RÚV Hlaðvörp
Hvað ertu að lesa?
Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum. Umsjón: Embla Bachmann Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Saga Fíusólar og uppátæki Obbuló í Kósímó 03.03.2026 20:06
Hvernig persóna er Fíasól og í hverju lendir hún í nýjustu bókinni? Þessum spurningum ætla rithöfundurinn Kristín Helga Gunnarsdóttir og bókaormurinn Aníta Tryggvadóttir að svara. Kristín Helga segir okkur líka hvernig Fíasól fékk nafn...
Stórkostlega sumarnámskeiðið 03.03.2026 19:23
Í þessum þætti rýnum við í bókina Stórkostlega sumarnámskeiðið. Sólrún Ylfa, myndhöfundur bókarinnar, segir okkur frá því hvernig myndirnar færast af blaði í bók og hvaða myndir henni fannst skemmtilegast að teikna. Tómas Zoëga, textahöfundur bókarinnar, les upp einn kafla í bókinni og bókaormurinn Davíð segir okkur hvað honum finnst um bókina. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more infor...
Bækur Sigrúnar Eldjárn um safnið og mýrina 03.03.2026 20:44
Sigrún Eldjárn segir frá bókunum Sigrún í safninu og Fjársjóður í mýrinni. Hún lýsir því hvernig var að búa á Þjóðminjasafninu og af hverju hún teiknar persónur gjarnan í strigaskóm. Bókaormurinn Kristján Breki rýnir í þriðju...
Bækur, lag, leikrit og þættir um Orra óstöðvandi 03.03.2026 19:52
Hvernig varð Orri óstöðvandi til? Hvaðan fékk hann nafnið sitt? Hvað heitir næsta bók um Orra? Bjarni Fritzson svarar öllum þessum spurningum og fleirum! Bókaormurinn María Mist hefur lesið allar bækurnar um Orra og rýnir í&n...
Gleðilegan Öskurdag! 03.03.2026 20:37
Framundan er öskudagur og í tilefni þess ætlar Ævar Þór að segja frá Skólaslit 3: Öskurdagur. Hann segir líka frá fleiri bókum sem hann hefur skrifað og við komumst að því hvað heillar hann við hrollvekjur. Bókaormurinn&...
Draugagangur og derby 03.03.2026 20:41
Ásrún hefur skrifað bækur um hin ýmsu dýr. Hins vegar inniheldur nýjasta bók hennar engin dýr heldur drauga! Ásrún talar um áhuga sinn á skrifum og hvernig hún fékk hugmyndina að skrifa bók um roller derby. Álfrún b...
Dans á rósum 03.03.2026 19:05
Dans á rósum er fyrsta bók Auðar og fjallar um danskrakkana Bibbu, Telmu og Bjarma. Auður segir okkur frá áhuga sínum á sviðslistum og hvernig hún fór að því að gefa út bók nokkrum mánuðum eftir að hún fékk&nbs...
Hvíti ásinn 03.03.2026 19:47
Jóhanna segir okkur hvernig hún byrjaði að skrifa sína fyrstu bók og útskýrir muninn á því að skrifa fréttir og sögur. Bókaormurinn Hekla segir okkur hvað henni finnst um bókina og deilir með okkur því sem hún hefur...
Undirheimar og bækurnar um Kidda og Lindu 03.03.2026 19:22
Helgi Jónsson segir okkur frá því hvernig það kom til að hann fór að þýða bækurnar um Kidda klaufa og hver er helsti munurinn á Dagbókum Kidda klaufa og Leyndarmálum Lindu. Auk þess segir hann okkur frá nýju bó...
Draugabækur Elísabetar Thoroddsen 03.03.2026 19:16
Allt er svart í myrkrinu, Á eftir dimmum skýjum og Undir sjöunda þili eru bækur um Tinnu sem sér drauga. Elísabet Thoroddsen segir okkur frá því hvernig bækurnar urðu til og hverju við eigum von á frá henni næs...
Stellubækurnar eftir Gunna Helga 03.03.2026 20:07
Gunnar Helgason segir okkur frá Stelluseríunni sem byrjaði á Mömmu klikk og endaði á Stella segir bless. Stelluserían fjallar um Stellu Erlingsdóttur sem á skrautlega fjölskyldu sem lendir í ýmsu. Bókaormur þáttarins heitir líka S...
Kóngsi geimfari 03.03.2026 20:51
Rithöfundurinn Laufey og bókaormurinn Laufey fjalla um bókina Kóngsi geimfari. Bókin fjallar um páfagaukinn Kóngsa sem lendir í ýmsum ævintýrum ásamt Kela, bróður sínum. Kóngsi reynir að hjálpa Kela þegar hann byrjar í nýjum skóla...
