína Magnúsdóttir sem starfar hjá Carbfix segir okkur frá á lifandi hátt en Carbfix er brautryðjandi á heimsvísu í bindingu CO2 í bergi neðanjarðar. Fyrirtækið hefur frá árinu 2012 bundið yfir 90 þúsund tonn af CO2 á Íslandi með eigin tækni og íslensku hugviti. Stefnt er að frekari innleiðingu hennar bæði á Íslandi og erlendis. Coda Terminal verkefni Carbfix hlaut 115 milljón evru styrk frá...

EKKERT RUSL - Hún hefur lyft grettistaki þegar kemur að því að nýta mat þannig að allir hafi hag af. Bergrún Ólafsdóttir starfar nú sem verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Samkaupum en var áður hjá Hjálpræðishernum. 13.02.2024

Bergrún er með ótrúlegan kraft og í raun framúrstefnulega hugsun þegar kemur að því að nýta matvæli. Hún þekkir það vel sjálf að þurfa að spara og nýta vel það sem er í ísskápnum og hefur risastórt hjarta, bæði gagnvart þeim sem minna mega sín og móður jörð. Hún hikar ekki við að fara með afganga í Frískápana svokölluðu sem eru víðsvegar um bæinn og segir okkur frá því þegar hún fór í frí og tæmdi...

EKKERT RUSL - Matarleifarnar okkar eru að miklu leyti að fara í réttan flokk, eða allt að 70%, eftir að nýtt samhæft ruslflokkunarkerfi tók gildi. Þetta segir Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta-og viðskiptaþróunarstjóri Sorpu. 17.12.2023

Gunnar Dofri er skemmtilegur viðmælandi enda er hann því vel vanur að tala í mikrófóninn þar sem hann heldur sjálfur úti hlaðvarpinu Leitin að peningunum. Hann segir okkur frá því að 7 tonn eða heilir 2 gámar komi inn í góða hirðinn á dag! Við fræðumst hjá honum um plastið en það sem er óendurvinnanlegt er allt brennt. Nú fyrir jólin er gott að huga að því að frauðplastið utan um tæki og dót á all...

EKKERT RUSL - Að þessu sinni fórum við Ekkert rusl tvíeykið á Matvælaþing sem haldið var í Hörpu og settum upp pop-up hlaðvarp. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra er fyrst níu viðmælenda sem við tókum tali í þessum fræðandi og lifandi þætti. 17.11.2023

Þátturinn okkar er nú í fyrsta sinn tekinn upp sem pop-up hlaðvarp og það í Hörpu þann 15. nóvember á þingi um hringrásarhagkerfið í tengslum við matvælaframleiðslu, - dreyfingu og -neyslu. Matvælaráðuneytið stendur fyrir þinginu sem haldið var í annað sinn og er þátturinn stútfullur af fræðslu sem á beint erindi til neytenda. Til að mynda fáum við að kafa ofan í ruslið og sjáum hversu miklu hvert...

Ekkert rusl - Hvernig getum við nært okkur án þess að ganga um og of á móður jörð? Þessu svarar Þórhallur Ingi Halldórsson, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, í þessum nýjasta þætti. 01.11.2023

Lena varð kaupsjúk eftir að hafa sett sjálfa sig í kaupstraff allt árið 2022. Hjól atvinnulífsins fundu heldur betur fyrir því þetta árið að Lena væri farin að strauja kreditkortið sitt. Nú hugar hún að því að fara aftur í það að hefta kaupagleðina 2024. Sjáum hvað setur en Margrét greinir frá því að hún notar árlega vel yfir 2000 bómullaskífur til þess að þrífa á sér andlitið kvölds og morgna. Le...

Ekkert Rusl - Steinunn Sigurðardóttir okkar farsælasti fatahönnuður og listakona segir okkur frá því hvernig hún umgengst klæðnað og talar um heiminn út frá fataframleiðslu. 04.05.2023

Steinunn Sigurðardóttir er Íslands farsælasti fatahönnuður. Hún umgengst föt og textíl á sinn einstaka hátt enda eru líklega fáir með þá þekkingu sem hún hefur á ólíkum efnum, vefnaði og öllu því sem viðkemur að velja hvað passar best í flík. Hún vann á árum áður í stóru tískuhúsunum og fékk að byggja upp prjónadeildir heimsfrægra merkja. Nálgun hennar er einstök og það má enginn missa af þessum þ...

EKKERT RUSL - Freyr Eyjólfsson, Sorpu segir okkur allt sem snýr að nýrri og risastórri Góðs hirðis verslun sem opnar bráðlega. Bjarni Ágústsson, hjá ON, ræðir rafbílavæðinguna 12.03.2023

Þeir eru hressir viðmælendur þessa þáttar en Freyr Eyjólfsson hjá Sorpu lýsir fyrir okkur hugmyndafræðinni sem tengist opnun á risastórri Góðs hirðs verslun í gömlu kassagerðinni. Bjarni Ágústsson hjá ON er fróður um rafbílavæðinguna og hvernig við sem neytendur getum fengið sem besta nýtingu á rafstöðvum.

