Gunnar Georgsson

Hugarburðarbolti

Sports IS ↓ 77 episodes

22.000 manns á Íslandi spila fantasy leikinn í enska fótboltanum. Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í. Vignir Már Eiðsson og Gunnar Georgsson sjá um þáttinn. Gunnar Georgsson er einn allra sterkasti fantasy spilari landsins. Hann er í 10 sæti yfir allt Ísland og er efstur í mörgum öðrum deildum. Hann veit allt um fantasy. Vignir Már Eiðsson er annar stjórnandi Ofurdeildarinnar og einn allra sterkasti draft spilari landsins. Við förum yfir hverja umferð. Allt rætt fram og aftur. Verðum með deildina Hugarburðarbolti og sigurvegari fær verðlaun.

Author

Gunnar Georgsson

Category

Sports

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

May 28, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Hugarburðarbolti þáttur 28 GW 28 11.03.2025

Nottingham Forest skelltu Man City í Skíriskógi! Liverpool breikkar bilið. Bruno G hetja Newcastle á Ólympíuleikvangnum í London. Botnliðin halda áfram að ströggla. Tottenham og Bournemouth skildu jöfn 2-2 í skemmtilegum leik og stórleikur Man Utd og Arsenal var spennandi!

Hugarburðarbolti Þáttur 28 GW 28 01.03.2025

Liverpool bera af í deildinni og eru að stinga af. Liðin í öðru og þriðja sæti gerðu markalaust jafntefli í Nottingham. Ismaïla Sarr og Mateta í stuði gegn Aston Villa á Selhurst Park. Rauða spjald Patrick Dorgu kom ekki að sök á Old Trafford. Rodrigo Muniz með sigurmarkið gegn Úlfunum á útivelli. Danny Welbeck hetja Brighton gegn Bournemouth. Lánleysi Cole Palmer heldur áfram en Chelsea liðið sig...

Hugarburðarbolti þáttur 26 GW 26 23.02.2025

Liverpool er í frábærri stöðu í deildinni! West Ham skellti Arsenal á Emirates annað tímabilið í röð! Markaveisla á St. James Park. Tottenham með þrjá sigra í röð. Sterkir útisigrar hjá Crystal Palace , Wolves og Brentford. Marco Asensio hetja Aston Villa í endurkomu sigri gegn Chelsea.

Hugarburðarbolti Þáttur 25 GW 25 18.02.2025

Omar Marmoush fór hamförum gegn Newcastle og setti þrennu! Liverpool tóku sigur gegn Wolves en með herkjum þó. Mikel Merino kom af bekknum og reyndist hetja Arsenal á King Power. Tottenham sigraði Man Utd. Brighton lagði Chelsea á Amex. Fulham, Brentford og Everton einnig með sterka sigra. Allt þetta í GW25!

Hugarburðarbolti þáttur 24 GW 24 04.02.2025

Arsenal slátraði Man City 5-1 á Emirates! Það er búið að vera kveikt Viðnum allt tímabilið. Sjóðandi heitur!! Mo Salah skildi Bournemouth og Liverpool að í flottum fótboltaleik. Fulham vann sterkan útisigur á Newcastle á St James's Park 1-2. Jean Philip Mateta með bæði mörk Crystal Palace gegn lánlausum Man Utd mönnum í 0-2 sigri á Old Trafford og Tottenham vann frábæran 0-2 sigur á Brentford...

Hugarburðarbolti þáttur 23 GW 23 28.01.2025

Bournemouth kjöldrógu Forest liða á Suðurströndinni 5-0. Alexander Isak með tvennu fyrir Newcastle í nokkuð þægilegum útisigri gegn Dýrlingunum. Coady Gakpo með hörku leik gegn Ipswich, tvö mörk og stoðsending. Arsenal hafði útisigur gegn Wolves með naumindum 0-1 eins og Man Utd úti gegn Fulham 0-1 sigur.