Bannað að vekja Grýlu og Hinn eini sanni sveinn 03.03.2026 20:59
Hjalti Halldórsson segir frá bókunum sínum sem komu út fyrir síðustu jól og nefnir nokkur atriði sem hann hefur lært síðustu ár sem rithöfundur. Bókaormurinn Einar fjallar um bókina Bannað að vekja Grýlu sem er einmitt e...
Barnabókaárið 2024 gert upp 03.03.2026 21:16
Hvaða bækur voru vinsælar meðal krakka og unglinga á árinu? Hvaða bækur hlutu tilnefningar og verðlaun? Hvernig bækur ætli verði vinsælar á næsta ári? Embla leitar svara við þessum spurningum og fleiri með hjálp bókaormsins R...
Barnabækur á Norðurlöndum og víðar um Evrópu 03.03.2026 17:46
Hvernig barnabækur koma út í öðrum löndum en á Íslandi? Karitas segir frá barnabókum í Noregi og bókaormurinn Hjalti talar um Harry Potter bókaflokkinn og bækur eftir David Walliams sem eiga það sameiginlegt að koma frá ...
Einstakt jólatré og jólabókaflóðið á Grundarfirði 03.03.2026 17:02
Nú nálgast jólin og við höldum ótrauð áfram að undirbúa okkur. Í þessum þætti segir Embla frá nokkrum jólabókum sem er tilvalið að lesa yfir hátíðarnar og Benný Sif segir okkur frá jólabókinni sinni: Einstakt jólatré. Sv...
Bræðurnir breyta jólunum og bækur Bergrúnar Írisar 03.03.2026 17:56
Nú þegar jólasveinarnir fara að undirbúa komu sína, fjöllum við um jólasveinasöguna Bræðurnir breyta jólunum og fleiri bækur eftir Bergrúnu Írisi. Bókaormurinn Sigrún segir okkur hvað hún er að lesa og hvað hún myndi heita ef...
Ævintýrið um Augastein og jóladagatal Þorra og Þuru 03.03.2026 19:47
Desember er genginn í garð og þess vegna ætlum við að fjalla um bækur sem er tilvalið að lesa í aðdraganda jóla. Felix segir okkur frá Ævintýrinu um Augastein sem hefur verið sett upp sem leikrit margoft fyrir ...
Lögfræðingar sem skrifa fantasíur 03.03.2026 19:18
Kristín Björg Sigurvinsdóttir og Fanney Hrund Hilmarsdóttir eru báðar lögfræðingar sem skrifa fantasíur fyrir krakka og unglinga. Í þættinum rannsakar Embla hvort einhver tenging sé á milli lögfræði og ævintýrasagna og bókaormurinn Bára&nbs...
Bækur sem hafa lifnað við í leikhúsi 03.03.2026 20:51
Hvað eiga Blái hnötturinn, Mamma klikk og Emil í Kattholti sameiginlegt? Jú, þetta eru allt sögur sem hafa verið sagðar bæði í bók og leikhúsi. Í þessum þætti heyrum við Andra Snæ lýsa mismunandi uppfærslum á Bláa h...
Dagur íslenskrar tungu 03.03.2026 21:27
Í þætti dagsins höldum við upp á dag íslenskrar tungu! Við fáum til okkar Önnu Sigríði sem segir okkur frá Jónasi Hallgrímssyni og nýyrðum hans og svo kíkja þeir Hjalti og Oddur líka til okkar og tala um Íslend...
Svakalega sögusmiðjan 03.03.2026 20:45
Í þætti dagsins segja Blær og Eva Rún okkur frá Svakalegu sögusmiðjunni og við heyrum í hressum krökkum sem skrifuðu og teiknuðu sögur í sögusmiðjunni í Spönginni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hryllilegar sögur og hræðilegar skreytingar 03.03.2026 21:13
Hrekkjavakan er á næsta leiti og ekki seinna vænna að hefja undirbúning. Embla telur upp bækur sem gæti verið gaman að lesa yfir hrekkjavökuna og hjónin Bergþóra og Bragi segja frá glænýjum hryllingssögum sem þau skrifuðu&nbs...
Vísindabækur og skólatilraunir 03.03.2026 19:35
Þessi þáttur er tileinkaður vísindum. Við spjöllum við Stjörnu-Sævar og heyrum hann lesa upp úr glænýju bókinni sinni, Kúkur, piss og prump. Við heyrum líka í tilraunasnillingum í Smáraskóla sem segja okkur frá ýmsum tilraunum&nbs...
Benedikt búálfur í bókum og leikritum 03.03.2026 21:17
Benedikt búálfur er aðalumræðuefni þáttarins. Ólafur segir okkur hvernig hann skrifar bækurnar um Benedikt og Árni Beinteinn segir okkur hvernig er að leika hann. Við ætlum að kanna hversu vel Árni Beinteinn þekkir Benedikt búálf&...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.