EKKERT RUSL - Vala Kristín Eiríksdóttir, sú frábæra leikkona er mikill umhverfissinni og segist vilja leita jafnvægis á nýju ári. Okkur finnst að hún eigi að fara í pólitík. Aðalheiður Jakobsen eigandi Netparta fræðir okkur um endurvinnslu á bílum. 27.01.2023

Þessar tvær frábæru konur eru viðmælendur þessa fyrsta þáttar á nýju ári. Vala Kristín vill fá dópamínkikkið sem fylgir því að kaupa sér eitthvað en hún fer þá og dólar sér í Verzlanahöllinni og leitar að gersemum til þess að klæðast. Hún notar líka fjölnota dömubindi. Hún varð umhverfissinni um 12 ára gömul þegar hún heimsótti Sorpu í fyrsta sinn. Aðalheiður Jacobsen er frumkvöðull en hún stofnað...

EKKERT RUSL - Lena er orðin smá öfundsjúk út í kaup annarra kvenna. Ræðum það og dýfum okkur í viskubrunninn Magnús Jónsson, fyrrum veðurstofustjóra sem er einnig pabbi Lenu. 01.12.2022

Nú þegar jólin nálgast þá örlar á öfund hjá Lenu Magnúsdóttur, þáttastjórnanda hlaðvarpsins Ekkert rusl, því hún upplifir að konur í kringum hana komi í hamingjukasti úr verslunarferðum með nýja skó, skart og föt. Hún er búin að hemja sig allverulega árið 2022 og kaupa ekkert nýtt nema samfellu sem hana bráðvantaði þegar hún var á leið í brúðkaup og áttaði sig á því að kjóllinn var hálfgagnsær og...

11. EKKERT RUSL - Guðný hjá SoGREEN sem framleiðir glænýja lausn fyrir fyrirtæki til þess að kolefnisjafna starfsemina. Gunnar Sveinn hjá Deloitte um aukna kröfu um kolefnisbókhald hjá fyrirtækjum. 30.09.2022

Í þættinum segir Guðný Nielsen einn stofnenda SoGREEN okkur frá íslenskri lausn sem framleiðir kolefniseiningar með því að mennta stúlkur í lágtekjuríkjum - 132 milljónir stúlkna ganga ekki í skóla. „Stúlkur í þróunarríkjum giftast margar ungar og eignast börn löngu áður en það er tímabært - ástæðan er mikil fátækt. SoGreen er fyrsta fyrirtækið í heiminum sem hefur þróað lausn í loftslagsmálum sem...

EKKERT RUSL - Kristín Laufey sem sér m.a. um sjálfbærnimál hjá 66°Norður og var áður hjá Adidas í Þýskalandi. Sigurður, stofnandi Pure North segir okkur frá endurvinnslu á plasti sem fyrirtækið sérhæfir sig. Pure North og 66°Norður eru í samstarfi. 21.08.2022

Kristín Laufey Guðjónsdóttir hefur áhugaverða sögu að segja frá árunum sem hún starfaði í Þýskalandi fyrir Adidas. Nú er hún komin heim og sér m.a. um sjálfbærnimál hjá 66°Norður. Hún segir að öll framleiðsla hafi áhrif á jörðina, gildi einu hvort þú kaupir jakka sem brotnar niður í náttúrunni því ef þú þarft að kaupa þér nýjan á hverju ári þá er það á vissan hátt eyðileggjandi fyrir náttúruna . O...

EKKERT RUSL - Kristín Helga Gunnarsdóttir um ríka, gráðuga karlinn og loftlagsvá. Hún situr í stjórn Landverndar og er rithöfundur og fjallageit en hún og maðurinn hennar eru m.a. skíðaleiðsögumenn í ítölsku ölpunum 25.07.2022

Dinna er hún kölluð og talar um að alvöru áhrifavaldar, sé fólk sem lætur til sín taka í málum sem skipta máli fyrir framþróun. Hina "áhrifavaldana" kallar hún FLENSU, stytting úr influensers. Hún segir að nú verði að vængstífa gráðuga, ríka og freka karlinn sem hengir sig á almannakerfi þjóðarinnar og græðir á því. Íslendingar verði að vinna að lausn á loftslagsvandanum í sameiningu. Allt sem þur...

EKKERT RUSL - Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumálaráðherra og fyrrum umhverfisráðherra er skemmtilegur maður sem veit meira en flestir um umhverfismál og hlýða má á viðtal við stelpur úr Vogaskóla sem segja okkur frumsamda sögu 24.05.2022

Við köllum hann bara Mumma því okkur finnst hann svo skemmtilegur og við þekkjum hann pínulítið. Okkur finnst bæði fróðlegt og gaman að heyra hann segja frá sjálfum sér í samhengi við umhverfismál en einnig hvernig Ísland er að standa sig í stóru myndinni. Við tölum líka við stelpur á unglingsaldri sem unnu samkeppni með sögu um hann Kalla. Kalli er svolítill umhverfissóði, eins og mörg okkar án þ...