Hugarburðarbolti þáttur 22 GW 22 21.01.2025

Justin Kluivert með svakalega þrennu á St. James's Park gegn Newcastle. Darwin Nunez hetja Liverpool á móti Brentford. Foden er vaknaður! Aston Villa sótti stig á Emirates til Arsenal. Forest halda áfram að vinna leiki. Fulham og Crystal Palace með sterka útisigra og Man Utd tapar enn einum leiknum í deildinni.

Hugarburðarbolti þáttur 21 - GW 21 17.01.2025

Arsenal setur pressu á Liverpool. Alexander Isak skorar og skorar. Amad Diallo kom Man Utd til bjargar. Matz Sels með enn einn stórleikinn fyrir Forest. Loks náðu Brighton í sigur. Ollie Watkins minnir á sig og Erling Braut Haaland skrifaði undir nýjan langtímasamning við Man City sem misstigu sig í vikunni gegn býflugunum í Brentford.

Hugarburðarbolti þáttur 20 _ GW 20 07.01.2025

Thurs 17:47VignirLiverpool svífa hátt á toppi deildarinnar! Þeir kjöldrógu Hamrana á útivelli. Ipswich unnu fyrsta heimasigur sinn í úrvalsdeildinni síðan 2004 þegar þeir gerðu sér lítið fyrir og skelltu stórliði Chelsea 2-0. Öskubusku ævintýri Notthingham Forest ætlar engan endi að taka. Morgan Rogers heldur áfram góðri spilamennsku og þakkar fantasy spilurum traustið. Tottenham og Man Utd halda...

Hugarburðarbolti Þáttur 19 02.01.2025

Liverpool svífa hátt á toppi deildarinnar! Þeir kjöldrógu Hamrana á útivelli. Ipswich unnu fyrsta heimasigur sinn í úrvalsdeildinni síðan 2004 þegar þeir gerðu sér lítið fyrir og skelltu stórliði Chelsea 2-0. Öskubusku ævintýri Notthingham Forest ætlar engan endi að taka. Morgan Rogers heldur áfram góðri spilamennsku og þakkar fantasy spilurum traustið. Tottenham og Man Utd halda áfram að vera í v...

Hugarburðarbolti þáttur 18 22.12.2024

Össi Árna mætti sem gestur í þáttinn. Manchester liðin halda áfram að tapa leikjum. Allt galopið á Tottenham Hotspur Stadium. Liverpool á toppnum yfir jólin. Nottingham Forest liðar áfram á góðu róli í 4.sæti deildarinnar. Sigur í fyrsta leik Vitor Perreira með Úlfana á King Power. Og Alexander Isak sökkti nýliðum Ipswich með snyrtilegri þrennu á Portman Road. 22.000 manns á Íslandi spila fantasy...

Hugarburðarbolti 17.12.2024

Amad Diallo kláraði Man City í borgarslagnum á Etihad. Chelsea setur pressu á Liverpool þar sem Fulham náði í sterkt stig á Anfield. Arsenal ráðalausir gegn Everton á heimavelli. Crystal Palace fyrstir til að leggja Brighton í Brighton. Bæði Gary O'neil og Russel Martin voru reknir um helgina.

Hugarburðarbolti 10.12.2024

Cole Palmer sýning á Tottenham Hotspur Stadium. Bætti met Yaya Toure með því að skora úr 12 vítum í röð. Það er farið að hitna sætið hjá Big Ange hjá Spurs. Flottur Mbeumo gegn Newcastle í 4-2 sigri. Bæði Man City og Arsenal misstigu sig um helgina. Man Utd töpuðu á heimavelli gegn Forest. Og Everton - Liverpool var frestað vegna óveðurs.

Hugarburðarbolti þáttur 15 GW 14 06.12.2024

Þvílík skemmtun á St. Jamse's Park í 3-3 trylli. Fyrsta tap Ruben Amorim kom á Emirates gegn Arsenal. Ollie Watkins var sterkur gegn Brentford. Lopetegui verður að vinna næsta leik annars missir hann starfið hjá West Ham. Bournemouth lagði Tottenham á suður ströndinni 1-0 og Fulham sigraði Brighton.

Hugarburðarbolti GW 13 01.12.2024

Liverpool í gírnum gegn City! City í dýpstu lægð í stjóra tíð Guirdiola. Óvænt hetja Brentford manna gegn Leicester. Vítaþrenna Justin Kluivert gegn Wolves á útivelli! Marka veisla í fyrri hálfleik hjá West Ham og Arsenal. Góðir heimasigrar hjá Man Utd og Chelsea.

Hugarburðarbolti þáttur 13 26.11.2024

Liverpool á siglingu og eru með 8 stiga forskot í deildinni. Versti kafli Man City í 18 ár þegar þeir töpuðu fimmta leik sínum í röð! Áhyggjuefni fyrir nýjan stjóra Man Utd Ruben Amorim. Tottenham yrðu meistarar ef þeir myndu bara spila 38 leiki gegn Man City. Brighton með jafn mörg stig og Arsenal og Chelsea eftir 12.umferðir.

Hugarburðarbolti GW11 14.11.2024

Man City tapaði fjórða leiknum í röð í öllum keppnum! Liverpool eru í góðum gír með 5 stiga forskot á City. Yoane Wissa drjúgur fyrir Brentford eftir meiðslin. Joao Pedro með alvöru innkomu hjá Brighton! Bruno Fernandes kom loksins með frammistöðu og Sammie Szmodics afgreiddi Tottenham í London.

Hugarburðarbolti Þáttur 11 08.04.2024

Kevin De Bruyne með sýningu á Selhurst Park. Kai Haverts er búinn að troða sokk ofan í gagnrýnisraddir. Ollie Watkins mættur aftur og setti tvö. Luton með gríðarlega mikilvægan sigur í fallbaráttunni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Hugarburðarbolti þáttur 10 05.04.2024

Tryllt þrenna hjá Foden og ekki sú fyrsta á tímabilinu. Cole Palmer er kóngurinn á brúnni. Alexis McAllister með einn eitt gullmarkið fyrir Liverpool. Fantasy spilarar grátt leiknir þessa umferðina. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Hugarburðarbolti þáttur 9 01.04.2024

Liverpool aftur á toppinn. Stórmeistarajafntefli á Etihad. Newcastle með magnaðan endurkomusigur. Spurs og Villa bæði með sigra og spennan magnast líka í fallbaráttunni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Hugarburðarbolti Þáttur 8 19.03.2024

Fantasy spilarar slógu öll met um helgina. Fulham unnu Lundúnaslaginn. Burnley náðu í kærkomin og gríðarlega mikilvæg 3 stig. Man Utd unnu Liverpool eftir framlengingu í FA bikarnum í rosalegum leik. Bestu 3 í umferðinni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Hugarburðarbolti þáttur 7 14.03.2024

Son sá um Villa á Villa park. Tvær gullsendingar bakvarðarins Ben skiluðu þremur stigum. Man Utd með sigur og jafntefli í stórleiknum á Anfield. Semenyo frábær á Vitality vellinum. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og Hirðfíflið á sínum stað.

Þáttur 6 05.03.2024

Phil Foden gulls ígildi á Etihad. Það er einn krónprins í Birmingham sem heitir Ollie Watkins. Arsenal áfram á eldi og Liverpool tóku 3 stig á elleftu stundu í Nottingham eins og Hrói Höttur sjálfur. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Hugarburðarbolti þáttur 5 27.02.2024

Liverpool vann deildarbikarinn í spennuleik. Bowen sökkti býflugunum. Bitlausir Man Utd menn án Højlund. Arsenal menn áfram á flugi. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Hugarburðarbolti Þáttur 4 22.02.2024

Sjóðandi heitur Hojlund. Eygypski töframaðurinn birtist þegar engin/n átti von á honum og stimplaði sig inn tímabundið. Skytturnar halda áfram að skjóta lið í kaf. Vonir margra fantasy spilara brotnuðu. Rauða spjaldið, kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Listen to the Hugarburðarbolti podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.