EKKERT RUSL - Rafbílavæðingin sem öllu tröllríður. Runólfur Ólafsson, framkvæmdstjóri FÍB og Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju 10.05.2022

Við höldum áfram að kafa ofan í umhverfismálin og í þessum nýja þætti af EKKERT RUSL tölum við við góða sérfræðinga um rafbílavæðinguna í Íslandi. Þeir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda og Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju komu í stúdíóið til okkar og sögðu frá þeirri þróun sem er ansi hröð í framleiðslu rafbíla. Lena ætlar að kaupa sér rafbíl og Margr...

EKKERT RUSL - Ragna Sara Jónsdóttir hjá Fólk Reykjavík og Rakel Eva Sævarsdóttir hjá flugfélaginu Play 29.04.2022

Nágrannarnir í Vesturbænum, þær Ragna Sara Jónsdóttir og Rakel Eva Sævarsdóttir eru báðar leiðtogar á sviði sjálfbærni en í mjög ólíkum geirum, ein í hönnunargeiranum og hin í flugbransanum. Ragna Sara á og rekur fyrirtækið Fólk Reykjavík sem hannar og selur vandaðar hönnunarvörur undir vörumerkinu hérlendis og erlendis. Rakel Eva starfar sem yfirmaður sjálbærni hjá flugfélaginu Play. Þær eru viðm...

EKKERT RUSL - Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair ræðir um flugbransann og umhverfismál 25.03.2022

Að fljúga til og frá New York héðan samsvarar því að fólksbíl sé ekið fjóra hringi í kringum Ísland út frá CO2 losun á hvern flugfarþega. En eins og fram kemur í þessum þætti EKKERT RUSL þá er talið að flugumferð í heiminum muni tvöfaldast á næstu tuttugu árum og því leikur þáttastjórnendum forvitni á að vita hvað flugbransinn sé að gera út frá umhverfissjónarmiðum varðandi þessa auknu eftirspurn...

EKKERT RUSL - Einar Bárðarson fræðir okkur um allskonar tengt kolefnisjöfnun, plokkun og flokkun 09.03.2022

Einar Bárðarson er landsmönnum kunnur fyrir æði margt og þá ekki síst fyrir að vera öflugur plokkar og auðvitað mikill poppari. Hann stýrir Votlendissjóði og hefur mikinn áhuga á því hvernig við getum bætt okkur sem land í kolefnisjöfnun. Hann segir að fyrirtæki séu í raun fljót út af markaðnum ef þau ætla sér ekki að huga að þessum málum hjá sér og taka þátt í að snúa þróuninni við. “Um 60% af he...

EKKERT RUSL - Lena kaupir ekkert nýtt árið 2022 10.02.2022

Lena kaupir eldrauðan rafmagnsbíl og ætlar að greina frá sparnaði og lífsstílnum sem fylgir því að kaupa ekkert nýtt árið 2022. Vangaveltur um endurnýtanlega smokka koma upp. Margrét kaupir sér notaða úlpu á nytjamarkaði í Kaupmannahöfn og finnst að við öll ættum að líta í okkar eigið rusl og finna góða leið í endurnýtingu - hún leitar leiða til að bæta sig í umhverfisvernd. Þær stöllur eru nýkomn...

EKKERT RUSL - Rakel Garðarsdóttir og Margrét Marteinsdóttir höfundar Vakandi Veröld 13.12.2021

Rakel og Margrét eru frumkvöðlar á sviði umhverfisverndar og skrifuðu saman bókina Vakandi Veröld sem kom út hjá Forlaginu fyrir 7 árum en bókin á ríkt erindi til okkar allra í dag. Þær segja okkur frá því hvernig þær sjá heiminn út frá umhverfissjónarmiðum. Rakel talar um skekkjuna í því að búa á einni grænustu eyju í heimi en þurfa stundum að standa frammi fyrir því að börn megi ekki fara út að...

EKKERT RUSL - Freyr Eyjólfsson, Sorpu og Ruth Einarsdóttir Góða hirðinum 09.12.2021

Freyr sem er nýráðinn til Sorpu og er þar þróunarstjóri Hringrásarhagkerfisins, segir að það sé hreinsandi fyrir sálina að skola mjólkurfernur og hann vill ekki hafa eldhúsið sitt með hvítri kókaíneldhúsinnréttingu þar sem sál manns deyr. Hann vill blanda notuðu með nýju til að skapa heimili og hann lagar hluti - "youtubar" eins og brjálaður maður en finnur í því innri ró. Ruth, sem hefur stýrt Gó...

Listen to the EKKERT RUSL podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.